Morgunblaðið - 01.06.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1967.
5
50 ára afmœlis Skáta-
félags Akureyrar minnst
meb margvislegum hátiðahöldum
á Akureyri
ÞEGAR menn fóru að tínast til
vinnu sinnar á laugardags-
morgni, hinn 7. maí, gaf á að líta
þegar komið var á Ráðhústorg.
Þar var risinn turn mikill á
þremur fótum og tjaldborg í
kring. Dillandi músík glumdi i
eyrum og margt manna var þar
á þönum. Það reyndust vera
skátar sem þarna voru að verki
og höfðu þennan viðbúnað í til-
efni 50 ára afmælis félags sáns
hér í bæ. AUan daginn voru
fulltrúar hinna fjölmörgu félaga
og stofnana sem skátarnir hafa
haft einhver samskipti við, að
koma og flytja þeim árnaðar-
óskir og í einu tjaldinu var skinn
eitt ógnarlangt hvar menn rit-
uðu á nöfn sin gegn vægu
gjaldi.
Síðdegis buðu skátafélögin til
kaffidrykkju í Sjálfstæðishús-
inu. Meðal þeirra sem þangað
var boðið voru stofnendur fyrstu
skátafélaganna á Akureyri en
þeir munu vera 6 á lífi auk
Viggós Öfjord, sem þarna var
kominn frá Danmörku í boði
skátafélaganna. Þrír þessara
frumherja voru þarna mættir
Eggert Stefánsson, Sverrir
Ragnars og Carl Tulinius og
færðu skátafélögin þeim þakkir
og gjafir fyrir frumherjastörf
þeirra. Þeir þrír stofnenda sem
ekki gátu mætt eru þeir Stefán
Viimundar, Svanbjörn Frí-
Skátagangan undirbúin
Turn skátanna á Ráðhústorgi
mannsson og Vigfús Friðriks-
son.
Hrefna Tynes sem hingað kom
sem fulltrúi Bandal. ísl. skáta
sæmdi tvo Akureyrarskáta
næst æðsta heiðursmerki skáta,
skátaveðjunni fyrir frábær
störf í 25 ár, þá Ríkarð Þórólfs-
son og Dúa Björnsson.
Þá töluðu fulltrúar fjölmargra
félaga og færðu þeir skátunum
Skátaskemmtun í íþróttaskemmunni. Ljósm. Gunnl. Kristinsson.
gjafir og árnaðaróskir.
Tryggvi Þorsteinsson og Mar-
grét Hallgrímsdóttir röktu sögu
skátastarfs á Akureyri í stuttu
máli.
Forgöngumaður um stofnun
fyrsta félagsins var Viggo
Öfjord og var hann fyrsti sveit-
arforinginn. Næstu tvö árin er
skátareglan í örum vexti en þá
flutti'st Öfjord alfarinn til Dan-
merkur. Áhugi stofnendanna
dvínar og starfsemin leggst nið-
ur. En einn var sá stofnandanna
sem ekki gáfst upp, það var
Gunnar Guðlaugsson. Árið
1921 fór hann að undirbúa stofn
un nýrrar skátasveitar í sam-
ráði við sjálfan Baden Powell.
Hann þýddi skátalögin úr ensku
og hinn 8. apríl 1921 var hin
nýja sveit stofnuð og hlaut nafn-
ið ísbirnirnir og flokkarnir
báru einnig dýranöfn.
Margt tóku skátar sér fyrir
hendur á þessum árum. M.a.
ráku þeir um skeið almennings-
baðhús, reyndu að stofna lúðra-
sveit o. fl. Mikið var um víða-
vangsleiki og hverskonar íþrótt-
ir. Með öðrum orðum það var
alltaf nóg að gera og félagsskap-
urinn blómstraði undir stjórn
Gunnars.
Árið 1932 er stofnað félag
eldri skáta að tilstuðlan Jóns
Norðfjörð og voru stofnendur
flestir eldri skátar úr skáta-
félagi Akureyrar. Starfsemi
þeirra stóð með miklum bióma
næstu árin.
Árið 1938 voru drengjaskáta-
félögin orðin 4 og var þá horfið
að því ráði að sameina þau öll i
eitt félag og var það formlega
gert 1. jan. 1939. Sveitin hlaut
nafnið skátafélag Akureyrar og
var Haukur Helgason kjörinn
foringi hennar og var það í eitt
ár. Næstur tók við sr. Friðrik
Rafnar og var foringi til 1941 að
við tók Tryggvi Þorsteinsson
og hefur gengt þeim störfum
síðan.
Akureyrarskátar hafa sótt
mörg skátamót erlendis m.a. I
Hóllandi, Frakklandi, Englandi,
Noregi og Danmörku. Þeir hafa
einnig greitt götu skáta frá
mörgum löndum.
Árið 1941 andaðist Gunnar
Guðlaugsson og arfleiddi hann
skáta að öllum eignum sínum,
Framhald á bls. 24
■ ■
VORUSYNINGDf I
LAUGARDALSHÖLLINNI
A sýningunni má sfá m. a. eftirtaldar vörur:
Vefnaðarvörur, fatnaður, skófatnaður og leðurvörur, gólfteppi véllinýtt, gólfteppi handhnýtt frá Turkmenistan, búsáhöld, rafmagnsvörur,
gler- og postulínsvörur, bæheimskar krystalvörur, matvörur, íþróttavörur, viðleguútbúnaður, veiðibyssur, markbyssur, hljóðfæri, hljóm-
plötur, plötuspilarar, segulbandstæki, útvarpstæki, bækur, frímerki, leikföng, pappírsvörur, skólavörur, saumavélar, ritvélar, reiðhjól,
mótorhjól, hjólbarðar, timburafurðir, járnvörur.
Ennfremur: Bifreiðir, mótorar, járnsmíðavélar; trésmíðavélar, logsuðuvélar, lyftikranar, gaf fallyftarar, ámokstursvélar, jarðýtur, dráttar-
vélar, landbúnaðarvélar, strætisvagn o. fl.
Sýnd eru: Líkön af fiskibátum, skuttogurum, margar stærðir, fiskveiðimóðu rskipum, fiskiðjuveri, raforkuveri, til-
búnum húsum.
Daglega eru: Fatasýningar með pólskum sýningardömum og herrum. Kvikmyndasýningar
frá 5 löndum. Bilasýningar. Listsýn ing á auglýsingaspjöldum. Veitingar
ÞÁTTTÖKULÖU: PÓLLAM, SOVÍTRÍKIK TLKKÓSLÓVAKÍA, UIVIGVERJALAIilD OG ÞVZKA ALÞVDULVÐVELDID
SÝNINGIN ER OPIN DAGLEGA KLUKKAN 2 — 10 eftir hádegi.
Vörusýningunni lýkur næstkomnndi sunnudngs-
kvöld. Sýningin verður ekki frnmlengd. Kaupstefmm