Morgunblaðið - 25.11.1973, Qupperneq 1
40 SIÐUR OG LESBOK
266. tbl. 60. árg.
SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1973
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Svíþjóð — Bandaríkin:
Eðlileg stjórn-
málaskipti?
Golda Meir og Moshe Davan með hermönnum sfnum á Golan-hæðum.
Washington, 24. nóvember AP.
TALIÐ er líklegt, aS Bandaríkin
og Svíþjóð taki aftur upp eðlileg
stjórnmálasamskipti innan
skamms og skiptist aftur á sendi-
herrum.
Sem kunnugt erkölluðu Banda-
rikjamenn sendiherra sinn i
Stokkhólmi heim fyrir tveimur
árum, eftir harða gagnrýni Olafs
Palmes forsætisráðherra á stríðs-
rekstur Bandaríkjanna i
Vietnam. Hefur sambandið milli
landanna verið mjög kuldalegt
allt frá þvi.
Um þessar mundir er sænsk
sendinefnd í Washington til
viðræðna við ráðamenn ýmissa
ráðunejta, og í gær átti formaður
sendinefndarinnar, Wilhelm
Wachmeister mjög óvæntan fund
með Henry Kissinger, utanrikis-
Dregið stórlega úr notkun
olíu í Bandaríkjunum
BANDARÍSKA stjórnin hefur
tekið ákvörðun um ýmsar leiðir
til að spara olíu, og verður það
m.a. gert meðþvf að minnka olfu-
notkun almennra neytenda um 15
prósent og notkun iðnaðarins um
10 prósent. Þrátt fyrir þetta kem-
ur til með að vanta um 311 þús-
und tunnur á dag yfir vetrartím-
ann.
Olíufélag Nýja Englands, i
Boston, sem er hátt skrifað sem
ráðgefandi aðili í orkumálum,
lagði fyrir stjórnina tillögu þessa
efnis, og það hefur nú verið upp-
lýst, að hún hafi verið samþykkt
þótt ekki verði skýrt frá þvi opin-
berlega fyrr en eftir helgina.
Nixon forseti, sem var í fjög-
urra daga fríi i Camp Davið 1
Maryland, flaug skyndilega til
Washington i morgun til við-
ræðna við nokkra helztu ráðgjafa
sína í orkumálum, og þar voru
þessar og ýmsar aðrar oliusparn-
aðartillögur til umræðu.
Almennir neytendur, sem nota
olíuna til húsahitunar, munu
spara með því að lækka hitann
um sex gráður. Skrifstofur og
fyrirtæki verða að lækka hitann
um 10 gráður sem þýðir 18 til 20
prósent sparnað, og þungaiðnað-
urinn verður einnig að skera nið-
ur um 10 prósent.
Aðrar sparnaðarráðstafanir
fela meðal annars í sér takmörk á
hámarkshraða og hafa slfkar tak-
markanir þegar tekið gildi víða.
Þá hefur komið til umræðu að
loka benzínstöðvum á sunnudög-
um en ekki er gert ráð fyrir, að
sett verði almennt ökubann á
sunnudögum að svo komnu.
Olíuafgreiðendur geta auðveld-
lega reiknað út, hversu miklaolíu
hver á að fá vegna þessara nýju
takmarkana og þeir munu ekki
láta meira af hendi en þeir út-
reikningar segja til um. Þeir sem
ekki hlíta sparnaðarráðstöfunum
verða því einfaldlega olíulausir,
áður en þeir fá næsta skammt.
Skömmtunin mun að sjálfsögðu
hafa mikil áhrif á iðnað í landinu
og ýmis fyrirtæki, sem framleiða
bifreiðar, hafa þegar boðað stór-
lega skerta framleiðslu.
Grikkland:
Utgöngubanni aflétt
Aþcnu, 24. nóvember, AP.
ÚTGÖNGUBANNINU hefur nú
verið algerlega aflétt í Grikklandi
en herlög eru áfram í gildi. Her-
lögin og útgöngubannið var sett
Fegurðardís
upp á 9
milljónir
London, 24. nóvember. AP.
19 ára gömul bandarísk-
stúlka, Marjorie Wallace, sigr-
aði í gær í fegurðarsamkeppn-
inni ungfrú Heimur 1973, sem
fram fór í Royal Albert Hall í
London.
Önnur varð fegurðardrottn-
ing frá Filipseyjum og þriðja
fegurðardrottning frá Jamica.
Verðlaunin nema um 600 þús.
ísl. kr., en alls er talið, að
sigurinn geti á næsta ári fært
ungfrú Wallace um 9 milljón-
ir í aðra hönd fyrir auglýsing-
ar og annað slíkt.
vegna mikilla óeirða, sem hófust
með því, að stúdentar tóku tækni-
háskólann f Aþenu á sitt vald.
Talið er, að 13 manns hafi látið
lífið í átökunum og um 150 særð-
ust, flestir eru með skotsár á fót-
um.
Það hefur verið fremur rólegt í
Grikklandi undanfarna daga en
aðalástæðan fyrir því, að útgöngu-
banninu var aflétt, er líklega sú,
að efnahagur landsins beið mikið
tjón við það. Eigendur skemmti-
staða kvörtuðu sáran yfir því, að
þeir væru að fara á höfuðið og
ferðamenn flúðu landið í stórum
stíl.
Ástandið er þó langt frá því að
vera orðið eðlilegt. Sérstakt leyfi
þarf að fá ef fleiri en fimm
persónur ætla að halda með sér
fund innan dyra og ýmsar fleiri
takmarkanir eru á athafnafrelsi
manna.
Stjórnin hefur ítrekað, að þrátt
fyrir þessar óeirðir verði fyrir-
hugaðar kosningar á næsta ári
örugglega haldnar. Ilún hefur
einnig lýst því yfir að rannsókn
fari fram vegna óeirðanna og
verði skýrslan sem af henni leiðir,
birt almenningi.
Störf þjóðarleiðtoga geta verið þreytandi. Muammar Gaddafi, leið-
togi Libyu gat ekki alveg kæft geispann á hersýningu lionum til
heiðurs í Júgóslaviu.
GADDAFI VILL
MIRAGE-ÞOTUR
París 24. nóvember AP.
GADDAFI forseti Lfbýu ra*ddi í
morgun við Pompidou Frakk-
landsforseta og er talið að Gadd-
afi hafi lagt hart að Pompidou, að
selja Libýumönnum herþotur af
Miragegerð svo og önnur her-
gögn. Lfbýumenn eiga 110 Mira-
ge þotur af gömlu gerðinni
Mirage 3.
ráðherra Bandaríkjanna. Ekkert
hafði verið ákveðið með þennan
fund fyrirfram og er talið, að
Kissinger hafi boðað Wachmeist-
er til viðræðna við sig.
Kahoutek
er ekki
ægibjört
San Fransiseo,24. nóv., AP.
BANDARlSKL'R stjarnfræð-
ingur heldur því fram. aðhala-
stjarnan Kahoutek verði ekki
eins björt og vísindamenn
hafa talið. Ralph I. Pálsson.
sem tilheyrir stjarnfræðirann-
sóknarsamtökum Kyrrahafs-
ins, segir að það hafi kornið í
ljós, að hali stjörnunnar sé
rykkenndur fremur en gas-
kenndur.
Ilalastjarnan verður þó vel
sýnileg með beruin augum og
ætti að sjást bezt nokkru fyrír
jól og svo aftur nokkru eftir
jól. Ralph Pálsson segir enn-
fremur, að braut stjörnunnar
sé nokkuð öðruvísi en talið var
í fyrstu. Ilún komi því ekki
aftur að sólkerfi okkar eftir 35
þúsund til 75 þúsund ár eins
og talið hafi verið í fyrstu held-
ur nálgist hún ekki aftur fyrr
en í fyrsta lagi eftir milljón ár
og kannski aldrei.
Arafat frá
Moskvu
Moskvu 24. nóvember AP.
VASSER Arafat leiðtogi
Palestínuskæruliða fór frá
Moskvu í dag áleiðis til Alsír,
eftir viðræður við sovézka leið-
toga. Arafat kom til Moskvu sl.
þriðjudag ásamt foringjum fimm
deilda innan skæruliða-
hreyfingarinnar. Ekkert hefur
verið sagt um heimsóknina i
sovézkum fjölmiðlum. Frétta-
ritarar telja, að Arafat og félagar
hans hefði verið að reyna að fá
einhverja viðurkenningu hjá
Sovétstjórninni svo að samtok
þeirri fái einhverja aðild að
friðarráðstefnunni. sem hefjast á
í Genf í næsta mánuði.
Gaddafi kom til Parísar i gær í
einkaheimsókn að því er sagt var,
en allar móttökur og viðbúnaður
minnti fremur á opinbera heim-
sókn þjóðhöfðingja. Þetta er
fyrsta heimsókn Gaddafis til vest-
ræns lands frá því að hann tók við
völdum fyrir 4 árum.
Samningar ganga
erfiðlega
Egyptalandi. 24. nóvember. AP.
EKKI hefur orðið neinn áþreifan-
legur árangur f viðræðum
egypzkra og ísraelskra samninga-
manna. en fundir þeirra hafa ver-
ið vinsamlegir og gagnlegir. að
sögn talsinanna Samcinuðu þjóð-
anna. Areiðanlegar heimildir hjá
Sameinuðu þjóðunuin í New
York herma. að nú sé verið að
reyna að finna einhverja aðra
lausn en þá að hverfa aftur til
vopnahléslfnanna f rá 22. október.
ísraelar eru tregir til að fallast
á það. þar sem þriðji her Egypta
myndi þá losna úr gildrUnni. sem
hann er f. Þeir hafa hins vegar
lagt til, að báðir aðilar hverfi aft-
ur til þeirra landainæra. sem í
gildi voru. áður en stríðið liófst.