Morgunblaðið - 25.11.1973, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1973
3
„Utan frá sjó”
Ný bók eftir Guðrúnu frá Lundi
Guðrúnu frá Lundi þarf ekki að
kynna íslenzkum lesendum. Nú
hefur hún sent frá sér nýtt skáld-
verk. Utan frá sjó, fjórða bindi.
Fyrri bindin þrjú komu út á árun-
um 1970— '73.
Guðrún frá Lundi Árnadóttir
hefur skrifað fjölda skáldsagna
eins og kunnugt er og hafa þær að
jafnaði verið metsölubækur. Bæk-
ur hennar eru rnikið seldar og
lesnar og er Guðrún í hópi vina-
sælustu skáldsagnahöfunda hér á
landi. Iíún hefur, eins og kunnugt
er, skrifað fjölda skáldsagna og
hafa þær yfirleitt verið með af-
brigðum vinsælar.
Fær flokkur Jakobsens 16% atkv.?
t.d. silungur, rækjur, gaffalbitar
o.fl. að ógleymdum harðfiskinum,
sein þykir næstum jafn óinissandi
í pakkann og umbúðirnar utan
um matinn.
— Ein er þó sú tegund matar,
sem margir hefðu áhuga á að
senda ættingjum sínum og vinum
erlendis, sagði Garðar II. Svavars-
son hjá Kjötverzlun Tómasar á
Laugavegi 2, en það er rjúpa. En
ekkert fiðurfé rná fl.vtja út og
rjúpan missir allt geymsluþol við
það að vera hamflett. Það er því
ekki nema í þeirn tilvikum að
menn taki nokkrar rjúpur með
sér ef þeir eiga leið utan, að hún
fer á matarborð erlendis.
Matvælin verða æ vinsælli sem
jólasendingar og margir taka þau
fram yfir aðra hluti er þeir hugsa
sér að senda vinum sínum
erlendis jólakveðju. Slíkt er að
vonum, þvf um ferðamanna-
tímann verðum við áþreifanlega
varir við, hve sólgnir margir
útlendingar eru í íslenzkan mat af
ýmsum tegundum, og meðal
þeirra er reykti laxinn
vinsælastur, svo og ýmsar niður-
suðuvörur. En íslendingar
erlendis vilja ekki án hangikjöts-
ins vera né heldur sviðanna,
kæfunnar og fleiri tegunda og
það verða engin jól hjá inörgum
ef þettaog harðfiskinn vantar.
Það eru mörg ár siðan Kjöt-
verzlun Tómasar hóf þá þjónustu
við viðskiptavini sína að sjá um
allar leyfisútveganir og umslang
við sendingu slfkra mataipakka.
Æ fleiri nota sér þessa þjónustu
og nú stendur hún til boða allan
ársins hring. Var sá háttur upp
tekinn eftir sýndan áhuga
íslendinga erlendis fyrir þorra-
mat. Pakkarnir fara um allan
heim, næstum alls staðar þar sem
islendingar eru, og þeir staðir eru
ótrúlega margir. Og þar sem
íslendingar hafa verið verða
alltaf til fjölskyldur og vinir, sem
fá sendan matarpakka frá islandi.
Matarpakkinn þykir alltaf kær-
komin gjöf og sönn islenzk jóla-
kveðja.
r
Athugasemd frá Isafoldarprentsmiðju
Á ,,Slagsíðu“ blaðs yðar, mið-
vikudaginn 21. nóv. sl., birtist
viðtal, sem ber yfirskriftina „Gott
og vont að að gefa út bók“ við
Ómar Þ. Halldórzzon, höfund bók-
arinnar ,,Hversdagsleikur“, sem
ísafoldarprentsmiðja h.f. hefur
nýverið sent frá sér. Þar sem
veruleg slagslða er á sannleiks-
gildi frásagnarinnar, tel ég mig
knúinn til að svara henni nokkr-
um orðum.
Ómar segir, „Eg átti ákaflega
slæm samskipti við forlagið, því
að bókin kemur út núna án þess
að nokkurt samráð hafi verið haft
við mig. Þeir ætluðu upphaflega
að gefa hana út fyrir tveimur
árum, o.s.frv."
Fyrir um það bil tveim-
ur árum lagði Ómar inn hand-
rit af nefndri bók,
í von um útgáfu þess. Sam-
kvæmt viðtali hans hefur hann
greinilega staðið í þeirri trú, að
með því að koma handriti í hend-
ur forleggjara, hafi hann þar með
öðlazt loforð fyrir því, að bókin
verði gefin út, og það á samri
stundu. Ég held aðfæstir,eðaeng
ir útgefendur lofi, eða ráðist í að
gefa út bók, nema hafa kynnt sér
efni hennar fyrst. Ómari var strax
tilkynnt, að ekki væri mögulegt
að gefa út bók hans á árinu 1971,
en jafnframt, að við myndum
kynna okkur efni hennar, með
hugsanlega útgáfu í huga síðar.
Um miðjan marzmánuð 1972,
var handrit Ómars tekið til yfir-
ferðar, sem leiddi til þess, að
handritið var talið frekar jákvætt,
en þó var óskað eftir, að höfundur
gerði veigamiklar breytingar á
tveim köflum bókarinnar.
Ekki minnist ég, að Ömar hafi
tekið þessum ábendingum okkar
hátiðlega, né breytt miklu I þess-
um tveim köflum. Engu að siður
var Ómari tilkynnt, að við værum
reiðubúnir að gera við hann
samning um útgáfu bókarinnar
haustið 1973. Rétt er að geta, I
þessu sambandi, að forlagið tók
þessa ákvörðun vegna eindreg-
inna tilmæla eins kunnasta rithöf-
undar landsins sem taldi rétt að
þessum pilti vaéri gefið tækifæri
að kynna þessa frumsmíð sína á
sviði skáldsagnagerðar. Ómar
gekk að þessu og hinn 9. nóvem-
ber 1972 undirrituðum við samn-
ing um útgáfu bókarinnar. Við
ákvæði samnings þessa hefur ver-
ið staðið I einu og öilu.
í samningnum er m.a. ákvæði
um, að stefnt sé að útgáfu bókar-
innar i seinni hluta október 1973.
Bókin var fullsett og prófarkales-
in á vegum prentsmiðjunnnar,
samkv. sérstakri ósk höfundar, i
lok febrúarmánaðar sl. Próförk-
in var síðan i höndum höfund-
ar, frá því i marzbyrj-
un til 13. júní 1973, er hann
skilaði henni til áframhald-
andi vinnslu í prentsmiðjunni.
Erfitt er að skilja þetta öðru vísi
en að útgáfa bókarinnar sé i fullu
samráði við höfundinn, þar
sem honum var þá hægast að
breyta handritinu, eða stöðva út-
gáfu þessa afkvæmis sins, ef hann
óskaði.
Mergur málsins er hins vegar
sá, að þegar samningur um útgáfu
var gerður, hljóðaði greiðsla upp
á ákveðið verð á hverja örk. Ilins
vegar lá stærð bókarinnar þá ekki
fyrir, en þegar setningu bókar-
innar var lokið reyndist hún
styttri en áætlað hafði verið.
Þetta átti höfundurinn erfitt með
að sætta sig við og krafðist þess,
að bókin yrði sett að nýju og þá
með stærra letri. Slíkt kom hins
vegar ekki til greina af tsafoldar
hálfu, vegna gffurlegs aukakostn-
aðar, sem af því hlyti að leiða.
Þeir, sem lesa bókina, geta séð,
að leturstærð hennar er mjög
venjuleg, en hins vegar höfum
við engan áhuga á að selja
óáprentaðan pappír í formi bóka.
Höfundi var fullkunnugt um
fyrirhugað útlit og frágang bókar-
innar og honum skýrt frá þvf, að í
ráði væri að fá kunnan listamann
til þess að teikna kápu. Gerði
hann engar athugasemdir, né lét í
ljós óskir í því sambandi. Fi-á-
gangur hennar verður þó að telj-
ast vandaðri (stift band) en al-
mennt gerist um verk ungra og
óþekktra höfunda í dag.
Árið 1970 gaf ísafoldarprent-
smiðja h.f. út ljóðabókina „Ilorfin
ský" eftir sama höfund, svo ekki
er hægt að segja, að þessi 19 ára
piltur hafi ekki fengið sín tæki-
færi, á sama tíma sem fjölmargir
aðrir fá verk sín hvergi gefin út.
Þakklæti hins unga piltungs
fyrir þetta virðist ekki láta á sér
stand, og er það hans mál. Stjórn-
endur ísafoldarprentsmiðju h.f.
urðu þó meira undrandi yfir upp-
slætti Mbl. á þessu undarlega
fleipri Ómars um sína eigin frum-
smíð. Reyndar gæti önnur aðal-
fyrirsögn blaðsins átt vel við hér.
Það er margt gott og vont við að
gefa út bók, ekki sízt fyrir út-
gefendur. Virðingarfyllst,
f.h. Ísafoldarprentsmiðju h.f.
Kristinn Gestsson, framkv.stj.
Kaupmannahöfn 22. nóv. NTB
EF dæma má af úrslitum skoð-
anakönnunar, sem stofnunin OB
SERVA hefur gert fyrir dagblað-
ið Jyllandsposten, ætti flokkur
Erhards Jakobsens, miðdemo-
kratarnir, að fá 29 þingsæti I
kosningunum 4. desember nk. og
flokkur Mogens Gilstrups, Fram-
faraflokkurinn, 18 þingsæti.
Samkvæmt þessari könnun geta
sósíaldemókratar vænzt þess að fá
40 þingsæti, Radikale Venstre 26
þingsæti, Venstre 22 þingsæti,
Ihaldsflokkurinn 20, Sosialistíski
þjóðarflokkurinn 16 og kommún-
istar 4 þingsæti.
Skoðanakönnun þessi var gerð
14. nóvember sl., eftir að ákveðið
hafði verið að hafa kosningarnar
4. desember, og hún byggist á
viðtölum við 1384 kjósendur.
Samkvæmt henni fá sósíal-
demókratar 22% atkvæða, en
fengu í síðustu kosningum árið
1971, 37.3%, Venstre fá 12%, en
fengu síðast 15.6%, Ihaldsflokk-
urinn 11%, en fékk síðast 16.7%.
Sosialistíski þjóðarflokkurinn
heldur fylgi sínu nokkurn veginn
með 9% atkvæða. Framfaraflokk-
ur Glistrups mundi fá 10% at-
kvæða og flokkur Jakobsens 16%.
Sýnishorn af innihaldi pakkanna sem sendir eru utan
Hangikjötið flýgur
út um allan heim
FLEIRI matarpakkar fara frá
íslandi í ár en nokkru sinni áður
og íslenzkur matur, eða einstakar
tegundir íslenzks matar, verður á
jólaborðum fleira fólks erlendis
en áður. Hangikjötið og reykti
laxinn eru vinsælustu
tegundirnar og er að finna í flest-
um pökkum er héðan fara en með
fylgja svo ýmsar tegundir s.s.
harðfiskur, svið, reyKt sfld og
ýmsar sjávarafurðir niðursoðnar
MLÍI »111 IEH MED ÚTSVfl 1 ENN SEM FYRR ODÝRAST TÍL
London Glasgow ( B dagar 4 dagar Huglar fluglar Glstlng Glsting Morgunvernur Morgunveraur og ur. 15.900.- Kvðldverdur « l8-90” -.. . Kvnnisiera o.«. Brottfor á hverjum Kr. 13.500.- laugardegl Brottför annan hvern föstudag. íMHSS &S-M t\Se? W Wm 9m ■ Kaupmannahöfn Flug- ÖDÝR HðPFERD farsedlar 7.-14. DESEMBER HVERT SEM ferðinni er heit- IÐ — ALLIR FLUGFARSEÐLAR FLUGFAR BAÐAR LEIÐSR eyrir einstaklinga. hópa ráji iiAtfi cktiiir eða félagasamtök með BEZTU KJÖRUM og hinni við- MORGUNVERÐUR urkenndu útsýnarþjón- GRlPIB TÆKIFÆRIB USTU ADEIRS KR. 18.000.00 Fe rðaskrifstofan UMJÓLIN: ÚTSÝN ÓDÝRAR HÓPFERÐIR 20. og T ■ 21. DESEMBER. J“JJt^rstr®t' 17 (S,Ha °9 Kanaríeyjar símar 26611 — 20100