Morgunblaðið - 20.10.1973, Side 4

Morgunblaðið - 20.10.1973, Side 4
4 ® 22-0-22- RAUDARÁRSTÍG 31 -----.— ------' BÍLALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1973 STAKSTEINAR Glímuskjálfti Greinilegur glímuskjálfti fer nú um ýmsa þá borgarfulltrúa, sem skipa minnihiuta borgar- stjórnar. Borgarstjórnarkosn- ingar verða að vori, og þvf fylgir, að nú streyma inn til borgarstjórnar til birtingar f blöðum fjöldi yfirborðslegra tillagna og yfirlýsinga um hina ýmsu þætti borgarmálanna. En kapp er bezt með forsjá. Það sannaðist enn einu sinni á fundi borgarstjórnar þ. 4. okt- óber s.l. A þeim fundi gerðu tveir borgarfulltrúar minni hlutans að umtalsefni hvor sinn málaflokkinn með þeim afleiðingum, að kjörnar nefndir, sem um þessi mál eiga að fjalla, sáu ástæðu til að snupra borgarfulltrúana og stóðu á þeim ávftum jafnt þeirra eigin flokksmenn sem aðrir. Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknar, gerði að umtalsefni þá stað- reynd, að erfitt hefur reynzt vegna skorts á hjúkrunarfólki að taka f notkun að öllu leyti hjúkrunarheimilið við Grens- ásveg. Gerðist borgarfulltrúinn stórorður af þessu tilefni. Borgarstjóri mótmælti á fund- inum harðlega þeim ásökunum á hendur forstöðufólki Borgar- spftalans, sem fólust f ásök- unum Kristjáns. Afleiðing þessa frumhlaups borgarfull- trúa Framsóknarflokksins varð sú, að heilbrigðismálaráð sá ástæðu til að láta málið til sfn taka og ályktaði m.a. f tilefni af þessum umræðum: „Forstöðu- fólk Borgarspftalans hefur gert margftrekaðar tilraunir til að fá hjúkrunarlið til starfa á Grensásdeild Borgarspftalans, svo að hægt væri að taka hana að fullu f notkun. Ráðið hefur fylgzt náið með verkum for- stöðukonu f þessu efni sem öðrum stjórnunarmálum spítal- ans og lýsir fullum stuðningi við aðgerðir forstöðumanna til þess að leysa vandann, sem skortur á hjúkrunarfólki hefur valdið f rekstri Grensás- deildar.“ Það vekur sérstaka athygli að fulltrúi sá, sem Framsóknarflokkurinn kaus í heilbrigðismálaráð, Ámi Björnsson læknir, stóð að þess- um snöprum á borgarfulltrúa Framsóknar. Á sama borgarstjórnarfundi stóð upp Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins, og gerði að umtalsefni þá ákvörðun félagsmálaráðs að neita stúlku með 1 barn á fram- færi sfnu um lán að fjárhæð kr. 110.000.- til kaupa á bifreið. Taldi félagsmálaráð, að það gæti ekki veitt slfka fyrir- greiðslu til bifreiðakaupa. Sigurjón Pétursson taldi hins vegar sjálfsagt, að borgin tæki upp slfka lánastarfsemi. Þessar umræður urðu sfðan til þess, að Félagsmálaráð Reykjavfkur- borgar sá ástæðu til að ávfta Sigurjón Pétursson og gerði ályktun, þar sem m.a. stendur: „Félagsmálaráð átelur, að einkamál skjólstæðinga Fé- lagsmálastofnunar Reykjavfk- urborgar séu rædd á opnum fundi borgarstjórn- ar.“ Það vakti sérstaka athygli, að fulltrúi Al- þýðubandalagsins f félags- málaráði, Sigurjón Björnsson, sálfræðingur, greidd atkvæði með þessum ávftum á flokks- bróður sinn og nafna. Itel. 14444 • 255551 VMW IBILALEIGA CAR RENTAlJ /55 BÍLALEIGAN felEYSIR CAR RENTAL *24460 í HVERJUM BÍL PIO NEER ÚTVARPOG STEREO KASETTUTÆKI fHverfisgötu 18 SENDUM 86060 SKODA EYÐIR MINNA. Shodh LEICAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. FERÐABILAR HF. Bílaleiga. - Simi 81260. Fimm manrta Citroen G.S. stat- ion. Fimm manna Citroen G.S. 8—22 manna JVIercedes Benz hópferðabílar (m. bílstjórum). EMUR GAMALL TEMUR $ — — 1 LESIÐ ' —1 : ^"tOimblnbu, (jgggjS tfu QiiJW, - - - —: i DflCLECR spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hermann Ólafsson, Ásgarði 29, spyr: Albert Guðmundsson hefur lagt fram í borgarráði tillögu um, að settar verði reglur um að launþegum verði tryggð, við hverja útborgun launa, nægileg upphæð til framfærslu sér og fjölskyldum sínum. Því langar mig að spyrja Albert Guðmundsson, hvaða upphæð hann telji hæfilega fyrir verka- mann til að lifa af. — Ég vona, að það verði meira en þær 9 krónur, sem ég fékk útborgaðar síðast. — En tillaga hans á fullan rétt á sér. Albert Guðmundsson svarar: Ég hef aldrei ætlað mér að ákveða neina upphæð i þvi sam- bandi. Það yrðu opinberir aðil- ar að gera, líklega helzt Hag- stofan. Hún yrði að reikna út hver framfærslukostnaðurinn væri hverju sinni, ákveðna upphæð fyrir einstakling, hærri upphæð fyrir hjón og svo stighækkandi eftir barnafjölda. Hvorki ég né annar ein- staklingur ætti að ákvarða upp- hæðina. bökaíjtgAfa MENNINGARSJÓÐS Sigurður Draumland, Sunnu- hvoli, Akureyri spyr: „1. Verður framhald á útgáfu ýmissa ágætra safnrita Bóka- útgáfu Menningarsjóðs, svo sem: Sögu Islendinga, Ævisögu Tryggva Gunnarssonar, Ritum Jóns Sigurífesonar, Menningar- sögu Will Durants? 2. Hefur sömu útgáfu ekki komið til hugar að láta ljós- prenta Dýravininn hans Tryggva Gunnarssonar eða semja við Samband ísl. dýra- verndunarfélaga um umsjón með slfkri framkvæmd?" Höskuldur Frfmannsson, for- stjóri Bókaútgáfu Menningar- sjóðs, svarar: 1. Menntamálaráð Islands samþykkti á 1000. fundi sfnum í okt. 1972 samhljóða ályktun um verksvið bókaútgáfu Menningarsjóðs, eins konar út- gáfustefnu. Þar segir um þetta atriði: Ljúka ber útgáfu þeirra bóka flokka, sem byrjað er á, enda þótt þeir séu utan þeirrar út- gáfustefnu, sem hér er mörkuð. 2. Bókaútgáfa Menningar- sjóðs hefur ekki athugað þann möguleika að ljósprenta Dýra- vin Tryggva Gunnarssonar, en þessi ábending verður tekin til athugunar af útgáfunni. Ævisaga OSMONDS Osmonds-bræðurnir eiga heimili í Los Angeles og Utah. Hið síðarnefnda er risavaxinn búgarður með miklu land- flæmi, dráttarvélum, hestum, nautgripum og öllu því, sem til þarf á búgarði. Auk þess er þar plötuupptökustúdfó! Bræðurnir meta það mikils að geta verið í ró og friði á búgarðinum og halda sig oft þar. Taka þeir þátt í bústörfunum, fara um allt á hestum og sjá um rekstur sinna eigin nautgripa. Er þeir eignuðust heimili í Los Angeles, voru þeir í upp- hafi tilneyddir að flytjast á milli fbúða með skömmu milli- Síðari hluti bili, þvf að aðdáendurnir kom- ust að þvf, hvar heimili bræðr- anna var, og réðust inn í húsið og ollu öðrum fbúum þess ónæði. Nú er heimilisfang þeirra hið mesta leyndarmál. Þeir búa í rúmgóðu húsi, hver með eigið herbergi, og Donny, sem er sagður galdrakarl á sviði raftækni, er að koma sér upp upptökustúdfói í íbúðinni. Það stúdió verður hið þriðja, sem þeir hafa til afnota: Hin tvö eru á búgarðinum og í húsum MGM-fyrirtækisins í Los Angel- es. Donny hefur einnig lagt nokkrar leiðslur í stigann, svo að í hvert sinn, sem einhver stígur á tröppu, kvikna ljós undir henni. Foreldrar bræðranna reyna að sjá svo um, að líf drengjanna sé sem eðlilegast. Þegar þeir ferðast um Bandarfkin vegna hljómleikahalds, hafa þeir hóp- ferðabifreið til umráða. Faðir þeirra hefur hlotið tilsögn í rakaraiðn til að geta haldið hári sonanna snyrtilegu. Foreldrar þeirra ferðast yfir- leitt alltaf með þeim. Fræg er sagan af því, er piltamir komu til London og bjuggu á Chure- hillhótelinu. Ett kvöldið var Alan boðið I diskótek af for- ráðamönnum plötufyrirtækis- ins, sem gefur út plötur þeirra bræðra í Englandi. Þegar Alan kom heim, nokkru eftir mið- nætti, beið faðir hans f anddyr- inu, allur á nálum. Alan var þó orðinn 23ja ára! Trú þeirra er snar þáttur í lífi þeirra. Mormónatrú er kröfuhörð og í samræmi við hana reykir enginn f fjölskyld- unni, neytir áfengis eða örv- andi drykkja (kók og kaffi teljast þar með) og notar ekki lyf. Talsverð upphæð af launum og erfitt er að ímynda sér, að verið geti, að á bak við tjöldin hnakkrifist öll fjölskyldan á stundum, þótt suma gruni slíkt. Þeir eru nú að læra karate, og samkvæmt lýsingum, virðast þeir allgóðir f íþróttinni (þótt þeir hafi reyndar meitt sig á þeirra rennur til safnaðar- starfs. Nafnið á plötumerki þeirra, Kolob, er mormónaheiti og nýjasta stóra platan þeirra var hápunktur áralangrar vinnu við að ná fram f tónlist- inni og koma á framfæri lífs- skoðunum þeirra. Bræðurnir ganga allir í sér- saumuðum fötum — og mjög sjaldan, ef nokkurn tíma, sjást þeir f gallabuxum. Þeir eru allt- af mjög hreinlegir og snyrti- legir. Þeir eru sérlega viðkunnan- legir og ánægjulegt að kynnast þeim, mjög kurteisir, skraf- hreifnir (þó engir blaðrarar) og alltaf kátir. Peir avarpa tor- eldra sfna jafnan með virðingu. bröltinu fyrir skömmu). Þeir hafa fremur lagt stund á karate í þvf augnamiði að halda sér í góðri líkamsþjálfun en að geta varið sig, þótt þeir hafi reyndar fengið líflátshótanir og orðið fyrir allharkalegri ágengni aðdáenda á köflum. En það er hluti áhættunnar, sem fylgir frægðinni. Jimmy litli og Marie koma nú alltaf fram með bræðrum sínum. Jimmy hefur óborgan- lega, háa og skæra drengjarödd og Marie er með ljúfa, skýra rödd, sem sérstaklega nýtur sín í þeirri tegund bandarískrar tónlistar, sem við kúreka hefur verið kennd (Country & West- ern-tónlist).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.