Morgunblaðið - 02.03.1968, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARZ 196«
13
Landssamb. frímerkja-
safnara stofnaö
— Island tekur þátt i frímerkjaheims-
sýningu í Prag á sumri komanda
Á FUNDI með fréttamönnuin er
Skandinavíuklúbbur frímerkja-
safnara hélt nýlega var frá því
skýrt, að stofnað hefði verið til
Landssambands íslenzkra fri-
merkjasafnara. Eiga fjögur fé-
lög frímerkjasafnara aðild að
Iandssambandinu. Fyrsti forseti
þess var kjörinn Sigurður H.
Þorsteinsson.
Jafnframt kom fram að ís-
lendingar munu taka þátt í mik-
illi heimssýningu í Prag á sumri
komanda. Munu 6 íslenzkir að-
ilar sýna þar á um 19 ferm. í
5 deildum sýningarinnar.
í>eir sem sýna á sýningu þess-
ari eru frímerkjateiknararnir
Stefán Jónsson og Halldór Pét-
ursson. íslenzka póststjórnin
sýnir í hinni opinberu deild. —
Tveir unglingar sýna í deild teg-
undasafna og í bókmenntadeild
verða þrjú sýningarefni. Safn
greina Sigurðar H. Þorsteinsson-
ar um íslenzk frímerkjafræði í
erlendum blöðum og tímarit-
um, verðlistinn íslenzk frímerki
og Orðabók frímerkjasafnara.
Þá verður póstsögusafn í hinni
almennu samkeppnideild.
Klúbbur Skandinavíusafnara
hefur ætíð haft á stefnuskrá
sinni, kynningu íslands á al-
þjóðavettvangi. Var klúbburinn
samþykktur í alþjóðasamtök
frímerkjarasafnara, Federation
Internatinoal de Philatelie, á
þingi samtakanna í Amsterdam í
vor. Er þar með klúbburinn orð
inn að umbo'ðsaðila allra alþjóð-
legra frímerkjasýninga. Hins veg
ar er það ætlunin að Landssam-
band frímerkjasafnara yfirtaki
erlend sambönd klúbssins á
næstunni.
Verrkefni sem klúbburinn
vinnur nú að, og vonar að af
framkvæmd geti orðið, er sam-
norræn sýning í Reykjavík árið
1970. Sagði formaður klúbbsins,
Sigurður H. Þorsteinsson, að
SAMKOMUR
Samkomuhúsið Zíon Óðins-
götu 6A.
Á morgun sunnuidagaskólmn
kl. 10.30.
Almenn samkoma 'kl. 20.30.
Allir velkomnir
Heimatrúboðið.
Samkomuhúsið Zíon Austur-
götu 22, Hafnarfirði.
Síðasta samkoma vakning-
arvikunnar verður í kvöld kl.
20.30.
Verið öll hjartanlega vel-
komin.
Almennar samkomur.
Boðun fagnaðarerindisins á
rnorgun, sunnudag, Austur-
götu 6, Haifnarfirði kl. 10 f.
h., Hörgshlíð 12, Reykjavík
kl .8 e.h.
Heimatrúboðið.
Bænastaðurinn Fálkagötu 10.
Kristilegar samkomiur sunnu
dag 3. marz.
Sunn.udagaskóli kl. 11.
Almenn samkoma kl. 4.
Bænastund alla virka daga
kl. 7 e. m.
Allir velkomnir.
BLOMAURVAL
Cróðrarstöðin við
Miklatorg
Sími 22822 og 19775.
ekkert væri ákveðið í því efni
ennþá, en Norðurlandaþjóðirn-
ar hefðu sýnt máli þessu mik-
inn áhuga.
Gof Vorhoðnnnm
í FRAMHALDI af írétt Jiér í
blaði um, að frk. Elísabet Jó-
hannsdóttir heitin, stauma-
kona á Kleppi, hafi afleitt
Kvenfólagið Hringinn að kr.
127.900.00 vegna barnaspítala
biður Kvenfélagið Vorboðinn
í Reykjavík þess getið, að það
félag hafi á s.l. ári fengið
jafnháa fjárhæð, kr. 127.900.00
í arf vegna bartnaheimilis
Vorboðams og ítrekar þakk-
lætis- og virðingarvott til
ættingja frk. Elisabetar Jó-
hannsdóttur.
Stjóm Kvenfélagsins Vor-
boðans.
Sér-Símaskrár
Götu- og númerskrá yfir símnotendur í Reykjavík,
Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðahreppi og Hafnar-
firði, er komin út í takmörkuðu upplagi.
Skrárnar eru bundnar í eina bók. Fremst er götu-
skráin og númeraskráin næst á eftir. Bókin er til
sölu hjá Innheimtu landssímans í Reykjavík, Kópa-
vogi og Hafnarfirði.
Verðið er kr. 175.00 eintakið.
Bæjarsíminn í Reykjavík.
HVAÐ ER TIL ÚRBÖTA I SKÚLAMÁLUM ?
RÁÐSTEFNA í HAFNARFIRÐI Á VECUM S.U.S. OC STEFNIS, F.U.S.
Ráðstefnan verður í dag, laugardag 2.
niarz í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði og
hefst með borðhaldi kl. 12.30.
I Ræðumenn verða:
ýr Matthías Johannessen, ritstjóri.
'jAr Þorgeir Ibsen, skólastjóri.
ÍT Árni G. Finnsson, form fræðsluráðs
Hafnarfjarðar.
'Á Birgir ísl. Gunnarsson, form S.U.S. Á eftir verða friálsar umræður.
Þorgeir Ibsen
Ámi G. Finnsson