Morgunblaðið - 20.11.1973, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1973
Kristinn „rann-
sóknardómari,,!
KRISTINN Finnbogason fram-
kvæmdastjóri Tímans hefur verið
skipaður eins konar „rannsóknar-
dórnari" í kærumáli því, sem önn-
ur stjórn FUF í Reykjavík hefur
höfðað á hendur hinni! Eins og
menn muna urðu mikil átök á
aðalfundi FUF fyrir nokkru og
lauk með því, að hluti fundar-
manna hélt til annars fundarstað-
ar og voru tvær stjórnir kjörnar
fyrir félagiö. Stjórn sú, sem Bald-
ur Kristjánsson er formaður
fyrir kærði ýmiss konar meint
lögbrot hins aðilans til Ólafs
Jóhannessonar. Á fundi í fram-
kvæmdastjórn Framsóknar-
flokksins fyrir skömmu lagði
Olafur Jóhannesson til, að Krist-
inn Finnbogason yrði skipaður
„rannsóknardómari" í málinu, og
var það samþykkt. En jafnframt
því, sem Kristinn Finnbogason
mun veita forstöðu eins konar
„rannsóknarrétti". í máli þessu,
hefur stjórn SUF ákveðið að
skipa sérstaka rannsóknarnefnd
af sinni hálfu og eiga sæti f henni
þeir utanbæjarmenn, sem sitja í
stjórn SUF.
Möðruvallahreyfingin í
bann!
Þá var fyrir nokkru haldinn
fundur I blaðstjórn Tímans og þar
m.a. felld tillaga um, að birt yrði í
Tfmanum fréttatilkynning frá
hinni svonefndu Möðruvalia-
hreyfingu og stefnuávarp hennar,
en í stjórn hennar eiga sæti 8
miðstjórnarmenn í Framsóknar-
flokknum. Jafnframt var ákveðið
að banna í Tfmanum öll skrif um
Möðruvallahreyfinguna. A fund-
inum kom fram gagnrýni á for-
ystugrein Tómasar Karissonar rit
stjóra, þar sem Möðruvaliahreyí-
ingin var talin hafa dreift rógi um
forystumenn Framsóknarflokks-
ins. HJaut sú gagnrýni engan
hijómgrunn á fundinum.
Skorið á land-
festar — 8 menn
í f angageymslur
Allsherjarsamtök
framhaldsskólanema
TOGARINN St. Leger frá Hull
kom tii Isafjarðar I fyrrakvöld
mcð bilaðan ketil. Er St. Leger
fyrsti brezki togarinn, sem
kemur til fsienzkrar hafnar eft-
ir að samkomuiagið um land-
helgismálið var staðfest. Ekki
er hægt að segja, að togara-
menn hafi fengið góðar viðtök-
ur á tsafirði, þvf skorið var
tvisvar á landfestar togarans,
auk þess, sem snókúlum var
kastað um borð í skipið. Lög-
reglan á tsafirði þurfti að setja
8 menn I fangageymslur eftir
að togarinn kom, en þeir höfðu
haft sig mjög f frammi við að
losa skipið og skera á landfest-
ar þess.
Ólafur Þórðarson fréttaritari
Morgunblaðsins á ísafirði
sagði, að það hefði verið um kl.
22 á sunnudagskvöldið, sem St.
Leger hefði komið til hafnar.
Togarinn hefði lagzt utan á skip
Eimskipafélagsins, Lagarfoss. í
fyrstu hefði enginn skipt sér af
togaranum, en á éllefta tfman-
um safnaðist mikill fjöldi ungl-
inga saman um borð í Lagar-
fossi og köstuðu þeir snjókúl-
um um borð f togarann. Kall-
að var á lögregluna og ungling-
arnir reknir í land. Voru þeir
þá búnir að losa eina af land-
festum togarans.
Siðan gerðist ekkert fyrr en
um kl. 01, þá ruddust 15-20 ung-
ir menn um borð I Lagarfoss,
mest menn af bátum á ísafirði.
Skáru þeir strax á landfestarn-
ar og rak togarann aðeins frá.
Logn var og því gekk vel að
koma togaranum upp aðLagar-
fossi aftur. Togarinn var, þegar
hér var komið, orðinn vélvana
þvf verið var að blása gufunni
út af katlinum. Lögreglan tók 5
mannanna, sem skorið höfðu á
landfestarnar, í sína vörzlu og
gistu þeir í fangageymslu lög-
reglunnar í fyrrinótt.
Ólafur sagði, að skipstjórinn
# Pilturinn, sem er með hnffinn í hendinni, er
nýbúinn að skera á eina landfesti St. Leger.
nema.
Þingið gerði margar og marg-
víslegar ályktanir, og fara hér á
eftir nokkur dæmi. M.a. er bent á,
að núverandi menntakerfi sé
eingöngu miðað við þarfir borg-
arastéttarinnar, ítrekaðar eru
fyrri kröfur um mætingarfrelsi til
handa nemendum menntaskól-
anna, og bent á þörf þess, að við-
urkenndur verði „réttur emenda
til að stjórna nárni sínu sjálfir“.
Bent er á, að nemendur mennta-
skólanna, sem og aðrir kúgaðir,
hljóti að miða kröfur sinar við
höfuðmarkmiðið, sem s'e stétt-
laust þjóðfélag, og eigi mennta-
ENN hefur ekki verið boðað til
nýs sáttarfundar f kjaradeilu
þjóna og veitingamanna, en sfð-
asti fundur var fyrir viku sfðan.
Var þvf nú um helgina eins og þá
fyrri, lítið um að vera á veitinga-
húsum borgarinnar, nema við
veitingahúsið Óðal við Austur-
völl, þar sem þjónar fjölmenntu
til verkfallsvörzlu og reyndu að
hindra eigendur Óðals, bræðurna
Jón og Hauk Hjaltasyni, f þvf að
hafa opið veitingahúsið og bera j
sjálfir gestum mat og drykk.
Ilélt hópur þjóna sig fyrir fram-
an húsið og var gestum bent á, að
veitingamennirnir væru að
fremja verkfallsbrot. Einnig voru
verkfallsverðir inni í húsinu og
fylgdust með því, sem þar fór
fram. Á sunnudagskvöldið réðu
veitingamennirnir nokkra dyra-
verði til starfa og hindruðu þeir
þjóna í að komast inn í húsið.
Einn læddist þó inn, en var grip-
inn í stiga og haldið þar, unz
lögreglan kom á staðinn. Taldi
hann sig hafa orðið fyrir áverkum
vegna ómjúkra handtaka og fór á
Frá iandsþingi LlIW, sem haldið var f Reykjavík um helgina.
slysadeild til að láta kanna meiðsl
sín.
í gær voru haldnir tveir fundir
þessara deiluaðíla, þ.e. veitinga
mannanna á Óðali og lögfræð-
ings þeirra annars vegar og full-
trúa þjónanna og lögfræðings
þeirra hins vegar. Var fyrri fund-
urinn fyrir hádegi og var þar gert
samkomulag um, að þrír þjönar
fylgdust með framreiðslunni í há-
deginu, en í staðinn yrði Óðali
lokað kl. .13:30 í stað 14:30, eins og
Framhald á bls. 31
á St. Leger héti Arthur Ball, og
hefði hann sagt, að á meðan
gert væri við ketil skipsins yrði
áhöfnin að fara í land, því allar
íbúðir skipsins væru kaldar eft-
ir að blásið var út af katlinum.
Sfðasti brezki togarinn, sem
kom til Isafjarðar áður en land-
helgin varfærð út í 50 sjómílur,
var Lorenco H-230, en hann
kom til ísafjarðar 24. ágúst
1972.
RÉÐUST A LÖGREGLUNA
Jóhann Kárason lögreglu-
þjónn á ísafirði sagði, að það
hefði verið um kl. 22.15 á
sunnudagskvöldið, sem beiðni
um aðstoð kom frá skipstjóra
st. Leger, f gegnum loftskeyta-
Framhald á bls. 31
# Einn piltanna sést hér
ráðast um borð f Lagarfoss.
Ljósm: Ljósmyndastofa Isafj.
Jón Sigurðsson fyrr-
um skipstjóri, látinn
LATINN er f Reykjavík Jón Sig-
urðsson, fyrrum skipstjóri hjá
Eimskipafélagi Islands og skip-
stjóri á Gullfossi um 7 ára skeið.
Hann var 81 árs að aldri.
Jón Sigurðsson fæddist árið
1892 á Fagurhóli í Vatnsleysu-
strandarhreppi og voru foreldrar
hans Sigurður Þorláksson for-
maður og kona hans, Þuríður Þor-
bergsdóttir. Jón var sjómaður frá
12 ára aldri. Iíann lauk farmanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1916, en stundaði sjó-
mennsku á opnum bátum, vélbát-
um og togurum til 1918. Þá réðst
hpnn sem háseti, bátsmaður og
stýrimaður til Eimskipafélags
íslands. Hann var stýrimaður á
skipum félagsins frá 1927 — 51,
þar af 15 ár á Brúarfossi. Árið
1951 varð hann skipstjóri á Gull-
fossi og gegndi þeim starfa næstu
sjö árin. Jón var sæmdur fjölda
heiðursmerkja og varð heiðurs-
Jélagi Stýrimannafélags íslands.
Eftirlifandi kona Jóns Sigurös-
sonar er Dýrfinna Tómasdóttir.
verði pólitískt nfl
UM HELGINA var haldið í |
Menntaskólanum við Hamrahlíð
landsþing Landssambands ís-
lenzkra menntaskólanema og
sóttu þingið 40 fulltrúar frá öll-
um menntaskólum á landinu.
Meðal helztu mála þingsins var
undirbúningur að stofnun einnar
hreyfingar allra framhaldsskóla-
nema á landinu, en viðræður hafa
farið fram að undanförnu milli
Landssambands islenzkra
menntaskólanema og nemenda í
öðrum framhaldsskólum um
stofnun slíkrar hreyfingar. í
fréttatilkynningu frá samtökum
menntaskólanema segir, að þess-
ar viðræður hafi leitt í Ijós, að
mikill áhugi sé nú á stofnun
hreyfingar þeirrar, sem hér um
ræðir, og yrði meginmarkmið
hennar líklega að vinna að hags-
munum framhaldsskólanema og
vera pólitískt afl í íslenzku þjóð-
félagi.
í fréttum af þinginu kemur
fram, að landsþingið samþykkir,
að nemendafélög skuli sjá um að
innheimta 200 kr. gjald af hverj-
um nemanda í viðkomandi félagi,
vegna halla, sem orðið hefur af
bóksölustarfsemi menntaskóla-
skólanemarpvi að vinna að sósfal-
iskri þjóðfélagsbyltingu.
Átalinn er undirlægjuháttur
ríkisstjórnarinnar og Alþingis f
samningunum við Breta og varað
við endurtekningu á honum, en
síðar er bent á, að „útfærsla land
helginnar hafi f raun og veru ekki
verið annað en útfærsla borgara-
stéttarinnar á efnahagslögsögu
sinni, og hafi útfærslan miðað að
því að auka gróða innlendra út-
gerðarfyrirtækja með því að reka
aðrar þjóðir af miðunum til að
geta setið einir að kökunni".
LÍM lýsir „fullri samstöðu við
baráttu dreifbýlisins og krefst
Framhald á bls. 31
Deilur milli eigenda Óðals
og þióna í verkfallsvörzlu