Morgunblaðið - 20.11.1973, Side 2

Morgunblaðið - 20.11.1973, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1973 Kristinn „rann- sóknardómari,,! KRISTINN Finnbogason fram- kvæmdastjóri Tímans hefur verið skipaður eins konar „rannsóknar- dórnari" í kærumáli því, sem önn- ur stjórn FUF í Reykjavík hefur höfðað á hendur hinni! Eins og menn muna urðu mikil átök á aðalfundi FUF fyrir nokkru og lauk með því, að hluti fundar- manna hélt til annars fundarstað- ar og voru tvær stjórnir kjörnar fyrir félagiö. Stjórn sú, sem Bald- ur Kristjánsson er formaður fyrir kærði ýmiss konar meint lögbrot hins aðilans til Ólafs Jóhannessonar. Á fundi í fram- kvæmdastjórn Framsóknar- flokksins fyrir skömmu lagði Olafur Jóhannesson til, að Krist- inn Finnbogason yrði skipaður „rannsóknardómari" í málinu, og var það samþykkt. En jafnframt því, sem Kristinn Finnbogason mun veita forstöðu eins konar „rannsóknarrétti". í máli þessu, hefur stjórn SUF ákveðið að skipa sérstaka rannsóknarnefnd af sinni hálfu og eiga sæti f henni þeir utanbæjarmenn, sem sitja í stjórn SUF. Möðruvallahreyfingin í bann! Þá var fyrir nokkru haldinn fundur I blaðstjórn Tímans og þar m.a. felld tillaga um, að birt yrði í Tfmanum fréttatilkynning frá hinni svonefndu Möðruvalia- hreyfingu og stefnuávarp hennar, en í stjórn hennar eiga sæti 8 miðstjórnarmenn í Framsóknar- flokknum. Jafnframt var ákveðið að banna í Tfmanum öll skrif um Möðruvallahreyfinguna. A fund- inum kom fram gagnrýni á for- ystugrein Tómasar Karissonar rit stjóra, þar sem Möðruvaliahreyí- ingin var talin hafa dreift rógi um forystumenn Framsóknarflokks- ins. HJaut sú gagnrýni engan hijómgrunn á fundinum. Skorið á land- festar — 8 menn í f angageymslur Allsherjarsamtök framhaldsskólanema TOGARINN St. Leger frá Hull kom tii Isafjarðar I fyrrakvöld mcð bilaðan ketil. Er St. Leger fyrsti brezki togarinn, sem kemur til fsienzkrar hafnar eft- ir að samkomuiagið um land- helgismálið var staðfest. Ekki er hægt að segja, að togara- menn hafi fengið góðar viðtök- ur á tsafirði, þvf skorið var tvisvar á landfestar togarans, auk þess, sem snókúlum var kastað um borð í skipið. Lög- reglan á tsafirði þurfti að setja 8 menn I fangageymslur eftir að togarinn kom, en þeir höfðu haft sig mjög f frammi við að losa skipið og skera á landfest- ar þess. Ólafur Þórðarson fréttaritari Morgunblaðsins á ísafirði sagði, að það hefði verið um kl. 22 á sunnudagskvöldið, sem St. Leger hefði komið til hafnar. Togarinn hefði lagzt utan á skip Eimskipafélagsins, Lagarfoss. í fyrstu hefði enginn skipt sér af togaranum, en á éllefta tfman- um safnaðist mikill fjöldi ungl- inga saman um borð í Lagar- fossi og köstuðu þeir snjókúl- um um borð f togarann. Kall- að var á lögregluna og ungling- arnir reknir í land. Voru þeir þá búnir að losa eina af land- festum togarans. Siðan gerðist ekkert fyrr en um kl. 01, þá ruddust 15-20 ung- ir menn um borð I Lagarfoss, mest menn af bátum á ísafirði. Skáru þeir strax á landfestarn- ar og rak togarann aðeins frá. Logn var og því gekk vel að koma togaranum upp aðLagar- fossi aftur. Togarinn var, þegar hér var komið, orðinn vélvana þvf verið var að blása gufunni út af katlinum. Lögreglan tók 5 mannanna, sem skorið höfðu á landfestarnar, í sína vörzlu og gistu þeir í fangageymslu lög- reglunnar í fyrrinótt. Ólafur sagði, að skipstjórinn # Pilturinn, sem er með hnffinn í hendinni, er nýbúinn að skera á eina landfesti St. Leger. nema. Þingið gerði margar og marg- víslegar ályktanir, og fara hér á eftir nokkur dæmi. M.a. er bent á, að núverandi menntakerfi sé eingöngu miðað við þarfir borg- arastéttarinnar, ítrekaðar eru fyrri kröfur um mætingarfrelsi til handa nemendum menntaskól- anna, og bent á þörf þess, að við- urkenndur verði „réttur emenda til að stjórna nárni sínu sjálfir“. Bent er á, að nemendur mennta- skólanna, sem og aðrir kúgaðir, hljóti að miða kröfur sinar við höfuðmarkmiðið, sem s'e stétt- laust þjóðfélag, og eigi mennta- ENN hefur ekki verið boðað til nýs sáttarfundar f kjaradeilu þjóna og veitingamanna, en sfð- asti fundur var fyrir viku sfðan. Var þvf nú um helgina eins og þá fyrri, lítið um að vera á veitinga- húsum borgarinnar, nema við veitingahúsið Óðal við Austur- völl, þar sem þjónar fjölmenntu til verkfallsvörzlu og reyndu að hindra eigendur Óðals, bræðurna Jón og Hauk Hjaltasyni, f þvf að hafa opið veitingahúsið og bera j sjálfir gestum mat og drykk. Ilélt hópur þjóna sig fyrir fram- an húsið og var gestum bent á, að veitingamennirnir væru að fremja verkfallsbrot. Einnig voru verkfallsverðir inni í húsinu og fylgdust með því, sem þar fór fram. Á sunnudagskvöldið réðu veitingamennirnir nokkra dyra- verði til starfa og hindruðu þeir þjóna í að komast inn í húsið. Einn læddist þó inn, en var grip- inn í stiga og haldið þar, unz lögreglan kom á staðinn. Taldi hann sig hafa orðið fyrir áverkum vegna ómjúkra handtaka og fór á Frá iandsþingi LlIW, sem haldið var f Reykjavík um helgina. slysadeild til að láta kanna meiðsl sín. í gær voru haldnir tveir fundir þessara deiluaðíla, þ.e. veitinga mannanna á Óðali og lögfræð- ings þeirra annars vegar og full- trúa þjónanna og lögfræðings þeirra hins vegar. Var fyrri fund- urinn fyrir hádegi og var þar gert samkomulag um, að þrír þjönar fylgdust með framreiðslunni í há- deginu, en í staðinn yrði Óðali lokað kl. .13:30 í stað 14:30, eins og Framhald á bls. 31 á St. Leger héti Arthur Ball, og hefði hann sagt, að á meðan gert væri við ketil skipsins yrði áhöfnin að fara í land, því allar íbúðir skipsins væru kaldar eft- ir að blásið var út af katlinum. Sfðasti brezki togarinn, sem kom til Isafjarðar áður en land- helgin varfærð út í 50 sjómílur, var Lorenco H-230, en hann kom til ísafjarðar 24. ágúst 1972. RÉÐUST A LÖGREGLUNA Jóhann Kárason lögreglu- þjónn á ísafirði sagði, að það hefði verið um kl. 22.15 á sunnudagskvöldið, sem beiðni um aðstoð kom frá skipstjóra st. Leger, f gegnum loftskeyta- Framhald á bls. 31 # Einn piltanna sést hér ráðast um borð f Lagarfoss. Ljósm: Ljósmyndastofa Isafj. Jón Sigurðsson fyrr- um skipstjóri, látinn LATINN er f Reykjavík Jón Sig- urðsson, fyrrum skipstjóri hjá Eimskipafélagi Islands og skip- stjóri á Gullfossi um 7 ára skeið. Hann var 81 árs að aldri. Jón Sigurðsson fæddist árið 1892 á Fagurhóli í Vatnsleysu- strandarhreppi og voru foreldrar hans Sigurður Þorláksson for- maður og kona hans, Þuríður Þor- bergsdóttir. Jón var sjómaður frá 12 ára aldri. Iíann lauk farmanna- prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1916, en stundaði sjó- mennsku á opnum bátum, vélbát- um og togurum til 1918. Þá réðst hpnn sem háseti, bátsmaður og stýrimaður til Eimskipafélags íslands. Hann var stýrimaður á skipum félagsins frá 1927 — 51, þar af 15 ár á Brúarfossi. Árið 1951 varð hann skipstjóri á Gull- fossi og gegndi þeim starfa næstu sjö árin. Jón var sæmdur fjölda heiðursmerkja og varð heiðurs- Jélagi Stýrimannafélags íslands. Eftirlifandi kona Jóns Sigurös- sonar er Dýrfinna Tómasdóttir. verði pólitískt nfl UM HELGINA var haldið í | Menntaskólanum við Hamrahlíð landsþing Landssambands ís- lenzkra menntaskólanema og sóttu þingið 40 fulltrúar frá öll- um menntaskólum á landinu. Meðal helztu mála þingsins var undirbúningur að stofnun einnar hreyfingar allra framhaldsskóla- nema á landinu, en viðræður hafa farið fram að undanförnu milli Landssambands islenzkra menntaskólanema og nemenda í öðrum framhaldsskólum um stofnun slíkrar hreyfingar. í fréttatilkynningu frá samtökum menntaskólanema segir, að þess- ar viðræður hafi leitt í Ijós, að mikill áhugi sé nú á stofnun hreyfingar þeirrar, sem hér um ræðir, og yrði meginmarkmið hennar líklega að vinna að hags- munum framhaldsskólanema og vera pólitískt afl í íslenzku þjóð- félagi. í fréttum af þinginu kemur fram, að landsþingið samþykkir, að nemendafélög skuli sjá um að innheimta 200 kr. gjald af hverj- um nemanda í viðkomandi félagi, vegna halla, sem orðið hefur af bóksölustarfsemi menntaskóla- skólanemarpvi að vinna að sósfal- iskri þjóðfélagsbyltingu. Átalinn er undirlægjuháttur ríkisstjórnarinnar og Alþingis f samningunum við Breta og varað við endurtekningu á honum, en síðar er bent á, að „útfærsla land helginnar hafi f raun og veru ekki verið annað en útfærsla borgara- stéttarinnar á efnahagslögsögu sinni, og hafi útfærslan miðað að því að auka gróða innlendra út- gerðarfyrirtækja með því að reka aðrar þjóðir af miðunum til að geta setið einir að kökunni". LÍM lýsir „fullri samstöðu við baráttu dreifbýlisins og krefst Framhald á bls. 31 Deilur milli eigenda Óðals og þióna í verkfallsvörzlu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.