Morgunblaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR .1. JÚNÍ 1967.
Sinfóníuhljómsveitin
heldur aukatðnleika
í DAG heldur Sinfóníuhljóm-
sveit íslands aðra aukatónleika
starfsársins, sem nú er að ljúka.
Tónleikarnir verða tékkneskir
tónleikar. öll verkin, sem leikin
verða eru eftir Dvorak ,Karnival‘
forleikurinn fyrst, en síðan píanó
kcwisertinn í -moll og cellókon-
sertinn í h-moll. Einleikarar og
stjórnandinn, eru hver á sínu
sviði, í fremstu röð í Tékkósló-
vakíu.
Stjórnandinn er ZDENEK
MACAL, rúmlega þrítugur að
aldri, en hefur þegar staðið á
stjórnpalli hljómsveita í mörg-
Skrifsiofuhúsnæði
Tvö skrifstofuherbergi í Miðbænum, eru til leigu
nú þegar.
Upplýsingar gefur:
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
hæstaréttarlögmaður, Óðinsgötu 4. Sími 1-10-43.
8LIMMACOLOUR
Vor og sumartízkan 1967
um löndum Evrópu og Ameriku,
auk hljómsveitanna í heimalaindi
sínu. Macal hefur einnig tekið
þátt í alþjóðlegum samkeppn-
um ungra hljómsveitarstjóra,
unnið fyrstu verðlaun í Besan-
con 1965, þriíju verðlaun í Mitro
poulos-samkeppninni í New
York 1966.
Cellóleikarinn, STANISLAV
APOLIN, nam fyrst cellóleik við
Janacek tónlistarháskólann í
Brno, en gerðist síðan nemandi
Rostropovitsj í Moskvu. Apolin
hefur leikið í flestum löndum
álfunnar með hinum fremstu
hljómsveitum. Á verkefnaskrá
Radoslav Kvapil
sinni hefur Apolin öll þekkt
cellóverk.
Um píanóleikarann, RADO-
SLAV KVAPIL, má hins veg-
ar segja, að hann hafi sérhaeft
sig í leik hinna sjaldgæfustu
píanótónsmíða. Árið 1958 vann
hann fyrstu verðlaunin í Janac-
ek-samkeppninni, og hefur á tak
teinum öll píanóverk Janaceks
og Dvoraks. Kvapil er einnig eft
irsóttur kammermútsíkant og
kennari, en hann kennir við Tón
listarháskólann í Prag á milli
Orlof húsmæðra
ORLOF húsmæffra, sem starfaff
hefir sl. 6 ár samkvæmt Orlofs-
lögunum frá 30. maí 1960, er nú
aff hefja sumarstarfsemi sina.
Svo sem undanfarin ár mun
verffa samstarf meff Reykjavík
og Kópavogi ásamt Gullbringu-
og Kjósarsýslu um rekstur or-
lofsheimilis, sem að þessu sánni
verffur aff Laugum í Dalasýslu,
þar eru fagrar sveitir meff sögu-
lega frægff og mun hver hópur
fara eins dags ferð til að kynn-
ast þeim betur.
Að Laugum er mikil veður-
sæld og kyrrð og hin forna
swmdlaug Sælingsdals er á sínum
stað. Orlof húsmæðra hefir
nokkur kynni af staðnum, þar
sem starfsemin var þar árið 1965
sem tókst í alla staði mjög
vel. Dvalartími Reykjavíkurhús
mæðra að Laugum í ár verður
júlí-mánuður. Farið verður í
þrem hópum og dvelur hver
þeirra í 10 daga á staðnum.
Fararstjóri verður með hópnum
sem dvelur með þeim allan tím-
ann.
Allar húsmæður eiga rétt til
að sækja um orlofið, og þær sem
eigi hafa farið áður, hafa for-
gangsrétt til dvalarinnar svo
lengi sem rúm er fyrir hendi,
en ekkert er því til fyrirstöðu að
konur sem áður hafa verið gest-
ir orlofsins sækji um dvöl. Þær
eru aufúsuigestir — ef möguleiki
er á því. En við okkur blasir
mikil þörf á að lengja orlofstím-
ann, þar sem þátttaka hefir auk-
izt mjög hin síðari ár.
Orlofsmál eru mjög á dagskrá
um þessar mundir þau eru börn
síns tíma og ka’lla á sinn vöxt
og viðgang eins og allt ungviði
og vonandi tekst orlofi hús-
mæðra að vaxa með sinni sam-
tíð. Orlofsnefndin í Reykjavík
tekur við umsóknum frá og með
1. júní á skrifstofu Kvenrétt-
indafél. íslands að Hallveigar-
stöðum við Túngötu — mánud.
þriðjud., fimmtud. og föstud. kl.
4—6 e.h. en á miðvikud. kl.
8—10 að kvöldi, skni 18156. Or-
lof húsmæðra er skemmtileg
framvinda félagsmála okkar og
hver og einn þátttakandi gefur
því gildi sitt.
(Frá Orlofsnefnd húsmæðra í
Reykjavík).
Bókaútgefendur - bókaforlög
Byrja um næstu helgi á bókamarkaði í Reykjavík
og síðar mun ég fara með markaðinn um landið.
Get tekið forlagsbækur á bókamarkaðinn til sölu.
Hér er gott tækifæri fyrir þá sem eiga bækur að
koma þeim í peninga.
Upplýsingar í síma 19783 frá kl. 9—12 f.h.
Asahi
NÝKOMIÐ GLÆSILEGT ÚRVAL AF
PENTAX Ijósmyndavélum
og fylgihlutum
LÍTIÐ í SÝNINGARGLUGGANN.
SKRIFIÐ EFTIR MYND OG VERÐLISTUM.
FOTOHÚSIÐ
GARÐASTRÆTI 6 — SÍMI 21556.
NÝKOMIÐ
þess sem hann fer 1 tónleika-
ferðir til flestra landia álfunnar.
Aðgöngumiðar að þessum tón-
Stanislav Apolin
leikum eru seldir í Bókabúðum
Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg
og Vesturveri og í bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, Austur-
stræti. (Frá Sinfóníuhljómsveit
íslands).
Dræm sala á bók
Manchesters
„Dauði forseta"
BÓKSALAR víffsvegar nm
Bandaríkin hafa látið frá sér
heyra um söluna á hinni um-
deildu bók Williams Manchest-
ers, „Daúffi forseta", þar sem
fjallað er um morffiff á Kennedy
Bandaríkjaforseta svo sem
kunnugt er. Bók þessi vakti svo
gífurlegt umtal og harffvitugar
deilur löngu áffur en hún kom
út aff margir töldu aff verffa
myndi til þess aff gera hana aff
mestu metsölubók tuttugustu
aldarinnar.
Sú virðist þó ekki hafa orðið
raunin á. Skoðanakönnun sem
fram hefur farið meðal bóksala
í Bandaríkjunum bendir til þess
að sala á bók Manchesters sé
yfirleitt heldur dræm, og segja
margir bóksalar það hafa spillt
sölunni að stórverzlanir sumar
hverjar hafa selt bókina á allt
niður í fimm dali enda þótt út-
gefendur hafi lagt svo fyrir að
hún skyldi seld á tíu dali. eða
sem næst þeirri upphæð.
Útgefendur bókarinnar, Harp-
er and Row, sögðu að fyrsta
prentun bókarinnar, 600 þúsund
eintök hefði selzt upp, en við-
urkenndu þó að þúsundum ein-
taka hefði síðar verið skilað og
ekkert hefði verið ákveðið um
endurprentun bókarinnar.
Nokkrir bóksalar voru þó
hressari í bragði og sögðu að
sala á bók Manchesters væri
svipuð og þeir hefðu gert ráð
fyrir og sumir töldu að salan
myndi verða heldur dræm að
vísu en nokkuð jöfn um margra
ára skeið. Allt um það mælti
Stuart Brent, bóksali frá Chicago
fyrir rnunn margra er hann
sagði: „Bók Manchesters er búin
að vera. Hún komst aldrei al-
mennilega af stað. Með tilliti til
hinnar gífurlegu auglýsinga-
starfsemi verður ekki annað
sagt en að hún hafi selzt afleit-
lega illa“.
Stokkhókni, 26. maí NTB
Svo að segja öll skipting Sví-
þjóðar í fylki (lén) og fyrir-
komulag á stjórnsýslu ríkisins
í fylkjum á áð bneytast frá og
með 1. janúar 1971. ef tillögur,
®em lagðar voru fyrir ríki.s-
istjórnina í dag verða samþýkkt
«r. Eftir framangreinjdían tíma
toma í Stað Stokkhólms og
hinrta 24 fylkja, sem nú eru við
lýði, 15 stórfylki. Þegar hefur
Verið saimþyklkt, að Stokkhólm-
ur og Stotokihólmsfylki verði að
einni stjórnsýsluheild.