Morgunblaðið - 15.08.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.08.1972, Blaðsíða 12
l>l\,itAJ UU#i\UrUlt li). AUUÖl ±»<Z Jakob J. Smári F. 9. okt. 1889-D. 10. ágúst 1972 Haustið 1922 hóf ég stunda- kennslu við Menntaskólann. Flestir föstu kennaramir höfðu verið kennarar mínir, og var ég þvi feiminn við þá. En einn fast- ur kennari hafði bœtzt i hópinn frá því að ég varð stúdent 1919, en það var Jakob Smári. Hann var mér þá persónulega ókunn- ugur þó að ég kannaðist við hann sem ritstjóra og skáld. — Ailir kennaramir þéruðust að sjálfsögðu neona örfáir, sem höfðu verið samtimis í skóla eða voru nákunnugir af öðrum ástæðum. Ég þéraði vitanlega alla hina eldri kennara. Kennara- stofan var lítil, eða svo sem tæp- tega hálf kennslustofa, og ekki voru sæti handa nærri öl'lum kennurum i frLmínútum. Það atvikaðist þvi þannig, að við Jakob Smári stóðum oft. hlið við hlið upp við einn bókaskápinn í frtmínútum, og ræddi hann við mig. Ég var ekki eins feiminn við hann og hina kennarana, af því að hann haifði aldrei kennt mér. Við urðum þvi fljótt mál- kunnugir, og féil mér mjög vel við þennan hægláta, ljúfa og prúða og gagnmenntaða mann. Þegar hriiigt var inn í tíma urðum við oft samferða út gang- inn. Hálfu öðru ári síðar, á öðru kennsluári minu, í febrúar 1924, bar svo til, er við Jakob gengum saman norður suðurganginn, að hann spurði mig, hve gamal'l ég væri. Ég sagði honum það, að ég væri tæplega 24 ára. „Svo að þér eruð þá 10 árum yngri en ég,“ sagði Jakob. „Mér iikar vel við yður, má ég ekki bjóða yður dús?“ „Jú takk,“ sagði ég og var satt að segja dálítið upp með mér af þessari vinsemd, og þeirri virðingu að vera dús við svo fullorðinn mann að mínum dómi, ritstjóra, skáld og fræði- marrn. Þetta litia atvik er mér minnis- stætt og lýsir það Jakobi vel, ljúfmennsku hans, hógværð, vel- vild og hvatningu við óframíær- inn ungling. Varð þetta til þess, að aiía tíð fór vel á með okkur Jakobi Smára meðan hann var kennairi við skólamn. Þessir eðliskostir Jakobs Smára, Ijúfmennska og velviidin koma hvarvetna fram. Ef eitt- hvað bjátaði á með nem/enduma, vildi hann allt bæta með mildi og mannþekkingu. Hann vildi ekki brjóta hinn brákaða reyr. Enda báru allir nememdur hans tii hans hlýjan hug. Hið sama kom fram í fjölda ritdóma, sem hann skrifaði um skáldskapartilburði ungs fólks. Hann var mildur í dómum um það, sem honum þótti Mtilvægt, en hvetjandi til betri aíreka ef eitthvað sýndi einhverja hæfi- leika. — Og nú fyrir síðustu jól, þá 82 ára, skrifaði hamn með mikiili velvild um skáld.skapar- tilraunir ungrar stúlku og hvatti hana til að gera betur. Það eru nú 36 ár síðan Jakob Smári varð að hætta kennslu við Menntaskólann vegna heilsu- brests. Við erum því ekki mörg eftir, sem vorum samkennarar hans þar. Og nú er hann horfinn. En i hugurn okkar allra lifir minningin um sannmennitaðan hugsjónamann og listasikáld, en þó fyrst og fremst velviljað og kærleiksríkt göfugmeinini. Við þökkum honum samfylgdina og óskum honum góðrar ferðar til fyrirheitna lamdsins. Einar Magnússon. ------ 0 0 ------ Jakob Jóhannesson Smári, skáíld og fyrrum menntaskóla- kemmari, var fæddur að Sauða- felli í Miðdölum, Dalasýslu þann 9. október 1889. Foreldrar hans voru Jóhanmes L. L. Jóhannsson, prestur að Kvennabreikku x sömu sveit og kona hans Steimmn Jakobsdóttir, Guðmundssonar prests á Sauðafeilli, en aif honum fór mikið orð sem kenmimanni og þótti hann auk þess lœknir góður. Jakob lauik stúdeinft&prófi áx'ið 1908 og sigldi að þeim áfanga náðum til Kaupmannahafnar. Lauk hann magisterprófi i norrænum fræðum sex árum síð- ar, kom heim og gerðist kennari i íslenzku og við Menntaskólann í Reykjavík frá áriniu 1920. Kenndi hann við skölann fram til ársins 1937, við ágætan orðs- tir, en varð þá að láta af starfi sakir heilsubrests. Jafmhliða kennslu fékkst Jakob nokkuð við biaðamennisfcu og var ritstjóri Landsins á árunum 1916—18 og í tvö ár 1918—20 starfaði hann í islemzku orða- bókamefndinni. Harnn ritaði og fjölda greina í blöð og tímarit og l«m úrval greina hans út í bók- arformi fyrir allmörgum árum og bar titilinn „Ofar dagsins önn“. Þá er vert að geta þess að hann samdi eimmig kennslubækur í íslenzku, setn- ingafræði og málfræði, gaf út ístenzk-danska orðabók og eftir hann liggja og fjölmargar þýð- ingar. Það er þó fyrst og fremst fyrir skáldskap sinn, sem nafn Jakobs Jóhannessonar Smára mun geymast. Fyrsta ljóðabók hans „Kaldavermsl“ kom út árið 1920 og vafcti þegar athygli á höfund- inum, sem þá var rétt liðl’ega þrítugur. Naessta Ijóðabók hans kom ekki fyrr en sextán árum síðar, „Handan storms og strauma", 1939 kom „Undir sól að sjá“ og árið 1957 „Við djúpar lindir". 1 kvæðum sínum birtist hann lesendum sinum sem hinn dulúðgi og íhuguli spekingur, mannvinur og náttúruskoðari. Og enda þótt mörg ljóða hans láti ekki mikið yfir sér, hvilir yfir ljóðagerð hans jafnan heið- ríkja og inmli'fun. 1 ágætri grein, sem séra Jón Auðuns dómprófastur ritar um sfcáldið 65 ára, segir hann m. a. um ljóðabók hans „Handan storms og strauma". „Sem skáld lifir hann oftast kyrrlátu djúpu lfi.fi. Um innri hliðar lifsins er honum tamast að yrfcja, duldar kenndir, dulin örlög verða oft viðfangsefni hans. Á skólaárum hans hér og háskólaárunium í Kaupmannahöín var efnishyggja mikil mieðal menntamanna. Hún gat aldrei átt hug hans aiilan. Hún svaraði hvorki spurninigum hans um rúnir tilverunnar né svalaði þeirri þrá til hins dul- ræða, mýstiska, sem honum var í brjóst borin. ..." Um kennslu Jakobs Jóh. Smára rifjar séra Jón Auðuns m. a. þetta upp: „ístenzkutkennsla hans var sfcemmtiieg og ljós. Hann krydd- aði kennsliuna kímnigáfu sinni og lagði álierzlu á að kynna nemendunum ísienzka bók- menntasögu sarhhliða íslenzfcu máli. Það lét homim vel, svo margfróðum manni í norrænum skáldsikap og íslenzkum bók- menntum að fomu og nýju. Frá kennslustundum hans í hirnum gamla og göfuga skóla eiiga nemendur hans margar góðar minningar og mér heifir alltaf síðan þótt það æskilegast, að ís- lenzkukennari væri hvorttveggja málfræðinigur og skáld í senn.“ Jakob Jóhanmesson Smári gekk að eiga Helgu Þorkelsdótt- ur, bónda í Álfsnesi, Kjalamesi, árið 1910 og lifir hún eiginmann sinn. Þeim varð tveggja bama auðið, sem bæði eru á liífi. Morgunblaðið vottar aðstand- endum samúð og minnimgu hins ágæta skálds virðinigu. Islenzki þjóðsöngurinn: „Ætti medalíu skilið“ — var niðurstaða dansks útvarpsþáttar um þjóð- söngva hinna ýmsu landa ÞÓ að stundum lieyrist raddir hér heima um að íslenzki þjóðsöngurinn sé of langur og jafnvel leiðinlegur, virðist hann njóta mikiis álits í út- löndiinnm. Þannig barst Mld. bréf frá Kaupmannahöfn á dögijniim frá Einari Pálssyni, þar sem lýst er iimræðum um þjóðsöng okkar í danska út- varpinu, og fer það hér á eftir: í kvöld, laugardaginn 5. ágúst 1972, vom tvær dag- skrár sjónvarps og út- varps tengdar Ólympíuleikun- um með nokkrum hætti hér í Danmörku. Önnur þeirra nefndist Sports-duel og var samkeppni nokkurra manna i sjónvarpinu um það hver mest kynni i sögu iþróttanna. Hin var í danska útvarpinu. Nefndist hún „Apropos er fra min pladehylde" og hófst klukkan 19.50 undir stjórn Jens Louis Petersen. Fjallaði hún um þjóðsöngva hinna ýmsu landa, er ieiknir yrðu við Óiympiuleikana. Voru margir þjóðsöngvar leiknir og saga þeirra sögð. Þegar að Is- landi kom fengu Istendingar hærri einkunn en þeir eru vanir á Ólympíuleikum. — Komst Jens Louis Petersen að þeirri niðurstöðu, að ef veita ætti „medalíu" fyrir þjóðsöng — þá fengi íslenzki þ.jóðsöng- urinn eftir Sveinbjöm Svein- björnsson þá „medalíu". —• Fengu aðrir þjóðsöngvar ekki slíka einkunn. Var þjóðsöngur Islendinga — Ó, Guð vors lands — síðan leiikinn á plötu er Pétur Jónsson söng á sín- um tíma. Höfðu þá verið leiknir margir fegurstu þjóð- söngvar heims, þar á meðal Marseillasinn og hinir glæstu söngvar Þjóðverja og Austur- ríkismanna eftir Haydn og Mozart. Þótt þarna væri um persónulegt álit eins mamns að ræða var það alláhrifa- mikið fyrir ýmsa hér að heyra þessa eimkunnargjöf danska útvarpsins til islendinga. Til að fá frekari vitneskju um þjóðsönginn sneri Mbl. sér til Jóns Þórarinssonar, dagskrárstjóra, en hann hefur sem kunniUigt er skrifað ævi- sögu Sveinbjöms Sveinbjöms- sonar og gert þar þjóðsöngn- um rækileg skil. Jón kvað þjóðsönginn hafa verið sam- inn vorið 1874, en Sveinbjörn bjó þá í Londonstreet 15 í Edinborg. Tildrögin voru þau, að Matthías skáld Jock- umsson heimsótti Sveinbjörn og dvaldist hjá honum í um mánaðartíma. Þar samdi hann fyrsta erindið í sálminum en hin tvö komu ekki fyrr en síðar. Matthias segir frá því, að eftir að hann kom heim hafi hann aftur og aftur sent Sveinbirni áeggjam um að spreyta sig á sálmimim hvað Sveinbjörn gerði svo vorið 1874. Sálmurinn var fyrst fluttur hér heima hinn 2. ágúst á þjóðhátíðinni 1874 í hámessu í Dóm'kirkjunni, þar sem koniurxgurinn var við- staddur meðal annarra. Jón sagði ennfremur, að ekki væri hægt að tímasetja upp á ár hvenær „Ó, Guð vors lands" varð þjóðsöngur ís- lendinga. Hann vitn^ði i um- mæli Áma Thorsteinssomar þar sem hann segir að árið 1880 og þar uim bil hafi lúðra- sveitir jafnan leikið Eldgamla Isafold við hátíðleg og þjóð- leg tækifæri. Svo virðist sem smám saman hafi það þróazt í þá átt að „Ó, Guð vors Sveiubjiirn Sveinbjörnsson lands" tók við af Eldgömlu Isafold án þess að lög eða reglugerðir stjómvalda kæmu þar til. Sveinbjöm seldi árið 1910 dönskum tónlistarútgetf- anda öll réttindi á tónverkum síimnm, þar á meðal þjóðsöng- inn, en íslenzk stjórnvöid keyptu hann síðan fyrir 2000 danskar krónur fáeinum árum eftir lýðveldistökuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.