Morgunblaðið - 20.10.1973, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1973
19
Pétur Þorbergsson
bóndi — Minning
t dag er til moldar borinn að
Kotströnd í ölfusi Pétur Þor-
bergsson, siðast bóndi að Nauta-
flötum f ölfusi. Pétur Þorbergs-
son var fæddur á Urriðaá í Alfta-
neshreppi I Mýrasýslu þann 29.
september 1892 og var því 81 árs
er hann lézt.
Foreldrar Péturs voru: Þor-
bergur Pétursson bóndi I Syðri-
Hraundal og kona hans Kristín
Pálsdóttir ljósmóðir. Voru þau
hjón bæði af traustu og góðu
bergi brotin. Afi Þorbergs I Sýðri-
Hraundal var Þórður Jónsson
hreppstjóri í Skildinganesi, sem
fjölmenn ætt er frá komin og
margt ágætra manna. Börn Þor-
bergs og Kristínar í Syðri-Hraun
dal eru, auk Péturs: Páll Geir
verkstjóri í Reykjavík og Mál-
fríður (Þorbjörg Málfríður) hús-
freyja að Svarfhóli í Hraun-
hreppi, en auk bama sinna ólu
þau upp fósturson, Helga Sveins-
son frá Hvítsstöðum, síðar prest
Og skáld í Hveragerði, nú látinn.
Pétur Þorbergsson hóf búskap
I Syðri-Hraundal árið 1916, en það
ár kvæntist hann eftirlifandi
eiginkonu sinni, Vigdísi Eyjólfs-
dóttur frá Kirkjubóli f Hvítárslðu,
greindri og dugmikilli konu.
Faðir hennar var Eyjólfur
Andrésson bóndi Kirkjubóli, al-
bróðir séra Magnúsar Andrés-
sonar, prófasts og alþingismanns
á Gilsbakka, en þeir bræður voru
Ámesingar að ætt og uppruna.
A fyrstu búskaparárum Péturs
og Vigdísar i Syðri-Hraundal var
tíðarfar með þvi versta, sem verið
hefur á þessari öld. Frostavetur-
inn mikli 1918, en sumarið eftir
voru tún svo kalin og gróðurlaus,
að ekki fékkst nema sáralítið brot
af því töðumagni, sem venja var
að fá, þá má nefna snjóaveturinn
mikla 1920, þegar flestir urðu
heylausir eða heylitlir og kaupa
þurfti fóðurbæti í stórum stíl.
Þrátt fyrir þessi áföll, tókst
Pétri að fjölga skepnum frá því,
sem áður var, og þegar Pétur
fluttist með fjölskyldu sína frá
Syðri-Hraundal, vorið 1948, að
Breiðabólsstað i Miðdölum, átti
hann stórt fjárbú. I Syðri-Hraun
dal endurbyggði Pétur öll hús
jarðarinnar og vann þar talsvert
að jarðabótum. AÐ Pétur fluttist
frá Syðri-Hraundal inn í Miðdali,
stafaði að nokkru leyti af þvf, að
hann var ekki eigandi jarðarinnar
og að jörðin var illa í sveit sett og
ekki talin góð til túnræktar.
Á Breiðabólsstað í Miðdölum
bjó Pétur frá 1948 til 1952, en um
það leyti var Landnám ríkisins að
uthluta nýbýlalöndum efst í Ölf-
usi við Ingólfsfjall. Að Nautaflöt-
um, en svo nefndi Pétur jörð sina,
fluttist Pétur ásamt konu sinni og
tveimur sonum, Skúla og Eyjólfi
vorið 1952. Áður höfðu þeir
bræður, Skúli og Eyjólfur, byggt
íbúðarhús og eitthvað af úti-
húsum. Þeir feðgar fengu þarna
tvö lönd ( tvær jarðir ). NU eru
Nautaflatir stórbýli, þar eru mikil
og góð hús, allt landið tekið til
ræktunar og öll störf unnin með
nýtizkuvélum og öll umgengni
utan húss og innan mjög til fyrir-
myndar.
Pétur Þorbergsson, sem nú er
allur, var góður bóndi í þess orðs
bezta skilningi. Hann var sístarf-
andi, einn af þeim mönnum, sem
aldrei féll verk úr hendi. Hann
vildi tileinka áer allgr nýjungar i
íslenzkum landbúnaði, eins og
flestum, sem til þekktu, er vel
kunnugt.
Pétur og Vigdís eignuðust 8
börn og eru þau öll á lífi. Þau eru:
1. Sigríðru f. 5.9. 1017, maður
Guðmundur Arnason, sjómaður í
Sandgerði, látinn.
2. Skúli f. 14.2 1919, bóndi Nauta-
flötum.
3. Kristfn f. 31.5 1921, maður
Kjartan Ólafsson fiskimatsmaður
í Vestmannaeyjum, nú í Þorláks-
höfn.
4. Guðrún f. 27.6 1922, maður
Guðlaugur Sigurjónsson bifvéla-
virki í Keflavík, látinn.
5. Katrin f. 13.6 1924, maður
Einar Hannesson fulltrúi i
Reykjavfk.
6. ÞíM-bergur f. 13.4 1927 iðnaðar-
maður I Reykjavik, kona Rós
Ölafsdóttir.
7. Soffia f. 1.9 1928, maður Helgi
Pálmarsson flugumferðarstjóri í
Reykjavík.
8. Eyjólfur f. 4.11 1930, bóndi
Nautaflötum.
Öll eru þessi börn þeirra hjóna,
Péturs og Vigdísar, mesta
myndar- og dugnaðarfólk, eins og
þau eiga kyn til. Þegar þetta er
ritað eru afkomendur hjónanna á
Nautaflötum alls 48.
Pétur Þorbergsson andaðist að
Sólvangi í Hafnarfirði þann 12.
október síðast liðinn og hafði þá
verið sjúklingur um nokkurra
mánaða skeið.
Um leið og ég kveð vin minn,
Pétur Þorbergsson, votta ég Vig-
dísi, börnum hennar, tengda-
börnum, barnabörnum og öðru
nákomnu skyldfólki, djúpa
samúð.
Magnús Sveinsson frá Hvfts-
stöðum.
Getum hætt vitr okkur
smíði á einni til tveimur eldhúsinnréttingum fyrir jól
T résmíðaverkstæði
Þorvaldar Björnssonar.
Sími 86940 og 71 1 18.
Reykvlklngar - Hafnflrdlngar
Um 500 fm. húsnæði er til leigu nú þegar i Hafnarfirði.
Uppl. veitir Kristján Þór Kristjánsson í síma 99-6973
(Vestmannaeyjum). á mánudag og þriðjudag.
Vélsmiðjan Magni h.f.
Vestmannaeyjum.
Þýzkunámskelfl Germanlu
Þýzkunámskeið Germaníu hefjast í Háskólanum
(kennslustofu 6) mánudaginn 22. okt. kl. 20 fyrir þá,
sem lært hafa eitthvað áður, en miðvikudaginn 24. okt. á
sama stað og tíma fyrir byrjendur. Allar nánari uppl.
verða gefnar í síma 37745 og 1 6061.
Félagið Germanía.
Norrænn læknl- og idnprðunarslóflur
Nordlsk Induslriiond.
Með samningi milli Danmerkur. Finnlands, íslands, Noregs og
Sviþjóðar hefur verið stofnsettur norrænn tækni- og iðnþróunar-
sjóður, sem tók gildi 1. júli 1 973. Markmið sjóðsins er að stuðla að
tæknilegum rannsóknum og iðnþróunarmálum, sem tvö eða fleiri
hinna Norrænu þjóða hefðu áhuga á.
Hefur orðið að samkomulagi að leggja í sjóðinn samtals 50 millj.
sænskra króna á fimm ára timabili. Á fyrsta starfstimabilinu frá 1.
júlí 1973 til 31. desember 1974 er framlagið ákveðið 10 millj.
sænskra króna.
Sjoðurinn getur stuðlað að verkefnum og framkvæmdum, þar sem
þátt taka 2 eða fl. af Norðurlöndunum, enda se taliðT að leitt geti
til tæknilegra framfara. Það er fyrst og fremst hugsað um þróun
efna, framleiðsluhátta, tilraun, aðferða og tækja sem fljótlega
gætu komið að notkun við tækniframkvæmdir eða á einhvern þann
hátt, er stuðlað gætu að lausn verkefna, er leiddu til sameiginlegra
hagsmuna á sviði iðnaðar.
HiTín fjárhagsl. stuðning er hægt að veita sem styrk eða sem lán
með hagkvæmum kjörum. Slíkur stuðningur getur verið veittur
stofnunum, félögum eða fyrirtækjum, sem eru starfrækt á Norður-
löndum.
Umsóknir um fyrirgreiðslu má senda hvenær sem er á árinu.
Tíminn frá því að umsókn er send til sjóðsins og þangað til að
ákvörðun liggur fyrir yrði væntanlega tveir mánuðir, þó að visu fari
það að nokkru eftir árstíma og eðli umsóknarinnar.
Viðbótarupplýsingar er hægt að fá með því að snúa sér til Norræna
tækni- og iðnþróunarsjóðsins c/o NORDFORSK, Box 5103, S —
102 43 Stockholm 5 í Sviþjóð eða hjá hinum íslenzka stjórnar-
manni sjóðsins, Árna Snævarr, ráðuneytisstjóra i iðnaðarráðuneyt-
inu i Reykjavik.
Til sölu
Eftirtalin notuð áhöld:
kjötsagir, bakaraofn 2ja hólfa, pylsusprauta 70
lítra.
Síld og fiskur,
Bergstaðastræti 37
Dömur athugid
Hef opnað hárgreiðslustofu
Ólu Stínu
Blönduhlíð 35,
gengið inn frá Stekkjarhlíð
sími 13068
Geymið auglýsinguna.
DVNImOP
Lyttaradekk
23x5 700x9
25x6 650x10
27x6 750x10
18x7 27x10—12
29x7 700x12
500x8 700x15
21x8—9 750x15
500x9 825x15
AUSTURBAKKIÍsím! 38944
Dauf IJós skapa kættu
í vetrarmyrkrinu eru ökuljósin augu bílstjórans.
Þessir hlutir ráða mestu um Ijósmagnið.
Skiptið um peru og spegil- og Ijósin verða björt á ný.
VOLKSWAGEN EIGENDUR
Nú er tími Ijósastillinga.
Of dauf ökuljós skapa óþarfa hættu.
Látið mæla Ijósmagnið um leið og
Ijósin eru stillt.
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Sirm 21240.