Morgunblaðið - 20.04.1969, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.04.1969, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 20. APRÍL 19-69 5 . All ir framhaldsskóla- kennarar öðlist fyllstu réttindi og sömu laun í tilefni af blaðaskrifum um launamál kennara á gagnfræða- stigi vill stjórn Landssambands framhaldsskólakennara taka fram eftirfarandi: a) Starfsmat liggur ekki enn fyrir, og tillögur um hækkun B.A. prófmanna og annarra há- skólamanna í kennslustarfi voru því ekki byggðar ó starfsmati. Ef niðurstöður starfsmats hefðu legið fyrir, hefði að sjálfsögðu farið fram allsherjar endurskoð- un á gildi kennarastarfsins, en því fer fjarri. b) Me'ð bréfi menntamálaráð- herra dags. 5. júní 1964 var það viðurkennt sem réttlætismál, að- þeir kennarar, sem verið höfðu í starfi fyrir 1952 skipuðu sama launaflokk og kennarar með B.A.-próf og uppeldisfræði. Stjórn L.S.F.K. lagði að sjálf- sögðu áherzlu á, að þessum hóp kennara yrði ekki sundrað að nýju, enda verður þa'ð ekki um- deilt, að kennarar, sem hafa svo langa starfsreynslu, séu þeim vanda fyllilega vaxnir og beri því fyllstu laun í starfi. Jafn- framt þarf svo að gera ráðstaf- anir til að allir starfandi fram- haldsskólakennarar geti öðlast fyllstu réttindi og þá sömu laun. c) Þing L.S.F.K. hafa hvað eftir annað samþykkt ályktanir um nauðsyn þess, að sett séu lög um menntun framhaldsskóla- kennara, sem kveði skýrt á um kröfur til kennara í bóklegum og verklegum greinum, svo og réttindi kennara. Ákveða þarf hlutverk Háskólans og fram- haldsdeildar Kennaraskólans í þessu skyni og jafnframt að skapa möguleika fyrir starfandi kennara að afla sér viðbótar- menntunar og endurhæfingar, svo og að tileinka sér nýjung- ar í fræ'ðslu og uppeldismálum. Samtök framhaldsskólakennara (L.S.F.K.) hafa jafnan álitið það eitt þýðingarmesta úrlausnar- efnið í skólamálum að auka menntun kennara og m.a. yrði sköpuð aðstaða í formi nám- skeiða, sumarskóla eða kennara- háskóla að veita starfandi kenn- urum möguleika til að afla sér fyllstu réttinda á sínu s viði. Vanræksla stjórnvalda í þessum efnum er stórlega vítaverð. d) Ástæða er til a'ð mótmæla harðlega ósæmilegum aðdróttun- um, sem fram hafa komið í garð þeirra kennara, sem ekki hafa prófgráðu úr háskóla. Til fastra kennslustarfa í framhaldsskól- um hefur ráðizt undantekninga- lítið fólk með fyllstu réttindi úr Kennaraskóla eða stúdentsprófi og þá iðulega með viðbótarnám, sem að gagni kemur í starfi þeirra. Framhaldsskólakennarar hafa I sérhæft sig og þjálfáð til kennslu á aldurstigi því, er þeir starfa við og tileinkað sér framfarir I kennsluháttum eftir því sem skólahúsnæði, tækj akostur, end- urskipulagning námsefnis og kennslúbækur frekast gefa til- efni til. Verulegar breytingar hafa gerzt og eru að eiga sér stað á þessu sviði, og má í því sambandi t.d. minna á nýjungar í stærðfræði, eðlisfræði og mála- kennslu í gagnfræðaskólum. e) Það er skoðun stjórnar L.S.F.K. að kennarastörf séu al- mennt vanmetin hér á landi, Franihald á bls. 24 YdersT velklædt -InderstJ ock Nœrfötin eru þekkt um allan heim fyrir snið og gœði ~s4C6f-fá, hatU&mAÍœ HERRADEILD PÓSTHÚSSTRÆTI — LAUGAVEGI. Orloishús V.R. Hér með er auglýst eftir umsóknum um dval- arleyfi í orlofshúsi V.R. í Ölfusborgum sum- arið 1969. Umsóknir þeirra, sem ekki hafa áður dvalið í orlofshúsinu sitja fyrir öðrum umsóknum til 15. maí n.k. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu V.R., Austurstræti 17, 5. hæð. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Notið 3að bezta! þér munið elska 9 V A hárspray. 9-V-A með B-vitamini hefur ekki lakk í... kristal.-tært úðun sem heldur hárinu mjúku og auðvelðu i notkun sama hve oft Það er notað ... þvi oftar þvi betra. það gerir B-vitaminið sem er bætt i það og hin dásamlega parfumerða lykt þér munið elska 9 V A ,,Hár spray" **tt> *;V!T*WIN: ÍSLENZK- c&merióka" Philips forhleðslu rafmagnsrakvél þurfið þér ekki að setja i samband nema einu sinni á hálfs mánaðar fresti. Galdurinn liggur í klónni; hún er hugvit- samlega gerð. Þér stingið henni í innstungu og hafið í sambandi yfir nótt, og síðan getið þér notað vélina í hálfan mánuð án þess að koma náiægt snúru, kló, rafkerfi eða rafhlöðum. Hvort sem þér farið byggð eða óbyggð, langt eða skammt, PHILIPS forhleðsluvélin verður yður tryggur förunautur. PHILIPS Tryggur förunautur hvert sem þér farið PHILISHAVE-3 DE LUXE þriggja hnífa með bartskera PHILISHAVE-3 SPECIAL þriggja hnífa PHILISHAVE STANDARD tveggja hnífa <

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.