Morgunblaðið - 02.03.1968, Qupperneq 28
28
MORGrUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARZ 1968
I
M. Fagias:
FIMMTA
II
KOmN
ar, um það, hvort lögunum yrði
beitt gegn henni, vegna þess að
hún hafði farið úr vist sinni
og sofið hjá karlmanni, einmitt
þá nóttina, sem húsmóðir henn
ar hafði verið skotin.
Nafn og heimilisfang vinar
yðar, sagði Nemetz.
Hún hikaði andartak. —
Hann er Halmyfólkinu alveg ó-
viðkomandi. Þekkir það ekki
einusinni.
—Já, en hvað heitir hann?
— Albert Rasko. Blikksmiður.
Merleggötu 11. íbúð nr. 18.
Nemetz skrifaði þetta hjá sér.
Hún leit á hann með öfundar-
svip. Það var sama, hve hreint
mél í pokanum maður hafði — ef
lögreglan var á höttunum eftir
manni, gat það gert mann bæði
gulan, grænan og rauðan.
f endanum á ganginum voru
tvær vængjahurðir, að þeim her
bergjum sem vissu út að göt-
unni. Eldhúsið og svefnherberg
in voru líka út frá þessum
gangi, en vissu út að húsagarð-
inum. Þegar Nemetz gekk inn í
stofu, sem var sýnilega dag-
stofan, kom ískaldur vindgust
ur beint í flasið á honum. í
bardögunum á föstudaginn
höfðu rússneskir stríðsvagnar
Vesrið sprengdir upp þarna í
götunni og loftþrýstingurinn af
sprengingunni hafði mölvað
flestar rúður í nágrenninu.
Nemetz leit kring um sig í
stofunni. Þarna var hátt undir
loft og fá en góð húsgögn, forn
leg, — austurrískt barok—skrif
púlt, falleg dragkista, stór Loð
víks xV—spegill I gylltri um-
gerð. En þarna voru líka nokk-
rir átjándu aldar stólar með
skjannalegu nýtízku áklæði
gluggatjöldin stungu í stúf við
fölgrænt veggfóðrið, lampahlíf-
arnar líktust mest höttum frá
Viktoríutímanum, og mynd af
grís, sem þó líktist meir hundi,
úr postulíni og smá Eiffelturn
úr bronsi stóðu á dragkist-
unni, ásamt nokkrum gömlum
Chelseabollum. Stórt persneskt
teppi — Bokfliara — var á gólf-
inu en var orðið skemmt af ó-
hreinindum og sliti.
— Þetta er dagstofan, sagði
Lilla, svo sem til skýringar.
Toth — og Zlock-fólkið fékk
ekki að koma hér inn nema
læknirinn væri ekki heima.
Til vinstri voru dyr inn í
skrifstöfu læknisins. Þar voru
fá en hagnýt húsgögn, og allt
andrúmsloftið þarna var líkast
þvi, sem er í lækningastofu og
engan veginn skrautlegt þar
inni. Nemetz renndi augunum
yfir herbergið, til þess að svip-
ast eftir, hvort nokkurt ofbeld-
isverk hefði verið framið þar,
kvöldinu áður, en varð einskis
vísari.
Heldur ekki annarsstaðar í
íbúðinni fann hann neitt, sem
neinar upplýsingar gæti gefið.
Hvorki í svefnherberginu hjá
Halmy né Toth.
í svefnherbergi Toths spurði
hann Lillu: — Hver var hérna
áður en Tothhjónin fluttu hing-
að?
— Það var systir læknisins.
Áður en hún giftist og fluttist
burt. íbúðin tilheyrði upphaf-
lega henni gömlu frú Halmy,
móður læknisins.
— Og hvar er hún þá núna?
— Hún er dáin fyrir alllöngu.
Löngu áður en ég fór að vinna
hérna, hjá lækninum. Hún hafði
farið í útlegð í eitthvert þorp
og þar dó hún. Það var sagt,
að Tothjónin hefðu átt ein-
hvern þátt í því. Þeim kom
ekki saman við hana, var sagt.
Hún var dálítið gamaldags
— auðvalds— og afturhalds-
sinnuð — en þau eldrauð. Og
svo vildu þau búa hérna.
Nemetz kinkaði kolli. Hann
sá þetta allt Ijóslifandi fyrir
sér. Fimm herbergja íbúð á
þægilegum stað, með miðstöðv-
aúhitun, hei'tu oig köldiu vatni
og öllum nútímaþægindum. Móð
ir læknisins gerð útlæg sem
„pólítískt tortryggileg“, til þess
að útvega nýju tengdabörnun-
um íbúð. Læknirinn, sem ein-
angraði sig og svaf að heiman
til þess að smitast ekki af þessu
lofti, sem hin önduðu að sér og
frá sér. Sjálfan staðinn, sem
var orðinn undirlagður þef af
svita og ryki og óþvegnum
skrokkum... og af beizkju og
hatri.
14
Nemetz gekk inn i borðstof-
una. Einnig bar báru húsgögn-
in vott um smekk og memiingu,
en harmoníkubeddi í horninu,
skítug handklæði og náttföt
héngu á nöglum, sem reknir
höfðu verið í vegginn. Hér og
þar voru bókalausar bókahill-
ur, en fullar af skítugum skóm,
leikföngum og kössum — allt
þetta bar vitni því, sem verið
hafði og breytingunni, sem á var
orðin.
Zl'ocflisfólkið á allt þetta drasl,
sagði Lilla, svo sem til skýr-
ingar. — I seinni tíð eru þau
farin að koma með krakkana
með sér. Eins og maður hafi
veitingahúsið
l
ASKUR
BÝÐUE
YÐUR
HELGARMATINN
i handhœgum umbúðum til að táka
HEIM
GRILLAÐA KJÚKLINGA
ROAST BEEF
GLÓÐARSTEIKT LAMB
GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ
GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR
HAM BORGARA
Gleðjið frúna —
fjölskjlduna — vinina
— njótið
hinna Ijúffengu rétta
heima í stofujðar.
Efþér óskið
getið þér hringt og pantað -
við sendum leigubíl
með réttina heim
tiljðar.
A S KU R matreiðir fyriryður
alla daga vikunnar
Suðurlamhhraut H sími 38550
□IMCPð
ekki annað þarfara að gera en
líta eftir þessum rollingum
þeirra!
Nemetz ætlaði áfram inn í
búrið, en þar var þá læst.
— Þarna megið þér ekki koma
inn, sagði Lilla glottandi.
— Nema þér viljið mölva hurð-
ina. Þarna geymir frúin allar
svartamarkaðsvörurnar sínar.
— Svartamarkaðsvörur? hváði
Nemetz og sperrti eyrun.
— Hún hafði sín sambönd.
Vissi, hvernig hægt var að ná
í þessa amerísku gjafaböggla,
sem eru sendir ættingjum hér
í landinu. Kaffi, te, niðursoðin
svínslæri, túnfisk, kalíforniskar
ferskjur sígarettur, nælon
hreinsikrem, andlitsfarða. Hún
hafði lyklana sína á lyklahring
og ég þori að veðja, að hann
er enn í töskunni hennar.
Nemetz mundi eftir sinneps-
litu töskunni á handlegg frú
Halmy. Hann hafði hvorki séð
þá tösku né frakkann hennar
þarna í íbúðinni. f skáp héngu
meiri og fínni föt en læknis-
kona hefur ráð á, að öllum
jafnaði. Og fimm loðkápur.
— Frúin yðar hlýtur að hafa
haft gaman af fötum, sagði Nem
;tz.
— Já, hvort hún hafði það,
sagði Lilla og hló. Og, hvernig
’hún snyrti sig! Handsnyrting,
hárlagning og andlitssnyrting.
Tvo eftirmiddaga á viku í
fegrunarstofu. Jafnvel því hafði
hún efni á. En að ég fengi
tvö egg til morgunverðar —
nei því hafði hún ekki efni á.
Það var móðgun og hæðni í
málhreimnum.
Nemetz leit lengi á hana,
rannsakandi augnaráði.
— Hvar hafið þér annars
frétt, að frú Halmy hafi verið
skotin?
— Hún sagði mér það hún
frú Moller, konan dyravarðar-
ins. Það var það fyrsta, sem ég
frétti, þegar ég kom heim í
morgun. Ef satt skal segja, þá
kom ég nú bara til að hirða
dótið mi'tt. Ég var ákveðin að
fara heim til Soroksar, sama
hvernig allt veltist. En svo
heyrði ég, hvað gerzt hafði og
ásetti mér að vera kyrr. Ein-
hver verður að hugsa um lækn
inn.
— Hversvegna haldið þér
ekki, að Rússarnir hafi drepið
hana?
Lilla ypti öxlum. — Ég veit
svei mér ekki. Tothfólkið á
fjölmarga óvini.
— En ekki Halmy læknir?
— Nei, ekki hann. Hann gæti
aldrei gert flugu mein. Er út
af fyrir sig, og skiptir sér ekki
af öðrum. „Góðan daginn“.
„Gott kvöld“. „Gleðileg jól“ —
annað segir hann ekki við ná-
grannana. Hefur heldur aldrei
sagt neitt teljandi við mig. Bið-
ur sjaldan um nokkurn hlut. Og
jafnvel þá: „ef yður væri sama“,
„viljið þér gera svo vel“,
„þakka yður fyrir“. Þessutan
vill hann bara vera í friði.
— En hann og konan hans.
Rifust þau oft?
— Ég get ekki kallað það
að rífast. Ég á við, að lækn-
irinn hafði aldrei hátt. í seinni
tíð fékk frúin oft köstin sín.
Á mánudaginn var, var hún svo
Hrúturinn 21. marz — 20. apríl.
í dag sfcaltu búast þínu bezta skarti og fara út að skemmta
þér með góðum vinum Reyndu að gleyma starfi þínu eina stund.
Nautið 21. apríi — 21. maí.
Alls konar misskilningur getur sprottið upp í dag ef þú gætir
ekki stillingar og velur orð þín af skynsemi og gætni. Farðu
út að skemmta þér í kvöld.
Sinntu ástvinum þínum og sýndu þeim umburðarlyndi, þó að
þeim verði á. Ferðalög ákjósanleg fyrri hluta dags.
Ljónið 24. júlí — 23. ágúst.
Gættu að því að eyða ekki peningum í eintóma vitleysu og
gerðu búreikninga. Afþakfckaðu boð og hvers konar mannamót
nema sérstaklega standi á.
Vogin 24. september — 23. oktober.
Þú ert órólegur á taugum og ættir að vitja læknis og fara
að ráðum hans. Það er nauðsynlegt að þú sért kaldur og rólegur
hvað sem hann segir.
Drekinn 24. oktober — 22. november.
Ef þú gætir þín ekki í starfinu getur þér orðið á alvarlegt
glappaskot. Heimilislífið batnar, óvæntur gestur í kvöld.
Bogmaðurinn 23. nóvember — 21 desember.
Þú hefur mikið aðdráttarafl á hitt kynið og það leiðir þig
ósjaldan á villigötur. Gættu að þér. Og mundu að hóf er bezt
í hverjum hlut.
Steingeitin 22. desember — 20. janúar.
Ef veður leyfir skaltu vera úti við í dag og njóta fegurðar
náttúrunnar. Hugsaðu — en taktu ekki ákvarðanir.
Vatnsberinn 21. janúar — 19 febrúar.
Skoðanir þínar eru enn of erfiðar og flóknar til að venju-
legt fólk geti áttað sig á þeim. Forðastu rökræður. Vertu þolin-
móður.
Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz.
Ekki skaltu vinna of mikið í dag, þú ættir að leita til læknis
og fá vítamíntöflur. Kvöldið skaltu nota til undirbúnings morg-
undeginum.