Morgunblaðið - 20.11.1973, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1973
3
Fjögur rit komin út hjá Hinu
íslenzka bókmenntafélagi
Sigurður Lfndal, forseti Bók-
menntafélagsins
lag málvísinda til rannsókna á
mannshuganum í fortíð, nútið og
framtíð. Hún geymir skarplega
gagnrýni á atferliskenningar um
mannlegt sálarlíf, og hún er
samin í þeirri trú, og styður hana
rökum, að málfræði geti öðrum
fræðum fremur stuðlað að lausn á
sumum torræðustu gátum sál-
fræðinnar.
Hitt ritið — Siðustu dagar
Sókratesar birtist hér i íslenzkum
búningi eftir Sigurð Nordal, sem
einnig ritar inngang ásamt Þor-
steini Gylfasyni. I bókinni birtast
þrjú af áhrifamestu ritum eins
áhrifamesta hugsuðar allra tíma,
þar sem hann lýsir ævilokum
kennara síns. Ritin eru Málsvörn
Sókratesar, ræða hans fyrir dóm-
stólnum sem dæmdi hann til
dauða; Krítón, rökræða hans I
fangelsinu um réttmæti þess að
brjóta ranglát lög; og loks Faídón,
rökræða hans og lærisveina hans
um lff og dauðaog lffið eftir dauð-
ann, daginn sem hann skyldi
tekinn af lífi, en þar leggur
Platón Sókratesi í munn margar
helztu kenningar heimspeki
sinnar.
Eru vélar spænsku
skuttogaranna hrjáðar
af spænsku veikinni?
FJÖGUR rit eru nú komin út hjá
Hinu (slenzka bókmenntafélagi,
þar af eru tvö rit f flokki lær-
dómsritanna. Fleiri rit eru
væntanleg í desembermánuði. Af
ritum félagsins, sem nú eru
komin út skal fyrst telja Skírni,
Tímarit Hins fslenzka bók-
menntafélags, 147. árgangur í rit-
stjórn Ölafs Jónssonar.
Meðal efnis i árgangi 1973 má
nefna ritgerð eftir Halldór
Laxness, sem hann nefnir
Forneskjutaut, en þar er m.a.
fjallað um fornan átrúnað. Þá eru
birt Þrettán kvæði eftir Stein
Steinar, sem ekki hafa birzt áður.
Þorsteinn Gylfason ritar grein,
sem nefnist Að hugsa á íslenzku,
og Þór Whitehead greinina Stór-
veldin og lýðveldið, en þar er lýst
aðdraganda lýðveldisstofnunar-
innar 1944 og afstöðu stór-
veldanna til hennar. Greinar um
skáldskap, fornan og nýjan eru
eftir Hannes Pétursson, Fríðu Á.
Sigurðardóttur, Andrés
Björnsson, Helgu Kress, Svein
Bergsveinsson, Kristján Ámason,
Ólaf Halldórsson, Peter Ilallberg
og Bjarna Guðnason. Þorbjörn
Broddason ritar greinina Hverjir
sækja leikhús og Öystein Noreng
um boðskap i bókmenntum. Loks
koma ritdómar.
Þá er komin út Bókmenntaskrá
Skírnis 5, sem Einar Sigurðsson
tók saman. Þetta er í fimmta sinn,
sem Bókmenntaskrá Skírnis
birtist, en í henni eru rakin bók-
ræðileg skrif, sem birzt hafa á
árinu 1972, um íslenzkar bók-
menntir siðari alda. Einkum er
hún ætluð sem handbók fyrir
íslenzkukennara, bókmennta-
gagnrýnendur og alla aðra áhuga-
menn um islenzkar bókmenntir.
Nú er að nefna lærdómsritin.
Þau eru Mál og mannshugur eftir
Noam Chomsky og Sfðustu dagar
Sókratesar eftir Platón. Halldór
Halldórsson hefur þýtt fyrr-
nefnda ritið og ritar hann einnig
inngang. Höfundur þessarar
bókar er nafnkunnasti mál-
fræðingur samtímans, og hafa
hugmyndir hans valdið tíma-
mótum í sögu málvisinda og
annarra mannlegra fræða á
síðasta áratug. Bókin birtist fyrst
árið 1968, og fjallar hún um fram-
SKUTTOGARl Haf nf irðinga,
Júní, er nú nýkominn úr söluferð
frá Þýzkalandi, þar sem skipið
seldi fyrir rúmar 10 millj. kr.
Júnf var tekinn 1 slipp f Þýzka-
landi, því álitið var, að skrúfur
skipsins væru ekki rétt stilltar,
en svo reyndist ekki vera. Á heim-
leiðinni komu upp bilanir á gang-
ráð vélanna, en sérfræðingur frá
MAN verksmiðjunum, sem er um
borð í skipinu gat að mestu gert
við bilanirnar.
Halldór Halldórsson, skipstjóri
á Júní, sagði f samtali við Morgun-
bíaðið á laugardag að nú ætti að
vera búið að gera fullkomlega við
vélar skipsins. Það, sem erfiðleik-
Hvert stefnir
í varnarmálum?
GEIR Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, flytur ræðu
um varnar- og utanríkismál á al-
mennum félagsfundi Heimdallar
f kvöld kl. 20.30 á Hótel Esju. Á
fundinum verður m.a. rætt um
stefnu fslands f varnar- og utan-
ríkismálum. Þá verður fjallað um
þátttöku Islands f varnarbanda-
lagi vestrænna þjóða. Að inn-
gangserindi loknu mun formaður
Sjálfstæðisflokksins svara fyrir-
spurnum fundargesta.
Pravda fagnar
SOVÉTMENN fagna mjög yfir-
lýsingum íslenzkra ráðamanna
um, að varnarliðið eigi að
hverfa á braut. Fyrir skömmu
fjallaði Pravda, málgagrr
sovézka kommúnistaflokksins
um þessar viðræður og sagði, að
islenzka þjdðin „héldi áfram
viðleitni sinni til þess að
tryggja að herstöð Atlantshafs-
bandalagsins í Keflavík yrði
Iögð niður“. Pravda sagði, að
„jákvæð þróun á alþjóðavett-
vangi hefði hvatt friðelskandi
og framfarasinnuð öfl í vestr-
inu til þess að efla viðleitni sína
til að tryggja að í kjölfar póli-
tískrar þfðu kæmi hernaðarleg
þíða“. í þessu sambandi sagði
Pravda, að um væri að ræða
„almennan þrýsting fólks i
Bretlandi, Danmörku, Noregi,
Japan, og mörgum öðrum lönd-
um á það, að erlendar herstöðv-
ar verði lagðar niður í þessum
löndum". Efnislega svipuð frétt
var fyrir nokkru lesin í frétta-
tíma Moskvu-útvarpsins í
fréttaútsendingu á ensku.
um hefur valdið, er, að vélunum
er stjórnað með lofti, og hafa
óhreinindi reynzt vera inn á
stjórnkerfinu. Það má alls ekki
koma fyrir þvf þá láta vélarnar
ekki að stjórn eins og þær eiga að
gerr..
Sagði Halldór, að spænsku skut-
togararnir væru búnir tveimur
1410 hestafla spænskum MAN
vélum, og teldi hann það jafnvel
galla, að vera með tvær vélar um
borð í fiskiskipum. Betra væri að
vera með eina stóra vél. „Þetta
hafa verið leiðinda gallar á þess-
um spænsku vélum. Það mætti
helzt halda, að þær væru með
spænsku veikina," sagði Halldór.
Halldór á eftir að fara eina
veiðiferð sem skipstjdri á Júní, að
henni lokinni hættir hann þar um
borð, þvf hann mun taka við skip-
stjdrn á hinum nýja skuttogara
Einars Sigurðssonar, Hrönn, sem
nú er i smfðum í Póllandi.
Nefndir
starfa
STÖÐUG fundahöld eru i hinum
ýmsu nefndum verkalýðshreyf-
ingarinnar og vinnuveitenda
vegna kjaramálanna. Fyrir helgi
voru framkvæmdanefndir beggja
aðila með fundi og hefur verið
boðaður sameiginlegur fundur
þeirra á miðvikudag. Er siðan
gert ráð fyrir, að allsherjarsamn-
inganefndirnar komi saman á
mánudag í næstu viku. Þá hafa
verið haldnir fundir hinna ýmsu
aðila um sérkröfur, m.a. voru
fundir vinnuveitenda og verka-
lýðsins á Norðurlandi í siðustu
viku, og var gert ráð fyrir að
halda þeim áfram íþessari viku.
Höfðingleg
gjöf Óðins
A aðalfundi málfundafélagsins
Öðins, sem nýlega var haldinn,
var ákveðið að leggja fram 100
þús. kr. til húsbyggingar Sjálf-
stæðisflokksins úr félagssjóði.
Albert Guðmundsson, formaður
byggingarnefndar hins nýja Sjálf-
stæðishúss gat þessa myndarlega
framlags Öðinsmanna á fundi
flokksráðs Sjálfstæðisflokksins
s.l. laugardag og sagði, að þeir
hefðu auk þess lagt gífurlega mik-
ið starf af mörkum í sjálfboða-
vinnu. Öðinsmenn hefðu verið við
byggingarstörf öllum stundum og
svo mjög, að margir væru farnir
að tala um hið nýja Sjálfstæðis-
hús sem Öðinshús.
ÞESS AR myndir eru teknar um borð í skuttogaranum Ljósa-
felli frá Fáskrúðsfirði. Skipstjóri þar er Guðmundur í. Gfsla-
son. — Trollið tekið inn. Bobbingarnar og höfuðlínan sjást
vel. — Skipið var á Papagrunni, þegar Albert Kemp vélstjóri,
fréttaritari Morgunblaðsins á Fáskrúðsfirði, tók myndirnar.
Skuttogari að veiðum
Belgur að mestu kominn inn og verið að setja stroffu til að
hifa pokana.
Opnað fyrir báða pokana, hífað upp i belginn og fiskinum
hvolft niður í fiskmóttöku á neðra þilfari, þar sem öll vinna
fer fram undir þiljum við hita og góðar aðstæður.
Pokinn að mestu kominn inn fyrir með 3 tonnum af fiski.