Morgunblaðið - 02.12.1971, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESBMBER 1971
ijm jn ■ ■ i
M 1 l
Óeðlilegs misræmis gætir
— í stærd og umfangi erlendra sendiráða
Á fundi sameinaðs þings í gaer
mælti Guðlaug-ur Gíslason fyrir
tUlögu, er hann flytur ásamt
Ellert B. Schram, þess efnis, að
rikisstjórnin setji, í samráði við
utanríkismálanefnd, reglur um
fjölda erlendra starfsmanna við
sendiráð erlendra rikja á Is-
landi, svo og reglur um lóða- og
húseignakaup sömu aðila.
Sagði þingmaðurinn, að óeðli-
legs misræmis gætti í þessu sam-
bandi milli sovézka sendiráðs-
ins og hinna sendiráðanna.
Guðlaugur Gíslason (S) sagði
m.-a.:
Þegar utanrikisráðuneytið
birti skýrslu sána um fjölda er-
lendra starfsmanna við hin ýmsu
sendiráð hér í Reykjavík jafn-
framt skýrslu yfir fasteignir og
-
4 HELLNA ELDAVÉL
BÚIN FJÖLDA
NÝJUNGA
Örugg, sjálfvirk
klukka. Innstunga
framan á vélinni
fyrir hrærivél.
Geymslurými fyrir
bökunarplöiur o. fl.
1 Innbyggður gufuþéttir
í bakarofninum.
' Sfór og góður hitaofn
með diskagrind.
i Sér undir- og yfirhiti á
bakarofninum. Mjög
gott að baka í vélinni.
1 Laust glóðar-
steikingarefement.
• Tvöföld ofnhurð.
Algerlega örugg. Börn
geta ekki brennt sig.
i Og KPS efdavélin
er auðvítað á hjólum.
Norsk framleiðsla eins og
hún gerist bezt.
GÓÐIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Einar Farestveit & Co. Hf
Raftækjaverzlun
Bergstaðastr: 10A Sími 16995
lóðir þessara aðila, kom í ljós,
að hér var í einstaka tilvikum
um mjög mikið og áberandi og
óeðlilegt misræmi að ræða -milli
hinna einstöku sendiráða.
Island hefur eins og vitað er
misjafnlega mikil samskipti við
hin ýmsu ríki bæði viðskiptaleg
og menningarleg. Er þvi ekki
nema eðlilegt, að sendiráð lands
ins séu misjafnlega umfangsmik
il í hinum ýms-u löndum og fer
það að sjálfsögðu eftir samskipt
um okkar við hvert land fyrir
sig. Á sama hátt er það eðlilegt,
að sendiráð erlendra r.íkja hér
á landi séu misjafnlega umfan-gs
mikil og gildir þar um að sjálf-
sögðu sama regla og um sendi-
ráð okkar erlendis.
Það, sem hlýtur þó að vekja
athy-gli í umræddri skýrslu ut-
anríkisráðuneytisins er, að eitt
ríki, það eru Sovétríkin hafa
fleiri erlenda starfsmenn í þjón
ustu sinni heldur en nokkurt
annað ríki, og að fasteignir þess
og lóðir eru áberandi meiri en
annarra ríkja, og hvort tveggja
mun umfangsmeira en séð verð-
ur að þörf sé fyrir. Samkvæmt
skýrslunni er fjöldi erlendra
starfsmanna við þetta sendiráð
30 talsins, sem er rúmlega þriðj
ungur allra erlendra starfs-
mamna við þau 10 sendiráð, sem
hér eru og einum fleiri en sex
r-íki önnur samanlagt hafa í
þjónustu sinni, og verður þó
ekki séð, að þessi ríki hvert fyr
ir sig hafi nokkuð minni dipló-
matísk samskipti við okkur en
umrætt rílki. y
Ef litið er á fasteignir þessa
sendiráðs, blasir það sama við.
Þar er um að ræða fjórar fast-
ei-gnir, sem að rúm-mál-i eru rúm-
lega f jórði hl-uti af rúmmáli allra
fasteigna hinna tíu sendiráð-
anna, sem hér eru.
Svipuð hl-utföll eru varðandi
flatarmál lóða þessa sendiráðs
og hinna sendiráðanna saman-
lagt.
Þegar þetta er athugað og
einnig það, — að sennilega er
engum háttvirtum þingmanni
kunnugt um nokkur þau sam-
skipti Islendinga við Sovétríkin,
sem gefa tilefni til jafnumfangs-
mikils sendiráðs þeirra 'hér á
landi og raun ber vitni um, er
ekki hægt að telja annað en að
hér sé um óeðlilegt misræmi að
ræða, miðað við stærð og um-
fang annarra sendiráða.
Þingmenn allir vita, að við-
skiptum okkar við þetta ríki er
á þann veg háttað, að um vöru-
skiptaviðskipti er að ræða. Samn
in-gar um þessi viðskipti munu
gerðir einu s-inni á ári eða ann-
að h-vert ár og eru það sérstakar
sendinefndir af hálfu beggja
rí-kjanna, sem þessa samninga
annast, þótt sendiráðin -komi þar
að sjálfsögðu, að einhverju leyti
við sögu.
Held-ur ekki mun háttvirtum
þingmönnum kunnugt um nein
umfangsmikil menningartengsl
okkar Islendinga við Sovétrík-
in, og munu hlutfailslega fáir ís-
lenzkir námsmenn stunda nám í
JÓLAFUNDUR HVATAR
verður í Tjarnarbúð, niðri, kl. 20.30 í kvöld. Séra Ólafur Skúla-
son flytur jólahugleiðingu Árni Johnsen skemmtir. Sýnd verð-
ur blómaskreyting. Loks verður happdrætti með fjölda vinn-
inga.
SJÁLFSTÆÐISKONUR!
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
Sovétrikjunum, og um fjölda
námsmanna þaðan við háskól-
ann hér er ekki til að dreifa.
Þegar allt þetta er athugað,
liggur það alveg Ijóst fyrir, að
um alveg óeðl'ilegan fjölda
starfsmanna er að ræða við
þetta sendiráð, það er sendiráð
Sovétríkjanna, og víst flestum
óskiljanlegt, hvernig það fól-k,
sem þar starfar getpr eytt tím-
an-um miðað við venju-leg diplo-
mati'sk og viðslkiptaleg störf
annarra sendiráða.
Það skal tekið fram, að starfs
fólk við APN fréttastofuna, —
Novosti — er ekki talið með i
fjölda starfsfölks við sendiráðið.
Verður ekki annað sagt en að
þetta tilvik í skýrslu utanríkis-
ráðuneytisins um fjölda er-
lendra starfsmanna við sendiráð
in gefi fullkomlega ástæðu til að
skora á ríkis-stjórnina að setja
einhverjar reglur, sem hamli
gegn þvi að nokkurt sendiráð
geti haft í sinni þjön-ustu alveg
ótakmarkaðan fjödda erlendra
starfsmanna eða farið í stórfelld
lóða og fasteignauppkaup hér á
landi langt umfram það, — sem
séð verður að na-uðsyn beri til.
Varla -getu-r talizt óframkvæm-
anlegt að setja slíkar reglur,
sem hlytu í grundvallaratriðum
að byggjast á diplomatiskum og
viðskiptalegum samskiptum okk-
ar við hvert riki fyrir si-g, og er
að sjálfsögðu ekki til þess ætl-
azt, að sendiráðunum sé í
nokkru þröngu-r stak-ku-r sikor-
inn í þessum efnum, heldur að-
eins að í framtíðinni verði kom-
ið i veg fyrir, að noikkurt sendi
ráð geti þanið út starfsemi sína
með óeðlilegum fjölda erlendra
starfsmanna eða fasteignaupp-
kaupum, langt umfram það, sem
séð verður að nauðsyin beri til.
íslenzka þjóðin er ekki mann
fleiri en svo, að hún verður að
hafa fulla aðgæzlu með því, að
á þessu sviði sé allt með eðlileg-
um hætti, þar sem erlendir
starfsmenn sendiráðanna njóta
þeirrar sérstöðu að vera ekki
háðir íslenzkum lögum.
Einar Ágústsson utanríkisráð
herra sagði, að fyrir tveim árum
hefði farið fram athugun á
fjölda erlendra sendiráðsstarfs-
manna hér á landi á vegum utan
rikisráðuneytisins. Sá fjöldi
hefði ekki breytzt, oig hefði fyrr
verandi ríkisistjóm ekki séð á-
stæðu til sérstakra ráðstafana í
þessu efni. Sagði hann, að þing-
manninum væri þetta k-unnu-gt.
Utanríkisráðherra sagði, að
sjálfsagt væri að gera athugun
á þessu frá almennu sjónarmiði,
þar sem Islendingar væru aðilar
að millirikjasamningi þar sem
segði, að móttökuríki gæti tak-
markað fjölda sendiráðss-tarfs-
manna. Þó sagðist hann ekki
telja óeðlilega mikimin fjölda
sendiráðsstarfsmanna við neitt
sendiráð hér, þannig að ástæða
væri til atð beita þessu ákvæði.
Giiðlaiifirur Gislason sagði það
misskilning hj'á utanríkisráð-
herra, að hann hefði um þetta
vitað. Hann hefði aldrei séð
neina skýrslu um þetta og fjöldi
starfsmannamna við sovézka
sendiiráðið hefði kornið sér alveg
á óvart. Sagðist hann hyggja, að
flestir skild-u ekki, hvernig það
mætti vera, að það væri með 30
starfsmenn, meðan önnur sendi-
ráð hefðu 5—7 manns og hefðu
þau þó ekki minna umleikis. Sitt
mat væri því annað en utanrík-
isráðherra í þesisu efní.
Alþingismaðurinn minnti á, að
íslenzku sendiráðs'starfsmönnun-
um í Moskvu væri eins og 'öðr-
um erlendu-m sendiráðsstarfs-
mönn-um bannað að fara nema
sem svairaði 40 km frá miðborg
Moskvu og sagðist ætla, að slíkt
þættu harðir kostiir hér á landi,
ef erlendir sendiráðsstarfsmenn
fengju ekki að fara lengri vega-
lengd hér án sérstaks leyfis.
Garðar Sigurðsson (Abl)
taldi, að ef óeðlilega mairgir
sendiráðsstarfsmenn væru við
eitthvað sendiráð hér á landi
væri það við bandaríska sendi-
ráðið, þar sem telja ytrði starfs-
menn rússnesku fréttastofunnar
Novosti og Upplýsinga-þjónustu
Bandaríkjanna með, en telja
yrði íslenzka starfsmenn með í
þessu sambandi, og væru starfs-
menn bandariska sendiráðsins
og upplýsingaþjónustunnar eitt-
hvað yfir 30 með íslenzku starfs
mönnunum.
Ellert B. Scliram (S) sagði
ástæðulaust að blanda saman is-
lenzkum og erlendum starfs-
mönnum í þessu sam'bandi, þar
sem íslenzk lög næðu ekki yfir
erlendu sendiráðsstarfsmennina,
og þess vegna ylli það áhy-ggj-
um, þegar erlend sendiráð söfn-
uðu til sín fólki og eign-um án
nokkurra athugasemda.
Tillaga Einars Oddssonar o.fL:
- a ■— -- ■
Framkvæmdaáætl-
un til 10 ára
um uppbyggingu vegakerfisins
ÞRÍR þingmenn SjálfstæSis-
fiokksins, Einar Oddsson, Sverr-
ir Hermannsson og Ingvar Jó-
hannsson hafa flutt um það til-
lögu til þingsályktunar, að gerð
verði framkvæmdaáætlnn til 10
ára um framhald á upphyggingu
vegakerfis landsins.
I tillögugrei-niinni segir svo
m. a.:
1. í áaetlun þessairi skal miðað
við, að á næstu 10 árum verði
lókið uppbyggingu hrin-gvegair
um landið og þeirra vega, sem
liggja að kaupstöðum og kaup-
tún-urn, seim ha-fa 300 íbúa eða
fleini.
2. í áætluninni slkal miðað við,
að á næstu 10 árum verði lolkið
við að setja slitlag, úr olíu-möl
eða öðru hliðstæðu ef-ni, á vegi,
þar sem 300 bifreiðar eða fleiri
faira um á dag að sumarlagi.
En-n fremur skal miðað við, að á
fnaimaingreindu tímabili verði
lagt slitlag út slíku efnd á vegi
til þeirra staða, sem hafa raiíkil-
vægu hlutver'ki að gegna í at-
vininulífi landsins.
3. Við röðun framkvæmda á
næstu 10 árum, samkvæmt 2. lið,
skal miðað við, að þeir vegir eða
vegarkaflar, þar sem un/di-rbún-
ingur slitlagsins verður ódýrast-
ur, gan-gi á uindan, en þó s'kal
höfð hli-ð-sjón af umferðarþu-nga.
4. Framkvæmdaáætluniina skal
endurskoða á tveggja ára fresti,
eða samtímis hi-nni almeninu veg-
áætlun.
Hel j ar slóðaror usta
Gröndals í nýrri útgáf u
SAGAN af Helja-rslóðarorrustu
Benedikts Gröndals, sem fyrst
kom út í Kauprnannahöfn árið
1861 er komin út í fimmtu útgáfu
á vegum Bókaútgáfunnar Fjölva.
Á bókarkápu segir um þessa
merku sögu Benedikts Gröndals
m.a. þetta:
„Saga Benedikts Gröndals hef-
ur fyrir löngu hlotið viðurkenn-
ingu alþjóðar sem sígilt bók-
menntaverk. Hún hefur komið
út í mörgum útgáfum. En aldrei í
þeim búningi sem vert væri . .
Þetta er fyrsta myndskreytta
útgáfan af Heljarslóðarorrustu.
Halldór Pétursson listmálari hef-
ur tekið það verk að sér og telur
það uppáhaldsviðfangisefni sitt.
Þorsteinn Thorarense-n skrifar
ýtarl-egar sögulegar skýringar,
sem leiða lesandann um samtíma
og hugarheim Gröndals. Loks
fylgir í bókinni ritgerð eftir Gils
Guðmundsson alþm. — Gröndal
á Heljarslóð."
Þá er þess að geta að hinn latn
eska formála þýddi dr. Jón Gísla-
son. Á kápu bókarinnar segir
ennfremur m.a. svo um orrust-
una á Heljarslóð:
„Benedikt Grönd-al skrifaði sög-
una af Heljarslóðarorrustu suður
í Belgíu, er hann dvaldist með
góðvini sínum Ólafi Gunnlaugs-
LESIfl
ovquuI
DRGLECR
syni í háskólanum i Louvain.
Skömmu pður hafði hann leg-
ið í eymd og vonleysi í Kaup-
mannahöfn, einmana og yfirgef-
inn. Hann hafði beðið skipbrot
í lífi sínu. Framundan var aðeins
myrkur.
En þá kom kaþólski trúboðinn
Djúnki til sögunnair og bjargaði
honum frá glötun. Gröndal gerð-
ist káþólskur, ekki af trúarsann-
færingu, heldur aðeins „til að
komast eitthvað burt.“
Eftir skemmtilegar samvistir
með Djúnka, lá leið hang tii Belg
íu, þar átti hann að læra undir
trúboðastarf. En til þess hafði
hann lítinn áhuga. Þess í stað
notaði Gröndal tíman-n til að
gleðjast. Þá skrifaði h-ann þessa
skemmtisögu og nýtízku riddara
sögu á einum hálfum mánuði.“