Morgunblaðið - 02.12.1971, Page 11
MORGUÍNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1971
11
Stjórn íslenzka mannfræðifélagsins. Fremri röð talið frá vinstri:
Magnús Már Lárusson, Jens Pálsson. Aftari röð: Jóhann Axels-
son, Guðmundur Eggertsson, Helgi Eliasson, Bjarni Bjarnason og
Hinrik Th orarensen.
Hafinn undirbúningur
að mannfræðistofnun
Almennir fundir á vegum
Mannfræðifélagsins
Basar Kvenfélags
Hallgrímskirkj u
1 SAMRÆMI við lög Islenzka
mannfræðifélagsins ákvað stjóm
þoss sl. vor að vinna að þvi að
koma á fót mannfræðistofnun á
næsta ári, sem rekin yrði með
föstum ríkisstyrk og framlagi
félagsmanna o.fl. aðila, er vildu
stuðla að framgangi mannfræð-
innar á Islandi.
Undirbúningur að hinni vænt-
anlegu stofnun er þegar hafinn,
og er gert ráð fyrir að hún geti
tekið til starfa í byrjun næsta
árs, ef nægilegt fé fæst til fram-
kvæmda.
Mun stjóm Islenzka mann-
fræðifélagsins reka stofnunina
fyrst um sinn.
í vetur mun Mannfræðifélagið
hálda allmarga almenna fúndi
eins og verið hefur undanfarin
ár. Verða þeir haldnir í 1.
kennslustofu Háskólans og er öli-
um heimill aðgangur, en frjálsar
umræður verða á eftir.
Fyrsti fundurinn verður hald-
inn föstudaginn 3. desember kl.
20.30 og mun Þorbjörn Brodda-
son, lektor, þá tala um markmið
50-60 fulltrúar
á þingi F.F.S.Í.
TUTTUGASTA og fimmta þing
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands verður haldið að
Hótel Esju, dagana 1.—5. des. nk.
og setur Guðmundur Pétursson,
vélstjóri, forseti sambandsins
þingið. Þing FFSÍ eru háð annað
hvert ár.
Vitað er um mörg mál, sem tek
in verffa fyrir á þinginu, svo sem
sjávarútvegsmál, kaup- og kjara
mál, vita- og hafnamál svo eitt
hvað sé nefnt. Fyrir þingið verð
ur lagt frv. að nýjum þingsköp
um sambandsins.
Ýmis erindi verða flutt á þing
inu. Haraldur Ágústsson, skip-
stjóri talar um opinn fiskmark-
að, Páll Guðmtmdsson, skipstjóri
talar um öryggismál og Halldór
Hermannsson, form. Bylgjunnar
á ísafirði talar um sjávarútveg á
Véstfjörðum fyrr og nú. Einnig
mun Ingvar Hallgrímsson fiski-
fræðingur flytja erindi á þing-
ínu ásamt skólastjórunum
urði Haraldssyni, Fiskvinnslu-
skóla íslands, Andrés Guðjóns-
syni, Vélskóla íslands og Jónasi
Sigurffssyni, Stýrimannaskóla fs
lands.
Fulltrúar á þinginu verða 50
til 60.
(Frá Farmanna- og fiski-
mannasambandi fslands.)
LESIÐ
JtJorguMWaíiíi)
DnCIEGD
félagsfræðinnar á Islandi. Hann-
es Jónsson, félagsfræðingur, mun
stjóma fundi.
1 febrúar mun prófessor Sig-
urjón Bjömsson, sálfræðingur,
tala um rannsóknir sínar á ís-
lenzkum skólabömum og síðar í
mánuðinum talar Jón Jónsson,
jarðfræðingur, um þjóðir og lönd
Mið-Ameriku, en hann dvaldist
þar um tíma við vísindastörf.
1 marz mun prófessor Jóhann
Axelsson, lífeðlisfræðingur, tala
um lífeðlisfræðilegar rannsóknir,
m.a. með tilliti til væntanlegra
rannsókna á Islendingum. Síðar
í sama mánuði talar Hannes
Jónsson, félagsfræðingur, um
félagsfræðileg efni og þróun
þeirra á Islandi.
1 vor. mun Ólafur Ólafsson,
læknir, tala um samanburð á
nokkrum mannfræðilegum og líf-
eðlisfræðilegum eiginleikum Is-
lendinga og Svía.
Stjóm Islenzka mannfræði-
félagsins skipa eftirtaldir menn:
Bjarni Bjamason, lektor í heim-
speki og sálarfræði, ritari félags-
ins, Guðmundur Eggertsson,
prófessor í erfðafræði, Helgi
Elíasson, fræðslumálastjóri, vara
ritari, Hinrik Thorarensen, for-
stjóri, gjaldkeri, dr. Jens Ó. P.
Pálsson, mannfræðingur, for-
maður, Jóhann Axelsson, próf-
essor i lífeðlisfræði, og Magnús
Már Lárusson, rektor Háskóla
Islands, varaformaður.
Endurskoðendur eru: Indriði
Indriðason, ættfræðingur, Ottó
J. Bjömsson, tölfræðingur, og
Einar Siggeirsson, erfðafræðing-
ur, varaendurskoðandi.
(Frá íslenzka mannfræði-
félaginu).
ÞAÐ er eitt og annað, sem ein-
kennir íslenzku kirkjuna, þegar
hún er borin saman við kirkjur
annarra Norðurlanda. Islenzka
prestastéttin virðist t.d. standa
nær öllum almenningi í landinu,
og andstaða hinna svonefndu
menningarfrömuða er hér ekki
tiL Kirkjan hefir verið alþýðleg
stofnun og frjálslynd í skoðun-
um og vel unnandi þjóðlegri
menningu. Eitt er enn, sem telja
má islenzku kirkjunni til gildis.
Líklega hafa Islendingar byggt
fleiri kirkjur á þessari öld, að
tiltölu við stærð landa og fjöl-
menni þjóða, heldur en aðrar
Norðurlandaþjóðir. Þörfin var
auðvitað meiri, þvi að grannþjóð-
imar höfðu átt sér kirkjur úr
varanlegra efni. Þó má segja, að
hver kirkjubygging sé mikið
átak og hver kirkjuvígsla er há-
tíð, sem snertir ekki aðeins sókn-
ina, heldur allan kristinn lýð.
Þess vegna fögnum vér því af al-
hug, að enn einn söfnuður hefir
fengið sina kirkju, og óskum
Bústaðasöfnuði til hamingju
með sína nýju kirkju. En jafn-
framt erum vér minnt á það, að
vér eigum enn fyrir höndum
nokkurt átak, unz Hallgrims-
kirkja nær sama marki.
Mikill er sá fjöldi áhugamála,
sem kvenfélög í Reykjavik styðja
með því að halda basar. Eitt
styður þetta og annað hitt. En
öll göngum vér um hina sömu
jörð, með sama himin yfir höfði,
og þvi er þjónustan við skapar-
ann ekki einkamál neins flokks,
ekki einu sinni kirkjunnar. Af
því leiðir, að allur almenningur
á íslandi hefir áhuga á þvi, að
Hallgrímskirkja hljóti sína
vigslu, eins og systir hennar á
Bústöðum.
Eitt af því, sem sýnir áhuga
fólks og velvild, eru góðar undir-
tektir, þegar f jársöfnun fer fram.
Þetta hefir oft komið fram, þeg-
ar kvenfélagið hefir basar, og
mun einnig sýna sig á laugar-
daginn kemur. Opnað verður kL
2 e.h. (inngangur að norðan-
verðu). Ég þakka öllum, er hlut
eiga að máli. — Hið fagra póst-
kort af líkani kirkjúnnar verSffr
til sölu.
Þeir, sem styrkja kvenfélagið,
leggja því máli lið, að ísland eigí
nægilega stóra kirkju til messu
og söngsamkomu á þjóðhátíð-
inni 1974.
Jakob Jónsson.
hvort heldur um er að ræða
popp eða sígilda tónlist.
DUAL STEREO SAMSTÆÐUR
á viðráðanlegu verði fyrir fólk á öllum aldri.
Verð frá kr. 21.000,00
KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800, RVK. OG BREKKUGÖTU 9, AKUREYRI, SÍMI 21630