Morgunblaðið - 07.05.1967, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1967.
Ingmar Bergman og Persona
Gautaborg:
AUGLÝSINGAR íslenzku dag-
blaðanna gefa til kynna að hin
nýja kvikmynd Ingmars Berg-
mans Fersona hafi verið tekin
til sýningar á Islandi. Ég sé
einnig að kvikmyndagagnrýn-
andi Morgunblaðsins ritar um
myndina 17. marz síðastliðinn,
— en því miður af miklu gá-
leysi og furðu litlum skilningi.
Raunar fjallar greinin meira um
einhvers konar allsherjarafstöðu
til þess máls hvort kvikmyndir
eigi yfirleitt að birta opinskáar
ástarlífslýsingar en um kvik-
mynd Ingmar Bergmans. En því
efni myndarinnar nyti sín betur
nefni ég þessa grein að höfund-
tir getur þess að sér þyki sem
í skáldsögu en á kvikmynda-
tjaldú
Gríma mannsins.
Svo vill til að sama dag sem
hin nýja kvikmynd Bergmanns
var frumsýnd hér í Svíþjóð í
haust, kom efni hennar einnig
fyrir almenningssjónar í bókar-
formi (ef til of mikils ætlazt
að þeir menn sem hafa atvinnu
af því að skrifa um kvikmyndir
í dagblöð þekki til slíkra hluta?).
Bók Ingmar Bergmans (Persona,
P. A. Norstedt & Söners förlag,
skr. 19:—) er ekki aðeins óvenju-
leg að formi, heldur einnig mjög
sérstætt lestrarefni. Þetta er lít-
il bók, aðeins 95 blaðsíður að
stærð, og hefur ekki að geyma
kvikmyndahandrit, að minnsta
kosti ekki í venjulegum skiln-
ingi, heldur einhvers konar hug-
nýtir verkefni sitt til fulls í
kvikmyndinni. Með orðum Berg-
sýn skáldsins, áður en hann
mans sjálfs: Vad jag har skri-
vit tycks mig narmast likna en
melodistamma, som jag tror, att
jag med mina medarbetaris hjálp
ska instrumentera under inspel-
ningens g&ng. Vitaskuld er fróð-
legt að bera saman texta bókar-
innar og kvikmyndina, en bókina
má engu að síður lesa sem sjálf-
stætt listaverk.
Orðið persóna er komið úr lat-
ínu og merkir upphaflega gríma.
í verki Bergmans fær orðið tvö-
falda merkingu: gríman sem
maðurinn ber fyrir sér og það
sem að baki henni býr. Verkið
fjallar í stuttu máli um persónu-
skipti, hvernig einn pærsónuleiki
dregur til sín annan og gerbreyt-
ir honum.
Þögnin.
Leikkonan Elisabet Vogler
þagnaði skyndilega á miðri leik-
sýningu og fæst ekki til að
mæla eitt orð upp frá því. Að
öðru leyti virðist hún fullkom-
lega heilbrigð. Ung hjúkrunar-
kona að nafni Alma er fengin
til að hjúkra henni. Hin unga
hjúkrunarkona vantreystir sér
að annast leikkonuna, en lækn-
irinn telur henni hughvarf. Er
líður á sumar, flytja þær til
sumarbústaðar læknisins út við
strönd fyrir opnu hafi, leikkon-
unni virðist líða betur, og hjúkr-
unarkonan sendir lækninum ýt-
arlegar skýrslur um ástand
sjúklingsins. En jafnframt þessu
verður breyting á. Milli kvenn-
anna tveggja skapast spenna,
einhvers konar hljóð átök. Leik-
konan bregzt trúnaði hjúkrunar-
konunnar, sem hefur sagt henni
frá eins konar kynferðisorgíu er
hún hefur tekið þátt í, og maður
leikkonunnar blandar þeim sam-
an. Alma lætur það viðgangast.
Og smám saman tekur hinn
þögli persónuleiki leikkonunar
að orka á hjúkrunarkonuna.
Alma mætir þögninni í fýrstu
með löngum orðræðum, en síð-
an fer hún að missa tök á orð-
um sínurn, þau eru ekki lengur
„ekta“, henni finnst hún verða
tilgerðarleg, kemst í mótsögn við
sjálfa sig. Þegar eiginmaður
leikkonunnar tekur hana fyrir
konu sína, eru hamskiptin full-
komnuð. En það sem gefur verki
Bergmans fyrst og fremst dýpt
og gildi er ekki aðeins umbreyt-
ing ölmu. Leikkonan þagnar að
því er virðist af því að hlutverk
hennar valda henni viðbjóði,
henni finnst þau hálfsönn eða
blátt áfram ómerkileg. Hún vel-
ur þögnina sem afdrep, svið
raunverulegrar tilveru; snýr
baki við leiknum. En Alma flýr
frá veruleikanum til leiksins af
því að hún heldur að með því
móti verði hún sannari og raun-
verulegri. Árangurinn er hjá báð-
um hinn sami. Þær verða báðar
sama persóna, sama gríma. Það
táknar ekki að Alma verði frú
Bibi Anderson, Liv Ullmann og
töku myndarinnar Persona.
Vogler, því að hún hefur einnig
breytzt.
Og þessum hamskiptum er lýst
sem einhverju sem er fyrirfram
ákveðið og óumflýjanlegt, eins
og dulið afl knýji fram atburða-
rásina. Bf til vill má segja að
galdur endurtekninganna hægt
og sígandi taki sér bólfestu í
hugum persónanna og breyti
þeim.
Snýr baki við leikhúsinu.
Ingimar Bergmann er um
þessar mundir gestur þjóðleik-
hússins norska og setur þar á
svið Sex verur leita höfundar
eftir Pirandello, en snýr að því
búnu baki við leikhúsinu um
óákveðinn tíma. Nýlega hafa
birzt við hann tvö viðtöl,annað
í sænska sjónvarpinu, hitt í Dag-
ens Nyheter. í þessum viðtölum
ræðst Ingimar Bergmann harka-
lega á gagnrýnendur og yfir-
stjórn menningarmála í Svíþjóð.
Hann segir meðal annars að
vera sín á stjórnarstóli þjóðleik-
hússins í Stokkhólmi hafi verið
algerlega misheppnuð, því að
hann hafi haft bundnar hendur
vegna skammsýni menntamála-
ráðuneytisins í fjármálum. Hann
mun hafa barizt ákaflega fyrir
lækkuðu verði á aðgöngumiðum
og meira segja gengið svo larugt
að stinga upp á ókeypis aðgangi.
Hann bendir á að fólk geti feng-
ið ókeypis bækur á bókasönfum
og málverk lánuð heim fyrir lít-
ið gjald, en lei'khúsferð sé ennþá
dýr munaður. Telur hann að
það muni tiltölulega litlu fyrir
ríkið að gefa fólki kost á ókeyp-
is leiksýninguim.
Gagnrýnendur fá það einnig ó-
Ingimar Bergmann við upp-
þvegið. Ingimar Bergaman sakar
þá fyrst og fremst um að gera
sig of merkilega og taka sig of
hátíðlega. Mér þótti býsna
skemmtilegt að hann skyldi aug-
lýsa eftir gagnrýni, sem væri
blátt áfram lýsing og skýring á
því sem gerðist á sviðinu, með
öðrum orðum þjónusta við al-
menning í stað þess að vera að
sperrast við að móta leiklistina.
Það sé ekki hlutverk gagnrýn-
enda að boða nýjar stefnur í leik
húslist, heldur aðeins að lýsa
og skýra.
Barnaleikhús.
Ingimar Bergman telur mesta
nauðsyn á því í sænsku leikhús-
lífi að koma upp góðu leikhúsi
fyrir börn. Menn hlæja að mér,
segir hann. beaar éa held bví
fram, að bezta sýningin á Drama-
ten meðan ég var leikhússtjóri
hafi verið Dýrin í Hálsaskógi.
Hvorki leikarar né gagnrýnend-
ur hafa nokkurn áhuga á barna-
leikritum. En þar eru leikhús-
gestir framtíðarinnar, og eina
leiðin til að leysa aðsóknar-
vandamál leikhúsanna er að
kenna börnum á ungum aldri að
meta leikhús, smita þau með
leikhúsinu og gera það að hluta
úr lífi þeirra. í viðtalinu í Dag-
ens Nyheter segir hann blátt
áfram, að ef hann fái til um-
ráða 10 milljónir sænskra króna
á ári, þá sé hann reiðubúinn til
að hefjast handa strax á morg-
un við að skipuleggja og koma
á fót barnaleikhúsi, er gangist
fyrir sýningum um gervallt land-
ið. Það er eina leiðin til að koma
fólki í skilning um, hvað leikhús
er, segir hann.
Kvikmynd um stríðfT.
Er Ingimar Bergmann var
spurður um, hvað hann hefði nú
á prjónunum, er hann sneri baki
við leikhúsinu, þá sagðist hann
vera að velta fyrir sér kvik-
mynd um stríðið, það er að
segja um hið saklausa fól'k sem
lendir milli stríðandi afla. Hann
ber ekki á móti því að stríðið í
Vietnam hafi vakið þessa hug-
mynd, en neitar með öllu að taka
nokkra pólitíska afstöðu í mynd
sinni. Hún á ekki að fjalla um
málstað stríðsaðila, heldur um
örlög fólksins sem verður fyrir
herjum beggja, ruglast í ríminu,
veit ekki hver er vinur þess og
hver óvinur, vill aðeins fá að lifa
í friði, rækta akur sinn, elskast,
lifa. Það er þetta fólk sem stríð-
ið bitnar á, um hina er mér
sama.
Trésmiðjur
Þeir, sem vilja og geta tekið að sér að
framleiða í fjöldaframleiðslu ákveðinn
hlut til húsagerðar eftir erlendu patenti,
leggi nöfn sín ásamt uppl. um vélakost
og húsnæðisstærð inn á afgr Mbl. merkt:
„903.“
Jörð til sölu
Til sölu er jörðin Öxnalækur í Ölfusi,
næsti bær við Hveragerði. Veiðiréttur í
Varmá. Einnig mjög góð skilyrði til fisk-
eldis í Öxnalæk. 400 ferm. nýtt, vel byggt
hænsnahús er á jörðinni, sem má nota til
hvers sem er. íbúðarhúsið er timburhús,
tvær íbúðir. Allar nánari upplýsingar
gefa Jakob Hansen, Öxnalæk, sími um
Hveragerði svo og lögmenn, Tryggvagötu
8, símar 11164 og 22801.
Tilboð óskast í byggingu 20 íbúða fjölbýl-
ishús fyrir ísafjarðarkaupstað.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu ísa-
fjarðarbæjar og skrifstofu vorri gegn kr.
2.000.00 skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð laugardaginn 27. maí 1967 kl. 5
e.h. í skrifstofu bæjarstjórans á ísafirði.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI7 SÍNII 10140
Laxaseiði
Klakstöð Rafmagnsveitunnar við Elliða-
ár, hefir til sölu á þessu vori
gönguseiði, stór,
ársgömul seiði,
kviðpokaseiði.
Viðskiptamenn stöðvarinnar eru vinsam-
lega beðnir að leggja inn pantanir sínar
hið fyrsta.
Rafmagnsveita Reykjavíkur.
Njörður P. Njarðvík.