Morgunblaðið - 23.05.1971, Side 20
20
MORGUNBLAÐIB, SUNNUDAGUR 23. MAl 1971
Nýtf frá
Hudson
sokkabuxur fyrir
táninga í stutt-
buxum. Engin FIT.
XJtgáfa blaða
og sala bóka
Nauðungaruppboö
sem auglýst var ! 8., 9. og 12. tbl. Lögbirtingablaðs 1971 á
hluta í Skeifunni 8, talinni eign Steinars Jóhannssonar, fer
fram eftir kröfu Axels Einarssonar hrl., Otvegsbanka Islands og
Loga Guðbrandssonar hdl., á eigninni sjálfri, fimmtudag 27.
maí 1971, klukkan 13 30.
______________ Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Fjöldi útg-efinna tímarita minnk
aði á árunum 1966, 1967 og 1968
úr 217 fyrsta árið í 161 hið síð-
astnefnda. Langflest timarit á
íslandi koma út óreglulega og
þau sem koma út vikulega eða
hálfsmánaðarlega eru frá 3 og
upp í 8. Blöð almenns efnis, sem
út komu á sama árabili voru
1966 65, 7« 1967 og 54 1968.
Morgunblöðum fækkaði um eitt
á timabilinu en síðdegisblöðum
fjölgaði um eitt — þ.e. Alþýðu-
blaðið gerðist siðdegisblað.
Þessar upplýsingar er að
finna í aprílhefti Hagtiðinda,
sem Hagstofan hefur nýlega
sent frá sér. Þar er tölu tíma-
ritstitla einnig skipt niður eftir
efni og kemur þá í ljós að tíma-
rit um almennt efni voru á þess-
um þremur árum 1966, ’67 og
’68 — 41, 37 og 34. Er það lang
fjölmennasti flokkurinn, en heild
artaia tímaritstitla er árin
þrjú 179, 162 og 161.
Þá segir í yfirlitinu i Hag-
tíðindum að rétt sé að geta í
þessu sambandi, að verðmæti
innflutta erlendra bólka, tíma-
rita og blaða á árunum 1966 til
’68 hafi verið að cif-verðmæti og
samkvæmt gengi dollars hverju
sinni sem hér segir:
1966 1967 1968
Bækur 53.5 41.5 18.0
Timarit og blöð 14.8 15.2 18.8
Ofangreindar tölur eru allar i
milljónum króna. Ástæðan fyr-
ir samdrætti í verðmæti inn-
Foreldrar Foreldrar
Náttúruskoðun, náttúruvernd,
veiðimennska, íþróttir, tjald-
búðastörf, útilegumatreiðsla og
frumbyggjastörf fyrir drengi
á aldrinum 11-15 ára
Sumarbúðir fyrir drengi verða starfrœkfar að Úlfljófs-
vatni í sumar á vegum Bandalags íslenzkra skáta
Dvalartímar verða sem hér segir:
1. 14. júní til 24. júní
2. 28. júní — 8. júlí
3. 12. júlí — 22. júlí
4. 2. ágúst — 12. ágúst
5. 16. ágúst — 26. ágúst
fyrir drengi 11 — 15 ára
Ekkert pláss laust.
Tryggmgargjald 500 kr. greiðist við innritun. Tekið verður á móti
pöntunum á skrifstofu Bandalags íslenzkra skáta, Tómasarhaga 31
(gengið inn frá Dunhaga) milli kl. 2—5 e. h. mánudaginn 24. maí.
Upplýsingar veittar í síma 23190.
Bandalag íslenzkra skáta.
fluttra bóka er m.a. að frá 1966
hefur dregizt nijög saman sala
erlendra alfræðiorðabóka.
— Skákþáttur
Framhald af bls. 12
Spassky, vorið 1969, sem áður
getur. 1966 hafði Petrosjan stað-
izt fyrri atlögu Spasskys að titl-
inum, og í heimsmeistaraeinvig-
um þessum (tveimur) saman-
lögðum, var munurinn mjög lít-
ill á þessum tveimur skákmönn-
um. Fæddur er Petrosjan 1929,
og er armenskur að uppruna.
Um Petrosjan hefur Botvinnik
sagt, að hann hafi frumlegastan
stíl allra skákmanna, og vtet er
um það, að hann verður ekki
skilgreindur að gagni í stuttu
máli. — í bili má láta nægja
að segja, að hann er ekki mikill
sóknarskákmaður, en lætur
manna bezt að hrinda sókn og
nýta sér til sigurs of djarfar til-
raunir andstæðingsins.
Korshnoj (fæddur 1931) er
meiri sóknarskákmaður, en tefl-
ir vamartafl oft einnig ágæta
vel. Hann er í senn „taktiskur"
og glöggskyggn á „strategiska"
mótun stöðunnar. Nokkuð teflir
Korshnoj misjafnlega vel, eins
og rejmdar allir skákmenn, and-
inn er þeim misgjöfull. En þeg-
ar honum tekst bezt upp, vinnur
hann hvaða skákmann sem er.
Taimanoff (f. 1926) er öllum
íslenzkum skákunnendum vel
kunnur, þar sem hann hefur
teflt tvisvar á mótum hér á
landi, 1956 og 1968, og eignazt
hér ýmsa kunningja. Hann er
ágætur skákmaður, lætur betur
að tefla sókn en vörn og teflir
af sjálfstrausti og sigurvilja.
Líklega er hann nú kominn yfir
sitt bezta í skákinni.
Taimanoff hefur aðeins teflt
á einu Kandídatamóti áður
(sama gildir um Korshnoj) þ.e.
1953, en þetta er aftur á
móti fimmta Kandidatakeppnin,
sem Petrosjan tekur þátt í. Má
af því marka, hve Petrosjan hef
ur verið miklu öruggari skák-
maður en Taimanoff, gegnum
árin.
Geller (fæddur 1925) er ald-
ursforseti kandídatanna nú, og
er þetta sjötta kandídatakeppnin,
sem hann tekur þátt í. Fyrir
svona 18—20 árum, man ég, að
margir spáðu því, að Geller ætti
eftir að verða heimsmeistari.
Stllinn var hvass, hann var
einkar vel að sér í byrjunum og
hugmyndaríkur. En það hefur
ávallt eitthvað á skort að hann
næði hiwu fyrirheitna marki.
Ég held það hafi stundum gætt
kæruleysis hjá honum, einkum
i skákum gegn löndum hans og
dirfska hans stundum reynzt
helzt til mikill glannaskapur. —
Ég hygg, að enginn spái þvi, að
aldursforsetinn hreppi efsta
sætið nú í þessari keppni, enda
væri það fordæmalaust.
HVER VINNUR SVO ÁSKOR-
UNARRÉTTINN NtlNA?
Þar verður auðvitað aðeins
byggt á líkum, en þær hníga
lika, virðist mér, flestar í þá átt
að Robert Fischer sé sterkasti
kandídatinn. Hann tapar nálega
aldrei skák núorðið, en virðist
hins vegar vinna öfluga stór-
meistara ótrúlega létt.
(Dæmi: 3:1 á móti Petrosjan í
Heimskeppninni í fyrra, svo og
Millisvæðamótið á Mallorca).
Hins vegar er Fischer óvanur
keppniskerfinu, og kann það eitt
hvað að há honum.
En hvað þá um Larsen?
Því er nú þar til að svara, að
hann er að sögn sterkasti skák-
maður heims nú þegar, og þarf
því kannski síður á heimsmeist-
aratitlinum að halda. — En nái
Fischer ekki áskorunarréttinum,
þá er Larsen auðvitað manna
líklegastur til að hreppa hann,
ef hann eftirlætur þá ekki
Korshnoj eða Petrosjan hann.
Svo, ef ég ætti að stilla upp fjór
um mönnum úr hópi kandídat-
anna sem líklegustum sigurveg-
urum, þá mundi ég gera það í
þessari röð:
1. Fischer
2. Larsen
3. Korshnoj
4. Petrosjan
Það er erfitt að gizka á, hver
Þessara manna mundi helzt
sigra Spassky í einvígi. En sam-
kvæmt útreikningi vísinda-
manna, ætti Fischer að hafa þar
mesta möguleika. — Sá útreikn-
ingur er byggður á sérstöku
kerfi, sem Alþjóðaskáksamband-
ið hefur nýlega tekið í notkun
og ýmsir hafa mikla trú á.
Samkvæmt þeim útreikn-
ingi ætti Fischer meira að segja
að vinna Spassky í einvígi um
heimsmeistaratitilinn, og það
með nokkrum yfirburðum.
— Þetta má vel vera, því að
hvað sem réttmæti kerfisins lið-
ur, og þótt menn séu vantrúaðir
á nákvæmt réttmæti þess, þá
munu fáir uppi nú, sem ekki
hafa tröllatrú á Fischer. — En
einvígi milli hans og Spasskys,
hygg ég að yrði fremur jöfn við-
ureign og því sérlega spennandi.
Ef af því verður, verður það
teflt næsta vor (1972).
Iðnaðorhúsnæði óskast
Iðnaðarhúsnæði, 80—100 fermetra, óskast.
Tilboð, merkt: „7666" óskast send afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir 28. mai.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Hagamel 10. þingl. eign Lárusar G.
.Lúðvigssonar, fer fram á eigninni sjálfri, fimmtudag 27. maí
1971, klukkan 14.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 23., 28. og 30. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1967 á eigninni Vallargata 18 (lóð milli Vallargötu og Strand-
götu), Sandgerði, þingl. eign Jóhannesar A. Jóhannessonar,
fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands, Vilhjálms
Þórhailssonar, hrl., Stefáns Hirts, hdl., Jóns E. Jakobssonar,
hdl., Tómasar Tómassonar, hdl., og Einars Viðar, hrl., á eign-
inni sjálfri fimmtudaginn 27. 5. 1971 kl. 4.45 e. h.
Sýslumaðurinn i Gullbringu- og Kjósarsýslu.