Morgunblaðið - 18.02.1968, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. FEBRUAR 1968
Þorsteinn
Minning
Á MORGUN (mánudag) kl. 1%
verður hann jarðsettur frá Foss-
vogskirkju. Hann andaðist að
heimili sínu að Eskihlíð 18 A
hinn 12. þ. m. Hann var fæddur
að Grettisgötu 36, Reykjaví'k 27.
nóvember 1908. Sonur hjónanna
Guðríðar Jóhannsdóttur frá
Nesjavöllum í Grafningi og Gísla
Guðmundssonar frá Saurbæ í
Ölfusi.
Þorsteinn missti föður sinn 13
ára gamall og byrjaði snemma
að vinna fyrir sér, bæði til sjós
og lands. Hann var einn af fyrstu
bifreiðastjórunum hjá Steindóri,
en eignaðist seinna sinn eigin
bíl, og ók árum saman á Hreyfli.
Hann kvæntist Hrefnu Gunn-
arsdóttur Gunnarssonar, Vega-
mótum á Stokkseyrl, og lifir hún
mann sinn. í>eim varð 8 barna
auðið. í farsælli sambúð tókst
þeim með stakri reglusemi og
t
Maðurinn minn
Sigurður G. Meyvantsson,
Grettisgötu 96
andaðist þann 16. 2. þessa
mánaðar í Landspítalanum.
Fyrir hönd aðstandenda.
Klara Sigurðardóttir.
t
Maðurinn minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir og afi
Ingólfur Gíslason,
kaupmaður
er andaðist 13. þ.m. verður
jarðsunginn þri'ðjudag 20.
febrúar kl. 13.30 frá Foss-
vogskirkju.
Fanney Gísladótir,
börn, tengdabörn
og barnaböm.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og
afi
Ingimundur Eyjólfsson,
prentmyndasmiður,
Sogamýrarbletti 33
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu, þriðjudaginn 20.
þ.m. kl. 3 e.h.
Þeim sem vildu minnast
hans, er bent á Slysavarna-
félagið.
Böm, tengdaböm og
barnaböm.
t
tJtför föður okkar
Páls Skúlasonar,
kaupmanns, Akureyri.
fer fram frá Akureyrar-
kirkju, mánudaginn 19. þ.m.
kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Minningar-
sjóð Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Þórhallur Pálsson,
Bemhard Pálsson.
Gíslason
dugnaði að koma sér upp hlý-
legu og myndarlegu 'heimili, þar
sem börnin nutu góðs uppeldis
og gott var að koma. Þótt Þor-
steinn ætti annríkt við akstur-
inn, til þess að sjá sínu stóra
heimili farborða, gaf hann sér
jafnan tíma til að fara með börn
in út í náttúruna og ganga með
þau á fjöll, þótt þau væru á unga
aldri. Flutu þá oft nánir ættingj-
ar og vinir með, og héldu í
hendurnar á snáðunum. Ég man
t. d. eftir gönguferðum á Vífil-
fell, Hengil og Esju. Má segja að
Þorsteinn hafi verið barn náttúr-
unnar, því að hann undi sér bezt
í faðmi hennar. Hann hafði um
skeið löngun til að gerast bóndi,
en ekki varð af því. Hann var
maður glaðlynda og hafði
ánægju af því að safna til sín
ættingum og vinum þegar tæki-
færi gáfust til, og vi'ldi þá gjarn-
an láta taka lagið, og söng sjálf-
ur vel.
Þannig liðu árin í annríki og
lífsgleði unz hann snemma á síð
ast liðnu ári fór að kenna alvar-
legs sjúkdóms, sem brátt varð
vitað að myndi verða banamein
hans, því að enginn getur lifað
t
Útför mannsins míns, föð-
ur og tengdafcJöur
Þórðar Jónssonar,
bifreiðastjóra,
Akurgerði 26
fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 20. þ.m. kl. 1.30
Sigríður Þorvarðsdóttir,
börn og tengdasynir,
t
Útför eiginmanns míns og
föður okkar
Nils Hagerup Jensen,
fer fram frá Aðventista-
kirkjunni, mánud. 19. 2. kl. 14
Þeim er vilja minnast hans
er bent á hjartaverndunarfél.
Sigríður Elíasdóttir,
Erna, Esther, Bíbí.
t
Jarðarför
Guðríðar ólafsdóttur
fer fram frá Fríkirkjunni
mánudaginn 19. febr. kl. 1.3.
Magnús Guðjónson.
t
Útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður og
ömmu
Laufeyjar Guðjónsdóttur,
Þykkvabæ 13
verður gerð frá Fossvogskap-
ellu mánudaginn 19. þ.m. kl.
10.30.
Blóm eru vinsamlega af-
þökkuð, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á
sjóð til væntanlegrar kirkju-
byggingar Árbæjarsóknar.
Minningarspjöld fást í
Flóru, Aðalstræti og bóka-
búð Jónasar Eggertssonar,
Árbæjarkjöri.
Magnús H. Jónson,
börn, tengdabörn og
barnaböm.
lengi, sem ekki þolir að taka til
sín næringu. Þorsteinn æðraðist
þó ekki, og átti þvi láni að fagna
að halda sínum skírleika til síð-
asta dags. Á heimili hans veittu
kona hans og börn honum þá
hjúkrun, sem hægt var. Stéttar-
bræður hans og fleiri sýndu hon
um vináttu sína í raun. Einn
þeirra sagði: „Það er imannskaði
að Steina“. Hann varð þeirrar
gleði aðnjótandi, að dóttir hans
kom heim frá manni sínuan og
börnum í Kaliforníu, til þess að
kveðja hann. Síðasta kvöildið
sem hann lifði, sýndi sonur hans
fallegar litmyndir í stofunni hjá
'honum, þar á meðal margar frá
útlöndum, sem dóttir hans hafði
komið með. Þá sagði einhver að
það væri líka fallegt í útlönd-
um. „En það eru fallegri litir á
íslandi," svaraði Steini að bragði.
Morguninn eftir fékk hann hægt
andlát. Lífið var fjarað út.
Börn þeirra Þorsteins og
Hrefnu eru: Gunnar húsasmiður
í Kópavogi, Ingibjörg Larsen,
búsett í Kaliforníu, Þorsteinn
matsveinn í Keflavík, Gísli við-
skiptafræðinemi, Erla sjúkraliði,
Ingólfur búfræðingur, Katrín 12
ára og Róert 5 ára. Barhabörnin
eru orðin 7.
Mikill harmur er 'kveðinn að
konu Þorsteins og börnum við
andilát hans, og systkini, aðrir
ættingjar og vinir og samstarfs-
menn kveðja hann með söknuði,
en minningin mun lifa um hinn
ágæta röskleika mann.
Þ. Ól.
Þorsteinn Gíslason, Eskihlíð 18 A.
Fæddur 27. nóvember 1908.
Dáinn 12. febrúar 1968.
Að kveðja þig vinur, kreinkir
lund
— enn kallinu drengir sinna.
Þú bágstöddum réttir bróður-
mund
það land er svo Ijúft að finna.
Af heilindum gerðir hverja bón
er hafðir þú kost að vinna.
Þótt. vellina hylji vetrar fönn,
skín vorið á göngu þinni,
því dyggur þú varst í dagsins
önn
og drenglyndur hverju sinni..
Með ljúfmennsku hverja léttir
ferð
svo liðinn ég þakka kynni.
f farkosti þínum fljótt mig toar
um fegurstu landsins vegi.
í öndvegi stjómin örugg var
og eins þótt að brygði degi.
Það kviknar svo margt er kætin
sál
ef kunnáttu skortir eigi.
Með göfugri kon-u lá þín leið
um lendurnar vegs og sóma.
Þín auðna var rík, því ætíð beið
þín æskan í fullum blóma.
Að síðustu bið ég sjálfan Guð
að signa þig helgum li'ma.
Einar J. Eyjólfsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför, móður minn-
ar, fósturmóður og systur
Laufeyjar Guðmundsdótt-
ur, Nesvegi 48.
Jóna Haraldsdóttir,
Guðmunda L. Sigvaldadóttir,
Guðný S. Guðmundsdóttir.
Attræður ■ dag:
Björn Gíslason
Gröf, Reyðarfirði
f DAG er Björn Gíslason, Gröf,
Reyðarfirði, áttræður. Mér er
bæði ljúft og skylt að senda
honum árnaðaróskir á þessum
tímamótum í ævi hans, þó að ég
geri mér Ijósa grein fyrir því
að hans ævisögu verður ekki
gerð þau skil af mér, sem að
hann á fyllilega skilið. Mun ég
þá reyna að skýra frá því helzta
sem á daga hans hefur drifið
og hvað hann gerði sínum ævi-
starfi, en það var sjómennskan.
14 ára gamall byrjaði hann að
stunda sjóinn og þá með bróður
sínum, Þórólfi, en hann var þá
tólf ára og þá á árabát eins og
gefur að skilja. Var hann for-
maður á bátnum og mun hann
vera elzti núlifandi formaður á
Austurlandi og hefur stundað sjó
inn alla þessa löngu ævi, eða
nánar tiltekið fram á árið í fyrra
en varð að hætta þá vegna sjón-
depru, annars hefði hann verið
á sjónum enn þann dag í dag,
því að hann er líkamlega hraust
ur ennþá. Áður heldur en ég
skil við árabátana, og þar til
vélaöldin kom til sögunnar, vil
ég skjóta því hér inn í, svona
til gamans og samanburðar á
verði á fiski þá og nú og þeim
tekjum, sem hann hafði fyrir
sitt strit á sjónum þá og sjó-
menn hafa nú. Einu sinni sem
oftar kom hann með 1000 kg.
af ýsu og þorski að landi. Fyrir
þennan afla fékk hann 50 kr.
eða 5 aura fyrir kg. Það er eins
og ein ýsa 4,5 kg. kostar núna,
sem hann fékk fyrir allan afl-
ann. Ekki man ég eða veit, hvað
Björn var mörg sumur á árabát-
um, en hann var í útilegu sem
kallað var víst á Reyðarfirðinum
á stað, er Breiðuvík heitir og
voru konan hans og börnin með
honum þar. Þegar Björn var 18
ára að aldri kom fyrsti vélknúni
báturinn til Reyðarfjarðar, 7 t.
bátur og hét Víkingur. Var Birni
þá strax falið að vera með þann
bát og stundaði sjó á honum
bæði frá Hornafirði og í Papey.
Allir þeir ,sem þekkja þessa
staði, vita, hvað erfitt var að
stunda sjóinn þaðan og þá ekki
sízt á svona lítilli fleytu, því að
maðurinn var kappsamur og dug
legur og sótti sjóinn fast. Björn
var í áratugi formaður á mótor-
bátum, er ég ekki man, hvað
hétu, og ávallt aflasæll, enda
talinn góður sjómaður. Eins og
gefur að skilja á svona löngum
sjómannsferli lenti hann oft í
vondum veðrum en ávallt sigldi
hann knerri sínum heilum í höfn
með sinn mannskap, og aldrei
missti hann út mann, og segir
það sína sögu, hve góður sjómað
ur hann var, og læt ég þessa
frásögn af sjómannsstarfi hans
nægja, þó að geta hefði mátt um
ýmislegt, sem að hann hefur orð-
ið fyrir á sjónum. Áður heldur
en skilið verður við þennan grein
arstúf, vil ég geta þess, að Björn
hefur alltaf verið sjálfstæður
maður í þessa orðs fyllsta skiln-
ingi, enda er frelsishugsjónin og
athafnaþráin honum í blóð borið
enda hefur hann alla ævi verið
sjálfs síns ráðandi og aldrei und
ir aðra gefinn. Kæri góði frændi
minn, ég bið þig að taka vilj-
ann fyrir verkið og fyrirgefa
þessi fátæklegu orð. Að endingu
óska ég þér Guðs blessunar á
þessum mestu tímamótum ævi
þinnar, ég enda þá orð mín á
þessa leið.
Þú ert nú áttræður orðinn,
endist þér lífdaga forðinn.
Ætíð þér gott var að kynnast,
í dag munu margir þín minn-
ast.
J.Þ.
Heimilisiðnaffarfélag íslands
Tóvinna og spuni
Ný námskeið byrja 1. marz.
Upplýsingar í verzl. íslenzkur heimilisi'ðnaður milli
kl. 10—12. Sími 15500.
Heimilisiðnaðarfélag Islands.
Sameiginlegt skemmtikvöld verður í Sigtúni 22. febrú-
ar kl. 8.30. — Fjölbreytt skemmtiatri'ði.
Mætið og takið með ykkur gesti.
Stjómirnar.
SAS óskar eftir
húsnæði i Miðbænum
Scandinavian Airlines System óskar eftir að taka strax
á leigu húsnæði á götuhæð í Miðbænum.
Tilboð óskast send sem fyrst til Birgis Þórhallssonar
Hofteigi 21 (símar 12277 og 35081).
ISLENZK-AMERÍSKA
FÉLAGIÐ