Morgunblaðið - 01.06.1967, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1967.
3
Yfiriýsing frá Jóni Hnefli
Aðalsteinssyni vegna skrifa
Tímans um Fáskrúðsfjaröar-
hneykslið
VEGNA skrifa Tímans í dag
vil ég undirritaður taka fram
eftirfarandi:
Viðtöl þau, sem ég tók við
Guðjón Friðgeirsson, kaupfé-
lagsstjóra á Fáskrúðsfirði, og
Jón Erling Guðmundsson,
sveitarstjóra, sama stað, áttu
sér stað á heimili þessara
manna hvors um sig. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu
voru viðtöl þessi mjög stutt,
enda aðeins spurt um eitt
atriði, þau atvik er gerðust á
Fáskrúðsfirði tveimur nótt-
um áður en viðtölin voru tek-
in. Ég skrifaði orð þeirra Guð
jóns og Jóns Erlings niður
jafnharðan, og sumt af því,
sem ég hafði skrifað niður
eftir Guðjóni las ég honum
aftur til þess að hann gæti
fullvissað sig um, að það
væri rétt eftir haft. Orð þess-
ara manna hafa því ekki
brenglazt í mínum meðför-
um.
Hitt get ég vel skilið, að
Tímanum og forustuliði Fram
sóknarflokksins þyki þessir
menn hafa verið of hrein-
skilnir og opinskáir við blaða
mann frá Morgunblaðinu og
leggi því kapp á að fá þá til
að afneita orðum sínum.
Þetta hefur þó ekki tekizt og
í áðurnefndri Tímagrein er
engu orði mótmælt úr viðtöl-
unum við þessa menn. Hitt
er annað mál, að Tíminn hef-
ur það eftir Guðjóni kaupfé-
lagsstjóra, að hann hafi eng-
um starfsmanni hótað hrott-
rekstri. Getur hver metið
þessi orð, eins og hann vill,
og borið þau saman við þær
yfirlýsingar, sem Guðjón gaf
mér um afstöðu sína og við-
horf til þeirra starfsmanna
kaupfélagsins, sem fylgja
Sjálfstæðisstefnunni. Hér við
bætist, að ég hef það milli-
liðalaust frá nokkrum ung-
mennum, að þeini hafi verið
sagt, að þeim yrði vikið úr
starfi, ef þau gengju í Sjálf-
stæðisfélagið. — Þetta er
kannski ekki hótun, heldur
bara vinsamlegar upplýsing-
ar, að skilningi þeirra Fram-
sóknarmanna!
Jón Hnefill Aðalsteinsson.
VIÐREISN
I VERKI
NÝIR j
MENNTASKÓLAR !
í LÖGUM frá árinu 1965 j
er gert ráð fyrir stofnun \
menntaskóla á ísafirði og \
Austurlandi, og í sömu lög- \
um er heimiiað að koma á t
fót kennslu í námsefni ,
fyrsta beíkkjar mennta-
skóla við gagnfræðaskóla,
þar sem n&mendafjöldi og
önnur skilyrði gera slfika
ráðstölfun eðlilega og fram
kvæmanlega. Framkivæmd
þessara laga mun sérstak-
lega auka möguleika ungs
fólks á Vestfjörðum og
Austurlandi til þess að afla
sér framihaldsmenntunar.
** ^ ^
Landshappdrœtti
Hafnarfirbi
Miðar í Landshapp-
drœtti Sjálfstœðis-
flokksins eru til sölu
í verzlun Jóns
Mathiesen
FRAMBJÓÐENDUR Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands
kjördæmi eystra efndu til
kjósendafundar i Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri sl. mánu-
dag. Fundinn sóttu um 350
manns og var gerður mjög
góður rómur að máli ræðu-
manna, sem voru þeir dr.
Bjarni Benediktsson, forsæt-
isráðherra, Jónas G. Rafnar,
alþingismaður, Magnús Jóns-
son, fjármálaráðherra, Bjart-
mar Guðmundsson, alþingis-
maður, og Gísli Jónsson,
menntaskólakennari. Fund-
arstjóri á fundinum var Jón
G. Sólnes, hankastjóri. Kom
greinilega fram á fundi þess-
um sá mikli sóknarhugur,
sem nú er ríkjandi hjá Sjáif-
stæðismönnum i Norðurlands
kjördæmi eystra. Myndin er
frá hinum fjölsótta fundi á
Akureyri.
Sumuleylisbíllinn lyrir 100 hr.
Kjörskrárkœrur
NÚ ER sumarveðrið allsráðandi, jörðin grænkar og
grasið grær sem óðast eftir vetrarfrostið og myrkrið.
Nú fer sá tími í hönd, að menn fara að skipuleggja
sumarleyfið. Sumir fara suður til baðstrandaland-
anna, aðrir vilja njóta kyrrðar og fegurðar íslenzku
náttúrunnar. Til þess að geta ferðazt um landið þarf
auðvitað eitthvert farartæki, og hvernig fyndist ykk-
ur að eignast slíkt farartæki fyrir aðeins 100 kr. —
Hvernig er það hægt? Því er auðvelt að svara. Kaup-
ið miða í landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins, sem
býður upp á 5 evrópskar bifreiðir eftir aðeins 5 daga.
Látið því ekki dragast að kaupa miða eða gera skil,
því að sá sem ekki kaupir miða hefur auðvitað enga
möguleika á að eignast bifreið fyrir 100 kr.
KJÓSENDUR eru hvattir til að athuga, hvort þeir eru á
kjörskrá. Rétt til þess að vera á kjörskrá í Reykjavík hafa
allir þeir, sem þar voru búsettir 1. dies. sl. og verða 21 árs
eiigi sáðar en á kjördegi.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Lækjargötu 6B,
aðstoðar við kjörskrárkærur. Skrifstofan er opin daglega
frá 10—10. Upplýsingar um kjöskrá eru veittar í síma 20671.
Kjörskrárkærur sérstaklega á mil'li 9—5 í síma 24940.
Utankjörsta&akosning
Bilar á kjördegi
ÞEIR stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem vilja lána
híla á kjördegi gjöri svo vel og hafi samband við skrifstofu
bílanefndar. SÍMI 15411.
UTANKJÖRSTAÐAKOSNING fer fram í Melaskólanum
daglega kl. 10—12, 2—6 og 8—10 nema sunnudaga.
Þeir sem fjarstaddir verða á kjördag eru hvattir til þess að
kjósa. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Lækjargötu
6B, símar 19709 og 16434. Veitir allar upplýsingar.
SIAKSTtllVAR
Kveðja kommúnista
til gamla íólksins
KOMMÚNISTAR senda ölde-
uðu fólki kveðju í Þjóðviljanum
í gær. Húu er svohljóðandi:
„f sama mund sem hvatningar-
ræða þessara ungu kjósenda
stóð sem hæst, renndi í hlað á
kjörstaðnum bíll, einn af hinum
fjölmörgu kosningasmölum Sjálf
stæðisflokksins. Út úr honum
leiddi hann fjögur hrum gamal-
menni á Hrafnistu — þar ætlaðl
ihaldið sér fjögur atkvæði. Með
fullri virðingu fyrir þessum
gamalmennum og lifi þeirra og
starfi fyrir þjóðina á liðinni tið
er þessi sviðsmynd táknræn fyr-
ir það sem nú er að gerast i
þessum kosningum". Sú kyn-
slóð, sem hefur með dugnaði og
atorku, öllum öðrum kynslóðum
fremur breytt íslandi úr fátækn
bændaþjóðfélagi í nútíma ve*-
megunarríki, ætti að taka vel
eftir þessari ósmekklegu kveðja
kommúnistablaðsins. Æskan er
mikilsverð en hvers virði er
framtíðin og velmegunin unga
fólkinu sjálfu ef það gleymir því
fólki, sesn það á fyrst og fremst
að þakka þá vefeæld siem íslenzk
æska býr við. Þjóðviljinn virð-
ist hins vegar ekki þeirrar skoð-
unar að íslandi eigi gamla fólk-
inu neitt að gjalda. Hann heldur
áfram að sletta úr klaufum sín-
um ónotum að öldruðu fólkfc
„Kosningasmalar íhaldsins draga
gamalmennin á kjörstað
Þessi ónotalegu orð gleymast
ekki. Það munu kommúnistar
sannfærast um fyrr en varir.
Sumarleyfi jdmsmiða
Þjóðviljinp segir í gær, að
járnsmiðir, sem hugðust halda
til suðlægari landa í sumarleyfi
sínu, afturkalli nú pantanir
sínar. Sé þetta rétt virðist ástæð
an augljós. Hin óvinsælu skyndi-
verkföll í járniðnaðinum, sem
járniðnaðarmenn hafa verið
mjög óánægðir með hafa auðvit-
að dregið svo mjög úr tekjum
þeirra, að þeir af þeim sökum
hafa neyðst til að hætta við ut-
anlandsferðir sínar. Skýringar
kommúnistablaðsins á þessu
fyrirbæri falla hins vegar nm
sjálfar' sig. Það segir að járn-
smiðir hafi pantað far „í vetur**
en segir svo jafnframt og hefur
bamrað á því í lengri tíma og
svo mánuðum skiptir, að mik-
U1 samdráttur og tekjurýmun
hafi orðið í járniðnaðinum. Járn
smiðir hafa greinilega ekki ótt-
ast það ,,» vetur“ þegar þeir
lögðu inn pantanir sinar.
Búksorgimar
Það er svo á hinn bóginn kát-
legt að sjá nú manninn, sem
kveinaði yfir þvi að „búksorg-
irnar væru ekki eins nær-
göngular og áður“ um áramótin,
þenja sig út í hneykslun vegna
þess að ákveðinn hópur manna
telur sig ekki hafa efni á að
fara til Spánar í sumarleyfinu.
Megum við kannski eiga von á
því að „hnattferð fyrir alla“
verði krafa Þjóðviljans í næstu
kjarasamningum verkalýðsfélag-
anna?
Kostuleg skrif
Þjóðviljinn var kostulegur i
gær eins og sjá má af þeirri
staðreynd að ástæða hefur þótt
til að helga honum þennan dálk.
Hann segir í leiðara að „sam-
þykkt SH sé í rauninni þungur
áfellisdómur“ um ríkisstjórnina.
Er það einhver „áfellisdómur"
um ríkisstjórnina, þótt hrað-
frystiliúsmenn bendi á að með
eindæmum léleg vertíð hafi
reynzt hraðfrystihúsunum erf-
ið? Það væri fróðlegt ef Þjóð-
viljinn vildi svara því.