Morgunblaðið - 07.04.1968, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. APRÍL 1968
>
-jr==’0IUU£/GJUir
Raubarárstíg 31
Slmi 22-0-22
iViAGIMÚSAR
SKIPHOÍTI21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381 —
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
SigurÖur Jónsson.
BILALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
NÝIR VW 1300
SENDUM
SlMI 82347
Kvengötuskór,
fótlagaskór svartir og
brúnir
Karlmannaskór,
fermingarskór
Barnaskór
Gúmmistígvél
Vinnuskór,
lágir og uppreimaðir
og m. fl.
ÍC Prestsembættið
í Kaupmannahöfn
Sæmundur Sigurðsson —
skrifar:
Haustið 1965 dvaldist ég um
tíma á heimili séra Jónasar Gisla
sonar sem gestur þeirra hjóna
vegna vináttu minnar við bróður
hans, Ólaf Jónsson, málarameist-
ara. í>etta voru mín fyrstu kynni
af séra Jónasi og fékk ég nú
ágætt tækifæri til þess að kynn-
ast manninum sjálfum svo og
starfi hans sem prests í fjar-
lægu landi. Ég var hlutlaus
áhorfandi og sjáandi að því góða
og göfuga starfi, sem hann innti
af höndum fyrir sjúka og hrjáða
og ekki síður fyrir þá sem af
einhverjum ástæðum höfðu lent
í ýmis vandræði og jafnvel lent
á villigötum.
Maðurinn er ekki aðeins harð-
duglegur — hann er meira, —
hann er manndómsmaður hinn
mesti, og ef allir opinberir full-
trúar væru þeim kostum búnir
sem hann, hver á síniu sviði, væri
þjóðin betur á vegi stödd, en
hún er nú í dag.
Geta fulltrúar íslenku þjóðar-
innar á æðsta vettvangi hennar
verið þekktir fyrir að leggja til,
að gott og göfugt þjónustustarf
til mannúðar, sé lagt niður í
sparnaðarskyni, starfi, sem unn-
ið er til heilla þeim einstakling-
um, sem eru í nauðum staddr
vegna ýmissa ytri og innri
ástæðna. Ég hefði haldið, að
þessir ágætu fulltrúar þjóðarinn
ar myndu frekar leggja til að
auka fjárframlög til slíkra
starfa.
Ég vil því taka undir með séra
Hannesi Guðmundssyni um, að
flutningsmenn frumvarpsins end
urskoði afstöðu sína og komi
með breytinigartillögu, sem miði í
þá átt að fella ekki niður þetta
mannúðarstarf, sem presturinn í
Kaupmannahöfn innir af hendi.
Sæmundur Sigurðsson,
málarameistarL
ÍC Hver ber ábyrgð
á mistökunum?
Sjómaður skrifar:
Kæri Velvakandi.
í febrúarmánuði síðastliðnum
leitaði ég til læknis með þriggja
áira son minn. Að lokinni athug-
un læknisins á drengnum, ákvað
hann að gefa honum eina pillu
kvölds og morgna, og gaf út sam
svarandi resept, sem lagt var svo
inn til apóteks í Reykjavik.
Sídegis sama dag voru pillurn-
ar sóttar, og var nú drengnum
gefin pillan á þann hátt, að hún
var brotin í fjóra parta. Ekki var
viðlit að koma ofan í hann nema
% pillunnar og var svo Iátið
gott heita.
Líður nú rúm klukkustund, en
þá gerist drengurinn syfjaður og
sofnar skömmu síðar. Ekki þótti
okkur hjónunum þetta neitt at-
hugavert þ. e. drengurinn átti
vanda til að sofna og hvilast,
meira en börn almennt gera.
Svaf nú drenigurinn vært um
kvöldið, er ég yfirgaf heimilið
og hélt á sjó. En um miðnótt
hafði sonurinn ekkert rumskað,
fór nú eiginkonu minni ekki að
standa á sama og fylgdist hún
nú með líðan drengsins það sem
eftir var nætur.
Kl. 9 um morguninn svaf hann
óvenjufast, en um síðir var þó
hægt að vekja hann. Um sama
leyti hafði konan samband við
umræddan lækni, las hún nú
upp fyrix hann það er á pilluglas
inu stað. Kom þá í ljós að þess-
ar pillur voru fimm sinnum
sterkari, en þær er reseptið hljóð
aði upp á. Síðar kom í ljós að
afleiðingar þessara mistaka
hefðu getað orðið mjög alvarleg-
ar ef drengnum hefði verið gef-
inn fullur skammtur. Pillunum
var nú skilað í sama apótek og
afhenti apótekarinn réttu pill-
urnar án þess þó að biðjast af-
sökunar á þessum mistökum. —
Hann hefði kannski gert það, ef
hann hefði heyrt hljóðin í
drengnum á meðan lyfið var að
hverfa úr líkama hans.
Hver er ábyrgur misgjörða
apóteksins?
Skyldi svona „feiU“ ekki vera
einsdæmi?
Með fyrir fram þökk fyrir
birtinguna.
Sjómaður.
★ Húsnæðið er til
Sigríður Ásgeirsdóttir
skrifar:
Á uppgangsárunum eftir stríð
ið var ráðizt í að reisa stórt
býli í Krýsuvík við Kleifarvatn.
Var það gert af miklum stórhug
og með myndarbrag. Seinna kom
í ljós, að staðurinn var ekki
heppilegur fyrir búrekstur, en
húsin stór og vönduð, standa
þarna enn.
Þegar ég kom þama fyrst, fyr-
ir nokkrum árum, fannst mér
staðurinn kjörinn sem heimili
fyrir æskufólk, sem þarfnast að-
stoðar. Þarna er aðstaðan ákjós-
anleg. Húsnæði, sem fyrir hendi
er, er tvö stór hús, annað hugsað
sem bústjórahús, þar má koma
fyrir a. m. k. tveimur góðum
íbúðum. Hitt húsið var hugsað
sem starfsmannahús. Þar eru lík
lega 6—7 stór herbergi, borðsal-
ur, eldhús og rúmgóð íbúð. Á
staðnum er rafmagn og jarðhiti
eT þar nógur.
Auk þess er stórt fjós, líklega
fyrir eitt hundrað gripi, hlaða
og turn. f þessu mikla húsnæði
má koma fyrir vinnustofum fyr-
ir smíðar og þess háttar, skóla-
stofum og leikfimisal.
Við húsin standa svo fjögur
stór gróðurhús og þar skapast
tækifæri til þess að láta ungling-
ana rækta allt frá grænmeti til
fegursta jurta.
Er óhætt að fullyrða, að þarna
er hægt að skapa unglingunum
góða aðstöðu til að stunda sitt
nám og einnig gagnleg og
skemmtileg störf og leiki. Mætti
til dæmis byrja á því, þegar
heimilið er komið á laggirnar,
að láta drengina sjálfa útbúa sér
sund'laug.
Þarna hafa verið reknar sum-
arbústaðir fyrir drengi, en nú er
verið að reisa nýjar sumarbúð-
ir á öðrum stað við vatnið, og
ég veit ekki betur en að hús-
næðið sé ónotað núna.
Það er sannfæring mín, að
þarna megi koma upp góðu heim
ili fyrir unglinga til þess að
hjálpa þeim yfir erfið tímabil í
lífi þeirra og ég vona að for-
eldrar, félagasamtök og yfirvöld,
sem málið skiptir, taki höndum
saman og hrindi þessu máli í
framkvæmd.
Það mun kosta mikið, en hvað
kostar að gera það ekki?
Sigriður Ásgeirsdóttir.
Tekniskur teiknari
Vita- og hafnarmálaskrifstofan vill ráða til sín
tekniskan teiknara frá 15. maí.
Skrifleg umsókn þar sem greint er frá aldri,
menntun og starfsreynslu sendist Vita- og hafnar-
málaskrifstofunni Seljavegi 37, fyrir 15. apríl.
GOTT STARF
Stórt verzlunarfyrirtæki í Reykjavík vill ráða
starfsmann á aldrinum 25—35 ára til skrifstofu-
starfa.
Umsaekjandi þarf að hafa verzlunar- eða viðskipta-
lega menntun og nokkra starfsreynslu.
Umsókn með nauðsynlegum upplýsingum sendist
Morgunblaðinu merkt: „Framtíðarstarf 8926“ fyr-
ir 10. þ.m
Til leigu
í Nýju hlikksmiðjunni h.f., tvær hæðir sem hvor um
sig eru 250 ferm.
Upplýsingar að Ármúla 12.
PÓLÝFÓNKÓRINN
Messa í H-moll
eftir Johan Sebastian Bach
FLYTJENDUR: Guðfinna D. Ólafsdóttir, sópran
Ann Collins, alto
Friðbjörn G. Jónsson, tenór
Halldór Vilhelmsson, bassi
Einleikarar:
Einar G. Sveinbjömsson, fiðla
David Evans, flauta
Kristján Stephensen, 1. óbó
Bernhard Brown, 1. trompet
Kammerhljómsveit
Pólýfónkórinn.
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson.
Frumflutningur á íslandi í Kristskirkju, Landakoti,
þriðjud. 9. apríl kl. 8.30 e.h.
Endurtekið í Þjóðleikhúsinu á skírdag kl. 8.30 e.h.
og á föstudaginn langa kl. 4 e.h. — Missið ekki af
þessum tónlistarviðburði, og tryggið yður miða í
tíma. Aðgöngumiðar hjá Eymundsson og Þjóðleik-
húsinu.