Morgunblaðið - 01.06.1967, Qupperneq 32
DREGIÐ EFTIR
5 DAGA
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1967
Flugmaður fórst er
lítil flugvél rak vœng-
endann í sjóinn
— við Viðey í gærkvöldi
ÞAÐ sviplega slys viOdi til
urn níuleytið í gærkvöldi, að
látil fliugvél fórst við Viðey
og með benni einn maður.
Þetta var tveggja sæta æf-
ingaflugvél af gerðinni Piper
Cherokee í eigu Flugsýnar.
Var hún í æfingaflugi og flug
maðurinn einn í vélinni er
var í rannsókn er blaðið fór í
prentun í nótt.
Skammt frá þeim stað er
flugvélin fór í sjóinn var Úlfar
Harðarson á trillu sinni. Hafði
Mbl. tal af Úlfari í gærkvöldi og
sagði hann svo frá slysinu. „Við
vorum á trillunni um 100 metra
frá landi og vorum að dorga
fyrir fiski. Veittum við flugvél-
inni athygli er hún kom mjög
lágt yfir eyna. Flaug hún yfir
okkur og ætlaði síðan að snúa
við. Skipti það þá engum togum
að hún rak vinstri vænginn í
sjóinn og brotnaði hann af.
Stakkst þá flugvélin á nefið í
sjóinn og var sokkin eftir á að
gizka eina mínútu. Ég keyrði
þegar á staðinn, en þá var þar
ekkert að sjá utan aðeins eld-
spýtustokks og olíubrákar. Ég
fór nokkra hringi á staðnum, en
fór síðan til Gufuness og til-
kynnti slysið til fiugmálastjórn-
arinnar. Brugðu þeir fljótt við
og voru komnir á staðinn eftir
um klukkustund. Ég hafði sett
út bauju þar sem ég sá fiugvél-
ina fara í sjóinn og fannst vélin
rétt hjá þeim stað.
Framíhald á bls. 31
Bótornir á síld
í GÆR voru síldarbátarnir að
búast til veiða og var blaðinu
kunnugt um nokkra báta, sem
voru farnir héðan úr Reykjavík,
m.þ. Gísli Árni, Fylkir og í»or-
steinn. Næstu daga munu margir
bátar leggja upp til veiðanna
eftir því sem þeir verða tilbúnir.
í gær útskrifuðust fjórtán sjúkraliðar á Landakotsspítala og
sjást þær hér á myndinni ásamt kennara sínum (Ljósm. Sv. Þ.).
Vél af svipaðri gerð og sú sem fórst.
Lögbann á málara-
vinnu í Keldnaholti
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag var
lögbann sett á framkvæmdir við
m'álningu á nýbyggingu Rann-
sóknarstofnunar landbúnaðarins
í Keldnaholti. Borgarfógetinn í
Reykjavík framkvæmdi lög-
bannið, sem var gert að kröfu
Meistarasaimbands bygginga-
manna fyrir hönd Málarameist-
arafélags Reykjavikur. Var lög-
bannið sett gegn 1S0 þúsund
króna tryggingu, sem Meistara-
sambandið lagði fram.
Nánari tildrög þessa máls eru
þau, að málarameistari frá Kefla
vík, Kristinn Guðmundsson, átti
lægsta tilboð í málningu þess-
arar byggingar, eins og skýrt
var frá hér í blaðinu á sínum
tíma, en þá bárust einnig níu
samhljóða tilboð frá málara-
meisturum í Reykjavík. Skömmu
eftir að Kristinn hóf vinnu í
byggingunni var sett verkbann
á framkvæmdir, þar sem mál-
arameistarar í Reykjavík töldu
að ólöglegt væri, að meistari
utan Reykjavíkur stæði fyrir
vinnu sem meistari á félaigssvæði
þeirra.
Niðurstaðan varð sú, að sam-
komulag var gert þess efnis, að
Kristinn réði meistara frá Mál-
arameistarafélagi Reykjavíkur
til að „standa fyrir verkinu" eins
og það var orðað. En þegar til
kom varð ekki samkomulag um
verksvið hans og varð því ekki
af ráðningunni. Afleiðingin varð
sú, að lögbann var sett á verkið
eins og fyrr segir.
Viðbrögð Austfirðinga við FáskrúðsfjarðarhneyksHnu:
Höfum kynnzt þessu áöur
1 GÆR hringdi Morgunblaðið
í nokkra menn á Austurlandi
og spurði, hvernig Fáskrúðs-
fjarðarhneykslið mæltist fyr-
ir í þeirra byggðarlögum. —
Fyrst náðum við tali af Arn-
þóri Þórólfssyni á Reyðarfirði.
Hann sagði:
— Fyrir mér er þetta ©kki
nýtt mál, þvi að ég hef
reynslu af svipuðu sjélfur.
Hvað oikkar byggðarlag snert-
ir, þá held ég, að menn hafi
kynnzt þessum hlutum áður
fyrr hér. Þetta kemur okkur
þvf ekki spánskt fyrir sjónir,
þó að það hafi ekki verið gert
opinbert fyrr.
Annars hefiur þetta mál vak
ið mikla athygli hér sem ann-
ars staðar, ekki sízt vegna
játninga þeirra, sem þarna
hafa verið staðnir að verki.
Mín skoðun er sú, að það hafi
verið í fyllsta máta tómabært
að koma upp um slíkar vinnu
aðferðir, sem ég tel ekki nýj-
ar hér innan kjördæmisins.
Guðmundur Auðbjörnsson,
málarameistari á Eskifirði
sagði að mönnum þar fynd-
ist þetta langt gengið. — Ég
hef akki hitt marga menn að
máli eftir að þessar fréttir
bárust hingað, en þeir sem ég
hefi hitt, eru undirandi yfir
þvi, að annað eins og þetta
skuli geta komið fyrir. Einnig
eru menn mjög undrandi yfir
þeim yfirlýsingum, sem þess-
ir menn hafa gefið. Hlutir
eins og þessir hefðu ekki get-
að gerzt hér á EskifirðL
Morgunblaðið frá því í
fyrradag var að berast til
Seyðisfjarðar í gærkvöldi þeg
ar við hringdum þangað. >ar
höfðu menn því ekki haft mik
inn tíma til að ræða þessi
mál, en allir þeir, sem frétta-
ritari blaðsins hafði átt tal
við í gærkvöldi, voru stein-
hissa á þessum fiáheyrðu at-
burðum frá Fáskrúðsfirði.
Þá talaði Morgunblaðið að
lokum við einn mann á Egils-
stöðum og spurði hann hvern-
ig menn þar litu á atvinnu-
kúgun Framsóknarmanna á
Fáskrúðsfirði. Hann sagði að
Framsóknarmenn þar á Hér-
aði væru framlégir yfir þess-
um tíðindium og þetta hefði
töluverð áhrif á viðhorf
manna í þéttbýlinu, þar sem
allir fordæmdu þessa fram-
komu. Maðurinn bætti við:
„En þetta hefur minni áhrif í
sveitunum, þar er svona fram
koma mönnum engin ný-
lunda“.
Quatemala, 31. maí NTB.
EINN af fulltrúunum á þjóð-
þingi Quatemala, Maro Antonio
Sota Beteta, var skotinn til bana
í Quatemala City á þriðjudags-
kvöld. Að undanförnu höfðu
honum borizt hótunarbréf um, að
haran myndi verða myrtur.
Síldveiðisjómenn hlynntir afstöðu
fulltrúa seljenda í yfirnefnd
MBL. hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá Samtökum
síldveiðisjómanna:
Stjórn Samtaka síldveiðisjó-
manna álitur að fulltrúar selj-
anda í verðlagsráði hafi við á-
kvörðun bræðslusíldarverðs tek-
ið þá sikástu afstöðu, sem um var
að ræða, eftir þeim lögum sem
verðlagsráð verður að vinna eft-
ir og miðað við hið lága heims-
markaðsverð, sem er á síldaraf-
urðum í dag.
Hins vegar vill stjórnin taka
það fram, að hún telur óeðlilegt
að sjómenn og útgerðarmenn
taki á sig það mikla verðfall,
sem orðið hefur á síldarafurðum
óbætt, þar sem öll þjóðin hefur
notið góðrar afkomu síldveið-
anna á undanförnum árum.
Ennfremur vill stjórn samtak-
anna taka fram að þegar gerðar
verða ráðstafanir útgerðinni til
handa munu sjómenn standa
fast á, að þeirra hlutur verði
bættur að sama skapi og hluitur
útgerðarinnar.
Stjórnin álítur að vinna beri
að niðurfellingu úitflutnings-
gjalda af sjávarafurðum og
vinna beri að hærra markaðs-
verði sjávarafurða með betra
sölufyrirkomulagi og aukinni
nýtingu aflans.
500 laxaseiði flug-
leiðis til Færeyja
Á ÞRIÐJUDAG í fyrri viku
flutti Flugfélag íslands 500 laxa-
seiði af göngustærð til Fær'eyja,
þar sem þeim hefur nú verið
komið fyrir í ám. Þetta eru
fyrstu gönguseiðin, sem Færey-
iragar fá, en áður hafa þeir verið
með kviðpokaseiði.
Þór Guðjónsison, veiðimála-
stjóri, hafði forgöngu um að út-
vega Færeyingum þessi seiði, og
tjáði hann Mbl., að forsaga þessa
máls væri sú, að undantfarin 20
ár hafi Færeyingar verið í sam-
■bandi við veiðknálaistofnunina
hér og m. a. fylgzt með fiskeldi
hérlendis. Fyrir nokkrum árum
skrifuðu þeir Veiðimálastjóra, og
báðu haran að útvega sér kvið-
pokaseiði. Var þeim þá sent
talsvert magn af kviðpokaseið-
um úr Elliðaánum, og voru þaiu
flutt með skipi.
1 vetur skrifaði svo „Fþroya
sílaveiðifélag“ veiðimálastofnun-
inni og bað hana að útvega sér
laxaseiði af göngustærð. Voru
félaginu þá s'end um 500 seiði,
sem flutt voru í plastpokum, og
sá Flugfélag Islands um flutn-
ing þeirra. Tókst það með mikl-
um ágætum, en síðan voru seið-
in geynnd í keri í tvo daga áður
en þau voru sett í ána Saksum
á N-Straumey.