Morgunblaðið - 10.05.1968, Side 4

Morgunblaðið - 10.05.1968, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 10. MAI 1908 ~r==*0IUkJL£fGAM Rauðarárstig 31 Sími 22-0-22 iMAGNÚSAR Iskipholti21 SIMAR 21190 eftirlokun simi 40381 \-£?»SÍM11-44-44 mfíimifí Hverfisgötu 103. Sími eftir lokua 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjaid Simi 14970 Eftir Iokun 14970 eða 81748 Sigrurður Jónsson. BILALEIGAN - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir Iokun 34936 og 36217. BILALEIGAN AKBRAUT NÝIR VW 1300 SENDUM SÍMI 82347 Skolphreinsan Losa um stífluð niðurfalls rör. Niðursetningu á brunn- um. — Smáviðgerðir. Vanir menn. Sótthreinsum að verki loknu. — Sími 23146. FELAGSLÍF FerÖafélag íslands fer þrjár ferðir á sunnudiag. Gönguferð á ICeili, göngutferð á Helgafell og nágrenni, og ferð á Skarðsheiði. Lagt af stað í allar ferðirnar kl. 9.30 frá AjustuirvelM. Farmiðar seldir við bífeuna. - /.o.c.r. Þingstúka Reykjavkur Fraimihaldsaðalfundur í Templarahöllinini Eiríksgötiu lauigardaginn 11. þ. m. W. 14. Þingtemplar. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Vonandi verður gripið í taum- ana áður. ir Gefum Biafra- mönnum skreið! „Focus“ skrifar .Heiðraði Velvakandi! Oft er talað um nauðsyn þess að við íslendingar eignumst viðskipti í hinum „nýfrjálsu ríkjum“0 þ.e. til dæmis í Afr- íku. í þeirri heimsálfu hefur okkur tekizt að koma upp ein- um almennilegum markaði. Þar á ég við skreiðarsölu til Biafra manna í austurhluta hinnar fyrr verandi (og kannski áfram- haldandi) Nígeríu. Þeir keyptu skreiðina af okkur og átu. Nú virðist svo komið málum, að þeir vilji kaupa skreiðina af okkur áfram upp á stundar- krít, en menn hér þori ekki að lána eða geti ekki senf hana Staðfest er, að þeir séu hinir einu, sem vilji kaupa, envegna þjóðarmorðs Nígeríumanna á Biaframönnum, treystist menn hér ekki til þess að selja hana. Frekar skal hún ónýtast í hjöll um hér á landi. Staðfest er í frétum, að hungur sé farið að gera alvar- lega vart við sig í Biafra, þar sem okkar einu traustu við- skiptavinir í alLri Afríku. Biafra menn (íbóar), búa. Verði þeim útrýmt vegna kynþáttahaturs svertingja gagnvart svertingj- um af annarri þjóð, missum við okkar eina örugga markað. Við skulum ekki fara að blanda okkur í kynþáttapóli- tík þeirra svörtu þarna suður í Afríku, en samkvæmt skýrsl- um Sameinuðu þjóðanna er inn byrðis kynþáttahatur milli svertingja þar suður frá miklu magnaðara en nokkurt annað kynþáttahatur Við skulum held ur reyna að hugsa um það, að þarna deyja á degi hverjum himdruð barna úr næringar- skorti vegna aðflutningsbanns stjórnarinnar í Lagos. Sú var tíðin, að við áttum bágt og lítið að borða. Eng- lendingar björguðu okkur frá hungurdauða í Napóleonsstyrj- öldunum, og ekki má gleymast hlutur Hollendinga, þótt þeir seldu, en Bretar gæfu. Mér er sagt, að hingað hafi komið merrn frá Bjafra, biðjandi um skreið og viljandi borga fyrir hana. Þeim var synjað. íslend- ingur hefur farið suður eftir, en komst ekki alla leið, vegna Lagos-stjórnarinnar. Því skyldum við íslendingar ekki, minnugir fortíðar okkar, fylla eitt af okkar ónotuðu skipum, mekrkja það Rauða krossinum í bak og fyrir og ofan á, og senda það til Bjafra manna fullt af gjafaskreið? Að mannúðinn ógleymdri, þá eru þetta einu viðskiptavinir okkar sem að kveður í allri Afriku. Ég trúi ekki öðru en skreið- arsamlagið og ríkisstjórnin fall ist á þessa tillögu. Ætti bara að hugsa um peningana, má nærri geta, að þar syðra ættum við góða kúnna, verði þeir ekki allir sveltir inni, áður en lýkur. * „Sellan“ í M. A. „Móðir“ skrifar Kæri Velvaksuidi! Hér á heimilinu þótti frétt- in um dreifingu áróðurssnepils kommúnista á Akureyri innan í Morgunblaðinu bæði hlægileg og aumkunarverð. Hins vegar eigum við barn í Menntaskól- anum á Akureyri, og ókkur líkar ekki, að kommúnistar skuli geta haldið þar starfandi- áróðursseliu óátalið. Látum vera, að þessi Jón menntaskólakennari skuli vilja spara sér útgjöld við dreifingu (sjálfsagt hefur hann fengið fé til dreifingar, en viljað nota það í einkaþarfir eða flokks þágu: látum það nú vera), en hitt viljum við ekki þola, að slíkur kennari (og annar með honum, að manni skilst) skuli fá að umgangast unglingana utan skólatíma og eitra hugi þeirra með lygaáróðri og ófstæki í þágu ofbeldishreyfingar, sem í okkar foreldranna augum er verri en allur nazismi og fas- ismi. Unglingar eru móttækilegur fyrir ofsafengnum áróðri. Þetta þykjumst við foreldrarnir bæði þekkja frá gamalli tíð. Svo gengur þetta yfir, eins og hver annar barnasjúkdómur, og sumir meira að segja skammast sín fyrir æskupólitík sína ævi- langt. Þetta gildir bæði um fyrrverandi kommúnista og naz ista, þó aðallega kommúnista, af því að Stalín tókst þó að útrýma fleirum en Hitler sál- uga, og lærisveinar hans feta dyggilega í fóspor hans. Hins vegar var það svo hér áður, að Sigurður Skólameist- ari bannaði harðri hendi alla pólitíska starfsemi innan skól- ans. Þetta gat kostað brott- rekstur hjá nemendum, að ekki sé talað um kennara. En hvað er nú? Vegna æsku nemenda ættu þeir að fá tíma til að læra að hugsa, menntast og jafna sig en kennarar eiga enga afsökun skilið. Þeirverða að fara. Am.k. sendum við ekki næsta barn okkar í Mennta- skólann á Akureyri, verði þess ir kennarar að „rnennta" hugi barnanna i aukatímum á kvöld in. Við ráðfærðum okkur við aðra foreldra, sem eiga nem- anda í M.A. áður en við skrif- uðum þetta bréf. Þeir eru okk ur sammála: þeir ætla heldur ekki að senda næsta barn sitt í M.A., meðan þessir útsendar- ar starfa þar. í von um skjóta birtingu, if Eyðslufé unglinga „Kæri Velvakandi! Örfá orð til Guðlaugs Berg- manns: Það má vera, að mér hafi orðið á í messunni, hvað þýðingu þessara orða á merk- inu viðkemur, og að þetta eigi við einhverja enska mynt, en ef betur er að gáð, getur þetta ekki verið lúmsk auglýsing? Því að bein þýðing á setning- unni er: „Ég gef mig að £ s.d. addict). Ég verð að viðurkenna, að ég er efcki vel að mér í énski'i mynt, en má ég spyrja Guðlaug, hve mikið hann borgar í gjaldeyri og tollum fyrir svona ófagnað, og þá um leið, hvað myndi vera rétt verð á þessum hlutum mið að við það? Er ekki haft eitt- hvert eftirlit með því, hvað flutt er inn í landið, því að þetta er ekki eini óþarfinn, sem seldur er fyrir of-fjár, og ég veit að þar er ekki G.B. einn að verki. Ekki skil ég, hvað Guðlaugur á við með því, er hann talar um skrílslæti unglinga, því að ég minntist aldrei á það, þvert á móti, þau ungmenni, sem ég þekki og umgengst, en þau eru ekki fá, eru allt fyrirmyndarfólk. Svo ætla ég ekki að hafa þessi orð lengri að sinni, vil aðeins þakka Velvakanda einu sinni enn, hve fljótt hann svarar kvabbi mínu Björg ívarsdóttir, Fjölnisvegi 9“. ic Er Landsprófið vitlaust? „Miðaldra“ skrifar: „Kæri Velvakandi: f landafræðipmfspurningu nr. 9 í landsprófinu margfræga er talað um Finnska flóa. Þetta heiti hef ég aldrei heyrt áður. Hér skyldi þó aldrei -vera átt við Kirjálabotna eða Kirjálabotn, sem hingað til hef ur svo heitið á íslenzku?Verð- ur kannske næst talað um „Botn íska flða“ fyrir Helsingjabotna, “Austursjóinn" fyrir Eystra- salt og „Vesturhafið“ fyrir Norð ursjó, eins og sagt er, að sum- Ir kennarar geri? Nei, ég held að vissir kenn- arar rugli börnin nógu mikið (sbr. lærisveina kínversku Pek- ing-stjórnarinnar, sem kenna unglingimum á Akureyri bæði kommúnisma og pretti), þótt þeir komist ekki upp með að finna upp ný nöfn á stöðum sem eiga sér rammíslenzk heiti fyrir. Hér þarf í tæka tíð að kveða niður alla óþjóðlega starfsemi, sem beinist gegn menningar- arfi okkar, hvort sem sú starf- semi er á sviði mennta eða stjórnmála. Brenglun staðaheit er lítið dæmi, en hitt er kannske verra, þegar úfcbreiðsla á róm- antískum fasisma, eins og dýrk un á sjálfsviðurkenndum fjölda morðingjum, svo sem Che Gue- vara og Debray, nær inn í undirbúningsskóla tilvonandi menntastéttar landsins, hvort sem það er é Akuireyri eða í Reykjavík. Ég veit ekki betur en póli- tísk starfsemi sé bönnuð af hálfu kennara í menntaskólum landsins. Þeirri reglu verður að fylgja fast eftir, áður en við foreldrarnir treystum skól- unum fyrir börnum okkar á viðkvæmu þroskaskeiði, þeg- ar þau eru móttækileg og við- kvæm fyrir utanaðkomandi á- hrifum. Birtu þetta bréf, Velvakandi góður, og vonandi kemur það að gagni, áður en við stofnum foreldrafélag gegn t.d. M.A. Miðaidra". — Velvakandi heldur nú, að skólameistara sé treystandi til þess að gerav arúðarráðstafan- ir, áður en til harkalegra að- gerða er gripið, en gott væri að fá nafn hins kennarans upp gefið opinberlega. Svona menn ætti helzt ekki að ráða að skól- um, eftir að þeir hafa níðst á því, sem þeim var fyrir trúað að þessu sinni. Islenzk-skozka félagið (Icelandic Scottish society) heldur sumarfagnað í Átthagasal Hótel Sögu laugardaginn 11. maí kl. 9 e.h. Skemmtiatriði. — Dans. Aðalfundur kl .8:30. — Skotlandsvinir fjölmennið. íslenzkur iðnuður ■ Þórsþiljur Þórsþiljur 20, 25 og 30 x 255 cm. verð frá kr. 330 pr. ferm. Panaþilplötur 122 x 305 cm. verð frá kr. 285 pr. ferm. Lacomite þilplötur 122 x 275 cm. verð frá kr. 212 pr. ferm. ÞÓRSFELL H/F. Hátúni 4 A. — Sími 17533. Sölumenn Nokkrir ungir menn óskast til sölustarfa úti á landi og í Reykjavik nú í sumar. Landinu er skipt niður í sölusvæði og þurfa viðkomandi helzt að hafa bíl til umráða. Hér er um að ræða sérstakt tækifæri fyrir unga og áhugasama menn, en einnig kemur til greina að ráða kvenfólk til þessara starfa. í boði eru skjótfengnar tekjur fyrir áhugasama menn. Tilboð skulu hafa borizt afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 11. þ.m. með upplýsingum um aldur, fyrri störf merkt: „Maí — 8672“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.