Morgunblaðið - 20.04.1969, Side 19

Morgunblaðið - 20.04.1969, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1»69 19 Sextugur i gœr: Ásgrímur Sigurðs- son skipstióri VINUR minn og venzlamaður, Ásgrímur Sigurðsson skipstjóri, Siglufirði, er sextugur í dag. Ás- grímur er fæddur að Vatnsenda í Héðinsfiiði, sonur hjónanna Halldóru Björnsdóttur og Sigurð ar Guðmund^sonar. >eim hjón- um varð eltlefu barna auðið og var Ásgrímur tíundi í röðinni. Það segir sig sjáJft að oft hefur verið knappt um föng til að sjá svo stórri fjölskyldu farbotða og að snemma hefur þurft að grípa til vinnukrafta yngri systkin- anna. Sést það bezt á því, að strax eftir fermingu, eða 14 ára, er Ásgrímur munstrað>ur á skip. Snemma hugsar Ásgrímur til mannaforráða o.g merri frama. 15 ára gamall eignast hann sína fyrstu hlptdeild í skipi og sýnir það ljóslega hve menn byggðu snemma á mátt sinn og meginn. Ásgrímur stundaði síðan eftir árstíðum, síld eða þorskveiði fram til ársins 1960, eða í 37 á-r, aðeins að frádregnum þeim tíma er hann nam við sjómannaskól- ann, til þe^s að afla sér meiri réttinda. ekki verið honum hagstæð né öðium í þeirri grein við norðan- vett landið. Ásgrímur er sérstakt prúð- menni svo eftirtektarvert er og hinn áreiðanlegasti í ollum við- skiptum, virðulegur í fasi og vekur tiltrú allra er honum kynnast, og engan hefi ég heyrt minnast á Ásgrim öðruvísi en með virðing.u og ljóst hafandi það í huga að þar fari meira en meðalmaður. Það fór því ekki hjá því að honum væru falin ýms trúnaðar störf fyrir heimabæ sinn og á hann m.a. sæti í bæjarstjórn Siglufjarðarkaupstaðar. Auk þess að hafa á hendi fram- kvæmdastjórn fyrir söltunarstöð ina Hafliða á Siglufirði, hefur hann nokkur síðustu ár aðstoðað við vetrarútgerð á Suðurnesjum og veit ég að þau störf hafa ver- ið innt af hendi af sönnu alúð og kostgæfni sem honum er jafn- an svo eðlileg. Ásgrímur er kvæntur Þorgerði Pálsdóttur frá Bolungarvík, hinni ágætustu konu. Þau hjón hafa eignast þrjár dætur sér- staklega myn-darlegar og vel menntaðar og sem hafa orðið foreldrum sínum till mikils sóma. Dætur -þeirra eru: María, gift Kristni Finnssyni, rafvirkja- msistara. Akureyri, Halldóra, ljósmóðir við fæðingardeildina í Rvík og Eitíksína, starfandi á vegum Lof.tleiða í París. Ásgrímur minn! Ég veit að þú ert ekkert fyrir það að hreykja þér og bið þig að fyrirgefa mér þessi játningarorð mín. Ég og fjölskyida mín óskum þér og fjölskyldu þinni allra heiiia í tilefni dagsins og alls hins bezta á ókomnum árum. J.P. Grein þessi átti að birtast í gær, en vegna mistaka féil hún niður. Árið 19’4‘8 eignast Ásgrímur í félagi við aðra ágæta vini sína, sem hann mat mikils mb. Sigurð SI-9‘0, og sem látið var bera nafn föður hans. Skipi þessu stjórn- aði Ásgrímur sjálfur til ársins 1S60 er hann hætti skipsstjórn. Mb. Sigurðut' var mesta happa skip og átti ekki lítinn þátt í því að færa björg í þjóðarbúið og ekki var óalgengt að flyti við lunningu við landtöku. Minn ist ég í því sambandf á tákn- ræna mynd í einu dagblaða borg arinnar fyrir nokkrum árum, af mb. Sigurði SI-90 drekklhlöðn- um við bryggju og háuim stafla af tómum tunnum á bryggjunni, með þeim ummælum; að slíkir heillabátar gerðu þannig tunnu- stafla að engu á skömimum tima. Átgtimur var mesta aflakló, eins og það er orðað á sjómanna- máli, og sóttust menn eftir skips- rúmi hjá honum öðrum fremur. Það hefur ekki verið sársauka- laust fyrir Ásgtíim að skilja við þetta skip átt og trúað gæti ég að nokkur söknuður ríkti enn í huga hans. Ekki átti það við Ásgrím að flytja sig langt frá ströndinni. Að lokinni veru sinni á sjónum kaupir hann ásamt fleirum, sölt- unarstöðina Hafliða á Siglufirði. En því miður hafa síðustu ár PIERPONT ÖR MODEL1969 MARGAR NÝJAR GERÐIR AFDÖMU- OG HERRAÚRUM. sJGMÐAR OLAFSSON Z} LÆKJARTORGI SÍMI10081 er nýja línan í tízkuheiminum Nýju Korona fötin fylgja Windsor línunni Fylgizt með tímanum. Klæðizt Korona fötum. 8LAÐ6URDARF0LK OSKAST í eltirtolin hverii: Skerjafjörður (sunnan Hug/alar) TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 10100 •••••••••••••eoeoee* FÆST í KAUPFÉLAGINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.