Morgunblaðið - 30.08.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1967
BÍLALEIGAN
- FERÐ -
Daggjald ki. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
eftirlokunslmi 40381' —
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LiTLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið < leigugjaldi
Sími 14970
B8LALEIOAIM
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Ff==>BUJUF/GAM
RAUÐARÁRSTÍG 31 SIMl 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
Útvarps- og sjónvarpstæki
Rafmagnsvönibúbin sf
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði).
ÖDÝRAR
LITKVIKMYNDIR
Gerum ódýrar litkvifamyndir
fyrir einstaklinga og fyrir-
tæki. Fullkomin tækni. Leitið
upplýsinga. Opið um helgar.
LINSAN SF.
Símar 52556 og 41433.
0TSALA
'A' Leiðarlýsing í
Langadalsvísunni
Egill Sigurðsson á Ála-
fossi skrifar:
„Mig langar til að biðja Vel-
vakanda fyrir viðbót við hina
góðu gTein Guðmundar Uluga-
sonar um vísuna „Ætti ég ekki
vífa val“ (Morgunblaðið 11.
ág.) vegna þeirra, sem eru ó-
kunnugir staðháttum.
Stóri-Langidalur liggur suð
ur í fjöllin, og yfir botni hans
gnæfir Skyrtunna, sem er um
eða yfir 1000 m. á hæð. Vestan
hans er Narfeyrarfjall og Kárs
staðaháls, en framan við hann
að austan er Háskerðingur, svo
Setbergsháls og síðan Grá-
stéinsfjall, en austan þess er
Litli-Langidalur, og eru Flatir
framhald hans, — talinn í
mínu ungdæmi langur og leið-
ur fjallvegur. Frá Ósi mun vera
beinasí að fara suðaustur yfir
Setbergsháls og suður Litla-
Langadal, en af Flötum er faom
ið niður hjá Höfða í Eyja-
hreppi. Ég hefi ekki faomið í
Litla-Langadal, og því ekki
kunnugur þar. En sé gengið
suður yfir fjall úr Stóra-
Langadal er þar bratt upp að
ganga, og líklega farið vestan
Skyrtunnu og niður hjá Dals-
mynni í Eyjahreppi.*
Happdrætti og
f r ímerk j asýningar
„Heiðraði Velvakandi!
Ég er einn af þúsundum,
sem styrkt hafa hin góðu fé-
lög, er reka sölu happdrættis-
miða, — en það fer heldur
lítið fyrir vinningunum. Satt
að segja var ég hættur að
fylgjast með, en nýlega (aldrei
þessu vant) gleymdi ég að
endurnýja í einu happdrætt-
inu. Næsta mánuð á eftir, þeg-
ar ég fór að endurnýja, til-
kynnti afgreiðslustúlkan mér,
að hún hefði endurnýjað mið-
ann fyrir mig, og hefði ég
hlotið fimmtán hundruð krón-
ur í vinning. Þetta fannst mér
alveg sérstakt og vert þess að
geta, og er ég stúlkunni afar
þakklátur.
Nú í vikunni rakst ég á aug-
lýsingu um, að sýning á frí-
merkjum yrði haldin 2. sept
1967. Þá kom upp í huga mér,
að ég fór að skoða sýninguna
Frímex 1964. Sýningarskráin
var númeruð, og var dregið um
vinningsnúmer að lokinni sýn
ingu. Nokkrum mánuðum síð-
ar sá ég hjá kunningja mín-
um, að ég hafði fengið vinning
á mír.a skrá, númer 496, og fór
ég nú að reyna að ná í vinn-
inginn Mér var visað úr einum
stað í annan, án nokkurs árang
urs, og gafst ég loks upp, er
ég sá, að ég hafði þegar eytt
meiri tíma frá vinnu í vinn-
ingsleit en vinningurinn var
virði.
minningar um þessa góðu sýn-
ingu. Ég ætla að sjá sýninguna
2. september, en vona bara, að
það verði ekki ég, sem verði
hinn heppni þá.
Ánægður“.
★ Kvikmyndagagn-
rýni enn
Úr „Hornauganu“ kemur
þetta tilskrif frá Þórði
Gunnarssyni:
„Kæri Velvakandi!
Miðvikudaginn 23. ágúst,
birtist .í dálkum þínum, grein,
rituð af Aðalsteini nokkrum
Péturssyni. Tilgangur þessarar
greinar, virðist vera sá, að
berja all illilega á kvikmynda
gagnrýnendum Morgunblaðs-
ins og jafnfamt opinbera hina
geigvænlegu höfuðsfarfsemi og
augljósu skynsemi, sem grein-
arhöfundur virðist óneitan-
lega, álíta sig, hafa til að bera.
Ekki aíls fyrir löngu, þagg-
aði ég niður í stjórn kvik-
myndahúsaeigenda, með stuttri
svargrein, og mér finnst alls
ekki ósanngjarnt, að bjóða
Aðalsteini Péturssyni sömu
kjör.
Ef hann lætur ekki frekar í
sér neyra, varðandi þessi mál,
skal ég fyrirgefa honum, ann-
ars mun ég tafarlaust troða
greir.inni ofan í hann aftur.
Kvikmyndagagnrýni á ís-
land', hlýtur fyrst og fremst,
að gegna einum megin til-
gangi. Hún á að vera leiðbein-
andi, fyrir almenning, um
hvort mynd sé slæm eða góð,
hvort hún sé þess virði, að
sjá hana eða ekki. Listræn
skrif koma ekki öllum að
haldi, þótt viéaskuld sé æski-
legt, að lesendum sé gefinn
kostur á merkiiegum greinum
um þessi mál og þar með, að
auka þekkingu sína og skiln-
ing á kvikmyndalist.
Gagnrýni gæti því skoðast
tviþætt. Fræðandi og leiðbein-.
andi. Báðir þessir þættir ættu
að birtast. Leiðbeinandi gagn-
rýni að staðaldri og fræðandi
þegar ástæða þykir til. Stór
hluti þeirra mynda, sem sýnd
ur er hér, gefur enga ástæðu
til listrænna skrifa.
Meðan „Hornaugað" var og
hét, reyndi það að halda þess-
ari stefnu á lofti og við von-
um, að það hafi tekizt að
mestu leyti. En það er nú einu
sinni svo, að hlutverk gagnrýn
andans í þjóðfélaginu er ekki
alltaí sem vinsælast og því lík
legast lítil ástæða til að kippa
sér upp við hjáróma væl nokk
urra einstaklinga. Sú er mín
von, að við Horneyglar höfum
ekki gert skynsömum mönn-
um iífið mjög leitt. ,þá er okk-
ar takmarki náð.
Fyrir mína hönd og félaga
míns, Björns Baldurssonar, sem
nú dvelst erlendis, vil ég þakka
öllum miðasöludömunum, og
við reiða íslendinga vil ég
segj a, sjáumst að hausti.
Þórður Gunnarsson.
Bergstaðastræti 80.
„Ánægður" skrifar:
Ég geymi þessa skrá til
Orðsending
til félags Snæfellinga og Hnappdæla á Suðurnesjum:
Farin verður berjaferð á Snæfellsnes laugardaginn
2. sept. ef næg þátttaka fæst. Uppýsingar hjá
Kristjáni Guðleifssyni í síma 2226, Keflavík.
Sætaáklæði
í V.W Opel og Skoda.
Sérstaklega hagstætt verð.
Gólfmoftur
í margar gerðir bíla.
Athugið hvort við eigum ekki það
sem vantar í bifreiðina.
KRISTINN GUÐNASON H.F.
Klapparstíg 27 — Sími 1 23 14.
Volkswagen 1500 S
árg. 1964 er til sölu. Innfluttur frá Þýzkalandi.
í bifreiðinni er ýmiss konar aukaútbúnaður, svo
sem topplúga, opnanlegir afturgluggar, víðari felg-
ur og útvarp. Vélin 2ja karbrotora, 66 hestöfl. Uppl.
í síma 36001.
237 austurrísk frímerki ókeypis
Um fjögurra vikna skeið hlýtur nú sérhver lesandi
ókeypis 237 hinna fegurstu Austurríkis-frímerkja,
sérmerki og betri tegundir eftirstríðsgilda, af-
greidd um leið og hann kaupir stóra „lúxus“-
böggulinn sem inniheldur 3150 dýrleg mismunandi
safnarafrímerki, mynda-merki (andvirði sam-
kvæmt verðlista yfir 450 Michel-mörk) fyrir gjaf-
verðið: aðeins 500 krónur gegn póstkröfu, fullur
réttur til skipta.
Engin áhætta! Allir verða stórhrifnir!
BLAÐBURÐARFOLK
* í eftirtalin hverfi
Kaplaskjólsveg
Laugarásveg - Karlagöfu - Laugaveg, neðri
Hverfisgötu, I - Snorrabraut - Faxaskjól
Sendið í skyndi póstkort og biðjið um „lúxus“-
böggul nr. 2, aðeins hjá MARKENKÖNIG, Bra-
endströmgasse 4, Mozartstadt SALZBURG, Öster-
reich.
7o//ð v/ð afgreiðsluna i sima 10100