Morgunblaðið - 07.04.1968, Síða 28

Morgunblaðið - 07.04.1968, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. APRIL 1908 í Hangony. Einhver á bænum hafði sagt henni lát foreldra hennar, þegar hún hafði loksins vogað sér nið- ur í varnarklefann, þar sem hún faldi sig, ásamt frönsku kennslu konunni sinni. Þá hafði maður- inn hlíft henni við nánari at- vikum að dauða móður hennar — þau hafði hún fyrst fengið að vita hjá stúlkunni, sem hafði gefið henni ofurlítið vatn að drekka um morguninn, og þegar það varð, hafði Alexa sjálf kom- izt í kynni við lostaæði tatar- anna og gat því vel hugsað sér líðan móður sinnar. En reynslu sína öðlaðist hún, ef svo mætti segja, gegn um milliliði. Þegar það varð ljóst, að Rússarnir myndi heldur fyrr en seinna finna felustað henar, smyglaði kennslukonan, sem var bæði einbeitt og hagsýn kona, henni til þorpsins. Þar hafðist hún við hjá bónda sem hafði áður átt einhver viðskipti við föður hennar. Þorpið virtist ör- uggara en búgarðíirinn, þar sem lögmál fenjaskógarins virtist. vera ríkjandi. En jafnvel þar var kennslukonan alls ekki í skapi til að láta öryggi Alexu vera undir tilviljunum komið, en notaði óvenjulega aðferð til að vernda hana. Hún kom þeim inn til stofustúlkunnar í kránni, en það var stúlka með kringl- ótt andlit, líkast nýbökuðu brauði. Auk stofustúlkustarfsins var hún til taks þegar farand- salar og kornkaupmenn þörfn- uðust kvenlegrar blíðu. Þessi stúlka hét Sari og hún flutti nú inn til kennslukonunnar og Alexu, og henni var gert það ljóst, að hún ætti að vera eins- konar eldingavari, þegar frelsar arnir ryddust inn í húsið tii þess að svala ástarþorsta sínum. Um miðja nótt í marzmánuði, þegar allt virtist annars frið- samlegt, skyldi reyna á þessa ráðagerð. En svo var komið að óvörum að þessum þremur kon- um og ekkert fór eins og ráð- gert hafði verið Drukknir Tat- arar hömuðust á hurðinni og hót uðu að mölva hana. Sari tókst ekki að ginna þá burt að hinum dyrunum, og Alexa náði hvorki að læðast uppá háaloft né und- ir rúmið. Hún náði aðeins að draga sængina upp yfir höfuð sér og þrýsta sér upp að veggn- um og bæla niðri hræðslugrát- inn, sem sat í kverkum hennar Og tatararnir, sem voru blind- arir af girnd sáu hana ekki. Annar þeirra réðst á kennslu- konuna, en hinn greip Sari. Henni var velt um koll, ofan á Alexu o eftir það arv rétt eins LáM ASIS Ijósmynda yrhtr FERMINGARMYNDIR ANDLITSMYNDIR BARNA& FJÖLSKYLDUMYNDIR Ahenda lögr) á vandaða vinnu laugavegi 13 sími 17707 í PÁSKAMATINN Grillkjúklingar pr. kg 180 Holdakjúklingar pr. kg. 180 Folaldasnitchel pr. kg. 160 Nautabuff, lækkað verð Nautagullach, lækkað verð Grísakótilettur pr. kg. 250 Svínasteikur pr. kg. 140 Svínalæri pr. kg. 140 Ham borgarahryggur pr. kg. 275 Rjúpur pr. stk. 275 Gæsir pr. stk. 150 Holdanautahakk 65 kr. pundið Folaldahakk 37.50 pundið Saltkjötshakk (með lauk) Lambahakk (ný læri) Lambalifur 101.35 pr. kg. Lambahjörtu 67.40 pr. kg. Lambanýru 67.40 pr. kg. Hangi frampartar 96.45 pr. kg- Útb. hangilæri kr. 184.00 pr. kg. Hefðirðu flýtt þér hefðum við eflaust komizt með. og stúlkurnar tvær væru eins- konar Síamstvíburar, sem héngi saman á vöðvum, taugum og blóðrás. Hún gat fundið hvert umbrot í þessum austræna ástar leik, hverja krampakennda hreyfingu, ákafann, æðið og svo dauðakyrrð, eftir að hámarkinu var náð. Þar eð Alexa var fimmtán ára og uppalin í sveit, þekkti hún til hlítar, hvernig samræði dýra 32 gekk til, en ekki nema óljóst, hvernig sama gekk til hjá mann fólkinu. Nú uppgötvaði hún, sér til skelfingar, að munurinn var ekki ýkjamikill — ef þá nokk- ur. Að minnsta kosti þá ekki annað en það, að hjá dýrunum virtist samræði hreinlegra og eðlilegra. Þegar Tatararnir voru farnir og búnir að vera svo lengi burtu að Alexa hafði nokkuð jafnað sig, fann hún, að Sari lá með- vitundarlaus í rúminu hjáhenni. Það tók meira en klukkustund að vekja hana aftur, þótt bæði hún og kennslukonan, sem einn- ig hafði verið nauðgað, enda þótt hún bæri fyrir sig hástöf- um franskt þjóðerni sitt. Envert er að taka það fram, að kennslu konan, sem þó hafði aldrei gefið sig að farandsölum og korn- kaupendum, féll aldrei í yfir- lið undir allri 'athöfninni. Enn ein sönnun þess, hvernig Frakk ar eru hverju vaxnir sem fyrir þá kemur. Og nú var Alexa á leið upp i fjöllin með manni, sem hún hafði viðbjóð á, ef hann aðeins kom við hana. Hann mundi koma skríðandi uppí til hennar og nú var engin Sari til að taka við versta áfallinu og engin kennslu kona til að stjana við hana og fara með hana til staðar, þar sem hún gæti verið örugg gegn þessari skelfingu. Sem snöggv- ast datt henni í hug í fullri al- vöru að kasta sér út úr lestinni. En á næsta andartaki ákvað hún að láta bara slag standa. Þessi hálfi mánuður leið í ein- hverskonar sjúklegu sleni. Hún hélt áfram að hugsa um síðustu stundir móður sinnar. Hingað til í Hrúturinn 21. marz — 19. apríl. Láttu ekki skapið hlaupa með þig i gönur í dag og hugsaðu þig vandlega um áður en þú tekur ákvarðanir. Reyndu ekki að sýnast meiri maður en þú ert. Nautið 20. apríl — 20. mai. Farðu í kirkju og hafðu fjölskyldu þína með þér, einkum skaltu hvetja yngir meðlimi hennar til að koma með. Farðu snemma í rúmið. Tvíburarnir 21. maí — 20. júní. Mundu að fleiri eru viðkvæmir en þú og reyndu að taka tillit til þess og vera ekki of dómbarður, þótt þér finnist bresta skilning hjá öðrum. Þú ert engu betri sjálfur. Krabbinn 21. júní — 22. júlí. Viðhorf þín tii ýmissa mála eru að talka einhverjum breyting- um og sennilega jákvæðum. Stilltu þig um að svara hvatskeyt- lega ef einhverjum skeytum er til þín beinl Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Eindregið er ráðið frá að takast nokkur ferðalög á hendur í dag. Þú mátt þó fá þér smágöngutúr til hressingar, en skalt að öðru leyti vera heirna við. Jómfrúin 23. ágúst — 22. september. Gáðu að því hvar þú gengur og sýndu fyllstu varkámi í dag. Þú virðist í skapi til þrætu í dag, en sfcalt reyna að hafa heihil á skapi þínu. Vogin 23. september — 22. október. Ovænt útgjöld koma þér i slæmt skap í dag. En þú jafnar þig, ef þú ferð I kirkju og reynir að taka lífinu með rósemi og þolinmæði Drekinn 23. október — 21. nóvember. Með þolinmæði og þrautsegju geturðu yfirunnið margs konar erfiðleika. Láttu efcki á þig sannast að þú hættir við hálflokið verk. Hugsaðu spaklega í kvöld. Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember. Þú ættir að gæta að því að ofreyna þig efcki og jafnvel leita ráðlegginga sérfræðings eftir helgina ef þér finnst þú hafa verið óhress að undanförnu. Steingeitin 22. desember — 19. janúar. Ósennilegt að þú fáir óskir þínar uppfylltar í dag. En þú ættir að fara í kirkju, þá verður þér hugarhægra Forðastu deilur á heimilinu. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar. Fleiri væru sammála skoðunum þínum ef þú gæfir þeim tækifæri tii að koana þeim að. Þú talar of mikið. Forðastu ofát í dag. Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz. Þú skalt vera sem mest úti við i dag, en síðari hluta dagsins ættirðu að hafa samband við fjarstadda ættingja og heyra í þeim hljóðið. Notaðu kvöldið til starfa. Framhald á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.