Morgunblaðið - 10.05.1968, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.05.1968, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1968 M. R. grasfræ blandað og óblandað l\l. R. grasfræblanda 99V44 Alhliða blanda, sáðmagn 20—25 kg. á hektara. Þessi grasfræblanda og einnig „H“-blanda M.R. hefur við tilraunir gefið mest uppskerumagn af íslenzkum gras- fræblöndun, og staðfestir það reynsla bænda. ML R. grasfræblanda 99H44 hentar vel þar sem þörf er á þolmiklu grasi og gefur einnig mikla uppskeru. — Sáð- magn 25—30 kg. á hektara. M. R. grasfræblanda 99S44 í þessari blöndu eru fljótvaxnar en að nokkru skammærar tegundir. Sáðmagn um 30 kg. á hektara. Óblandað fræ Engmo vallafoxgras Túnvingull, danskur Skammært rýgresi, DASAS Vallarsveifgras, DASAS, fylking Háliðagras, Oregon Fóðurkál: Silona, mergkál, raps Sáðhafrar, fóðurrófur. Girðingarefni: Tungirðinganet 5 og 6 strengja með hin- um þekktu traustu hnútabinding- um. Einnig ódýrari girðinganet. Lóðagirðinganet 2” og 3” möskvar. Plasthúðuð net Gaddavír Girðingarstólpar, tré og járn Girðingarlykk j ur. PANTID 1 TÍMA MUÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR Laugavegi 164 — Sími 11125 — Símn.: Mjólk. OLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM KVIKMYNDIR BÆJARBÍÓ ELVIRA MADIGAN eftir Bo Widberg. Það er skaði, að þrjár mynd- ir, sem eiga mjög margt sam- eiginlegt, skuli vera sýndar á sama tíma, og dregur án efa úr aðsókn á þær allar. Á ég þar við „Stúlkan með regnhlífarnar", í Austurbæjarbíó, „Maður og kona“ í Laugarsbíó, og þessa. Ekki má taka orð mín svo, að þær séu eins, líkar að sögu- þræði, eða stælingar hver á ann arri. Það sem þær eiga sameigin- legt er að þær eru allar fall- egar rómantískar ástarsögur, sem allar eru meðhöndlaðar á sérlega nærfærinn og smekkleg- an hátt, án þess að vera að öðru leiti sérlega líkar. Þetta er fyrsta aldan af rómantískum myndum, sem hingað kemur, en það fær- ist nú mjög í vöxt að vera róm- antískur, sem ekki hefur verið í tízku undanfarið. Mynd þessi segir sögu, sem minnir mjög á söguna um Rómeo og Júlíu, og byggir á sannsögu- legum atburðum frá síðari hluta nítjándu aldar. Sixten Sparre greifi verður ástfanginn af loft- fimleikastúlku að nafni Elvira Madigan. Yfirgefur greifinn konu og börn og strýkur með stúlkunni. Þau lifa og leika sér í náttúrunni, fjarri mönnum þeg- ar hægt er og eru alsæl- Greif- inn er þó flóttamaður, þar sem hann stakk af úr herþjónustu. „Giftur maður stingur af með ungri stúlku". Þetta tema lofar ekki góðu, og gefur því litla hugmynd um myndina. Þetta fólk vinnur hug manns oghjarta sem gott fólk, sem fundið hef- ur hamingju og reynir að halda í hana, án þess að eiga nokkra samleið með þjóðfélaginu. Þau verða peningalaus og erfiðleik- ar kreppa að þeim úr öllum átt- um, en þau halda virðingu sinni og samúð. Loks sjá þau enga leið aðra en að binda endi á líf sitt, frekar en láta ástina visna í erfiðleikum og vandræðum. Elvira er leikin af sautján ára gamalli sænskri skólastúlku, Pia Dagermark að nafni. Sá Bo Wid- erberg mynd af henni í blaði og leitaði hana uppi til að leika þetta hlutverk. Gerir hún því ótrúlega góð skil, í senn með reisn og sakleysi, að ótrúlegt verður að teljast hjá byrjanda. Hlaut hún verðlaun sem bezta leikkona ársins á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes fyrir leik sinn. Sixten Sparre leikur Tommy Berggren, leikari við Dramaten í Stokkhólmi. Fer hann svo vel með hlutverk sitt, að undrum sætir, og tekst að gera Sparre að geðþekkum manni, þrátt fyrir ábyrgðarlausa fortíð. Bo Widerberg er innan við fertugt og gerSi slna fyrstu kvikmynd fyrir sjö árum. Áður var hann kvikmyndagagn- rýnandi í Stokkhólmi og er einn af þeim fáu mönnum, sem hafa hæfileika og getu til að hætta að gagnrýna og fara að gera sjálfur. Gagnrýndi hann mjög sænska kvikmyndagerð, enda fer hann allt aðrar leiðir í þess- ari mynd, en aðrir Svíar gera. Það er ómögulegt annað en að hlakka til að sjá næstu myndir hans og mæla með að sjá þessa. Smábátaeijrendur athu«;ið! Tveir vanir menn vilja taka á leigu eða kaupa bát í stærðarflokkunum 8 til 20 tonn, til hand- færaveiða í sumar. Ef um leigu er að ræða, þá yrði annaðhvort um vissa mánaðarleigu eða % af afla. Tilboð óskast send Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „Skak — 8597“ eða í síma 22938 i kvöld og næstu kvöld. Notið DISCUS ÞAKJÁRN. Höfum fyrir- liggjandi allar lengdir frá 6 til 12 fet. Verðið aðeins kr. 17.30 með söluskatti. M3ÓLKURFÉLAG REYK3AVÍKUR Auglýsing Vátryggingarskrifstofa SigfúsarSighvatssonar h.f. verður lokuð alla laugardaga frá 1. maí — 1. október. Nauðsynleg afgreiðsla fyrir viðskiptavini á laugardögum er í síma 32661. Félag Suðurnesjamanna LOKADAGSFAGNAÐUR verður haldinn í Tjarnarbúð á lokadaginn (laugard.) 11. maí kl. 8.30 e.h. Miðar seldir frá kl. 8 e.h. D a g s k r ó : 1. Lokadagsins minnzt, sr. Jón Thorarensen. 2. Söngur, Keflavíkurkvartettinn. 3. Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason. 4. D a n s . Suðurnesjamenn fjölmennið og takið með ykkur gesti. STJÓBNIN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.