Morgunblaðið - 25.11.1973, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1973
GÓÐ AÐSÓKN AÐ
ÞJÓÐLEIKHÚ SINU
AÐSÖKN að Þjóðleikhúsinu hef-
ur verið mjög góð að undanförnu.
Avallt er uppselt á Klukkustrengi
Jökuls Jakobssonar, og í frétt frá
þjóðleikhúsinu segir, að miðarnir
renni út eins og „heitar lummur".
Sýningar á Kabarett ganga
sömuleiðis mjög vel og verður
leikurinn sýndur í 40. skipti i
næstu viku. Þá var Brúðuheimili
Ibsens frumsýnt á fimmtudags-
kvöldið. Þessi þrjú leikrit eru
sýnd á aðalsviði leikhússins.
Elliheimilið er ennþá sýnt í
Lindarbæ og barnaleikurinn
Furðuverkið er sýnt á sunnudög-
um i Þjóðleikhúskjallaranum.
Um helgina verður því sýnt á
þremur sviðum á vegum Þjóðleik-
hússins.
Tveimur bílum stolið
— sá þriðji fannst
TVEIMUR bifreiðum var stolið f
Reykjavík í fyrrakvöld og fyrri-
Styrkur til söngvara
VEITTUR verður styrkur úr
minningarsjóði Kjartans Sigur-
jónssonar, söngvara, frá Vík i
Mýrdal. Þeir, sem áður hafa feng-
ið sjóðsveitingar, eru:
Ámi Jönsson, söngvari, Sigur-
veig Iljaltested, söngkona, Erling-
ur Vigfússon, söngvari, og Sigr-
iður E. Magnúsdóttir, söngkona.
Umsóknir sendist fyrir 1. dés.
nk. til Báru Sigurjóns, Austur-
stræti 14, Reykjavík.
nótt, en í gærmorgun fannst síðan
bifreið, sem stolið hafði verið að-
fararnótt sl. miðvikudags.
Á fösludagskvöldið var stolið
rauðri Skoda Octavia-bifreið, ár-
gerð ’64, A-3723, frá Skólavörðu-
stlg. Um nóttina var síðan stolið
hvítri Opel station-bifreið með
toppgrind, árgerð '63, R-27529, frá
Réttarholtsvegi. Ilvorug bifreiðin
var fundin um hádegi f gær.
I gærmorgun barst lögreglunni
hins vegar tilkynning um, að
Moskvich-bifreið, sem slolið hafði
verið frá Miðtúni aðfararnótl sl.
miðvikudags, stæði á stæði bak
við fjölbýlishús við Kleppsveg.
Var hún óskemmd að sjá.
Frá afhendingu augnlækningatækjanna á Blönduósi. Frá vinstri sr.
Arni Sigurðsson, Ulfar Þórðarson, læknir, Þormóður Sigurgeirsson,
formaður Lionsklúbbsins, Sigursteinn Guðniundsson, yfirlæknir,
Jón ísberg, sýsluniaður, Jón B. Stefánsson læknir, Unnar Agnarsson.
Augnlækningatæki
gefin á Blönduós
Með sölu „rauða fjarðarinnar" I
fyrra gengust Lionsmenn um
land allt fyrir söfnun fjár til
kaupa á tækjum, sem auðvelda og
gera mögulegt að greina og
ýmsa augnsjúkdóma m.a. gláku.
Gekk söfnunþessi meðágætum.
Mörg vönduð og dýr tæki hafa
verið færð augndeild Landaköts-
spítala, en auk þess voru keypt
tæki, sem skyldu fara í hin ýmsu
læknishéruð landsins, í samráði
við landlækni.
Um síðustu helgi (18.11.1973),
er Ulfar Þórðarson augnlæknir
var við augnlækningar á Blöndu-
ósi, færði stjórn Lions klúbbs
Blönduóss Iléraðshælinu á
Blönduósi ýmis góð tæki til grein-
ingar augnsjúkdóma. Um leið af-
henti stjórnin sjúkradeild stofn-
unarinnar sjónvarpstæki að gjöf.
Formaður stjórnar Iléraðs-
hælisins, Jón ísberg, sýslumaður,
ásamt yfirlækni, Sigursteini
Guðmundssyni, þökkuðu gjafirn-
ar, en síðan útskýrði Ulfar
Þórðarson augnlæknir notkun
rannsóknartækjanna.
í stjórn Lionsklúbbs Blönduóss
eru: Þormóður Sigurgeirsson for-
maður, sr. Árni Sigurðsson og
Valur Snorrason.
Framarar léku við júgóslav-
neska liðið Dynamo Pancevo
s.l. finnntudagskvöld, og sigr-
uðu 17—16. Myndina tók
Kristinn Benediktsson af
Björgvin Björgvinssyni, sem
þá var að skora eitt marka
sinna í leiknum. I dag kl. 16.00
leika Júgóslavarnir við FH og
á morgun mæta þeir íslenzka
landsliðinu. Verður þarna ugg-
laust um harða og jafna leiki
að ræða.
íbúð ðskast til lelgu
5—6 herb. ibúð óskast til leigu fyrir áramót. Góð
greiðsla í boði. Upplýsingar í síma 85470. NB. Helzt í
Hlíðunum.
Haustmóti skák-
félags Hafnar-
fjarðar lokið
LOKIÐ ER haustmóti Skákfélags
Ilafnarfjarðar, keppendur voru
18 og tefldar voru 9 umferðir eftir
Monradkerfi. Sigurvegari var Sig-
urður Ilerlufsen með 8 vinninga,
og f öðru sæti varð Ásgeir Ás-
björnsson með 7 vinninga og í
þriðja sæti varð Pétur Kristbergs-
son með 6 vinninga.
Þá fer fram hraðskákmót
sunnudaginn 25. nóvember í
Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu
og hefst það kl. 2 e.h.
Guðsþjónustur
í Fellaskóla
IIÓLA- og Fellasókn I Breiðholts-
hverfi var formlega stofnuð í
marzmánuði síðastliðnum, en
sóknarpresturinn séra Lár-
us Ilalldórsson hóf þegar
í febrúarmánuði starfsemi sunnu-
dagaskóla ásamt hópi áhuga-
manna og hefur hann verið starf-
ræktur síðan. Guðsþjónustuhald
hefur verið erfitt, en nú hefur
sóknarpresturinn fengið leyfi til
að nota sal í kjallara gagnfræða-
skólans í Fellahverfi til guðsþjón-
ustuhaldsog fyrirsunnudagaskól-
ann og verður fyrsta guðsþjónust-
an í Fellaskóla í dag klukkan 5
síðdegis.
Formaður sóknarnefndar er
Jóhann Helgason en organisti er
Snorri Bjarnason. Sagði sóknar-
presturinn Mbl. í gær, að það
gleddi sig, að geta hafið nánara
samstarf við safnaðarfólk I Hóla-
og Fellasókn, sem innan skamms
mun verða sérstakt prestakall.
Til sölu
Örvar HU 14 217 tonn (nýja mælingin). Skipiö er með 2
frystilestar, útbúnaður fyrir fiskikassa. Skipið er með
yfirbyggt þilfar aftur að lestarlúgu. Allar nánari uppl. hjá
Fasteignir og Fiskiskip, Austurstræti 17, sími 18105,
heimasími 36714.
TILBOO ÓSKAST
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar:
Ford Escortárg. 1973
Peugeot sendiferðab. árg. 1972
Chervolet Impala árg. 1 967
Volkswagen Microbus árg. 1 962 ný vél
Bifreiðarnar eru skemmdar eftir árekstur og verða til
sýnis í Vöruskemmu Jökla h.f., sunnudaginn 25. nóvem-
ber frá kl. 1 4.00 — 1 7.00.
Einnig óskast tilboð í Chevrolet Camaro árg 1971
glæsilegan bíl óskemmdan ekinn 30.000 mílur.
Tilboðum sé skilað á staðnum eða á skrifstofu vora
Aðalstræti 6 Reykjavík fyrir kl. 17.00 mánudaginn 26.
nóvember 1973.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIIM H.F.,
ASalstræti 6, Reykjavík.
BARNASKÓBÚÐIN LAUGAVEGI 27
NÝKOMIÐ
JÓLASKÓSENDING
Orðsendlng frá Slgrúnu
Vorum aó taka upp:
telpna og dömublússur, náttföt á alla fjölskylduna, ulpur á 1 —10 ára, gott verð,
barnabuxur og peysur, margar gerðir, köflótt og einlit teryleneefni, samstæð, ný
munstur í straufríu Night and Day, einnig damask, léreft og mislitt lakaefni.
Saumum sængurfatnað eftir pöntunum. Handklæði margar gerðir og litir.
Athugið nytsamar jólagjafir í Sigrúnu. Opið til 10 alla föstudaga, fram til jóla.
Sigrún,
Heimaveri,
Álfheimum 4.
TELPNASKÓR — Glæsilegt úrval. Stærðir 24 — 39.
TÖFLUR — Litríkar og vandaðar. Stærðir 28 — 39.
BARNASKÓR — Úr rúskinni og leðri m/innleggi.
Stærðir 19 — 27.
FORELDRAR
Verzlið meðan úrvalið er mest.
Póstsendum.
BARNASKÓBÚDIN LAUGAVEGI 27