Morgunblaðið - 20.10.1973, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.10.1973, Blaðsíða 28
Ed McBain: q heljorþföm 17 Svo það er bezt að koma þessu frá. Það er ekki hægt að deyja svona í október. „Svo hann greip i brjóstið á þér, ha?“ sagði Willis. „Hvort þeirra? Hægra eða vinstra?" „Þetta er ekki sniðugt,“ sagði Angelica. „Þegar það káfar á manni fyrir framan alla, þá er það ekkert sniðugt." „Svo að þú skarst hann?“ „Sí.“ „Af þvl að hann greip í brjóstin." „Sf.“ „Hvað heldur þú, Pete?“ „Stoltið fer ekki í manngreinar- álit,“ svaraði Byrnes. „Ég trúi henni." „Eg held hún Ijúgi þessu eins og hún er löng til,“ sagði Willis. „Við skulum spyrjast svolitið fyrir, og ætli það komi ekki í ljós, að hún hefur haldið við þennan Kassim allt þetta ár. Liklega hefur hún séð hann gjóa augun- um á einhverja aðra stelpu og gripið þá til rakvélarblaðsins. Var það ekki eitthvað þessu líkt, ljúfan?" „Nei. Ég þekkja ekki Kassim. ’Ann bara kemur til mín með frekju. Minn líkami er minn lfkami og ég geri við ’ann eins og mér sýnist. Og ég ekki þola drullukrumlur á ’onum.” „Húrra!” sagði Willis. „Þeir munu áreiðanlega reisa þér styttu í garðinum.” Hann sneri sér að Byrnes. „Hvað eigum við að gera f þessu, Pete? Arás að yfirlögðu ráði?“ „Hvernig líður þessum Kassim núna?” „Hann var strax fluttur í sjúkrahús. Hver veit? Það fossaði úr honum blóðið yfir alla gang- stéttina. Veiztu, hvað fór verst í mig Pete? Það hafði hópur af smákrökkum safnazt þarna saman í kringum hann. Þau vissu ekki, hvort þau áttu að gráta eða hlæja eða bara öskra. Þau voru hálftrillt, þú veizt, hvað ég á við. Guð minn góður, hugsaðu þér það að alast upp við þetta alla daga, allt sitt líf. Geturðu fmyndað þér það?“ „Vertu f sambandi við spftal- ann, Hal,“ sagði Byrnes. „Við skulum láta úrskurðinn bíða aðeins. Við getum ekkert átt við þetta meðan....“ Hann benti með höfðinu í átt til Virginiu Dodge. „Jæja, þá það, Angelica. Spenntu greipamar. Kannski deyr Kassim ekki, “ sagði Willis. „Ég vona að svínið rotni í gröfinni,” svaraði Angelica. „Góð stúlka," sagði Hal Willis og klappaði henni á axlirnar. Meyer togaði skýrsluna úr rit- vélinni. Hann losaði kalkinapp- frinn frá bláu pappírsblöðunum þremur og las síðan hið efsta þeirra yfir. RANNSÖKNARLÖG- REGLUMENN 87unda UMDÆM- IS ERU FANGAR KONU, SEM ER VOPNUÐ BYSSU OG FLÖSKU AF NlTRÓGLYSSER- INI. EF ÞÉR SKYLDUÐ FINNA ÞESSA ORÐSENDINGU, HAFIÐ ÞÁ STRAX SAMBAND VIÐ AÐALSTÖÐVARNAR. SlMINN ER 6-0800. FLÝTIÐ YÐUR. - MEYER RANNSOKNARLÖG- REGLUMAÐUR. Hann las þetta af gaumgæfni, því að hann var þolinmóður maður og hann vildi hafa þetta villulaust. Hann átti ekki von á að fá annað tækifæri til að skrifa orðsendinguna upp. Glugginn næst borði hans var opinn. Ryðgað vírnetið utan á glugganum — sem átti að verja rúðurnar fyrir grjótkasti ill- skeyttra ibú 87unda umdæmis — var ekki veruleg hindrun. Með snörum handbrögðum, hornaugað á Virginiu Dodge, rúllaði hann fyrsta blaðinu upp í sívalning; flýtti sér síðan að smokra sívalningnum í gegnum tfgullaga möskva á vírnetinu og þrýsti hon- um út í bláinn. Hann skimaði yfir salinn. Virginia Dodge fylgdist ekki með honum. Hann rúllaðu upp næsta blaði, og allt fór á sömu leið. Hann var einmitt að skutla þrið- ja og síðasta blaðinu gegnum möskvaopið, þegar hann heyrði Virginiu Dodge hrópa: „Stopp eða ég skýt!” Sjöundi kafli. Meyer þeyttist frá opnum glugganum. Hann bjóst við að finna kúluna smjúga í gegnum sig, en sá sér til undrunar, að Virginia Dodge horfði ekki til hans, leit ekki einu sinni við honum. Hún stóð þarna hálfbogin með byssuna á lofti, hún hafði farið frá borðinu og nítró-glysserín flöskunni og stóð nú frammi við hliðið á afgreiðslu- borðinu. Hinum megin stóð Alf Miscolo. Hann stóð þarna á báðum áttum með liðað svart hárið í brúsk yfir enninu, blá axlaböndin þétt- strengd á signum öxlum og skyrtuermamar brettar upp yfir olnboga. Forundran skein úr and- liti hans. Hann hafði komið út úr skýrsluskrifstofu sinni, þar sem hann hafði setið með sveittan skallann allan eftirmiðdaginn yfir skrám og skýrslum. Hann hafði gengið inn í salinn í gegnum vinduhurðina og hrópað um leið, „Vill einhver kaffigutl," en séð þá konu spretta upp frá einu borðinu meðbyssu í hendi. Hann hafði snúizt á hæli og ætlað að forða sér, þegar konan æpti: „Stanzaðu eða ég skýt,“ og þá hafði hann hætt við flóttann og snúið sér hægt að henni aftur. En nú velti hann þvf fyrir sér, hvort hann hefði farið rétt að. Miscoli var enginn hugleysingi. Hann var þjálfaður lögreglumaður, sem einhverra hluta vegna hafði dag- að uppi sem skrifstofublók, en hann hafði fengið sina þjálfun i meðferð vopna á æfinganám- skeiðunum, og nú óskaði hann þess heitt, að hafa byssuna í hend- inni, að hún lægi ekki rykfallin í einni skjalaskápsskúffunni í skrifstofu hans. Konan þarna bak við hliðið — það skein einhver vitfirringsleg mannvonzka úr andliti hennar. Miscoli hafði séð þennan svip áður, og þess vegna taldi hann viturlegast að stað- næmast, þegar hún æpti til hans, og samt var fjöldi annarra manna þarna í herberginu, og guð einn vissi, hvað hún hefði verið lengi þarna i salnum, kannski ætlaði hún sér að skjóta þá alla í klessu. Hann stóð tvístígandi ofurlítið lengur. Hann átti konu og uppkominn son, sem var í flughernum. Hann kærði sig ekki um, að kona sfn yrði lögguekkja, því að þá sá hann hana fyrir sér sem ræstingakonu í hverfinu, og það gat hann ekki hugsað sér - en það var var eitt- hvað brjálæðiskennt í svip þessarar konu; ef hún nú skyti þá alla saman, ef hún gengi ber- serksgang? Svo hann snarsneri við og þeytt- ist aftur af stað. Virginia Dodge miðaði vandlega og hleypti af. Hún skaut aðeins einu sinni. Kúlan lenti í baki Miscolo, eilítið til vinstri við hryggjarliðinn. Hún sneri honum f heilan hring, en skellti honum siðan upp að dyrum karlasalernisins. Hann kraflaði í dyrnar ofurlitla stund, en seig siðan hægt niður á gólfið. Nítró-flaskan á borðinu sprakk ekki. Engar morðgátur urðu til bak við læstar dyr. Steve Carella var fullkunnugt um þetta bæði af lestri sakarnála- sagna og af reynslu sinni sem alvöru Iögga. Og þarna var hann engu að síður að rannsaka sjálfsmorð, sem framið hafði verið í glugga- lausu herbergi og - til að gera málið enn flóknara — svo virtist sem hinn látni hefði læst hurð- inni innan frá áður en hann hengdi sig. Það hafði þurft þrjá fullfríska menn til að sprengja í þýóingu Björns Vignis. upp lásinn áður en þeir komust inn í herbergið. Þannig hljóðaði að minnsta kosti vitnisburður þeirra í gær, og þetta endurtóku þeir í dag. velvakandi IVelvakandi svarar í slma 10- 100 kl. 10.30—11.30, frá mánudegi til föstudags. ^ Sannleikstorrek Hannes Fr. Guðmundsson á Hvammstanga skrifar: „Fátt er til meiri skammar f lífi þjóðar minnar en magnað slúður og rógburður dagblaðanna. Nú eru tímar baráttu og mikilla erfiðleika í lffsbaráttu Is- lendinga, og þörf á samstöðu og heilindum meðal ráðamanna og fjölmiðla. Þetta er mikil nauðsyn, ef ekki algjör, ef sigur á að vinn- ast i baráttumálum, og mun öllum ljóst, hvað við er átt. Þjark, þras og rógburður hinna einstöku blaða stjórnmálaflokk- anna um embættismenn og mála- flokka er þjóðarskömm. Þessi skrif eru einatt svo bundin hags- munum einstakra stjórnmála- hópa, að ekki er of djúpt tekið í árinni, þótt sagt sé, að hvert blað framreiði sfna hagsmunalygi, flokki sfnum til framdráttar. Þetta veldur því, að lesendum veitist örðugt, ef ekki ómögulegt að skapa sér rétta og sanna mynd af viðkomandi frétt hverju sinni. Má þar nefna sem dæmi skrif blaðanna um orsök þess, að Bret- ar kölluðu herskip sín út fyrir 50 mílurnar. Hvert blað hafði sína hagsmunaorsök. Hefi ég þessa rullu ekki lengri að sinni, en leyfi mér að minna blaðamenn og ritstjóra þeirra á, að til eru í íslenzku orð eins og hlutlaus fréttamennska, sann- leikur, sómi og sjálfsvirðing. Kær kveðja að norðan, Hannes Fr. Guðmundsson kennari, Hvammstanga." Hingað til hafa íslenzkir frétta- menn ekki litið á það sem hlut- verk sitt að matreiða skoðanir handa almenningi, heldur það, að flytja sem ýtarlegastar frásagnir af atburðum, þannig að almenn- ingur hafi aðstöðu til að draga sjálfur sfnar ályktanir af því, sem fram kemur. I stjórnmálaskrifum blaðanna er lagt pólitískt mat á þau mál, sem um er fjallað hverju sinni. Stjórnmálaskrif og fréttaflutn- ingur eru tveir aðskildir hlutir, sem má alls ekki rugla saman, enda þótt slík málsmeðferð sé allt að þvf daglegur viðburður í Þjóð- viljanum. 0 Tóbaksneyzla f sjónvarpssal Jóhanna Pétursdóttir, Laug- arnesvegi 66, skrifar: „Sæll, Velvakandi góður. Nú fyrir skömmu las ég í þætt- inum þínum pistil eftir Jón Magn ússon, og sfðar frétti ég, að hann væri hæstaréttarlögmaður. Hann segir æði margt í þessum pistli, sem ég hirði ekki um að nefna, þvf að mér eru málin ekki nægi- lega kunn til þess. En það er ein fullyrðing lögmannsins, sem mig langar til að fá skýringu á. Hann segir orðrétt: „Menn muna vel, hvernig hann, eftir að hafa stillt sér næst sjónvarpsvél- inni, púaði án afláts pípu sfna, þátt eftir þátt, og blés tóbaks- reyknum beint inn í stofur okkar sjónvarpsáhorfenda, jafnt til okkar, sem reykjum ekki og hinna.” Nú langar mig, Velvakandi góður, að biðja þig um að segja mér, hvort þetta sé tæknileg stað- reynd, að við fáum reykinn framan í okkur f stofunum okkar heima, ef einhver reykir f sjón- varpssal, eða hvort þetta er bara árás á pólitfskan andstæðing. 0 Ósanngjöm árás á Njörð P. Njarðvík Á fyrstu árum sjónvarpsins reyktu margir í ýmsum þáttum þess, menn úr öllum flokkum, og lögfræðingar ekki síður en aðrir. Mér, persónulega, fannst það ljótt, en ég og mitt fólk höfðum aldrei óþægindi af reykjarsvælu inni hjá okkur vegna þess. Ég verð þvf miður að viður- kenna, að ég skil ekki fullyrðingu lögmannsins, en ég er nú líka svo fáfróð í þessum efnum, eins og sjá má af þvf, að ég hef alltaf haldið, að kurteisi, tillitssemi og prúð- mennska kæmu með menntun. Ennfremur, að menn, sem eru í virðingarstöðum mættu allra sízt missa stjórn á skapi sínu, og láta til dæmis reiðina blinda skynsem- ina vegna einhvers eins manns af mörgum, sem reykja i sjónvarps- sal Svo hef ég líka alltaf haldið, að það valdi aldrei einn, þegar tveir deila eða fleiri deila. Um deilur útvarpsráðs og fréttamanna, sem lögmaðurinn hefur svo stór og ljót orð um, þá leyfi ég mér ekki að dæma. Okkur hættir víst alltaf við að sjá betur flfsina f auga annarra en bjálkann í okkareigin auga. Með þökk fyrir væntanlegt svar. Jóhanna Pétursdóttir.” Velvakandi getur ekki fundið lfk- legri skýringu á þessu dularfulla fyrirbæri en þá, að menn séu mis- jafnlega næmir fyrir fjarhrifum, þannig til dæmis nemi Jón Magnússon heima f stofii sinni tóbaksreyk úr vitum Njarðar P. Njarðvíkur, sem Jóhanna Péturs- dóttir verður ekki vör við heima hjá sér. Flöamarkaffur - Flóamarkaffur Flóamarkaður verður haldin að Hallveigarstöðum á morg- un sunnudag. Geysilegt úrval góðra muna. Til dæmis: Sjónvarp. Kjólar. Skólaritvél. Kápur. Svefnbekkur. Bækur. Herraföt. Peysur. Skyrtur. Matar og kaffistell. Pels. Leikföng. Dúkar. Tízkuföt. Brauðrist. Hárkolla. Skór. Silfurgafflar. Snyrtivörur. Vezki. Skíði og gamlir árgangar af Dýraverndaranum og margt margt fleira forvitnilegt og nýtilegt. Komið á flóamarkað á Hallveigarstöðum á morgun. Opnað kl.2 Sambanda Dýraverndurnarfélaga íslands. 1 'JARNA RBÚi Ð ( ;ój % * L KVÖLD FRÁ KL.9-2 Plötusnúðar Graham og Þorlákur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.