Morgunblaðið - 23.01.1968, Síða 26

Morgunblaðið - 23.01.1968, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR 1968 Öruggur sigur FH yfir KR 26:17 EFTIR fyrri hálfleik í leik FH og KR reiknuðu flestir með að FH mundi þar vinna yfirburða- sigur. Staðan var 13:6 og höfðu FH-ingar tekið forvstuna þegar í upphafi leiksins. Reyndar byrj aði leikurinn ekki vel fyrir þá, þar sem Sæmundur KR-mark- vörður varði illa framkvæmt vítakast frá Geir Hallsteinssyni. Leikurinn var frá upphafi nokk- uð harður og segir það sína sögu að í fyrri hálfleik voru dæmd 8 vítaköst og einum leikmanni var vísað útaf. Síðari hálfleikur var hins veg- ar mun jafnari. FH-ingar virt- ust ekki leggja sig fram, en leggja meira upp úr því að prófa leikkerfi, sem gaf góðan árangur þrótt fyrir að FH-ingar þyrftu að slá af hraða sínum. Hafði FH örugga forystu allt til leiksloka, en þau urðu 27:16. Lið FH var í leik þessum mjög jafnt og skoruðu allir leikmenn þess, að markvörðum undan- skyldum. Minna bar á Geir HaM steinssyni í þessum leik en mörgum öðrum, en aftur á móti bar meira á Erni, bróður hans, sem átti nú einn sinn bezta leik í vetur. Leikkerfi það sem FH- ingar virðast vera að prófa sig Framhald á bls. 20. Einar Magnússon fékk þarna óblíðar móttökur á línunni, en náði að skjóta, en Logi varði. Mun þetta sennilega verða síð.rsti leikur Loga á þessu keppnis tímahili, þar sem hann er á för- um til útlanda. 99 Enn einn úr heita stólnum“ ENN hefur framkvæmda- stjóra ensks knattspyrnu- félags verið vísað úr starfi sínu, fyrirvaralaust. Það var 1. deildar liðið Fulham, sem rak Vic Buckhingham í gær- dag. Fulham er næstneðst í 1. deild og hefur gengi félagsins verið afar slæmt undanfarið, liðið ekki unnið leik s.l. 7 vik- ur og í mikilli fallhættu. Ful- ham hefur þessi þrjú ár sem Buckingham var við stjórn alltaf bjargað sér frá falli niður í 2. deild í siðustu leikj- unum. Aðsókn hefur verið afar dræm og félagið barizt i bökkum fjárhagslega. Buck- ingham var á yngri árum þekktur leikmaður hjá Tott- enham, en hefur verið fram- kvæmdastjóri hjá Bradford, west Bromwich Albion, Sheff ield Wednesday og Ajax, holl- enzka félaginu. Það er ekki að ástæðulausu að enskir kalla framkvæmdastjórastöð- una hjá ensku atvinnufélög- unum „heita stólinn". Hann er a.m.k. heitur þegar illa gengur. Endasprettur færði Haukum störsigur yfir Víking 29:20 HAUKAR hafa greinilega ekki sagt sitt síðasta orð í 1. deildar- keppninni í handknattleik. Sig- Heimsmet í skauta- hlaupi GUNTHER Stsuib varð meistari V-Þýzkalands í skautahlaupi. Hann hljóp 1500 m. á 41.7 sek., 1500 m. á 2:05,6 mín., 5000 m. á 7:40,2 og 10 km. á 15:42,6. Sam anlagt hlaut hann 176,717 en það er heimismet. Eldra metið átti Norðmaðurinn Stiansen, sett fyr ir viku og var 176.982. Mótið ror fram í Inzell í Bayern. í keppni í Noreg: bætti Norð- maðurinn Fred A. Maier nO’kk- urra daga gamalt bemvsmet sitt í 10 km. skautahlaupi, hljóp á 15:29,5 mín. Rukkaöur um barns- meðlag fyrir keppni varð svo míkið um að hann tapaði SVISSLENDINGURINN Dumeng Gkrvanoli, 27 ára, vann svig- keppni hins fræga Hahnenkam- móts í Austurríki á sunnudag- inn. En Frakkinn Jean Claude Killy vann sigur í tvíkeppni — svigi og bruni en hann vann brunkeppnina sl. laugardag. Ungur Austurríkismaður, Alfred Matt kom einna mest á óvart með því að hafa beztan tíma í fyrri umferð svigkeppninnar. Frakkamir yfirgáfu motið þegar eftir brunkeppnina í mótmælaskyni. Mótmæltu þeir hvarfi á farangri Jean Glaude-Killy á föstudag og lagalegum aðgerðum móti honum á sunnudag. Bar þá svo til rétt fyrir keppnina að einkennisklæddur laganna vörður kom til skíðamann- anna, þar sem þeir voru til- búnir til keppni og las yfir J. C. Klily kröfu frá austur- rískri stúlku á hendur hon- um til greiðslu á barnsmeð- lagi með dóttur hennar, sem hún segir Killy vera föður að, fyrir sl. 4 ár, eða frá fæðingu telpunnar. Hafði þetta mikil áhrif á Killy og segja Frakk- ar að fyrir þetta hafi hann tapað svigkeppninni. Mótið er fyrst og fremst um bikar sem veittur er fyrir bezta afrek sameiginlega í greinunum. Killy vann því stærstan sigur þrátt fyrir allt. urmöguleikar þeirra eru að vísu nánast engir, en með leik sínum á sunnudagskvöldið, sönnuðu þeir að þeir geta verið hættu- Iegir andstæðingar hvaða liði sem er. Að vísu var sigur þeirra yfir Víkingum, nokkuð stór mið að við gang leiksins, en síðari hiuta seinni hálfleiks léku þeir mjög skemmtilega og sönnuðu að þeir hafa bæði yfir ágætum línu mönnum og skotmönnum að ráða. Leikurinn var lengi vel fram- an af mjög jafn. Víkingar höfðu yfirtö’kin í fyrri hálfleik, en aldrei meira en 2 marika forskot og Haukar náðu 8 sinnum að jafna og í hálfleik var staðan jöfn 12:12. í síðari hálflei'k tóku svo Haukar strax forystuna með tveimur stórfallegum mörkum Ólafs Ólafssonar. Víkingar náðu að minníka muninn niður í 1 mark, en á lokasprettinum skor uðu Haukar 7 mörk í röð á jafn mörgum mínútum, án þess að Víkingum tækizt að svara fyrir sig. Mátti þá sjá margt mjög sikemmtiíegt til Haukanna, sem hvað eftir annað galopnuðu vöm Víkings með hnöðiu spili sínu. Lokastaðan var 29:20 fyrir Hauka og höfðu þar með náð í sín fyrstu stig í mótinu. Lið Hauka vax fremur jafnt í þessum leik og féll-u miklu bet- ur saman heldur en það hefur gert að undanförnu, en það hef- ur einmitt verið einn megingalli þess, hversu einstaklingshyggja hefux verið þar ráðandi. Ólafui Ólafsson, Þórður, Stefán og Sig- urður Jóakimsson áttu allir mjög góðan leik, auk Loga í markinu sem varði oft frábær- lega, og m.a. tvö vítaköst sem Jón Hjaltalín framkvæmdi. Voru það ekki nein smáskot. Þá átti Viðar allgóðan leik, en var of mikið inná og orðinn þungur þegar leið að leiksfok.um. Að þessu sinni var það hvorki Jón Hjaltalín né Einar Magnús- son sem léiku aðaihlutverkið hjá Víking, heldur ungur nýliði Jó- Framhald á bls. 20. Bætti met Wirkola NÍTJÁN ára gamall Bandaríkja maður — unglingameiistari þar í skíðastökki — Adrian Watt að naf.ni, bar sigur úr býtum á síð- asta úrtökumóti vestra fyrir OL í Grenoble. Keppnin för fram í Iron Mountain og stökk Watt 102.5 m. Það er dálaglegt stökk ekki sízt þegar þess er gætt að eng- inn Bandaríkjamaður hefux stokkið lengra og hann bætti brautarmetið sem enginn annar en Bjöm WirkoLa OL-meistari og heimsm,eistari setti í fyrra þá er hann var á toppi frægðar sinn ar. Watt verður aðalmaður stökkiiðsins í Grenoble — hvað sem t.augar hans þola á því stór móti. ÍR sigraði KFR 81:65 og KR vann ÞÖR 62:50 Agnar Friðriksson stighæsti maður dagsins með 31 stig ÍSLANDSMEISTARAMÓTINU í körfuknattleik var haldið áfram s.l. sunnudag. Fóru þá fram 2 leikri í I. deild. ÍR vann K.F.R. 81 : 65 og KR sigraði Þór 62 . 50. Þá fór einnig fram leikur í II. fl. karla, KR sigraði ÍR 44 : 26. ÍR—KFR 81 : 65. ÍR skoruðu 11 stig á móti 1 hjá KFR, en þeim tókst að jafna stígin á nokkrum mínútum. Var fyrri hálfleikur nokkuð jafn sem eftir var, en hann endaði 42 : 33 ÍR í vil. Síðari hálfleikur var mjög jafn framanaf, en þegar liða tók á ieikinn virtist úthaldið bila hjé KFR mönnum, og skor.uðu ÍR- ingar hvað eftir annað með skyndihlaupum, og er leiknum lauk var staðan 81:65 fyrir lR. Stigahæstir ÍR-ingar voru Agn ar Friðriksson með 31 stig og Birgir Jakobsson með 25. Hjá KFR var Þórir Magnússon stiga- hæstur að va.nda með 28 stig. Dómarar voru þeir Hallgrímur Gunnarsson og Hilmar Ingólfs- son. KR-Þór 62 :50. Kr. skoraði fyrsta stig leiksins úr vítakasti. en litlu síðar skor- aði Þór og komst yfir 2:1. Næstu mínúturnar skoraði KR hvað eft. ir annað og voru næstu tíu mínúturnar bezti leikkafli KR- i liðsins, en í hálfleik var staðan 33—22 KR í vil. Síðari hálfleik- ur var mjög jafn og vann KR hann ðeins með einu stigi, þannig að lökatölur leiksins urðu 62:50 KR í vil. Hjá Þór er Einar Bollason stoð og stytta liðsins, en hann skor- aði 22 stig í leiknum. Aðrir leik- menn Þórs eru mjög jafnir og liðið í beild er létt og skemmti legt. í KR-liðinu voru Hjörtur Hans son og Guttormur ólafsson stiga hæstir með 21 og 19 stig. Þá áttu þeir Kolbeinn Pélsson og Gunnar Gunnarsson mjög góðan leik. Dómarar voru Jón Eysteins son og Haraidur Haraldsson. Áhorfendur voru á 4. hundrað. Önnur karfan í Laugardals- höllinni er skökk og einnig há- talarakerfið í ólagi og ætti að kippa þessum atriðum í lag sem fyrst. M.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.