Morgunblaðið - 07.05.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1967.
---------------------------% ,
11
„Það má ekki minna vera
en þakkað sé fyrir sig"
Nokkur orð um Berg Pálsson, fyrrum skipstjóra
BERGUR Pálsson, skipstjóri,
var einn af brautryðjendunum í
nýjum atvinnuháttum. Kom
upp með Forsetanum. Nú er eng-
inn eftir á lífi, þeirra sem sigldu
honum upp. Bergur varð síðas‘-
ur til að taka pokann sinn. Það
má ekíki minna vera, en sú kyn-
slóð. sem nú lifir í landinu við
allsnægtir þakki fyrir sig, þegar
slíkir kveðja. í>etta er vafalaust
rétt. að það skipti þann látna
heldur litlu máli, hvað við
kunnum að segja, sem stö ídira
yfir moldum hans, en þes,u er
líkt farið og um almenna kúrt-
eisi, að hún hefur gildi fyr,r
manninn sjálfan, eins þó að eng-
inn annar veiti henni athygli Að
minnast látinna manna er ?inn-
ig tilraun til að vernda tengshn
við fortíðina og minnast þess, að
það sem er í dag á sér forsendur
í öðrum tíma.
Æviferill Bergs Pálssonar er
í stuttu máli sá, að hann fæddist
30 marz 1874 að Viðborði (ekki
Vindborði, eins og oft er sagt)
— á Mýrum í Austur-Skaftafells
sýslu. Hann gat rakið ætt sína til
Einars í Eydölum. Það er varla
of djúpt tekiS í árinni að segja
að Bergur ælist upp á hrakhól-
um, því að hann missti móður
sína í bernsku, og faðir hans
varð skömmu síðar örkumla
maður og börnin hröktust frá
honum. Bergur fluttist sex ára
að aldri til Stöðvarfjarðar og
tveim árum síðar til Fáskrúðs-
fjarðar og átti misjafna æskuna,
eins og títt var á þessum árum.
Árið 1899 réðst hanr, til Wooln-
oughs hins enska á línufiskar-
ann. Með Woolnou-gh var hann
hálft þriðja ár, en fór þá á enska
togara og var á McKenzie með
Nilsen dönskum manni, sem um
skeið var búsettur i Önundar-
firði
Bergur réðist á Forsetann
meðan hann var í smiiðum og
var einn þeirra, sem sigldu
honum upp í janúar 1907. Það er
alkunna að fyrstu togaraskip-
stjórarnir vóru afburða dugleg-
ir menn, en það er þó staðreynd,
að fjórir þeir fyrstu vóru allir
óvanir á togurum, og það var
því mjög þeim íslendingum að
þakka, sem verið höfðu úti með
Bretum, að hægt var að halda
héðan út togurum á fyrstu ár-
unum. Það var því að vonum,
að þessum mönnum var yfir-
borgað og á þeim_ mæddi mjög
hin fyrsta gerð. Á Forsetanum
var Bergur bátsmaður eða stýri-
maður um sjö ára skeið. Hann
fór í skólann 1910 fyrir áeggjan
Halldórs, og þá orðinn 36 ára
gamall. Hann tók ágætt próf
þrátt fyrir óhæga aðstöðu vegna
aldurs og engrar undirbúninigs-
menntunar. Á Skúla fógeta fór
Bergur 1914 og var á honum
stýrimaður, þegar hann var
skotinn niður á þvi sama ári.
Bergur fór þá aftur til Halldórs
og þá á Earl Herforth og var
með honum þar til Earl Har-
forth var seldur 1917. Þá vai
Bergur um tíma skipstjóú á
Snorra goða og Jón Otti stý u-
maður og þá þekktu Reykvíiv.-g-
ar áreiðanlega Berg Pálsson og
skipshöfnina á Snorra goða, því
að þetta var haustið, sem
spánskaveikin geisaði og Thor
Jensen lét þetta skip sitt veiða
í soðið fyrir Reykvíkinga og gaf
þeim soðmetið af höfðingsskap
sínum, því að hallæri var í
landi og mikil nauð.
Bergur varð stýrimaður á
Austra 1921, sem Kárafélagið
átti og var með honum þar til
1923. Bergur mun hafa átt
aksíur í félaginu. Þegar Bergur
sleppti Austra (mig minnir það
yrðu eigandaskipti að honum)
— þá varð hann stýrimaður á
Kára Sölmundarsyni með Aðal-
steini Pálssyni. Þegar Kárafélag-
ið lagði upp laupana, var félagið
Fylkir stofnað skömmu síða- og
gerði það út togarann Belgaum,
sem Aðalsteinn varð frægastur
á. Bergur átti bréf í Fylki og
hann fór í land um þessar mund-
ir og vann við útgerðina, en
skauzt túr og túr bæði á fiskirí
og eins leysti hann af í sigling-
um. Síðustu starfsárin vakti
hann um borð og dyttaði að úi-
gerðinni áfram, og þessu mun
hann hafa haldið áfram allt að
áttræðu.
Síðasta áratuginn hafði harvn
hægt um sig, og bjó hér í litiu
húsi á Bergstaðastrætinu í skjóli
barna sinna, Jóns og Guðrúnar
Jónu, en ég kann lítil deili á
einka'högum Bergs í landi. f
minningargreinum ber þó jafn-
an að nefna nokkur atriði.
Bergur var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Helga Magnús-
dóttir ættuð frá Stöðvarfirði.
Þau giftust 1906 og eru börn
þeiira: Lára, húsmóðir hér í
Reykjavík, og Helgi, sem er
hagfræðingur, kunnur maður
hér á viðskiptasviðinu. Helga
lézt úr lungnabólgu 1914. Berg-
ur kvæntist í annað sinn 1910 og
þá Mekkini Jónsdóttur, einnig
ættaðri að austan. Hún ólst upt>
á Karlsskála við Reyðarfjörð.
Börn Bergs með síðari konu
sinni eru þau, Guðrún Jðna bús
móðir hér í bæ og Jón Þórar-
inn, járnsmiðameistari. Þau
Mekkin og Bergur ólu upp
frænda sinn, Ólaf Helga Guð-
mundsson húsgangasmíðameist-
ara, frá átta ára aldri til full-
orðins ára. Mekkin lézt í ágúst
1955.
Ég er þess ekki umkominn að
gefa Bergi heitnum neina eink-
un fyrir frammistöðu hans í
lífinu. Ég v§it þó ekki betur en
hún hafi verið með miklum
ágætum. Þó að Bergur ætti við
fremur ólíð kjör að búa framan
af ævi, virtist þess ekki gæta á
nokkrun hátt í lundarfari hans.
Hann var mjög öfundarlaus og
jákvæður í skoðunum og það
var ekki vílað hjá Bergi Pá!s-
syni. Hann gat tekið munninn
fullan, ef hann þóttist þess me!
þurfa og kryddaði þá gjarnan
ræðu sína með blótsyrðum, on
allt var það rætnislaust. Bergur
var frásagnarglaður með af-
brigðum og gat gleymt sér í sög-
unni. Hann er sagður hafa verið
harðfrískur til átaka á mann-
dómsárum sínum og aldrei varð
honum misdægurt svo teljaudi
sé á þessari löngu ævi. Hann var
duglegur verkmaður, sem ljóst
er af því, að honum var yfir-
borgað meðan hann var háseti,
og sem stýrimaður var hann vök
ull og sinnugur og skipstióii
var hann farsæll og mjög sæmi-
lega fiskinn. Kjarkurinn var
óbilandi og hann var mikill
ákafamaður og sást stundum lítt
fyrir, ef honum þótti mikið í
húfL
Það er óvenjulegt að stofna til
nýrra kynna við mann á tíræðis-
aldri en það gerðist hjá okkur
Bergi og við uiðum strax miklir
mátar. Kynni ökkar urðu með
þeim hætti, að ég var að taka
saman bók um togara og frétti
að Bergur Pálsson, sem kom þar
við sögu. væri enn ofar foldu.
Ég hringdi af rælni í númerið,
sem mér var gefið upp. Það kom
hressilegur karlmaður í símann
og ég spurði hi'kandi, hvort
Bergur Pálsson væri enn svo
ern, að ég myndi geta spurt
hann nokkurra spurninga.
— Þetta er nú hann. Hvað vilt
þú, góði?
Ég var ókvæða við, og hélt
ég hefði fengið samband v:ð
himnaríki — það er svo algengt
það slái saman hjá þessum síma
— en það reyndist nú svo, að
þetta var öldungurinn sjálfur
enn hér neðra og engin ellimörk
á honum. Hann hafði furðulega
gott minni, og mundi eins það
sem var að ske frá degi til dags,
eins og hitt, sem fjarlægara var í
tímanum.
Ári síðar en þetta var, átti
ég hlut að því að taka niður við
hann langt viðtal og þá talaði
gamli maðurinn inn á segul-
bandssj>ólu viðstöðulaust í þrjá
og hálfan tíma og förlaðist
aldrei í frásögninni. Það var svo
nokkru síðar, að ég heimsótti
hann að gamni mínu og þá flutti
hann mér tvo mikla ljóðabálka.
Hann las ljóð af mikilli innlifun
og með skemmtilegum áherzl-
um og svo er sagt, að hann haíi
kunnað ljóð, eftir að hafa sk.'if-
að það upp.
Ég man að mér varð hugsað >
til þess, þar sem ég sat og virti ,
þennan öldung fyrir mér, með-
an hann las mér Ijóðin, hver3U
misdeilt er sköpum okkar mann-
anna. Þarna fékk þessi maður
að lifa langa ævL að visu erfiða
á köflum, en nú leið hún út í
friði og spekt, og honum hafði
gefizt langur tími og gott næði
til að kveðja þetta líf. Hvaða
stund sem var, gat hann tekið
saman föggur sínar sáttur við
guð og menn.
Og nú er Bergur Pálsson
horfinn til feðra sinna. Hann
hlaut hægt andlát þann 24. febr-
úar. Veiktist 17. febr., stífla í æð
eða svoddan nokkuð. Sonarson-
ur hans einn, sem er nýorðinn
læknir og gamli maðurinn var
mjög hreykinn af var kvaddur
til hans og þannig gat Bergur
Pálsson að endingu horft á sjálf-
an sig lifa áfram um leið og hann
sofnaði út af. Það er ekki erfitt
fyrir menn eins og Berg Pálsson
að deyja.
Ásgeir Jakobsson.
Hótelstarf
Þjónustufólk vantar strax í matsal á herbergi og
i eldhús. Hluti af fargjaldi greiddar.
Park Hótel, Liland. Voss Norge.
TVÖFALT
ThenmafianB
EINANGRUNARGLER *
10 ÁRA ÁBYRGD
Meira en 20 ára reynsla hérlendis sannar yfirburði
THERMOPANE einangrunarglers.
Útvegum THERMOPANE einangrunargler með
stuttum fyrirvara frá Belgíu.
Þér fáið ekki annað betra
Eggert Kristjánsson & Co. hf.
Hafnarstræti 5 — Sími 1 14 00.