Morgunblaðið - 20.11.1973, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÖVEMBER 1973
15
Bretar kafna
í verkföllum
London 19. nóvember —AP
VEGAUMFERÐIN á leiSum inn f
Lundúnaboíg þrefaldaðist ( dag
vegna dagsverkfalls 500 lestar-
stjóra, þrátt fyrir yfirvofandi
eldsneytisskort og áskoranir rfkis
stjdrnarinnar um að menn dragi
úr akstri og skili bflinn eftir
heima. Tafir og forföll af völdum
verkfalls lestarstjóranna koma
niður á meir en 150.000 manns,
STORVELDEM
UNDIRBÍA
STEFNDMÓT
í GEIMNUM
Zvezdny Gorodok, Sovétríkjun-
um 19. nóv. — AP
BANDARlSKIR og sovézkir
geimfarar hófu f dag sameigin-
lega þjálfun fyrir áætlaðan geim-
leiðangur árið 1975, þar sem m.a.
er gert ráð fyrir tengingu Appollo
og Soyuz-geimfara og samskipt-
um og samvinnu áhafnanna.
Þjálfunin mun taka tvær vikur og
fer hún fram í sovézku geimferða-
miðstöðinni Zvezdny Gorodok eða
„Stjörnuborg“ austan við
Moskvu. Fengu bandarískir
fréttamenn það fágæta leyfi af
þessu tiiefni, að skoða þessa mik-
ilvægu þjálfunar- og undirbún-
ingsstöð sovézkra geimfara.
I júlí s.l. dvöldust 10 sovézkir
geimfarar og 24 tæknimenn við
þriggja vikna þjálfun í Johnson-
geimferðamiðstöðinni f Texas, og
nú dveljast Bandaríkjamennirnir
sem sagt í Sovétríkjunum til 2.
desember. Sá gamalkunni og
reyndi geimfari Thomas Stafford,
sem er leiðangursstjöri af hálfu
Bandaríkjamannanna í þessum
fyrirhugaða leiðangri, sagði
fréttamönnum, að þeir myndu
verja tíma sínum að mestu í að
kynna sér Soyuz-geimferðakerfið.
Geimfarar beggja þjóðalæra nú
tungumál hvers annars til að geta
átt eðlileg samskipti sin i milli
þegar til ferðarinnar kemur. Árið
1974 verða á ný þjálfunarnám-
skeið i báðum löndunum til að
undirbúa hið mikilvæga stefnu-
möt sovézkra og bandariskra
geimfara.
sem komast þurfa til vinnu
sinnar.
Verkfalli lestarstjóranna er
ætlað að reka á eftir launa-
hækkunum. Þá eru ökumenn
sjúkrabifreiða i verkfalli i
London og öðrum stórborgum, og
sinna þeir nú aðeins neyðartilfell-
um. í dag var hins vegar ráð-
gerður sáttafundur í alvarlegasta
verkfallinu, sem nú hrjáir Breta,
en það er verkfall kolanámu-
manna og rafstöðvarstarfsmanna,
sem neyddi ríkisstjórn Heaths til
að Iýsa yfir neyðarástandi í s.l.
viku. ________
Kissinger heiðraður
New York 19. nóvember - AP
HENRY Kissinger, utanrikisráð-
herra Bandarfkjanna, hefur hlot-
ið heiðursorðu úr gulli frá Al-
ríkissambandi kristinna manna
og Gyðinga fyrir „djarfa og um-
bótasinnaða forystu" til að koma
á friði f heiminum. Louis Kissing-
er, hinn 86 ára gamli faðir ráð-
herrans, veitti orðunni móttöku f
New York í gær fyrir hönd sonar
síns, sem ekki gat verið viðstadd-
ur sökum „anna vegna síðustu
atburða".
Þessar myndir voru teknar, er geimfararnir þrfr, sem nú eru
komnir út í geiminn, voru að ljúka undirbúningi fyrir geimskotið
á föstudag. Efst t.v. William Reid Pogue og t.h. Edward G.
Gibson. Neðar leiðangurstjdrinn, Gerald Paul Carr.
Kavalek
sigraði á
Filipps-
eyjum
Manila, 19. nóvember — AP.
LUBOMIR Kavalek frá Banda-
rfkjunum vann í dag hin þúsund
dollara háu fyrstu verðlaun á al-
þjóðlega skákmótinu f Buang á
Filippseyjum með þvf að sigra
lítt þekktan heimamann f loka-
umferðinni. Hafði Kavalek þar
með 7H vinning. Næstir og jafnir
urðu Ivkov frá Júgóslavíu og
Quinteros frá Argentfnu með 6H,
en Bent Larsen frá Danmörku
varð fjórði með 6 vinninga.
Frönsku vínin
falla
Beaune, Frakklandi 19. nóv-
ember-AP
VERÐ á Búrgundarvínum féll á
árlega sölumarkaðnum hér i gær
um allt að 10%. Metsala varð, en
hún stafaði fremur af meira
magni en háu verði. Af einstökum
vfnum féll hvítvin um 14%, en
rauðvín um 8% að meðaltali.
Nixon á blaðamannafundi:
99
Ég er ekki óheiðarlegur”
Key Biscayne, Flórída, 19.
nóvember, AP.
NIXON Bandarfkjaforseti hóf um
helgina fyrir alvöru baráttu sfna
til að reyna að hreinsa sig af
öllum grun í sambandi við
Watergatemálið. Forsetinn flaug
til Georgiufylkis, þar sem hann
ferðaðist nokkuð um og hélt
stuttar ræður. Mannfjöldi
safnaðist saman til að fagna hon-
um, og honum var yfirleitt mjög
vel tekið.
Áður en hann lagði af stað sótti
hann ráðstefnu fréttastjóra
Associated Press-fréttastofunnar,
sem haldin var i Flórída, og þar
hélt hann blaðamannafund, sem
útvarpað og sjónvarpað var um öll
Bandaríkin. Mjög vel lá á for-
setanum og hann kryddaði sum
svör sfn með spaugsyrðum. Nixon
sagði m.a.: „Mér hafa orðið á mis-
tök, en ég hef aldrei hagnazt á
opinberum störfum mínum. Ég
hef unnið fyrir hverjum eyri af
þeim tekjum, sem ég hef aflað
mér. A öllum minum ferli hef ég
aldrei reynt að hindra að réttlæti
næði fram að ganga.
Almenningur á rétt á því að fá að
vita, hvort forseti sinn sé óheiðar-
legur. Ég lýsi því yfir hér, að ég er
ekki óheiðarlegur."
Forsetinn fjallaði síðan um
týndu segulbandsspólurnar og
sagðist myndu afhenda aðrar
spólur og skjöl, til þess að láta f té
VIÐSKIPTIKINA
OG USA AUKAST
þær upplýsingar, sem hefðu verið
á týndu segulbandsspólunum.
Hann lýsti því enn yfir, að hann
myndi ekki segja af sér, meðan
heilsa hans Ieyfði að hann gegndi
forsetaembættinu. Nixon höfðaði
í gamansömum dúr til hugsan-
legrar embættissviptingar eða
afsagnar, er hann var spurður,
hvað hann hygðist fyrir, er hann
léti af embætti og sagði: „Það fer
eftir þvf, hvenær ég læt af emb
ætti.“ Hann á skv. lögum um
forsetaembættið að láta af emb
ætti um 20. janúar 1976.
Tokýó 19. nóvember—AP
FYRSTA opinbera sendinefnd
bandarfskra viðskiptamanna, sem
farið hefur til Kfna náði „betri
árangri en búizt var við“ í ferð-
Fara norskir sjómenn
í eigið þorskastríð?
Osló 19. nóv.
Frá fréttamanni Mbl. Sigrúnu
Stefánsdóttur:
NORSKA sjávarútvegsráðuneytið
hefur nú til meðferðar kröfu sjó-
manna í Norður-Noregi um að
færa út landhelgina á sama hátt
og tslendingar. Sfaukinn ágangur
erlendra togara á miðin liggur að
baki kröfu þeirra. Eins og kunn-
ugt er hefur norska stjórnin áður
lýst því yfir, að spurningin um
útfærslu verði látin bfða þar til
Hafréttarráðstefna Sameinuðu
þjóðannna er um garð gengin og
alþjóðareglur verði fyrir hendi til
þess að styðjast við. — Að sögn
sjávarútvegsráðherrans, Eivind
Bolle, má búast við svari frá
stjórninni við kröfunni mjög
bráðlega, cn samtfmis vinni ráðu-
neytið að þvf að hraða undirhún-
ingi Hafréttarráðstefnunnar sem
mest.
I lok þessa mánaðar er ráðherr-
anum boðið til fundar í Finsnesi
með sjómannafélögum Norður-
Noregs, þar sem ágangur er-
lendra togara á fiskimiðin verður
ræddur og þar sem sjómenn fá
tækifæri til þess að rökstyðja
kröfur sínar um útfærslu. Fyrir
nokkru birti dagblaðið „Nordlys“
í Tromsö Ieiðara, sem bar heitið
„Sigur íslands". Þar sagði m.a.:
„Það er skammarlegt að Noregur
skyldi ekki styðja island opinber-
Iega í landhelgismálinu. Engir
harma það meira en íbúar Norð-
ur-Noregs. Við eigum nú sjálfir
fyrir höndum afgerandi baráttu
fyrir verðmætum okkar í hafinu.
Sennilega eigum við enn þá sterk-
ari andstæðinga við að etja en
íslendingar og þá er gott að vita,
að við stöndum ekki einir. Við
eigum Island að og getum lært af
þeim. Lítum á sigur þeirra sem
hvatningu, en gerum okkur um
leið grein fyrir því, að samningur
Breta og íslendinga mun skapa
aukin vandamál fyrir Noreg, þar
sem veiðitakmarkanir við ísland
munu leiðatil aukinnar ásóknar á
miðin viðströnd Norður-Noregs.“
Eins og sjá má af þessum hluta
leiðarans samgleðjast íbúar Norð-
ur-Noregs íslendingum, en'samn-
ingarnir valda þeim einnig aukn-
um áhyggjum. Ágangur erlendra
togara á mið þeirra hef-
ur aldrei verið jafn mikill
og einmitt nú f haust. Hafa
togarárnír skemmt veiðarfæri
fyrir meir en hálfa milljón
norskra króna. i lok október s.l.
skemmdu brezkir, þýzkir og rúss-
neskir togarar veiðarfæri fyrir
hvorki meira né minna en 200.000
n. kr. og það aðeins á þremur
dögum. Og það sem verra er, þá er
ýmislegt, sem bendir til þess að
togararnir eyðileggi veiðarfærin
af ásettu ráði. En ekki nóg með að
togararnir skemmi veiðarfæri
fyrir norskum sjómönnum heldur
hrekja þeir Norðmennina burt af
fleiri og fleiri miðum með yfir-
gangi sínum.
Aður fyrr voru sjómenn í Norð-
ur-Noregi einir á mörgum góðum
miðum, en smám saman hafa þeir
verið hraktir burt af erlendum
togurum. Var svo komið, að svo-
kölluð Stordjupta voru einu mið-
Framhald á bls. 31
inni, að því er Walter Surrey,
einn nefndarmannanna, sagði f
Tókýó í dag. Ferðin, sem stóð f 12
daga, bar m.a. þann árangur, að
ná samningi um skipti á vöru-
sýningum milli landanna tveggja,
samþykki Kfnverja á að senda
fyrstu opinberu viðskipta-
nefndina til Bandarfkjanna árið
1974, samkomulagi um skipti á
sölunefndum og samskipti á
sviði upplýsingamiðlunar í við-
skipta-, tækni- og efnahagsmál-
um.
Viðskiptanefndin bandarfska
kom til Kína 4, nóvember og hélt
heimleiðis 16. nóvember. Sagði
Surrey, að hann gerði ráð fyrir, að
áætluð viðskipti landanna fyrir
þetta ár, þ.e. 900 milljónir dollara,
muni einnig eiga við næsta ár.
David Ben-Gurion — Ifðan hans
enn alvarleg, en þó von um bata.
Líðan Ben-
Gurions betri
Tel Aviv, 19. nóvember,
AP—NTB.
LtÐAN David Ben-Gurions, hins
aldna leiðtoga og föður israels-
rfkis, var síðdegis f dag sögð
heldur betri, en þó enn alvarleg.
Ben-Gurion var f gær lagður inn á
sjúkrahús vegna blæðingar á
heila, sem orsakaði lömun alls
hægri hluta líkama hans. Dr.
Boleslaw Goldmann einkalæknir
Ben-Gurions sagði, að hann gæti
tekið næringu sfna og liði heldur
betur eftir að hafa fengið læknis-
meðferð f nótt.
Ben-Gurion. fyrrverandi for-
sætisráðherra, vísaði israel
veginn allt frá þeim tima, er
landið hlaut sjálfstæði, árið 1948,
þangað til það varð að styrku og
háþróuðu rfki. Hann sagði af sér
embætti árið 1963, en gegndi
þingmennsku nokkur ár til við-
bótar unz hann dró sig út úr
stjórnmálalífinu árið 1970. Sfðan
hefur hann að mestu varið tíma
sfnum á afskekktu samyrkjubúi í
Negev-eyðimörkinni.
David Ben-Gurion er nú 87 ára
að aldri. Hann fæddist í
Rússlandi, en kom árið 1906 til
þess landsvæðis, sem átti eftir að
verða israel.