Morgunblaðið - 20.04.1969, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1009
23
Bjarni lagði stund á vélsmíða-
nám og var vélstjóri á togurum,
þar til hann gerðist yfirverk-
stjóri hjá vélsmiðjunni Hamri
h.f. áTÍð 1922 og starfaði þar alla
tíð til ársins 1901 eða tæp 40 ár
og hætti þá störfum sökum ald-
urs.
(Hann kvæntist Ragnihillidi Ein-
arsdóttur þann 9. okt. 1915 og
lifir hún mann sinn. Voru þau
hjón sérstaklega samhent og
komu upp stórum barnahóp af
miklum myndarskap, jafnframt
sem þau unnu stórmerkilegt
þrautryðjendastarf í gaxðyrkju
og jarðrækt á 'heimili sínu að
Dvöl við Hlíðarveg, en þar
breyttu þau stóru landssvæði úr
gróðurlausri urð í fagran gróð-
urríkan garð. Það verk rnyndi
í dag vera talið mikið afrek, en
ef hafðar eru í huga þær aðstæð
ur sem voru fyrir hendi, þá er
mér næst að ætla, að um algjört
þrekvirki væri að ræða, ekikum
þegar haft er í huiga, að allt
þetta mikl'a starf var unnið að
loknum vinnudegi. Gróðurmold-
inni var ekið um langan veg í
hjólbörum eða borin í fötum og
þannig var verkið unnið að
mestu með handafli einu og get-
um við því gert okkur í hugaT-
lund þau mörgu dagsverk, sem
liggja að baki verkinu.
Garðurinn í heild ber vott um
milklia smekkvísi og skipulagn-
iragu og er óvenju fjölskrúðug-
ur af jurtalífi og trjágróðri.
Bjarni heitinn var einn af
fmmbyggjum Kópavogs, en
hann leigði sumarbúsitaðaland
hjá Jóni á Digraraesi um 1930, en
fluttist alfarinn hingað um 1940
og stækkaði og endurbætti húsa-
kynni sín næstu árin og er Dvöl
í dag vinarlegur staður umllukt-
ur gróðri. Bjarni var mikill
drengskaparmaður ákveðinn í
skoðunum og trúaður. Hann var
eindreginn stuðningsmaður Sjálf
stæðisflokksins og gegndi mörg-
um trúnaðarstörfum fyrir hann.
Sæti átti hann í hafnarstjórn
Kópavogs frá stofnun hennar
og var hann sérstaklega fróður
og kunnugur þeim málum og
lagði til góð og heililadrjúg ráð
í þeim efnum, enda hafði hann
langa starfsreyraslu að baki sér.
Hann var og einn af stofnendum
Spariíjóðs Kópavoigs.
Hér eru aðeins nefnd nok'kur
félagsstörf, sem hann tók þátt í
en Bjarni var virkur og athafna-
samur í félagsmálum, enda heil-
steyptur og hollráður maður.
Þessir eiginleikar haras nýttust
vel í mörgum þeim verkefnum
aem hann tókst á hendur og hef
ég þar efst í huga björgunar-
störf hans, unnin á vegum Ham-
ars hf.
Er mikill skaði, að ekki hafa
verið skrásettar sögur um mörg
afrek, sem hann innti þar af
hendi.
Oft reyndi á þrek og þol, en
karlmennska og þrautseigja
Bjarna heitins smitaði út frá sér
og aldrei held ég að hann og
starfsfélagar hans hafi gefizt
upp við björgun, en oft leyst
ótrúleg vandamál við erfiðar að-
stæður og munu hafa bjargað
fjölda skipa, þar á meðal mörg-
um togurum.
Eru dæmi til þess í sjávar-
háska, þegar skipstjóri og skip-
verjar höfðu gefist upp, þá hafi
Bjarni tekið við stjóm og siglt
skipinu 'heilu í höfn.
í návist Bjarna var gott að
vera. Hann var fróður vel og
hafði mjög skemmtilega frá-
sagnargáfu svo unun var á að
hlýða, enda var oft margt um
manninn á hinu ynd'islega heim-
ili þeirra og ljúft að njóta gest-
risni hjónanna og vináttu. A ég
svo margs góðs að minnast frá
þeim stundum.
Hjónin Bjarni og Ragnlhtidur
eiga 6 uppkomin börn, sem öll
eru á lífi og eru þau þessi:
Björgvin, kvæntur Ingibjörgu
Árnadó‘tur, Einar Valgarð,
ókvæntur, býr í heimahúsum,
Ragnar, kvæntur Guðleifu Jör-
uradsdóttur, Fjóla, kvænt Sigurði
Gíslasyni, Fríða, kvænt Hauki
Sigurðssyni og Jón, kvænbur Sól
veigu Magnúsdóttur.
Vil ég sérstakleiga votta eigin-
konu, börnum, tengdabörnum,
barnabörnum, vinum og venzla-
fólki innilegustu samúð mína og
fjölskyldu minnar, en minning
in um mætan og góðan dreng
fyrnist aldrei og verður niðjum
hans til ævarandi blessuraar.
Sigurður Helgason.
HORFINN er til feðra sinna
einn af frumibyggjum Kópavogs
— Bjarni Jónsson yfirverks‘jóri
í Dvöl við Hlíðarveg — á sjötug-
asta og níunda aldursári.
Bjarni átti sæti í hafraarnefnd
Kópavo'gs um áratugsskeið og
hefur hann ætíð verið hinn til-
lögubezti maður um málefni
hafnarinnar hér í kaup:.taðnum,
enda þaulkunnugur öllum hafn-
arframkvæmdum. Hann var einn
þeirra manna, sem ég leitaði
fyrst til sem starfsmaður bæj-
arins varðandi úrlausn ákveðins
vanda. Hann leysti úr honum
með þeim dugnaði, lipurð og
ljúfmennsku, sem mér fannst
höfuðprýði þessa göfuga manns.
Meðan Bjarni mátti heilsu sinn-
ar vegna, lét hann sig aldrei
vanta á fundi hafnarnefndar.
Jafnan kominn fyrstur manna til
fundar — ætíð hinn mikli áhuga
maður í starfi. — Honum var
mjög í mun að efla atvinnulíf
staðarins og vildi, að hér risi
upp fiskibátahöfn og fiskiðnað-
ur á Kársnesinu. Er stefnt að
því, að sú hugsjón hans rætist.
Það, sem mun varðveita nafn
hans um ókomin ár hér í Kópa-
vogi er hinn undurifagri og stóri
garður hans og þeirra ihjóna hér í
suðurhlíð Digranes'hálsins.
Um 1930 byggðu þau hér sum-
arbústað og hófu ræktun á
hrjóstrunum við hinar erfiðustu
aðstæður. Upp úr stríðinu er
Bjarni seztur hér að með fjöl-
skyldu sinni til fastrar búsetu.
Garðurinn ber fagran vott um
samstillt átak og stóihug hans og
konu hans, frú Ragnhildar.
Bæjarstjórn Kópavogs veitti
þeim hjóraum verðskuldaða við-
urkenningu fyrir frambak þeirra
í fegrun bæjarins árið 1965 og
var enginn betur að þeim heiðri
kominn.
í nafni bæjarstjórnar Kópa-
vogs og samstarfsmanna í hafn-
arnefnd flyt ég Bjarna þakkir
fyrir störf haras í þágu staðar-
ins. Kópavogsbúar munu um
langa framtíð blessa minningu
hans, er þeir njóta þess unaðar
að eiga friðsælar stundir í gróð-
urlundinum góða. Frú Ragn-
hildi, börnunum öluim og
skylduliði votta ég dýpstu sam-
úð.
Hjálmar Ólafsson.
BARNALEIKUR Thorbjarnar
Egnerts, Síglaðir söngvarar, hef-
ur. verið sýndrar sl. 5 mánuði í
Þjóðleikhúsinu við ágæta aðsókn
og eru sýninigar á leiknum nú
orðnar 25. Nú eru aðeins eftir
þrjár sýningar á leiknum og
verður síðasta sýningin á sumar
daginn fyrsta. Það er venja að
hætta sýningum á barnaleikrit-
um, þegar prófannir barnanna
byrja. Leikurinn verðu.r ekki
sýndur aftur á næsta leikári svo
að nú er síðasta tækifæri fyrir
börn að sjá þetta skemmtilega
leikrit.
Myndin er af Lárusi Ingólfs-
syni og Bessa Bjarnaeyni í hlut-
verkum sínum.
/'
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
ll
II
II
II
II
II
II
II
II
u
n
ii
ii
ii
Orð í tíma
töluð-í síma
w
©II
8 11
§ II
ý II
I "
§ II
II
II
II
Ásta og Harpa Árnadætur.
- ‘,RABBr
Framhald af bls. 14
son 7 ára, ásamt bróður sín-
um Þorkeli Má 4 ára voru
saman á óperunni og þeim
þótti mest spennaradi þegar
Rabbi hélt Dillidó og var að
tala við hana. „Ég hefði öskr-
að eins hátt og ég gat hefði
ég verið inni í Rabba og
reynt að sleppa“, sagði Björn.
„Mér fannst mest gaman, þeg
ar tóns.tigarnir voru að renna
sér“, sagði Þorkell litli.
Jf
Ingibjörg Ásgeirsdóttir W
ára og Hjördís Hjörlifsdóttir
11 ára sögðu þáðar í kór, að
þeim hefði þótt mjög gaman.
Ingibjörgu fannst mest
spennandi þegar Rabbi rráði
Dillidó og þegar verið var að
reyna að bjarga henni. Hjör-
dísi fannst mjög gaman þeg-
ar rafmagnsheiilinn sprakk og
einnig þegar tónlistanmennirn
ir gripu fjörlega inn í leikinn
með leik sínum, sérstaklega
þegar tónstigarnir voru að
renna sér.
„Ef ég hefði verið í sporum
Dillidó, hefði ég bara vonað
það bezta inni í rafmagnsheil-
anum“, sagði Hjördís.
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
\\
Það er á yðar ábyrgð að tryggja öryggi fjölskyld-
unnar. Gleymið því ekki og dragið ekki nauðsynleg-
ar ráðstafanir á langinn. í einu símtali getið þér
fengið heimilistryggingu, líftryggingu, slysatrygg-
ingu og hvers konar tryggingu aðra sem yður er
nauðsyn á. Gleymið ekki að hækka fyrri tryggingar
yðar til samræmis við breytt verðlag.
MENNAR TRYGGINGAR ?
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700