Morgunblaðið - 07.05.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1967
• • 14 , *
Ornólfur Arnason
skrifar um
LEIKLIST
Absúrdistaleikhús
Hlutskipti manns-
ins án guðs
1. grein.
ÞEGAR Saraþústra Nietzsches
koma ofan úr fjöllunum til að
prédika fyrir mannkyninu, hitti
hann helgan mann, sem bjó einn
í skóginum. Gamli maðurinji
bauð Saraþústra að dveljast með
sér í kyrrðinni, í stað þess að
þústra hafnaði boði gamla
mannsins og hélt áfram ferð
sinni. „En þegar hann var orð-
inn einn, talaði hann svo til
hjarta sírns: Þetta er furðulegt!
Þessi gamli, heilagi maður hef-
ur ekki enn heyrt, að guð er
dáinn.“
Saraþústra var fyrst gefinn
út árið 1883, og á síðustu 84
árum hefur tala þeirra, sem trúa
raunverulega á guð, lækkað óð-
fluga. Margir menn féllu í
tilgang“, sem hann hefur hingað
til þarfnazt? Vesturálfa er full
af fólki, er í örvæntingu leitar
að einhverri leið til að geta með
fullri virðingu horfzt í augu við
þessa veröld, sem nú er svipt
fyrri kjölfestu sinni og tilgangi.
Absúrdistaleikhúsið fæst eink-
um við að túlka þessa leit. Það
sættir sig æðrulaust við þá stað-
reynd, að fyrir þá, sem hvorki
vita lengur neina skýringu á ver-
öldinni né tilgangi mannlífsins,
Fáránleiki mannlegs hlutskiptis. „Beðið eftir Godot“ i Iðno arið
1959—’60. Árni Tryggvason t. v. og Brynjólfur Jóhannesson í
hlutverkum trúðanna Vladimirs og Estragons.
Fáránleiki hversdagslífsins og sa mskipta manna. Myndin er af sy ningu Þjóðleikhúsins á Nashyrn-
ingunum eftir Ionesco árið 196 1 undir stjórn Benedikts Arnaso nar. Talið frá vinstri: Lögfræð-
ingurinn (Baldvin Halldórsson), kaupmaðurinn (Bessi Bjarnaso n), gamli herrann (Jón Aðils),
kaffihúseigandinn (Ævar Kvaran) og aðalpersónan Berenger ( Lárus Pálsson). — (Ljósm. Þor-
valdur Ágústsson.)
halda inn í mannhaf borganna.
Þegar Saraþústra spurði einsetu-
manninn, hvernig hann eyddi
tíma sínum, svaraði hann: „Eg
bý til lög og syng þau. Og þegar
ég bý til lög, hlæ ég, græt og
urra. Þannig lofa ég guð. „Sara-
heimsstyrjöldunum tveimur, aðr-
ir sluppu svo nauðuglega, að þeir
höfðu aðeins bjargað líftórunni,
en ekki guði sínum. Þegar guð
er allt í einu ekki lengur til,
hvað á þá að hjálpa manninum
til að gefa lífi sínu þann „æðri
er ekki hægt að halda áfram að
reisa listaverk á sama grund-
velli, úr því að hann er brost-
ur verið sviptur öllum „æðri til-
gangi“, verður hann að reyna
að horfast í augu við hið raun-
verulega líf sitt, eins og það
kemur fyrir.
Hvað hefur absúrdistaleikhús-
ið þá fram að færa, úr því að það
aðhyllist enga trúarlega eða fé-
lagslega stefnu og prédikar enga
sérstaka siðfræði?
Þessi tegund leikhúss kann að
virðast dapurleg og með nokkr-
um vonleysisbrag, þar sem hún
túlki aðeins fáránleika tilgangs-
lausrar tilveru. En beztu full-
trúum absúrdistaleikhússins ligg-
ur þó meira á hjarta en mörg-
um djarfyrtari forvígismönnum
annarra leiklistargreina, sem
hafa augljósari og markvissari
stefnu. Þeir leitast við að fá
manninn til að gera sér sem
ljósasta raunverulega stöðu sína
í tilverunni, að hrista af sér slen
hefðbundins háttarlags hugsun-
arlausrar baráttu fyrir stopulum
yfirborðsverðmætum og halda
vitund sinni stöðugt opinni.
inn, eða nota gamla mælikvarð-
ann á atferli mannsins, þar sem
verðmætamatinu hefur verið
kollvarpað. Þegar maðurinn hef-
Hver er ávinningurinn af því
að vekja vitund manna og láta
I þeim svelgjast á kreddunum,
I sem þeir hafa sopið umhugsun-
arlaust úr fjölmiðlandi ausu
samtíðarinnar? Ef „æðri tilgang-
ur“ mannlífsins hefur glatazt um
leið og trúin á guð, hvað getur
þá helzt sætt manninn við hlut-
skipti sitt? Absúrdistaleikhúsið
hefur enga fasta stefnuskrá og
auðvitað ekki neina tilreidda,
„metafÍ3Íska“ lausn á veröldinni,
sem tekið gæti við af trúnni á
guð. En hugsanlegur ávinningur
af starfi þess er að gæða mann-
inn þeim virðuleik, sem hlýzt af
skilningi og glöggri vitund.
Hvort kjósum við heldur hlut-
verk kokkálsins, sem raupar af
dyggðum eiginkonu sinnar, eða
mannsins, sem í nístandi óham-
ingju fóðrar kímnigáfu sína á
eigin áföllum?
„Absúrd“ þýðir upprunalega i
röngum dúr eða utan samhengis
i hljómlist. í enskri orðabók er
gefin þessi skýring: Úr samræmi
við skynsemi eða velsæmi; fár-
ánlegur, ósanngjarn, órökréttur.
En kannski er réttara að vitna
I skilgreiningu lonescos á orð-
inu: „^^súrd er það, sem er
sneytt iiigangi ... Slitinn úr
tengslum við trúarlegar, „meta-
físiskar“ rætur sínar, eða æðri
*&?*>*■
&
ve rz z-xjzTin^r
GRETTISGATA 32
Mikið úrval af barnakjólum og bama-
kápum.
Fallegar danskar drengjaskyrtur.
Terylene-drengjaföt á 1—2 ára.
Úrval af alls konar barnafatnaði.
Sumarvinna
í Englandi
Getum enn útvegað nokkrum stúlkum 18
ára og eldri skemmtilegt sumarstarf við
ýmis þjónustustörf á sumarhótelum á
suðurströnd Englands.
Tilvalið tækifæri að læra ensku. Frítt
uppihald. Ódýrar ferðir. Ráðningartími
frá miðjum júní til miðs september.
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN,
Austurstræti 17.
Hugleiðingar um vegamál
ÞAÐ hefur mikið verið rætt og
ritað um lagfæringu og bætur
á samgöngum til og frá Reykj a-'
vík í allar áttir. Og verður þá
Hvalfjarðarleiðin alltaf ofarlega
á baugi af því að hún er og hef-
ur verið þar vestur Þrándur í
götu.
Það þarf að sjálfsögðu að finna
lausn á þessu vandamáli sem
öðrum og er þá æskilegt að sem
flest sjónarmið korni fram, í von
um að sú lausn finnist, sem flest
ir mega við una.
Vegauppbygging úr varan-
legu efni, og þá brýr á Hvalfjörð
og Borgarfjörð er lausnin sem
virðist að sjálfsögðu eðlileg og
framtíðarlausn. Það liggur að
sjálfsögðu í augum uppi að fjár-
hagurinn sníður framvindu
þeirra framkvæmda stakk sem
öðrum framkvæmdum.
í þeim efnum vonast ég til að
fengin reynsla á Reykjanesvegi
verði látin ráða í efnisvali, þó að
steinsteypan sé nokkru dýrari í
byrjun. Svo er það brúarbygging
á Hvalfjörð sem virðist vera of-
vaxin fjármálagetu okkar í ná-
inni framtíð.
En mér virðist að hægt sé að
leysa þetta að langmestu leyti
þangað til að hagur strimpu
hækkar svo að vega- og brúa-
byggingar verða mögulegar. Með
þetta í huga vil ég að rannsak-
aðir verði möguleikar á því að
létta meginhluta allra þunga-
flutningum, bæði fólks og vöru-
flutningum af þessari leið, og
farið með það yfir Faxaflóa frá
Reykjavík upp fyrir Borgarnes.
Þetta álít ég að megi gera fyr-
ir viðráðanlegt verð, að minnsta
kosti vildi ég að það yrði gaum-
gæfilega athugað af þeim aðilum
sem þessum málum ráða. Með
því að byggð yrði umferðamið-
stöð, fyrir fólks- og vöruflutn-
inga á Mýrum þar sem vegirnir
frá Borgarnesi fram Norðurárdal
og vegurinn vestur Mýrar á
Snæfellsnes mætast, mætti þetta
takast. Þessi vegamót eru því
sem næst 146 km. frá Reykjavík
eins og vegurinn núna, en frá
Reykjavík yfir Faxaflóa eru
þetta réttir &0 xm.
Þessa leið aka 23 áætlunar-
bilar á viku hverri með til jafn-
aðar 35 sæti hver, en nýting sæta
aðeins 28%.
Mér hefur ekki tekizt að fá
upp hve margar vöruflutningabif
reiðar fara þessa sömu leið, þrátt
fyrir mikla eftirgrenslan, en
vegamálaskrifstofan telur að það
muni vera 10 til 15% til sam-
ans, það er fólksflutnings áætl-
unar- og vörubílar .
Og er ekki ólíklegt að það sé
milli 40-60% af þeim þunga sem
um veginn fer, þá hygg ég að á
sama hátt megi flytja megin
hávaðann af þeim einkabílum
sem þessa leið-þurfa að komast.
Auðvitað kæmu helgar, sem
ékki vægi hægt að anna eftir-
spurn, en ef hægt væri að létta
40-60% af þeim þunga af vegin-
um, sem nú fer um hann, ætti
það að auðvelda viðhald hans
nokkuð mikið.
Það þyrfti þá að sjálfsögðu að
vera afgreiðslustaður fyrir þessa
ferju í eða við Reykjavík, og hef
ur mér þá helzt komið í hug, að
hann yrði í Örfirisey, af því að
hún liggur í leið milli Reykja-
víkur, Akraness og Borgarness,
sem þessi ferja mundi að sjálf-
sögðu þjóna jafnhliða.
Sá farkostur sem örugglega
getur annast þetta er Hovercraft
loftpúðaskip af gerðinni BiH 7,
sem getur farið þessa leið frá
dyrum afgreiðslu í Örfirisey að
dyrum afgreiðslu á Mýrum á
hálfri klukkustund, ef alda væri
1% til 2m þá yrði það um 40
mínútur.
Afferming og ferming þyrfti
ekki að taka meira en 10 til 15
mínútur svo að hér viriðst sem
um sé að ræða mjög athyglisvert
mál. Og það má án nokkurs vafa
leysa flutningavandamál Skaft-
fellinga frá Vík í Mýrdal til
Hornafjarðar með sama hætti.
Sigurður Erlendsson.