Morgunblaðið - 09.11.1967, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. NÓV. 1967
Meðaltal getgátanna um
úrslit 17-16 Júgóslövum í vil
Er blaðamenn og Framarar ræddu
um leikinn á sunnudag
A LAUGARDAGINN koma júgóslavnesku meistararnir í hand-
knattleik. Koma þeir í eigin leigufarkosti flugleiðs, og með i
förinni eru um 70 manns, — stuðningsmenn liðsins, sem vilja
fyigja þeim til og styðja í keppninni við Fram, sem fer fram á
sunnudag kl. 4 síðdegis. Flugvélin bíður þeirra til þriðjudags-
morguns, en á mánudagskvöldið leikur liðið „aukaleik“ við FH.
A fundi sem forráðamenn
Fram áttu með blaðamönnum
í gaer beitti Karl Benedikts-
son þjálfari Fram sér fyrir
því, að allir viðstaddir gerðu
spá um úrslit leiksins. Bjart-
sýnastir af þeim 8 sem við-
staddir voru, voru þeir Reyn
ir Karlsson (landsliðsþjálfari
í knattspyrnu) Alfreð Þor-
steinsson (Tíminn) og Birgir
Lúðvíksson (Fram) en svart-
sýnastir Sigurður Sigurðsson
Karl Benediktsson og A. S.
Meðaltal getgátanna varð
hinsvegar 17:16 Júgóslövum í
Wolves og
Coventry í
sjónvorpinn
Knattspyrnuleikur laugardags-
ins í ísl. sjónvarpinu verður um
næstu helgi leikurinn milli Wol-
werhampton og Coventry, sem
fram fór sl. laugardag. Hafði áð-
ur verið ráðgerður og tilkynntur
annar leikur, en þeim leik var
frestað sl. laugardag svo velja
varð annan í staðinn.
vil. Og nú er eftir að sjá
hvort þessir vísu menn hafa
rétt fyrir sér.
Um liðið og júgóslavneskan
handknattleik fórust Fram-liðum
orð m.a. á þessa leið:
Það er ekki ofsögum sagt, að
í Mið-Evrópu rísi handknattleik-
urinn hæst. Núverandi heims-
meistarar eru Tékkar, en þar á
undan héldu Rúmenar heims-
meistaratitlinum. Þótt nágrann-
ar þeirra, Júgóslavar, hafi aldrei
orðið heimsmeistarar, eru þeir
Noiskur dómari
DÓMARI í leik Fram og Júgó-
slava á sunnudaginn yerður
norskur, Einar Friedenlund
Holm að nafni, og er hann frá
Osló. Hann var upphaflega til-
kynntur sem varadómari á þess-
um leik, en sá sem var „aðal-
ma'ður“ forfallaðist. Enginn dóm
ara hér þekkir til þessa manns,
en vonandi er hann starfinu vax-
inn. Markdómarar verða Magnús
V. Pétursson og Valur Bene-
diktsson.
Þess má og geta að sala að-
göngumiða að leiknum er hafin
hjá Lárusi Blöndal bóksala í
Vesturveri og Skólavörðustíg.
Liverpool vann 8-0
LIVERPOOL, enska knattspyrnu
liðið, vann í fyrrakvöld stórsig-
ur yfir þýzka liðinu TSV
Múnchen 1860. Englendingarnir
unnu með átta mörkum gegn
engu. Leikurinn, sem fór fram á
Anfield í Liverpool, er liður í
bikarkeppni borgarliða Evrópu.
Ekki voru liðnar nema 10 mín.
af leik er staðan var 2—0. St.
John skoraði fyrsta markið og
átti mikinn þátt í því næsta er
hann lagði knöttinn fyrir fætur
Hateley, sem skoraði auðveld-
lega. Þriðja markið skoraði Liv-
erpool úr vítaspyrnu seint í fyrri
hálfleik. Smith skoraði úr spyrn
unni. í síðari hálfleik hélt
mafkaregnið áfram, því þegar
um 60 mín. voru liðnar af leik
var staðan orðin 7—0. Hunt 2,
Callaghan 2 og Thompson skor-
uðu. Þjóðverjarnir áttu laglega
leikkafla í leiknum, en komust
þó aldrei í færi til að skora.
í hópi beztu handknattleiksþjóða
heims.
í lokakeppni HM í Svíþjóð á
þessu ári voru þeir meðal þeirra
16 þjóða, sem kepptu um heims
meistratitilinn. Þeir byrjuðu
mjög vel í riðlakeppninni og
unnu Sviss í fyrsta leik 26:11.
Þar næst mættu þeir Svíum og
sigruðu þá örugglega 21:17.
Þriðji leikur Júgóslava var gegn
Dönum og voru þeir fyrirfram
taldir öruggir sigurvegarar. En
margt fer öðru vísi en ætlað er.
Danir unnu mjög óvænt 14:13
og trygðu sér þar með sæti í
undanúrslitum. Þessi úrslit urðu
mikil vonbrigði fyrir Júgóslava,
því að með þeim var útilokað,
að þeir gætu hreppt eitt af
fyrstu sætunum. E. t. v. varð
þetta til þess, að þeir töpuðu síð
an fyrir Vestur-Þjóðverjúm með
eins marks mun, 30:31, en í síð-
asta leiknum, sem var gegn Ung-
verjum, unnu Júgóslavar 24:20,
og hlutu þar með 7. sæti í
keppninni.
Sigur gegn Svíum og Ung-
Framhaid á bis. 31.
Sigurður Einarsson er einn af beztu mönnum Fram bæði í vörn
og ekki síður sem „línumaður" í sókn. Hér sést hann skora
gegn landsliðinu í pressuleiknum á dögunum. Næsti leikur hans
verður gegn júgóslavnesku meisturunum. — Ljósm. Sv. Þorm.
Stærstu dönsku sérsamböndin
fá 1,6 milljón kr. styrki I ár
HSÍ og KSÍ fengu s.l. ár
80-100 þús. kr. í styrki
DANSKA íþróttasambandið hélt
fund sl. laugardag og fjallaði þá
um tillögur um fjárstunðing við
hin einstöku íþróttasamtök í Dan
mörku. Tillögur nefndar voru
að veittar yrðu til íþróttastarfs-
ins 3.312.000 d. kr. eða 20.5 millj.
ísl. kr. Það er fróðlegt fyrir ísl.
samböndin að sjá styrki ým-
issa sambanda „sem við þekkj-
um til“ og bera saman upphæð-
ina sem ísl. samböndin fá — en
ísl. samböndin eru flest í mikl-
um fjárkröggum.
Við tökum aðeins þau sam-
8 háskólamenntaðir menn
í meistaraliði „Partizan
//
— auk allskyns 99fræðinga
66
ÞÁ skortir ekki menntunina
júgóslavnesku meistarana í hand
knattleik, sem leika gegn Fram
á sunnudaginn. I hópnum eru
að minnsta kosti 8 menn með
háskólapróf eða í háskóla og auk
þess landmælingamaður, íþrótta-
kennari, 2 iðnfræðingar og vél-
fræðingur.
Félagið Partizan Bjelovar er
ungt félag með glæsilegan feril.
Það er aðeins 10 ára gamalt.
Frami félagsins í júgóslav-
neskum handknattleik varð skjót
ur, því að 1958 komst félagið
í 1. deild og varð Júgóslavíu-
meistari sama ár. Félagið vann
meistaratitilinn aftur 1961 og
1967. Árið 1960 varð Partizan
bikarmeistari Júgóslavíu og hef-
ur síðan komizt tvisvar sinnum
í úrslit í bikarkeppninni.
Einn glæsilegasti kaflinn í
sögu Partizan Bjelovar á árun-
um 1961—62, en þá komst liðið
í úrslit í Evrópubikarkeppninni.
En í úrslitaleiknum tapaði Parti
zan naumlega fyrir v-þýzku
meisturunum Frischauf Göpping
en, eða 11:13.
Eins og af þessu má sjá, er
ferill Partizan í 10 ár litríkur og
glæsilegur. Og núna á þessu ári,
þegar liðið tekur þátt í Evrópu-
bikarkeppni í annað sinn, hefur
það sett sér hátt mark. Liðið er
skipað ungum leikmönnum,
kjarninn úr júgóslavneska
landsliðinu, og eflaust gera
Júgóslavar sér miklar vonir i
Evrópubikarkeppninni. Spurn-
ingin er, tekst Fram að gera
þessar vonir að engu?
Félagið er frá Bjelovar, sem
er lítill bær á júgóslavneskan
mælikvarða, en íbúar hans eru
um 20 þúsund talsins. Bjelovar
státar af því, að hingað til hef-
urinn enginn leikmaður frá öðr-
um borgum leikið með liði
þeirra.
bönd úr tillögum Dana, sem eiga
hliðstæður hér á landi og upp-
hæðin sem tilgreind er er miðuð
við danskar krónur. Vedður því
að margfalda með 6.20 til að fá
út upphæðina í ísl. kr.
Frjálsíþróttasambandið 186 þús.
Badmintonsambandið 180 —
Glímusambandið 80 —
60
260
50
210
260
44
60
156
Körfuknattleikur
Knattspyrnusambandið
Golfsambandið
Fimleikasambandið
Handknattleikssamband
Skíðasambandið
Skautasambandið
Sundsambandið
Þessar tölur eru miðaðar vi'ð
fjárstuðning á árinu 1967-1968.
Er fróðlegt að sjá, að knatt-
spyrnusambandið t.d. fær 1,6
millj. ísl. kr. — sem það síðan
getur veitt til knattspyrnumála
í Danmörku. Handknattleikssam
Framhald á bls. 31.
Sérsamband stofnað
fyrir badminton
Kristján Benjamínsson kjörinn formaður
STOFNÞING Badmintonsam-
banils íslands var háð í húsa-
kynnum ÍSÍ sunnudaginn 5. nóv.
11 héraðssambönd voru stofnend
ur og sátu þingið 12 fulltrúar frá
9 héraðssamböndum auk þess
mættu undirbúningsnefnd og
framkvæmdastjórn ÍSÍ.
Porseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson,
setti þingið með ræðu. Þingfor-
seti var kjörinn Kristján Bene-
diktsson, Reykjavík, og annar
þingforseti Jónas Gestsson, Graf
arnesi. Þingritarar voru kjörnir
Þórður B. Sigurðsson, Reykja-
vík og Pétuir Sigurðsson, Sel-
fossi.
Kriistján Benjamínsson, for-
maður undirbúningsnetfndar, út-
skýrði frumvarp að- lögum fyrir
hið nýja samband, sem samþykkt
var með nokkruim breytingum og
heitir sambandið Badmintonsam-
band íslands, síkammstafað BSÍ.
Stjórn hirus nýja sambands
skipa:
Kristján Benjamínsson, for-
maður.
Óskar Guðmundsson, Ragnar
Þorsteinsson, Ormar Skeggja-
son og Ragnar Georgsson.
í varastjórn voru kjörnir:
Birgir Hermannsson, Akur-
eyri, Eyjólfur Bjarnason, ísa-
firði, Hallgrímur Árnason, Ak-
ureyri.
Endurskoðendur:
Magnús Elíasson, Gunnar Fel-
ixson.
í badmiritondómstól voru
kjörnir:
Guðjón Einarsson, Þorgeir
Ibsen, Guðmundur Yngvi Sig-
urðssoni
Til vara:
Einar Jónsson, Þorvaldur Ás-
geirsson og Vagn-Ottoson.
í þmglok voru margar hvatn-
ingaræður haldnar.