Morgunblaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1967.
BÍLALEICAN
- FERÐ -
Daggjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SIMI 34406
SENDUM
MAGNÚSAR
skipholti21 símar 21190
eftir iokun simi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti II.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaidi.
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
j . .—Z J0/ÍA iffSAM
LrtM.iyjœtt'
BAUOARARSTlG 31 SlMI 22022
Fjaðrfr. fjaðrablóð. hljóðkútar
púströr o.fl varaiilutir
i margar gerðir bifreiða
Bíiavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180
LOFTUR ht
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 1-47-72.
l(roydon»
GOLFKYLFUR
heimsþekktar
í meir ein 50 ár
af reynsiu
og gæðum.
Skíðaskóhnn
í Kerimgafjöllum
Sinu 1047•
mánud — föstud. kl 4—6,
iaugard. kL 1—3.
ÍT Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar
Hér kemur Iiálfgert eug-
lýsingabréf, sem Velvakandi
er smeykur við að birta, því að
nú á hann á hættu að kafna
í bréfum frá vinum og aðdá-
endum allra hljómsveita á land
inu. En gerum úndantekningu,
af því að Velvakandi veít, að
bréfið er ekki sent frá neinum
nákomnum hljómsrveitinnL
„Kæri Velvakandi! • .
Við erum hér nokkrar fjöl-
skyldur, sem stöndum að þessu
bréfi.
Þetta er ekki nöldurbréf,
heldur þvert á móti. Við ósk-
um eftir, að þú birtir þetta
bréf undir fyrirsögninni: Hljóm
sveit Ragnars Bjarnasonar, þvi
að okkur finnst að það sé kom-
inn tími til, að þeir sem gott
gera fái að heyra frá okkur,
sem ánægðir erum.
Við höfum farið nokikrum
sinnum í Súlnasal Hótel Sögu,
en þar hefur hljómsveitin ætíð
gert okkur kvöldið eftirminni-
legt, og vitum við, að flestir,
sem þangað koma eru á sama
máli.
Að endingu viljum við þakka
þeim félögum fyrir þann skerf,
sem þeir lögðu til þáttarins
„Á rauði ljósi“, sem að okkar
dómi var með því betra, sem
sést hefur í íslenzka sjónivarp-
inu að öllu öðru ólöstuðu.
Fjölskyldur".
■jAr Skömm var að
sænsku sjóliðunum
„Miðborgari" skrifsu:
„Kæri Velvakandi!
Ég get nú ekki stillt mig um
að skrifa þér, eftir að hafa svo
að segja fylgzt með atferli
sænsku sjóliðanna, er hér voru
á dögunum, út um gluggann
minn og á rölti mínu um borg-
ina.
Oft hafa blöðin hneyklazt á
hegðun erlendra sjóliða, sem
hér hafa verið í höfn um stund-
arsakir, og ekki síður á siðlausu
athæfi unglingstelpna, sem elt
hafa þá á röndum og teymt þá
með sér á afvikna staði í út-
hverfum og almenningsgörð-
um, því að vegna aldurs hafa
þær ekki haft aðgang að eigin
húsnæðL Það er nú eins og það
er með sjómenn og sjóliða í
landi. >eir þurfa að fá sína út-
rás í brenni/vínsdrykkju og
kvennafari. Lái þeim það hver
sem vill. En hægt er að fara
að hlutunum á mismunandi sið-
aðan hátt.
Það vakti athygli nú fyrir
stuttu, hve NATO-sjóliðarnir,
sem voru hér í nokíkra daga í
æfingahléi, komu prúðmann-
lega og stillilega fram í hví-
vetna. Mig minnir, að skipin
hafi verið brezk, hollenzk og
bandarísk — og e. t. v. frá
fleiri NATO-þjóðum. Þessir
menn kunnu greinilega manna-
siði og almennar hegðunarregl
ur.
ÍT Mikill munur
Mikill var svo munurinn,
þegar þessi tundurspillir, „Hal-
land“ hét hann víst, kom hér
við á leið sinni til heimssýn-
ingarinnar í Kanada. Það er
vonandi fyrir sænska menn-
ingu, að þessir dátar eigi ekki
að vera sýningargripir þar
vestra, ég segi ekki meira. Því
að meiri siðleysingja og dóna
en þessa sænsku sjóliða minn-
ist ég ekki að hafa séð hér á
á götum Reykjavíkur. Flestir
voru þeir útúrdrukknir, skít-
ugir og illa til reika, þegar leið
á landgöngutímann. Þeir ráf-
uðu um göturnar í misfjöl-
mennum flokkum, stútuðu sig,
sungu klámvísur og kölluðu
klúryrði á eftir kvenfólkL
Þegar þeir þurftu að kasta af
sér vatnb gerðu þeir það hvar
sem var og fóru ekki dult með
það. Frekar virtust þeir sækj-
ast eftir því, að sem flestir
tækju eftir verknaðinum, og
sumir flettu sig klæðum af
engu tilefni nema þá til að
sýna sig kvenfólki af einhverj-
um ónáttúrugemsahættb
-jAr Misþyrmingar
Þá höfðu þeir sýnilegt
yndi af því að misþyrma fólkb
íslendingur einn var beðinn
um eld, og í launaskyni var
hann laminn svo rækilega, að
bæði augu sukku, og fleiri
áverka fékk hann. Tvo Svía,
ekki tiltakanlega fulla, sá ég
nálgast unglingspilt og fara
eitthvað að babla við hann.
Annar Svíinn tók upp vindla-
pakka og rétti í áttina að pilt-
inum, um leið og hann bauð
honum einn sígar. Þegar pilt-
urinn teygði sig eftir vindlin-
um, notaði Svíinn tækifærið og
sló piitinn roknahögg á vang-
ann, svo að hann rauk um kolb
Þegar pilturinn staulaðist ringl-
aður á fætur, stukku Sviarnir
skellihlægjandi fyrir horn og
voru allir á burtu. Ég bauð
piltinum að ná í lögregluna,
en ásamt mér voru a. m. k.
tveir vagfarendur vitni að at-
burðinum, en pilturinn kærði
sig ekki um það.
I einu og öllu var þessi heim-
sókn Svíum til háborinnar
skammar. Verður henni helzt
jafnað við það, þegar sovézkir
sjóliðar urðu uppvísir að þvi
hér í Reykjavíkurhöfn fyrir fá-
einum árum að tæla tólf til
þrettán ára telpur um borð og
láta þær taka þátt í fjölda-
orgíum. Nei, má ég þá heldur
biðja um ítölsku sjóliðana
aftur. Þeir verða kannske kven
samir hér, þegar stúlkurnar
ráðast að þeim, en þeir eru
þó ekki fullir og lemja ekki
fólk.
Með ósk um að „Halland14
komi ekki hér við á heimleið-
inni.
„Miðborgari".
W). I HRIN6VER VEFNAÐARVORUVERZLUN
Nýtt efni
Ull og crimplene.
Ullarmýkt. — Crimplene eiginleikar.
Einlit — skáofin.
AUSTURSTRÆTI 4
SIMI 179 0
Lóan tilkynnir
Nýkomnir felpna sumarhattar
og meðfylgjandi töskur í stórglæsilegu úrvali. Ath.
seljum næstu daga alls konar barnafatnað á lækk-
uðu verði. Svo sem telpnakjóla, drengja- og telpna
útiblússur og jakka. Sólföt og fleira.
Barnafataverzlunin Lóan
Laugavegi 20 B (Gengið inn frá Klapparstíg
á móti Hamborg).
*aa
6ENERAL
TIRE
NYGENstriginn er
STERKARI EN STÁL
INTERNATIONAL
300% söluaukning á
GENERAL jeppa hjól-
barðanum á sl. ári
sannar ófvírœtt
yfirburði hans
ADEINS
GENERAL HJÚLBARÐINN ER
MEÐ NYGEN STRIGA
rGENERAL,
INTERNATIONAL
lilölbapðinn hff.
LAUGAVEG 17S SlMI 35Z60