Morgunblaðið - 26.04.1970, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1970
22-0-22-
RAUDARÁRSTÍG 31
%
MAGINIÚSAR
SKIPH3LTI21 sima»21190
eftir loWun ílmi 40381
■25555
(^ 14444
xmiím
BILALEIGÁ
HVERFISGÖTU 103
VW SenÆferðabifreíð - VW 5 manna -VW srefnvap
VW 9ma«ia-Undrover 7manna
Hótel Norge
Bergen, Norge, óskar eftir
lærðum matsveini
og framreiðslumanni.
Skriftegar urnsóknir ásamt afrit-
um af meðmælum sendist
HOTEL NORGE
N-5000 Bergen, Norge.
Vel
hirt
eign
er
verð-
mœtari
LITAVER
Grensásveg 22—24.
Sími 30280 og 32262.
*
KVEIKIÐ A
REAAINGTON
í EITT SKIPTI
FYRIR ÖLL
Kynnist kostum nýju
rafmagnsvekjara-
klukkunnar frá
Remington.
Hér er vekjaraklukk-
an,sem aldrei þarf að
hafa áhyggjur af.
Kaupið vandaða vöru
Kaupið REAAINGTON
£ Rógskrif sænska
kratablaðsins
Z skrifar:
„Heiðraði Velvakandi!
Það er skemmtileg sumargjöf,
sem íslendingar fá frá sænskum
blöðum. Sjaldan hefur maður les
ið annan eins óhróður uim land
sitt og gneinarkorn þau, sem
Morgunblaðið birti úr málgagni
sænskra sósíal-demókrata, Afton
bladet, á sumardaginn fyrsta. Og
þótt furðulegt sé þá geta blöðin
skotið sér á bak við íslenzka
heimildarmenn við rógskrifin,
menn, sem meira að segja eru
studdir til dvalar erlendis aí al-
menningsfé.
£ Heimildarblað um
Vietnam o.s.frv.
Oftar en einu sinni hefur mað
ur heyrt íslenzka aðdáendur
sænskrar hámenningar vitna til
sænskra dagblaða, ekki sízt Aft-
onbladet, sem traustra og óhlut-
drægra heimilda um hvaðeina,
sem í hekninum gerist. Yfirleitt
er þá um þau atriði að ræða,
sem íslendingar geta ekki um
dæmt nema af afspurn. Nú fjall
ar Aftonbladet um mál, sem
hver íslendingur getur dæmt um
af eigin hyggjuviti og reynslu.
Finnst íslenzkum aðdáendum
þess það gert á óhlutdrægan hátt
og heimildirnar traustar? Við
verðum að vona fyrir þeirra
hönd, að skrií blaðsins um ís-
land mótist fremur af óvild til
landsins en virðingu fyrir sann-
leikanum. I>ví hvað yrði ann-
ars um allan sænska fróðleik-
inn t.d. um Bandarikin og Víet-
nam.
0 Skoðanamisrétti?
Enginn vaíi er á þvi, að Aft-
onbladet styðst í rógskrifum sín-
um Við ruglið í þeim, sem ó-
virtu íslenzka ríkið í Stokk-
hóhni á dögunum. Þessir öfga-
menn hafa í boðskap sínum sett
fram kröfur um, að „skoðana-
misrétti" verði útrýmt á ís-
landi. Sé frásögn Aftonbladets
um ísland að þeirra skapi, er
raunar engin furða, að þeiri eigi
erfitt með að koma skoðunum
sínum á framfæri hér, því að
jafnvel kon.múnistamálgagnið hér
á landi leggst sjaldan svona lágt.
Aftonbladet er eindregið flokks
blað sænskra sósíal-demókrata.
Við hátíðleg tækifæri guma ís-
lenzkir sósíal-demókratar oft af
nánum tengslum sínum við skoð
anabræðurna á Norðurlöndunum.
Og engum getur dulizt sérstök
aðdáun Alþýðublaðsins á Olof
Palme, leiðtoga sænskra sósíal-
demókrata. Hvernig væri nú að
láta reyna á hin margrómuðu
flokks- og skoðanatengsl og
beita þeim til þess, að Afton-
bladet afli sér gleggri og hald-
betri upplýsinga um ísland?
Z.“
Velvakanda hefur ávallt þótt
Aftonbladet ámóta merkileg
heimild og t.d. Ekstrabladet í Dan
mörku eða Orientering í Nor-
egi.
0 Leiðakerfið nýja hjá
SVR
Páll skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég hef ekki o£t plagað með
bréfaskriftum um dagana, en nú
langar mig til þess að biðja þig
um að koma á franrafæri þökkum
mínum fyrir hið nýja leiðakerfi
hjá SVR.
Ég hef all'taf orðið að ferðast
mikið með strætisvögnum, og
það verð ég að segja, að ég
kveið talsvert fyrir breytingunni.
Það er nú einu sinni, svo, að sá,
sem er farinn að eldast, er hálí-
smeykur við allar bneytingar.
Þótt ég gerði mér ljóst, að upp-
NÝ SENDING
vor- og sumarkápur
í glæsilegu úrvali.
KAPU- OG DÖMUBÚÐIN
Laugavegi 46.
Lagermaður
Framtíðarstarf
Áreiðanlegur maður með góða verkstjórnar-
hæfileika og reynslu í lagerstörfum getur
fengið framtíðaratvinnu á lager húsgagna-
verzlunar.
Umsókn sem tilgreini aldur og fyrri störf
leggist á afgr. Morgunblaðsins fyrir 3. maí
merkt: „Lagerstörf — 5106“.
bygging kerfisins væri komin til
ára sinna og yrði að takast til
endurskoðunar, eða réttara sagt:
byggja allt upp á nýtt; þá ótt-
aðist ég, að erfiðara yrði að
koma-st leiðar sinnar um gömlu
hverfin eftir fækkun leiðanna.
En sú hefur ekki orðið raunin
á, og get ég manna bezt um það
dæmt vegna áratuga reynslu aí
því að þurfa að nota strætis-
vagna mikið. Mér finnst þetta
nýja leiðakerfi hafa tekizt mjög
veL og það má ekki minna vera
en maður þakki fyrir sig. Það
geri ég hér með.
Páll.“
0 Hver borgar fyrir
r auðf asistana ?
„Herra Velvakandi:
Tvær fyrirspurnir frá almenn-
um skattborgara:
1. Verða þessi hlægilegu rauð-
fasistagrey í Svíþjóð látin greiða
fyrir símtal sitt við Æskulýðs-
fylkinguna í Reykjavík úr síma
Sendiráðs fslands í Stokkhólmi?
2. Hinn óþvegni og illaþefj andi
lýður, sem stíflaði gangamennta
miálaráðuneytisins undir forystu
tveggja gamlingja (ritstjóra og
fréttamanns) í dag, 24. apríl, stífl
aði a£ ásettu ráði niðurfall úr
vaski og lét vatnið flæða, svo
að það olli skemmdum á neðri
hæð. Þar að auki er sagt, að ó-
líft sé í ráðuneytinoi vegna ó-
lyktar (búkalyktar) um nokkurt
skeið nema með special loft-
hreinsun. Hver borgar skaðann
á neðri hæðinni? Hver borgar
allt Aeor-solið og O-do-ro-no-ið?
P. S. Gott væri, ef fólkið færi
í bað a.m.k. viku áður en það
leggur í næsta leiðaingur, ogburst
aði um leið 1 sér tennurnar.
G. N.“
$ Fyrirgefum og
gleymum
„Stokkhólmari“ skrifar:
„Hér x Reykjavík tala allir um,
að svipta beri strákalýðinn, sem
réðst imx í sendiráðið við Komm
endörsgatan, námsstyrkjum, refsa
honum og sekta, og jafnvel svipta
alla námsmenn erlendis náms-
styrkjum! Sagt er, að sýna verði
slíkixm skríl fullkomna hörku
frá upphafi, annars gangi hann
á lagið, þegar hann fái „blod paa
tanden" og gerist æ ósvíínari.
í fyrsta lagi mega menn alls
ekki jafna þessum ellefu vesa-
lings ógæfusömu unglingum sam-
an við alla íslenzka nemendur
erlendis, sem skipta hundruðum.
í öðru lagi er allur þessi at-
biuður fremur háðulegur fyrir
þátttakendur. Þeir segjast vera
að lepja dauðann úr skel, en hafa
þó efni á að aka í einkabifreið-
um yfir þvera Svíþjóð til þess
að drýgja hetjudáðina. Þeir Ijúga
klaufalega, þegar þeir segja, að
þetta hafi verið óundirbúið. Þeir
koma sér út úr húsi þjá þorra
manna, hljóta skömm annarra
námismanna fyrir og aðhlátur alls
almennings. Þeir tala og skrifa
svo lélega xslenzku, að helztverð
xxr Iíkt við gullaldartungutak
Þrastar Ólafssonar og stílsnilld
hans. Þeir þora ekki að segja til
nafns og ætla að gera í sig af
hræðslu, þegar nöfn þeirra eru
birt almenningi. Og hvað gex'ð-
ist? Eilefu stráklingar hrekja
eina stúlku og einn karlmann
út úr dyrum, sitja þar eins og
klessur, unz pólitíið potar þeim
út með litla fingri, og svo búið.
Þeir gera þrennt Ijótt af sér:
Róta i skjölum sendiráðsins,
hengja rauða druslu upp í stað
íslenzka fánans og verða ætt-
ingjum sírwxm til sárrar skap-
raunar. — Við bara fyrirgefxxm
og gleymum, en skulum ekki
æsa okkur upp út af þessu. En
í næsta skipti held ég, að al-
menningur hér kæri sig ekki um
nein vettlingatök.
Stokkhólmari.“
P.S. Vonandi spilla þeir ekki
allt of mikið fyrir kröfum náms-
manna.
— Velvakanda hafa borizt nokk
ur bréf um málið, og er í þeim
öllxxm farið fram á ströngustu
refsingar, og sýnist Velvakanda,
að í sxxmum þeirra komi fram
megnt stúdentahatur, sem finna
má hjá öllum þjóðum. Kamnski
er það líka ætlunin að æsa upp
menntahatur I fólki; það hlýt-
ur að „skerpa stéttaandstæðxmi-
ar.“ Auðvitað er þessi atburð-
ur piltunum persónulega til æ-
varandi háðungar; en hann er ekki
annað en ómerkileg eftiröpun á
stærri hlutum, sem gerðust hjá
fjölmennari þjóðum x alvörulönd
um fyrir tveimur árum.
Byggingafélag alþýðu Reykjavík
Aðalfundui félagsins verður haldinn miðvikudaginn 29. þ.m.
kl. 20,30 að Hótel Sögu (hliðarsalnum).
STJÓRNIN.
Fiskibátar til sölu
65 lesta góður bátur
Einnig 10 lesta, 12 lesta og 22 lesta.
TRYGGINGAR & FASTEIGNIR
Austurstræti 10 A 5. hæð.
Sími 26560 — Kvöldsími 13742.