Morgunblaðið - 30.08.1967, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1967
ATTRÆÐUR I DAC:
Páll dlafsson fyrrv. ræðismaöur
UPP úr síðustu aldamótum roðar
af nýjum degi á íslandi. Þjóð-
in er að vísu ennþá örsnauð. En
hún er að byrja að finna til mátt
ar síns. Heimastjórn er á næsta
leiti eftir stjórnarbótarbaráttu
19. aldar. Margt ungra hugsjóna-
og atíhafnamanna er að vaxa til
manndóms og þroska. Nýjar
félagsmálahreyfingar kvikna
og efla samtök og samhug. Is-
lenzk þjóð er komin út úr
dimmu ófrelsis og getuleysis.
Mikið uppbyggingar- og fram-
faratímabil er að renna upp.
Einn þeirra ungu íslendinga,
sem um þessar mundir kemur
fram á sjónarsviðið er Páll
Ólafsson frá Hjarðarholti, fyrrv.
ræðismaður og íramkvæmda-
stjóri, sem í dag á áttræðisaf-
mæli. Ætt hans og uppruni
skapa honum góð skilyrði til
þess að mæta hinum nýja tíma
og skilja og hlýða kalli hans.
★
Páll Ólafsson fæddist 30.
ágúst árið 1887 að Lundi í
Lundareykjadal í Borgarfirði.
Voru foreldrar hans Ingibjörg
Pálsdóttir, prests Mathíesen í
Arnarbæli og á Þingvöllum, en
hún var systir séra Jens Páls-
sonar prófasts og alþingismanns
að Görðum á Álftanesi, merk og
gáfuð kona. Faðir hans var séra
Ólafur Ólafsson, prestur að
Lundi, síðar prófastur að Hjarð-
arholti í Dölum. Séra ólafur var
sonur Ólafs Jónssonar (Johnsen)
kaupmanns og útgerðarmanns í
Hafnarfirði er var mikill dugn-
aðar- og atorkumaður.
Séra Ólafur var um margt sér-
stæður maður. Hann var 17 ár
prestur að Lundi og 17 ár í
Hjarðarholti og bjó á báðum
stöðunum miklu rausnarbúi.
Áhugi hans á skóla- og menn-
ingarmálum sézt bezt af því,
að hann stofnaði og rak ung-
lingaskóla að Hjarðarholti um
langt árabil. Sóttu þangað æsku-
menn úr öllum landshlutum. Um
séra Ólaf hefur Guðbrandur fs-
berg, sýslumaður, er var nem-
andi í Hjarðarholtsiskóla, m.a.
komizt að orði á þessa leið:
„Orðstír séra Ólafs, sem
kennimanns og athafnabúhölds,
hafði borizt á undan honum, og
séra Ólafur brást ekki vonum
manna. Hann fluttizt að Hjarð-
arholti með konu sína og glæsi-
legum hóp stálpaðra barna, og
á fáum árum varð Hjarðarholts-
heimilið slíik fyrirmynd, bæði
innra og ytra, að þess mun ætíð
minnst af þeim, sem þekktu sem
hins glæsilegasta sveitaheimilis
að urngengnisprýði, höfðings-
skap og rausn.
— Ég minnist með þak'klæti
og virðingu margra síðari kenn-
ara minna í Menntaskólanum og
Háskólanum, en ég hefi engan
kennara þekkt, sem lagði sig í
líma fyrir nemendur sína eins
og séra Ólafur gerði. Hann var
fæddur kennari. Honum á ég
einna mest að þakka allra
manna mér óskyldra, er ég hefi
mætt á lífsleiðinni.“
Þannig kemst þessi gamli
nemandi prófastsins í Hjarðar-
holti að orði um hann, heimili
hans og skóla.
En séra Ólafur var ekki aðeins
dugandi bóndi, merkur skóla-
maður og kennimaður. Hann
var einnig frábærlega listfeng-
ur. Á fullorðinsárum byrjaði
hann að iðka málaralist með
þeim árangri að eftir hann ligg-
ur fjöldi ágætra listaverka.
Páll Ólafsson var þannig al-
inn upp á miklu menningarheim-
ili, þar sem héldust í hendur
verkleg hyggindi og eldheitur
áhugi á bættri aðstöðu æskunn-
ar til fræðslu og menningariðk-
ana.
Páll Ólafsson ólst up hjá for-
eldrum sínum að Lundi og í
Hjarðarholti. Naut hann þar
ágætrar fræðslu, en veikindi um
fermingaraldur munu hafa
hindrað að hann gengi lang-
skólaveginn. En hann varð engiu
að síður ágætlega menntaður
maður. Þar heima á höfuðbólinu
kölluðu mörg störf að. Páll varð
kornungur kennari við Hjarðar-
holtsskóla, bústjóri á hinu stóra
búi og forsöngvari við kirkju
föður síns. En hann var þegar
á unga aldri mikill músíkmaður.
Mun hann hafa fengið þá hæfi-
leika að erfð frá móður sinni er
hvatti börn sín mjög til hljóm
listarið’kana.
Páll Ólafsson réðist árið 1908
bókhaldari við Thomsensmaga-
sin í Reykjavík, sem þá var ein
stærsta verzlun landsins. Mun
þá fyrst og fremst hafa vakað
fyrir honum að kynna sér verzl-
unarrekstur og fyrirkomulag
stórfyrirtækis. En hann hafði að-
eins dvalið um eins árs skeið í
Reykjavík, er héraðsbúar hans
í Dölum kusu hann kaupfélags-
stjóra fyrir kaupfélag Hvamms-
fjarðar, og beiddust þess að
hann hyrfi heim á ný. Varð það
úr að Páll tók við kaupfélags-
stjórastarfinu, þá 21 árs gamall.
Gek’k hann með miklum ötul-
leik að uppbyggingu félagsins
og vann það á skömmum tíma
upp. Jafnframt beitti hann sér
fyrir stofnun Sláturfélags Dala-
manna og var formaður þess og
framkvæmdastjóri. Blómgaðist
hagur kaupfélagsins mjög undir
stjórn hans. Eftir að hann lét
að kaupfélagsstjórn stofnaði
hann eigin verzlun í Búðardal og
rak hana um árabil. Jafnframt
keypti hann jörðina Hrapps-
staði í Laxárdalshreppi og rak
þar búskap samhliða verzlun
sinni.
En nýir tímar koma með ný
verkefni. Haustið 1916 flytzt
Páll Ólafsson til Reykjavíkur
ásamt fjölsikyldu sinni. Þar
hefst hann handa um verzlun,
kaupir þar jarðir og stundar bú-
skap.
Upp úr þessu verða þáttaskil
í lífi og starfi Páls Ólafssonar.
Hugur hans tekur að hneygjast
að útgerð. Hann kaupir ásamt
nokkrum mönnum vélskip, sem
gert er út til síldveiða. Siðan
tekur hann þátt í stofnun tog-
arafélagsins „Kára“, og er ráð-
inn framkvæmdastjóri þess. Ár-
ið 1924 kaupir hann útgerðastöð
í Viðey, endurbætir hana og
byggir upp og rekur þar umfangs
mikinn atvinnurekstur um ára-
bil. Um þetta leyti kaupir hann
einnig í félagi við föður sinn og
Ólaf Bjarnason, mág sinn frá
Siteinnesi höfuðbólið Brautar-
holt á Kjalarnesi og reka þeir
þar búskap í nokkur ár. ólafur
Bjarnason tók síðan við þessari
mi'klu jörð og hefur hann og
synir hans búið þar síðan við
rausn.
Þá stofnaði Páll einnig ásamt
nokkrum öðrum togarafélagið
„Fylkir“ og var framkvæmda-
stjóri þess. Bæði þessi togara-
félög, „Kári“ og „Fylkir" gengu
vel og skiluðu góðum hagnaði.
Þriðja togarafélagið, sem Páll
átti hlut að var sameignarfélag-
ið „Kópur“. Veitti hann því for-
stöðu í nokkur ár, þar til hann
fluttist til Kaupmannahafnar ár-
ið 1936. En þá var tekið að
halla undan fæti fyrir íslenzkri
togaraútgerð.
★
Þegar Páll Ólafsson flytzt til
Kaupmannahafnar má segja að
Ijúki fyrri þættinum í miklu og
óvenju fjölbreyttu lífsstarfi hans.
En margvísleg störf biðu hans
á nýjum vettvangi, sem síðar
verður að vikið.
Páli Ólafssyni höfðu verið
falin mörg trúnaðarstörf, bæði
heima í héraði sínu og eftir að
hann fluttist til Reykjavíkur.
Hann var á unga aldrei kosinn í
hreppsnefnd Laxárdalshrepps í
Dalasýslu. Þar stofnaði hann
einnig ungmennafélagið „Ólafur
Pá“, og var formaður þess
félags allt þar til hann fluttizt
til Reykjaví’kur. Hann stofnaði
einnig söngfélag í Dölum og var
söngstjóri þess.
Hér í Reykjavík átti hann í
mörg ár sæti í stjórn „Félaigis ísl.
botnvörpuskipaeigenda" og var
framkvæmdastjóri þess félags í
tæpan áratug. Á vegum þess
kom hann fram við fjölmargar
samningagerðir fyrir hönd út-
gerðarmanna. Vann hann við það
mikil sitörf, sem öll voru ólaun-
uð. Hann var einn af stofnend-
um „Samtryggingar ísl. botn-
vörpuskipaeigenda" og átti sæti
í fyrstu stjórn þess og fram-
kvæmdastjóri um skeið. Einnig
var hann meðal stofnenda Vinnu
veitendafélags íslands og átti
sæti í fyrstu framkvæmdastjórn
þesis. Aðalhvatamaður var hann
að stofnun „Félags ísl. línuveið-
araeigenda“ og fyrsti formaður
þess. Er það mál allra þeirra er
til þekkja, að að öllum þessum
störfum hafi Páll Ólafsson geng-
ið aif sérstakri ósérhlífni og þreki.
Þegar Páll flytzt til Kaup-
mannahafnar er síðari heims-
sityrjöldin tekin að nálgast. Marg
víslegir erfiðleikar og óvissa
steðja að útgerð og öðrum at-
vinnurefestri. Afleiðingar ferepp-
unnar segja til sín, ekki aðeins
á íslandi heldur einnig víðar um
Evrópu. En Páll Ólafsson var
efeki seztur í helgan stein, enda
ennþá á bezta aldri. Hann undir-
býr nýjar útgerðarframkvæmdir
í Færeyjum og jafnvel í Græn-
landi. En fyrr en varir skellur
heimstyrjöldin yfir og mörg
sund lokasit, en efeki öll. Páll
Ólaifsson flytzt nú til Færeyja.
Þar setur hann á stofn umboðs-
og hei'ldverzlun í Þórshöfn. Efld-
isit það fyrirtæki skjótt og náði
miklum viðskiptum bæði með
innkaupum á vörum frá Eng-
landi og svo umboðsverzliun með
fisk frá íslandi og Færeyjum tii
Englands. Hafði Páll nú m.a.
frumkvæði um það að Færeying
ar byrjuðu að kaupa bátafisk frá
íslandi og sigla með til Eng-
lands. Voru þetta mikilir anna-
tímar í lífi hans og þótt aitvinnu-
rekstur Shans gengi vel og blómg-
aðist var við fjölmarga erfið-
leika að etja mitt í ógnum og
upplausn heimsstyrjaldar. Eftir
stríðið hafði Páll mil'ligöngu um
margvís'leg viðiskipti milli íslend
inga og Færeyinga. m.a. um
sfeipasöiur.
Áirið 1947 var Páll Ólafsson
S’kipaður ræðismaður fyrir ísland
í Færeyjum. Varð hann þar með
fyrsti ræðismaður íslands í
Þórshöfn. Gegndi hann því starfi
meðan hann var búsettur í Fær-
eyjum. Munu margir minnast
fyrirgreiðslu hans og margvís-
legrar aðstoðar við íslendinga á
því tímabili. Heim tii íslands
flytzt Páll Ólafsson svo endan-
lega aftur árið 1958. Hafð'i hann
þá um nokkurt skeið verið bú-
settur í Danm’örku eftir að hann
fiuttist frá Færeyjum. Stendur
heimili hans nú á Ásvallagötu
54 í Reykjavík.
★
Páll Ólafsson kvæntist árið
1913 Hildi Stefánsdóttur, prests
Jónssonair á Auðkúlu og Þor-
bjargar Halldórsdóttur konu
hans. Séra Stefán var þjóðkunn-
ur bennimaður, glæsimenni hið
mesta og héraðshöfðingi. Er frú
Hildur hin merkasta kona, gáfuð
og mikiilhæf. Hafa heimili þeirra
hjóna utanlands og innan, jafn-
an borið svip óbrigðular sm-ekk-
vísi hennar og myndarskapar.
Sérstafeleiga minnasit eldri vinir
þeirra heimila þeirra á Hólavelii
og Sól'vallagötu 4. Var þar ætíð
opið hús ættingjuim og vinium til
lengri eða skemmri tíma. Eiga
þau hjón fimm glæsileg börn,
Stefán tannlækni í Reykjavík,
sem fevæntur er Guðnýju Níels-
dóttur, Ingibjörgu, gift Pétri
Eggerz sendiherra, Þorbjörgu,
gift Andrési Ásmundssyni lækni,
Ólöfu myndhöggvara, gift Sig-
urði Bja'rnasyni ritstjóra og dr.
Jens Pálsson mannfræðing.
Páll Ólafsson er glæsimenni í
sjón og raun. Lífsferill hans er
óvenju fjöLþættur. Hann feemur
’fyrst fram á sjónarsviðið setm
ungur hugsjónamaður, gerist síð
an athafnamikill atvinnureka'ndi
og framkvæmdamaður til lands
og sjávar. En hann heldur alltaf
áfram að fást við hugðarefni
æsku sinnar og semur hugljúf
ljóð og lög, sem e.t.v. sýna þeim
sem kynnast þeim innri mann
hans betur en nokkuð annað. En
hann er gleðimaður, prúð'menni
hið mesta og eftirsóttur á góðra
vina fund.
Páll Ólafsison hefur þrátt fyrir
margvíslega erfiðleika á lífsleið-
inni verið mikdll gæfumaður.
Hann getiur nú í ró hinna efri ára
litið glaður yfir farinn veg. í
lífi hans hafa eins og allra
manna skipzt á skin og skuggar.
En á ævi þessa sístarfandi og
fjölhæfa baráttumanns er skinið
sfeuggunum langtum yfirsterk-
ara. Hann hefur siglt skipi sínu
’heilu í höfn yfir sollinn sæ og
nýtur nú ávaxta langrar bar~
áttu. Páll Ólafsson hefur verið
baráttuglaður maður. í því ligg-
ur lífslán hans.
★
Matthías heitinn Þórðarson,
rithöfundur og ritstjóri, þefefeti
Pál Ólafsson betur en flestir vin-
ir hans og var honum einkar
samrýmdur á efri árum. Matt-
hías komst þannig að orði um
Pál Ólaifsson á sjötugsafmæli
hans:
„Venjulega eru það einstakir
afburðamienn er ryðja brautina
og verða til fyrirmyndar, eða
með öðnum orðum ganga á und-
an með góðu efitirdæmi. f þess-
um síðast nefnda flokki má ó-
efað telja Pál Ólafsson.
Ef ísland eignast marga hug-
sjóna- O'g aithafnamenn eins og
Pál Ólafsson þá er vel farið“.
Þetta voru ummæli hins merka
manns, Matthíasar Þórðarsonar.
Að lokum þetta. Vinir og
venzlamenn Páls Ólafssonar
hylla hann áttræðan um leið og
þeir þakka honum allt gott og
drengilegt á liðnum tíma. Þeir
eiga þá mest að þakka, sem
næst honum standa og lengst
hatfa notið góðvildar hans og
mannkosta. En þjóð hans mun
einnig mánnas't aldamótamanns-
ins, sem hóf störf sín þegar roð-
aði atf nýjum degi í íslenzku
þjóðlífi.
S. Bj.
Páll Olafson er fjarverandi í
dag.
Stey p u stö ðva rstj ó r i
fyrir hálfsjálfvirka steypustöð óskast
strax. Þarf að vera vanur svipaðri vinnu
og kunna ensku eða skandinavisku.
Upplýsingar í síma 52485.
Nýtízku 5 herb. íbúð
162 ferm. með sérþvottahúsi, 2 geymslum og vinnu-
herb. á hæðinni, við Hraunbraut til sölu. Sérinn-
gangur, sérhiti. Bílskúrsréttindi. — Skipti á góðri
4ra herb. íbúð möguleg. Nánari upplýsingar gefur
Sjón er sögu ríkari
Hýja fasteignasalan
Simí 24300