Morgunblaðið - 01.06.1967, Qupperneq 31
MORGTJNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1967.
•’xwnr*
31
Hlýviðri um
larad allt
Jörð að byrja að taka við ser
HLÝVIÐRI hefur verið undan-
farna daga um land ailt og sam-
kvæmt upplýsingum, sem blaðið
fékk í gær hjá Halldóri Pálssyni,
búnaðarmálastjóra, má búast við
sauðgróðri um gjörvallt landið
eftir vikutíma, ef veðráttan
breytist ekki.
— Flugslysið
Framhald af bls. 32
Við þessa frásögn má bæta
því við, að í ljós kom að fiug-
maðurinn sem fórst með vélinni
og Úlfar Harðarson voru vinir.
Laust fyrir miðnætti hafði tek
izt að ná flugvélinni úr sjónura
og var hún flutt suður í Skerja-
fjörð. Lík flugmannsins var í
flugvélinni þar sem hún lá á
sjávarbotni. Var það tekið í land
í Gufunesi.
Strax og fréttist af flugslys-
inu við suðausturenda Viðeyjar
fór blaðamaður Mbl. upp í Vatna
garða. Hafði þá safnazt múgur og
margmenni á höfðann austan við
Vatnagarða og þar voru stað-
settir sjúkrabíiar. Yfir Viðeyj-
arsundi og einnig norðan við
eyna sveimuðu flugvélar og bát
ar voru á leið á staðinn.
Mattihías Gestsson, úr Eyjafirði
var staddur i húsinu Kleppsvegi
74 annarri hæð. Honum varð lit-
ið út um glugga, sá hann flug-
vélina og var hún þá í eðlilegri
flughæð. Siðan lækkaði flugvél
in flugið nokkuð, unz hún fór í,
að því er Matthías telur, tvo og
hálfan hring og hvarf handan
Viðeyjar.
Matthías taldi, að flugvélin
hefði verið hvít, a.m.k. að ofan
enda sá hann ekki undir vélina.
Var hún í vinstri beygju og hall-
aði óvenju mikið og vakti það
athygli hans. Matthías taldi það
koma til mála, að hreyflar flug-
vélarinnar hafi ekki verið í gangi.
Einnig virtist honum flugmenn-
imir vera að gera tilraun til að
ná lendingarstað á eynni.
Tveir 13 ára gamlir drengir
voru staddir í Vatnagörðum er
slysið varð. Frásögn þeirra kom
heim við frásögn Matthíasar að
öðru leyti en því, að þeir töldu
flugvélina hafa verið rauðmálaða
að neðan.
Samkvæmt frásögn lögreglu-
þjóna á staðnum mun hafa fund
izt olíubrák á slysstað. Einnig
mun maður, er var á gangi á
Kleppsvegi hafa séð til flugvélar
innar og frásögn hans var sam
hljóða öðrum vitnum.
Þess má geta að veður var hið
ákjósanlegasta í Reykjavík í
gærkvöldi. Um'kl. 21 eða á svip
uðum tíma og slysið mun hafa
orðið var SSA gola og skyggni
gott.
— Við vonum nú að vorið sé
að koma, sagðd Halldór, — að
minnsta kosti bendir góða veðr-
ið, sem nú er, á það. Gróður er
að byrja að spretta á Norður-,
Austur- og Vesturlandi, jörðin
er að taka við sér um land allt.
— Bændur hafa átt í miklum
erfiðleikum undanfarnar vikur
og jafnvel mánuði, sökum veð-
urs, heyfóður er til þurrðar geng
ið og kostnaður við kjarnafóður-
kaup hefur verið mikill. En nú
er von til þess að úr fari að
rætast.
Leiðrétting:
1 VIÐTALI við Reyni Zoega,
bæjarfullrúa í Neskaupstað, stóð
>hreppsnefndarmaður í stað bæj-
arfulltrúi á einum stað í grein-
■inm. Biðjum við Reyni afsökun-
ar á þessu og leiðréttist þetta
hér með.
Þetta sérstæða landabréf af fsrael og nágrannaríkjum þess er í rauninni ljósmynd, tekin úr
bandaríska geimfarinu „Gemini XI“ í september 1966. í horninu neðst til vinstri sést hluti
geimfarsins, en að öðru leyti skýrir myndin sig sjálf.
Russel-„dómstriillinn**
fær ekki inni í Danmörk
Vísað á bug af Krag forsœtisráðherra í gœr
Kaupmannahöfn, 31. maí
NTB.
JENS Otto Krag, forsætis- og
utanríkisráðherra Danmerkur
skýrði í dag dönsku Bertrand
Russel-nefndinni frá þvi, að
rikisstjórnin muni, ef til þess
kemur, neyta allra löglegra
ráða, sem hún telur heppileg til
þess að koma í veg fyrir að
Russel-dómstóllinn haldi næsta
fund sinn í Danmörku. Skýrði
blaðið Information frá þessu í
dag.
Erik Vagn-Jensen bókaútgef-
andi, sem er meðlimur í dönsku
Russel-nefndinni, sagði varðandi
framangreinda yfirlýsingu Krags
forsætisráðherra, að neitun
dönsku ríkisstjórnarinnar væri
vandræðaleg og dálítið ófélags-
leg gagnvart hinni sænsku
bræðraþjóð, þar sem ríkisstjórn
in hefði ekki heldur verið hrif-
in af dómstólnum, en hefði virt
hið viðurkennda málfrelsi á
Norðurlöndum.
Forseti Russel-dómstólsins,
Vladimir Dedijer, kom til fund-
ar við dönsku Russel-nefndina
um hvítasunnuna og fór þess þá
á leit, að nefndin kannaði mögu-
leikana á að réttarhöldum
stríðsglæpadómstóls yrði hald-
ið áfram í Kaupmannalhöfn,
eftir að fyrsta þætti réttarhald-
Þessi mynd var tekin við brúna fyrir framan kilsigúrnámu
Sementsverksmiðju ríkisins í Hvalfirði fyrir skömmu, en þá
hafði það óhapp hent vörubílstjóra, er var á leið frá Reykjavík,
að stýrisendar bifreiðarinnar fóru úr sambandi. Missti bifreiða-
stjórinn við það stjórn á bifreiðinni, sem rakst á og braut niður
brúarriðið og féll því næst á hvolf í ána. Framöxull bifreiðar-
innar brotnaði af og ef vel er að gáð sést hann á milli bifreiðar-
innar og brúarstöpuLsins. Sem betur fór slasaðist bifreiðar-
stjórinn lítið sem ekkert.
anna lauk i Stokkhólmi fyrir
nokkrum vikum.
Vagn-Jensen beindi málaleit-
un sinni til forsætisráðherrans,
sem lét ritara sinn gefa svar í
gegnum síma um, að rikisstjórn-
in myndi verða and/víg því, að
dómstóllinn kæmi saman á fund
í Danmörku. Til þess að fá betri
grein fyrir afstöðu ríkisstjórnar-
innar, beindi Vagn-Jensen nýrri
fyrirspurn til forsætisráðherr-
ans, en svarið varð aðeins hið
sama, þ.e. „að ríkisstjórnin tel-
ur það ekki æskilegt að dóm-
stóllinn flytji fundi sína til Dan-
merkur. Russel-dómstóllinn get-
ur ekki samkvæmt skoðun rík-
isstjórnarinnar orðið til þess að
flýta fyrir friðsamlegri lausn
styrjaldarinnar í Vieínam og það
er sama skoðun og sú, sem orðið
hefur til þess, að ríki eins og
Frakkland og Svíþjóð hafa vís-
að dómstólinum á brott“, segir
í svari Krags.
Russel-nefndin mun koma
saman á fund á fimmtudag til
þess að ræða neitun forsætis-
ráðherrans.
Færeyinga
heimilivtu
lokað í dag
I GÆRKVÖLDI var Færeyska
sjómannaheimilinu lokað, þar eð
vetrarvertíð er lokið og nær all-
ir Færeyingar sem hingað komu
til starfa eru farnir heim.
Forstöðumaður heimilisins Jo-
han Olsen sagði Mbl. í gær að
starfsemi heimilisins hefði geng-
ið vel i vetur. Kristilegair sam-
komur sem þar eru haldnar
reglul. verið vel sóttar. Kvaðst
hann vilja biðja MJbl. fyrir beztu
kveðjur til vina og velunn-
ara færeyiska sjómannatrúboðs-
ins hér, sem væru margir. Sam-
starf hefði nokkuð tekizt með
heimilinu og KFUM hér í
Reykjavík, og kvaðst forstöðu-
maðurinn vona að það mætti
aukast.
Hann kvað það og von sína,
að áfram yrði unnið að því
heima í Færeyjum og hér að
þoka áleiðis fyrirhuguðum fram-
kvæmdum vegna hins nýja sjó-
mannaheimilis sem áhugi er á
að reisa, í stað þess gamla við
Skúlagötuna.
Jón Signrðsson róðnneytlsstjóri
í fjnrmnlnráðuneytinu
GUÐLAUGI Þorvaldssyni, ráðu-
neytisstjóra í fjármálaréðuneyt-
inu, hefur verið veitt lausn frá
ambætti að eigin ósk, frá 1. júlí
nk. að telja.
Jafnframt hefur forseti ís-
lands í dag skipað Jón Sigurðs-
son, lögfræðing, til að gegna
embætti ráðuneytisstjóra í fjár-
málaréðuneytinu frá 1. júlí nk.
Jón Sigurðsson er fæddur i
Reýkjavík 1934, stúdent frá
Menntaslkólanum í Reykjavík
1954 og oand. jur. frá Háskóla ís-
lands 1958.
Hann var skipaður fulltrúi í
atvinnumálaráðuneytinu 1958 og
deildarstjóri 1962, og starfaði í
því ráðuneyti til 1966, að frá-
töldu einu ári, sem hann dvaldist
við framhaldsnám í opinberri
stjórnsýslu við háskóla í Banda-
ríkjunum sem styrkþegi Ful-
brightstofnunarinnar.
f marz 1966 var Jón settur tfl
að gegna nýstofnuðu embætti
ihaigsýslustjóra ríkisins og skip-
aður í það embætti í apríl sl.
(Fiá fjármálaráðuneytimi)
Ekki eínn
að verki
VEGNA fréttar í blaðinu í gaer
Um að Ragnar Michelsen ætti að
■sjá um skreytingu við brúðkaup
Margrétar ríkisarfa, skal það
tekið fram vegna misskilnings,
að hann er að sjálfsögðu einn af
mörgum, sem skreytir við það
■tækifæri.
- Iþróttir
Framhald af bls. 30
IFjör færiat á 1 avkinn
Síðari hálfleikurinn var mikliu
líflegri. Því verður ekki neitað
iað Spánverjar áttu þá einkum
framan af mun fleiri tækifæri.
lEn þó þeir fyndu leið í gegnum
ivörn og næðu að skjóta var Guð-
mundiur markvörður vel á verði
og bjargaði mjög vel. Frammi-
staða hans forðaði ísl. ósigri.
En baráttuviljann átti ísl. lið-
ið óskertan og náði liðið falleg-
um upphlaupum sem fyrr segir,
þar sem samleikurinn var betri
Og hnitmiðaðiri en í upphlaup-
um Spánverja, þó nákvæmnina
'S'korti mjög er til þess kom að
feinda góðan endahnút á upp-
thlaupin. Komst spánska vörnin
oft í klípu, en til verulegra
'kaista hjá markverði kam ekki.
Mörkin
Tæpum 3 mínútum fyrir leiks-
lok sóttu Spánverjar upp miðj-
una. Knötturinn gekk milli mót-
herja og þvagan nálgaðfet ísl.
markið er Costas spyrnti heldur
lausu en lúmsku skoti sem
smaug með stöng í ísl. markið.
Menn tóku að tínast út. Enn
eitt landsliðstapið virtist stað-
reynd. En baráttuviljinn var
ekki búinn hjá ísl. liðinu. Úr
upphafsspyrnu náðu Spánverjar
■að breyta vörn í sókn, sækja
yfir á vallarhelming íslands, en
þaðan var gefið fram og eftir
nokkurt þóf fékk Magnús
Torfason knöttinn óvaldaður
nokkuð utan vítateigs, elgði
skotmöguleikann og náði
jeinu af þessum fágætu en glæsi-
legu langskotum, þar sem mark-
Vörður, hvensu góður sem hann
er á litla möguleika til varnar.
Þó kom Omanica fæti á, knöttinn
en fékk ekki varið fyrir það
Clæsileg uppbót á heldur til-
Iþrifalítinn leik. Og allir fóru
Iglaðir heim.
tUSin
Spánver’arnir höfðoi yfirburðl
1 knattmeðferð og hreyfanleg-
um samíeik. Alltaf allir á hreyf-
ingu, alltaf tilbúnir að taka við
knetti. Þetta skapaði íslendiag-
um mikil hlaup, en engin kaup.
Stöðuskiptingar framherj-
anna rugluðu mikið og vafa-
laust hefði illa farið ef góðir
skotmenn hefðu verið i liðinu.
Beztir voru fyrirliðinn, Ur-
quiza, Bermudez úthérji, Sierra
innherji og Costas miðherjL
Markvörðurinn virtist kunna vel
sitt fag, en lítið reyndi á það.
ísl. liðsmönnunum mörgum
hverjum tókst mjög illa upp
framan af. Skorti mjög á knatt-
tæknina og það svo að mönnum
mistókst við einföldustu undir-
stöðuatriði knattspyrnu. Vörnin
er þó að flestu leyti undan-
skilin, en hún skilaði leik sínum
ágætlega. Ber þar hæst Guð-
mund í markinu, sem var bezti
maður liðsins, Sigurð Alberts-
son, Högna Gunnlaugsson og
síðan bakverðina báða, Árna og
Jóhannes.
Danski dómarinn Michaelsen
skipti sér lítið af tíðum smá-
brotum — sem einkum voru hjá
Spánverjunum, en yfirleitt var
leikurinn prúðmannlega leikinn
að þeim undanskildum.
— A. St.