Morgunblaðið - 20.11.1973, Blaðsíða 32
"t3
SfMAR: 26060 OG 26066
ÁÆTLUNARSTAÐIR:
AKRANES.
FLATEYRI, HÓLMAVÍK, GJÖGUR, STYKKISHÓLMUR,
RIF. SIGLUFJÖRÐUR, BLÖNDUÓS. HVAMMSTANGI.
mgmiibiábib
ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER 1973
nuGLýsmcnR
^-*22480
Lézt á leið úr fanga-
geymslu í sjúkrahús
RANNSÓKN stendur nú yfir á
láti manns, sem iézt á föstu-
dagsmorgun á lei3 í slysadeild úr
fangageymslum lögreglunnar vi3
Hverfisgötu, en hann hafði
skömmu áður verið fluttur ofur-
ölvi í fangageymslurnar úr húsi f
Breiðholti.
Um kl. 10 á föstudagsmorgun
tók lögreglan tvo menn í sína
vörzlu, þar sem þeir voru ofurölvi
í húsi i Breiðholti, og voru þeir
færðir í fangageymslurnar í
lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
Alvarlegt
slys á
Akureyri
Akureyri, 19. nóv.
HARÐUR árekstur strætisvagns
og jeppa varð á mótum Þingvalla-
strætis og Byggðavegar kl. 12.15 f
dag. Ökumaður jeppans slasaðist
alvarlega og liggur þungt haldinn
í sjúkrahúsinu.
Strætisvagninn ók austur Þing-
vallastræti, sem er aðalbraut og
lenti á hlið jeppans, sem kom
sunnan Byggðaveg. Síðan bárust
báðir bílarnir inn á hornlóðina nr.
26 við Þingvallastræti og stað-
næmdust örskammt frá hús-
veggnum. Einn farþegi var i
strætisvagninum, auk vagnstjór-
ans, og sakaði hvorugan, en i
jeppanum voru piltur um tvi'tugs-
aldur og unnasta hans. Stúlkan
fékk taugaáfall, en varð ekki fyrir
teljandi meiðslum. Hans vegar
hlaut pilturinn mikið höfuðhögg
og er talinn alvarlega slasaður.
Hann missti rænu og var ekki
kominn til meðvitundar síðdegis í
dag- —SvJ*.
Nokkru eftir að þangað varkomið
með þá, tók fangavörður eftir bví.
að annar maðurinn var með litlu
lífsmarki og farinn að blána. Var
hann í skyndi fluttur f slysadeild
Borgarspítalans, en var látinn, er
þangað kom. Rétt á eftir varð þess
vart, að hinn maðurinn var að fá
sams konar sjúkdómseinkenni og
var hann þá í skyndi fluttur í
slysadeildina, en batnaði innan
tíðar og reyndist of hár blóð-
þrýstingur hafa þjakað hann.
Samkvæmt upplýsingum
rannsóknarlögreglunnar er ekki
vitað til, að þarna hafi verið um
eitrun að ræða, en beðið er niður-
staða krufningar.
FJARHAGSAÆTLUN
ÞINGVALLAHÁTIÐ-
AR í ATHUGUN
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND lagði
hinn 30. ágúst sl. fram fjárhags-
áætlun sína miðað við eins dags
hátiðahöld á Þingvöllum á sumri
komanda, eins og þingflokkarnir
ákváðu á sínum tíma. Forsætis-
ráðherra hélt nýlega fund með
formönnum þingflokkanna og
formanni og framkvæmdastjóra
þjóðhátíðarnefndar 1974, þar sem
áætlunin var lögð fram. Er hún
nú til athugunar hjá þingflokkun-
um og er niðurstöðu þaðan að
vænta fyrir lokaafgreiðslu fjár-
laganna nú. I f járlagafrum-
varpinu sjálfu er gert ráð fyrir
830 þúsund krónum til þjóð-
hátiðarinnar, en ljóst er, að sú
upphæð nægir hvergi til að
standa straum af hátíðahöldunum
á Þingvöllum sem ráðgert er að
fari fram 28. júlí næstkomandi.
Sakaruppgjöf í könnun
VEGNA komu brezka togaransSt.
Leger til ísafjraðar í gær hefur
spurningin um sakaruppgjöf
brezkra landhelgisbrjóta aftur
vaknað í hugum margra lands-
manna. Að sögn Baldurs Möller
ráðunevtisstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu er nú verið að kanna
þessa hl ið málsins, og verður ekk-
ert aðhafzt gegn brezku togurun-
um fyrr en að lokinni þessari
könnun. Hins vegar benti ráðu-
neytisstjóri á. að brot togaranna
brezku firnast ekki næsta árið.
Strax og bráðabirgðasamkomu-
lagið milli íslenzkra og brezkra
stjórnvalda tók gildi, barst hingað
listi brezkra stjórnvalda yfir þá
139 togara, er heimild hafa til
veiða á íslandsmiðum. Stuðzt
verður við þennan lista í fyrr-
greindri könnun. en Baldur kvað
líklegt, að flestir þessara togara
hefðu verið bókaðir af Landhelg-
isgæzlunni einhvern tíma á því 14
mánaða skeiði, þegar landhelgis-
deilan var í algleymingi. Baldur
kvað þessa könnun vera talsvert
verk, því að fara þyrfti i gegnum
dagbækur allra varðskipanna
þennan tíma til að sjá, hvaða tog-
arar hefðu gerzt brotlegir.
Meiðyrða-
mál gegn
Sverri Kr.
DÆTUR Ama heitins Pálssonar
prófessors hafa höfðað meiðyrða-
mál gegn Sverri Kristjánssyni
sagnfræðingi, vegna ummæla
hans um föður þeirra I útvarps-
þætti f júlí í sumar. Var gefin út
stefna í málinu f liorgardómi f
gær og var hún samdægurs birt
lögmanni Sverris. Málið verður
þingfest á fimmtudaginn.
í gær var haldið fram sátta-
fundi í lögbannsmálinu vegna
sjónvarpsviðtalsins við Sverri,
sem sýna átti fyrir rúmum
hálfum mánuði. Við þingfestingu
málsins á fimmtudag
hafði virzt sem einhver sátta-
grundvöllur væri fyrir hendi og
var því ákveðið að halda sáttatil-
raunum áfram í gær. Sættir
náðust hins vegar ekki, og mun
málið því ganga áfram í borgar-
dómi eins og önnur mál, með
vitnaleiðslum og munnlegum
flutningi.
Margt var um skíðamanninn í
Hveradölum um helgina, enda
nægur skíðasnjór og veður
ágætt. Var skíðalyftan óspart
notuð (Ljósm. Mbl. Br. II.).
OLIA TIL IIl SAHITirVAR
TVÖFALDAST í VERÐI
„MIÐAÐ við verðlagsþróun olfu-
vara í öðrum þjóðlöndum, getur
þessi hækkun alls ekki talizt mik-
il, þó að svo kunni að virðast í
fljótu bragði,“ sagði Önundur As-
geirsson hjá Olíuverzlun tslands f
samtali við Morgunblaðið í gær
um fyrirsjáanlega hækkun á olíu
og bensfni. Þessi hækkun byggist
að öllu leyti á heimsmarkaðsverð-
hækkunum, og mun koma til
framkvæmda þegar er næstu
farmar olíu og bensfns koma til
landsins.
Forráðamenn olíufélaganna
hafa nú reiknað út hugsanlegt
útsöluverð á næstu förmum olíu-
vara, og lagt til grundvallar
skráningu á heimsmarkaði, eins
og hún lá fyrir 16. þ.m. Sam-
kvæmt því kemur í ljós, að gasolí-
an hækkar mest, þá svartolía og
síðan bensín.
Að sögn Önundar Ásgeirssonar
mun gasolían hækka um sem
næst 90% — verða um 11 krónur
á hvern lítra, en er nú kr. 5,80.
Svartolía til skipa mun hækka um
40—50% — er nú 3385 krónur, en
mun sennilega fara upp í 4.700 kr.
tonnið. Bensín mun sennilega
hækka um 20% eða úr kr. 23.50 í
um 28 krónur. Önundur tók þó
fram, að verulegur hluti bensín-
verðsins væri fólginn f sköttum,
svo að hugsanlega mætti ná þvf
verði niður með þvf að aflétta
einhverjum sköttum, ef stjörn-
völd treystu sér til þess. Hann
sagði ennfremur, að menn skyldu
allt eins vera undir það búnir, að
skráningin gæti breytzt til hækk-
unar.
Önundur var spurður að því,
hvað hann héldi, að gasolíuhækk-
unin gæti haft í för með sér mikla
hækkun fyrir húseigendur, sem
nota olíukyndingu. Tók hann sem
dæmi venjulegt einbýlishús og
kvað algengt, að þau færu með 6
þúsund lítra af olíu á ári til kynd-
ingar. Miðað við að gasolían
hækkaði nú um kr. 5.20 Iítrinn
þýddi þetta um 32 þúsund króna
hækkun á ári, og væri þetta því
sem næst tvöföldun á kostnaði við
húsahitun með olíu.
Önundur kvað nokkrar birgðir
Framhald á bls. 31
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins:
Eftirlitsstöð án varnarliðs nægir
ekki hagsmunum Islands
I stjórnmálayfirlýsingu flokks-
ráðsfundar Sjálfstæðisflokksins,
sem lauk sl. laugardag, er lögð
áherzla á eftirfarandi atriði, sem
Sjálfstæðisflokkurinn mun ein-
beita sér að á næstunni:
j að varnir verði áfram á Islandi
□ að fiskveiðilögsagan verði
færð út f 200 sjómílur fyrir
árslok 1974
Q að algjör stefnubreyting verði
í efnahagsmálum
□ að sérstakt átak verði gert í
byggðamálum
Flokksráðsfundinum lauk um
kl. 19.00 á laugardagskvöld eftir
miklar umræður. Eftir hádegi á
laugardag gerði Magnús Jónsson
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins grein fyrir áliti stjórnmála-
nefndar. Síðan ræddu Valgarð
Briem og Albert Guðmundsson
um byggingu nýja Sjálfstæðis-
hússins, en í almennum umræð-
um eftir hádegi á laugardag tóku
þátt: Björn Þórhallsson, Benedikt
Guðmundsson, Staðarbakka,
Ingólfur Jónsson, Gunnar
Thoroddsen, Þór Vilhjálmsson,
Friðjón Þórðarson, Þorvaldur
Moby, Albert Kemp, Páll Daníels-
son, Sigurlaug Bjarnadóttir,
Guðlaugur Gíslason, Hjörtur
Hjartarson, Guðmundur II.
Garðarsson og Magnús Jónsson.
Er stjórnmálayfirlýsing hafði
verið samþykkt, sleit Geir Hall-
grímsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins fundinum með stuttri
ræðu.
I stjórnmálayfirlýsingunni
segir m.a., að „þar til samkomulag
næst milli ríkja austurs og
vesturs um afvopnun og
viðunandi öryggi í Evrópu er það
nauðsynlegt vegna öryggis
Islands og hagsmuna bandalags-
þjóða okkar, einkum Norður-
landa, að áfram verði um sinn
varnir í landinu, þar sem ástand í
alþjóðamálum er svo ótryggt sem
raun ber vitni um... Því
fullnægir það ekki hagsmunum
Islendinga nú, að í landinu sé
aðeins eftirlitsstöð án nokkurs
varnarliðs.“
Lögðer áherzla á, að fylgt verði
þeirri stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins, að fiskveiðilandhelgin verði
færð út í 200 sjómílur í árslok
1974 og að þjóðareining megi
takast um þá útfærslu. Stjórn-
málayfirlýsing flokksráðs-
fundarins er birt í heild á bls. 19 i
Morgunblaðinu í dag.
Losnaði
af sjálfs-
dáðum
VÉLBATURINN Gylfi Öm
GK 303 strandaði rétt vestan
við innsigl inuuna í Grinda-
vfkurhöfn um kl. 19:15 í gær-
kvöldi I slæmu veðri, ofanbyl
og hvassvirði. Fjórir menn
voru á bátnum. Björgunarsveit
SVFI I Grindavfk var kölluð
út og fór hún á strandstaðinn
og var við öllu búin. Ekki var
þó gerð tilraun til að bjarga
mönnunum í land, þar sem
þeir voru ekki taldir f lffv
hættu. A aðfallinu losnaði bát-
urinn svo af sjálfsdáðum, en
vegna stýrisbilunar aðstoðaði
báturinn Vörðunes hann inn
að bryggju, og var klukkan þá
að nálgast tfu.
Gylfi Öm er 56 lesta eikar-
bátur og hefur verið á línu-
veiðum. Var hann að koma úr
róðri, en í innsiglingunni mun
skrúfan hafa rekizt f og vélin
stöðvazt og bátinn sfðan rekið
upp að klöppinni, niður undan
elztu bryggjunni í Grindavfk.
Einhver leki kom aðbátnum
við strandið, þó ekki umtals-
verður, að sögn fréttaritara
Mbl. f Grindavfk, en um tjón á
bátnum erekki fullkunnugt.