Morgunblaðið - 18.02.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1968
3
Jón Auðuns, dómprófastur:
BOKIN UM KRIST
Sumir þeir, semv gerzt hafa
höfundar trúarbragða eða trú-
arbrögð hafa verið tengd við
eða eignuð, voru sögulegar per-
sónur, voru raunverulega til.
Aðrir voru efalaust goðsagna-
verur og annað ekki, voru raun-
verulega aldrei til.
Ég held að ábyrgir fræðimenn
efist ekki lengur um það, að
Siddharta Gautama, höfundur
búddlhadóms, 'hafi verið uppi á
Indlandi á þeim tíma, sem sagt
er. Eð’a að pers'neski trúar-
bragðahöfundurinn Zoroaster sé
söguleg persóna, eins og Mú-
haimeð, höfúndur islams. Og
menn efa yfirleitt ekki, að Mós-
es hafi raunverulega verið uppi
Og sé öðrum fremur höfundur
gyðingdóms.
Svo eru aðrir, sem settir hafa
verið í samband við merkileg
trúárbrögð og trúspeki, en voru
aldrei til, eru goðsagnapersónur
og annað ekki. Svo er um
Miþra. Út frá helgisögnum og —
siðum, sem við nafn hans voru
tengdir, þróaðist svo máttugur
átrúnaður, að á 3. öld mátti
ekki milli sjá, hvor mundi ganga
með sigur af hólmi í vestrænum
heimi: kristindómurinn eða Mí-
þradýrkun, sóldýrkun.
Undir lok 18. aldar tóku fá-
einir menn að leiða sínar líkur
að því, að Jesús Kristur hefði
aldrei verið til. Svo langán tíma
tók það menn að gera þá mikil-
vægu uppgötvun, að einn allra
áhrifamesti maður, sem fæðst hef
ir á jörðu sé ekki söguleg per-
sona.
Frá öndverðu átti kristindóm
urinn afli að etja gegn geysilega
hörðum andstæðingum. Er það
líklegt, að ef nokkur átylla hefði
verið að þessir andstæðingar
hefðu aldrei notað sér það, að
kristna trúin væri ekki annað
en uppspunnin goðsögn um
mann, sem aldrei hafði verið til?
Er hugsanlegt, að í baráttuhit
anum hefðu andstæðingar krist-
indómsins aldrei notfært sér svo
biturt vopn, svo hættulegt gegn
kristnum mönnum?
Það er fyrst undir lok 18.ald
ar, að nokkurir frakkneskir
menn gera þessa „uppgötvun“.
Mátfugasti vitnisburðurinn um
Krist eins og hann var, eins og
hann kenndi, lifði og dó, eru
guðspjöllin. Þar sjáum við Krist
betur en á blöðum nokkurra ann
arrar bókar.
Auðvitað þarf að lesa guð-
spjöllin með þeirri aðgát, að hafa
í huga, að ekkert af orðum hans
var fært í letur fyrr en ára-
tugum eftir dauða hans. Því er
óhugsandi, að öll ummæli séu
orðrétt eftir honum höfð. Og af
þessu stafar vitanlega það, að
guðspjallamönnunum ber sitt
hvað á milli í frásögninni.
Orð Krists voru ekki tekin á
stálþráð, sem unnt væri að heyra
í dag. Þau geymdust í misjafn-
lega traustu minni. En hinsveg-
ar er af guðspjöllunum ljóst, að
svo var mál hans, að miklu
minni minnisraun hefir það ver-
ið, að geyma það en hversdags-
legt tal mitt og þitt.
í guðspjöllunum eru þessar
perlur geymdar. Og það eru þær
sem fyrst og fremst gefa Nýja-
testamentinu gildi, En af Nýja-
testamentinu fær Ritningin öll
Ijóma og lit.
Ekki svo, að lítils' sé um þann
mikla trúararf vert, sem G.testa
mentið varðveitir frá Gyðingum.
Spámenn Gyðinga gnæfa yfir
guðsmenn margra alda. En þótt
margt í þessum helgu ritum sé
úrelt, og sitt hvað sem þaðan
er notað enn í helgihaldi og
helgisöng sumra kirkna, mætti
hverfa þaðan, þá er trúararfur-
inn í G.testamentinu grundvöll-
urinn, sem Kristur byggði á.
í dag er biblíudagur íslenzku
þjóðkirkjunnar. í kirkjum lands
ins er minnt á hina helgu bók
og víða er hvatt til stuðnings
við hið íslenzka biblíufélag.
Biblíufélaginu er nauðsyn á
stuðningu, svo að það fái ráðið
við það fjárfreka hlutverk, að
sjá Islendingum fyrir biblíum.
En hverjum einstaklingi er
nauðsyn að lesa hina helgu bók,
og lesa hana vegna þess fyrst
og fremst, að hún — guðspjöll-
in — er bókin um Krist og seg-
ir því frá fegursta mannlífi, sem
á jörðu hefir verið lifað, og feg-
ursta boðskap, sem á jörðu hef-
ir verið fluttur.
Vilt þú lesa um þetta mann-
líf, lesa þennan boðskap?
Það krefur þig ekki mikils
tíma. Þessi mikla saga er á fá-
einum blaðsíðum skráð.
Næst síðasta málsgrein í síð-
ustu sunnudagsgrei'n hefur brengl
azt. Hún átti að vera svo: Vertu
þess viss, að þótt vinur þinn
hlyti ævilok fjarri ástvinum sín-
um, ævilok þar sem enginn jarð-
neskur vinur var til hjálpar, þá
var hjá honum vinur, sem þú
þekkir ekki, vinur, sem leiddi
hann frá banabeði hafsins og
heim þangað, sem allir eiga að
taka land að lokum“.
UR VERINU
* ■ '\f. ■. * •
EFTIR EINAR SIGURÐSSON
Togaramir
Afli hefur verið ágætur hjá
togurunum undanfarið. Voru
þeir að koma inn í vikunni með
góðan afla, t.d. Hallveig Fróða-
dóttir og Neptúnus með um 180
lestir hvor og sigldu með aflann
á erlendan markað. Erfitt hefur
verið að komast að á markaðn-
um, vegna þess hve mikið hefur
borizt að af fiski, og verðið ver-
ið heldur lágt.
Togararnir hafa fengið aflann
fyrir vestan og eins fyrir sunn-
an land. Mikil fiskigengd virðist
vera á miðunum, en aflinn er
u'fsaborinn.
Síðustu sölur togaranna:
tonn krónur pr. kg.
Narfi 215 2.417.000 11/24
Ing. Arn.s. 211 1.972.000 9/36
Jón Þorl.s. 155 1.812.000 14/22
Úranus 138 1.208.000 8/79
Reykjavík
Einir tveir bátar eru byrjaðir
með línu og 4 með net. 6 bátar
eru að veiða síld í Jökuldjúpinu,
og nokkrir bátar eru byrjaðir
með troll. Auk þess hafa nokkrir
bátar verið að leita .að loðnu,
en enga fundið enn sem komið
er, og fáeinir eru í viðbót að
búa sig á þær veiðar. Og enn
liggja margir bátar óráðnir,
hvað gera skal eða ekki tilbún-
ir.
Sæmilegur afli hefur verið hjá
línu'bátunum, sem hafa verið á
útilegu, komizt upp í 10 lestir í
lögn á 30-J-40 stampa. Netabát-
arnir eru í fyrstu umvitjuninni.
í trollið hefur verið frekar
tregt.
Síldahbátarnir hafa verið að
fá 20—50 lestir og einn komst
upp í 160 lestir. Síldin 'hefur ver-
ið mjög smá og sumt kræða.
Keflavík
Mikill floti báta er byrjaður
veiðar frá Keflavík, sem alltaf
er sterk verstöð, næst Vest-
mannaeyjum og Reykjavík. Þar
eru nú byrjaðir 15 bátar með
línu yfir 30 lestir og 28 bátar
undir 30 lestum, 4 með net og 4
með troll. Auk þess Ihefur einn
bátur lagt upp síld tvisvar
þrisvar sinnurn, um 50 lestir í
hvert skipti. Nokkrir bátar eru
svo tilbúnir að hefja loðnuveiði,
þegar loðnan kemur.
Afli línubáta hefur verið ágæt
ur, algengur 7—8 lestir og kom-
izt upp í 12% lest. Aflahæsti
báturinn með línu mun vera
Freyja, og er hún búin að fá um
160 lestir frá því hún byrjaði.
Sandgerði
18 bátar eru byjaðir að róa
með línu, 3 með troll og 2 eru
á s'íld.
Meðalaflinn í janúar var 4
lestir, en hefur glæðzt í febrúar,
einkum var hann góður í fyrri
viku. Þá fékk Víðir II í einum
róðri 18 lestir, .og voru 12 lestir
af því þorskur og ýsa. Þá kornst
aflinn hjá hæstu bátunum upp í
12—14 íestir í róðri. Uppistaðan
í aflanum hefur verið lianga og
keila oftast um % hlutar.
Aflahæsti báturinn frá áramót
um er Víðir II, og er hann með
uim 150 lestir í 21 róðri.
Vestmannaeyjar
Afli hefur verið rýr á línuna,
hlaupið á frá 2 lestum og upp í
7 lestir í róðri. Bátarnir hafa
varla orðið varir í trollið.
Akrnanes
10 bátar eru byrjaðir að róa
með l'ínu. Afli hefur verið treg-
ur, algengast vart meira en 4
lestir.
2 bátar eru byrjaðir með net,
og hefur l'ítið fengizt, 1—3 lest-
ir í lögn.
Nokkrir aðkomubátar hafa ver
ið að landa sdld, einstaka bátur
allt upp í 90 lestum.
Tveir aflahæstu brezku
togararnir
Á árinu 1967 var brezki frysti-
togarinn ,,Marbella“ með mestan
ársafla af öllum brezkum togur-
um, sem frystu fiskinn um borð,
eða 3784 lestir. Þetta var 54%
meira aflamagn en hjá „Somm-
erset Maugham“ sem var hæstur
af þeim togurum, sem ísuðu fisk
inn um borð.
Til samanburðar má geta þess,
að Maí var aflahæstur íslenzku
togaranna 1967 með 5298 lestir,
Sigurður var næstur með 4470
lestir og Víkingur með 3898 lest-
ir.
Stuðningur Norðmanna
við sjávarútveginn
Ársstyrkur norska ríkisins til
sjávarútvegsins í heild nam frá
1. júní 1967 til jafnlengdar í ár
rúmum 1300 milljónum króna
miðað við fyrra gengi ísl. krón-
unnar.
Nú hafa tekizt samningar við
norsku ríkisstjórnina um, að
sjávarútveginum verði auk þ<^s
greiddar 50 milljónir króna til
að taka sárasta broddinn af
norska hágenginu, en Norðmenn
breyttu sem kunnugt er ekki
sínu gengi í nóv. sl„ eins og marg
ar þjóðir gerðu, þegatr Bretar
lækkuðu sterlingspundið.
Jafnframt hefur norska stjórn
in heitið því að byrja fyrr en
vant er á samningum við fulltrúa
sjávanútvegsins um ríkisstyrk-
inn fyrir næsta ár og láta ein-
staka liði hans koma til fram-
kvæmda fyrr en 1. júní, þegar
hið venjulega samningstímabil
hefst.
Þá hefur norska rikis-stjórnin
tjáð sig reiðubúna til þess að
létta undir með skreiðarframleið
endum. Hefur hún ha'ft samíband
við Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO) til þess að leit-
ast við að selja til manneldis af
skreiðarbirgðunum og komast
þannig 'hjá að maila alla skreið-
ina frá fyrra ári í fiskimjöl, sem
nú virðist helzt liggja f,yrir. Þó
hefur ríkisstjórnin látið liggja
að því, að komið gæti til mála,
að hún keypti eitthvað af birgð-
unum með það fyrir augum að
geyma þær, ef markaðir skyldu
opnast á ný á þessu ári.
Eftir þessar viðræður við rík-
isstjórnina mæltu samtök sjáv-
arútvegsins með þvi að bátar
hæfu veiðar.
Norskir síldarsaltendur
Allt er nú tilbúið í Noregi
til að hefja síldarsöltun, þegar
s'íldin tekur að beirast á land, en
fiskifræðingar fullyrða, að það
verði upp úr miðjum þessum
mánuði.
Norðmenn gera sér von um
meiri saltsíldarsölu í áir en á sl.
ári.
Þorskveiðin spáir góðu í Noregi
Fyrsta veiðin við Lofoten spá-
ir góðu um vertíðina í vetur, og
virðist þátttaka í veiðunum
ætla að verða með meira móti
að þessu sinni. Jafnvel að 8—
10.000 sjómenn stundi þær veið-
ar í vetur.
Loðnuleit við Noreg
Norsk hafrannsóknarskip hafa
leitað að loðnu við Noregsstrend
ur og í Barent'shafimu. Enn sem
komið er hefur sáTaMtið orðið
vart við loðnu, og það sem fund-
ist hefur er mjög dreift.
Frakkar styrkja fiskveiðar
Styrkur framskira fiskveiða
hefur í ár verið ákveðinn 240
milljónir króna.
Loðnan lætur bíða eftir sér
Fyrsta lioðman veiddist í fyrra
7. feibrúar. Var það Kristján Val
geir, sem fékk hana austur við
Ingólfshöfða og fór með hana
til Vestmannáeyja,
Þó nokkrir bátar eru þegar
búnir að leita að loðnu í einm
háTfan mánuð, og þegar þetta er
skrifað, hefur henrnar enn ekki
orðið vairt. Var þó leitað skipu-
lega út frá Hornafirði með 5
mílma milli'bili.
Loðnan er að verða allsnar
þáttur í íslenzku veiðunum, og
væri mjög mikilvægt, að haf-
rannsóknarskip væiri látið leita
að henni strax með fébrúarbyrj-
un. Áraskipti eru að því 'hvað
hún kemur snemma. Það væri
mjög gagnlegt að vita meiira um
göngu loðnunnar en nú er vitað,
svo að hægt væri að fara á móti
göngunum 50—190 mílur á haf
út, ef því væri að skipta.
Leitarskipið Hafþór er nú far-
ið að svipast um eftir loðmu.
Á
Afkoma frystihúsanna 1967
Menn eru nú sem óðast að
geira upp reikningana fyrir ár-
ið 1967, og kemur þá í ljóis, að
afkoman befur verið enn verri
en 1966 og var þó ekki á bæt-
andi. Sérstaklega hefur vinnsla
á karfa gefið vonda raun, og
er ekki fyrirsjáanlegt, að hægt
verði að vinna hann á næsta
sumri, nema eitthvað rætist úr.
Framhald á bls. 24
PASKAFERÐ
11. — 26. apríl. Aðeins fá sæti laus
FERÐATILHOGIJIM:
Flug um London til Malaga. 15 áhyggjulausir sólskinsdagar
í TORREMOLINOS, frægasta baðstað á Sólarströnd Spánar.
HOTEL ALTA VISTA, HOTEL AL ANDALUS og HOTEL
RIVIERA.
Til tilbreytingar gefst kostur á ferðum til nokkurra fegurstu
og kunnustu staða Spánar, t.d. MALAGA, GRANADA, og
yfir sundið til TANGIER í AFRÍKU.
Stanzað í London á heimleið, og hægt að franilengja dvöl þar.
í TORREMOLINOS er bezta loftslag Evrópu, meira en 300
sóiskinsdagar á ári. I apríl er hitinn 20—30° C í skugga.
Tryggið yður sæti tímanlega.
FERÐA-
SKRIFSTOFAN
ÚTSVN
SÍMAR:
20-100 og 2-35-10.
Útsýnarferð — úrvalsferð fyrir vœgt verð