Morgunblaðið - 25.11.1973, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÖVEMBER 1973
Fa
JJ Hl I. t l.l. lf. i X
ÍAFiit;
22*0-22-
RAUDARÁRSTIG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
ITEL 14444 • 25555
mm/Ð/fí
IBlLALEIGA CAfUjENTAlJ
IPB
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
*24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
Kasettutæki
OAN.RINTAL-
^Hverfisgötu 18
SENDUM \f\ 86060
SAFNAST ÞEGAR
. SAMAN
§ SAMVINNUBANKINN
emur;
G. ÞORSTEINSSON
& JOHNSON H.F.
FYRIRLIGGJANDI OG TIL
AFHENDINGAR STRAX
EÐA BRÁÐLEGA ERU
EFTIRFARANDI VÉLAR
OG TÆKI:
BANDSÖG FYRIR TRÉ
14”
HJÓLSÖG FYRIR TRÉ
12"
SAMBYGGÐ HJÓLSÖG
9” OG AFRÉTTARI4”
RAFSUÐU-TRANSARAR
140 OG 225 AMP.
FRÆSIVÉL FYRIR STÁL.
STANSA-PRESSUR 15
OG 30 TONNA
MASTER HITARAR.
EISELE PRÓFÍLASAGIR
MEÐ OG ÁN KÆLINGU
BÍLALYFTA
KANTLÍMINGAPRESSA
G. ÞORSTEINSSON
& JOHNSON HJF.
Ármúla 1.
Slmi 8-55-33.
Dugnaður,
reglusemi,
sparsemi
NU á enn að hefja umræður
um kaup og kjör. Og sannarlega
skal þeim hjálpað, sem bágt
eiga.
Kröfur og kauphækkanir
verða kjörorð í fjölmiðlum og á
mannþingum mánuðina næstu,
en þar skal hugsun og sann-
girðni til.
Þeir launalægstu eiga að fá
hækkun. Réttlætið skal ríkja.
Sannarlega er það vel. „bar
sem fjársjóður þinn er, þar
mun og hjarta þitt vera,“ sagði
vitur maður, eða var það
kannski Guð fyrir þúsundum
ára. Þetta er óhagganlegt sál-
fræðilegt lögmál, sem lftt verð-
ur um breytt. Heimskingi og
heimspekingur þurfa að gæta
þess báðir.
Auðvitað er fjársjóður fleira
en peningar. En í daglegri af-
komu verður að taka tillit til
þeirra.
Einmitt þess vegna á að hefja
umræður, samninga, deilur og
verkföll um kaup og kjör.
Auðvitað verður talið, að ves-
æll prestur ætti að halda sig að
sinni altarisbrík og ekki blanda
sér I svo háleit hugarefni sem
auramál fjöldans.
En hér eru nokkrar fornar
dyggðir ífjarska.sem hefur þótt
betra að hafa í nánd hingað lii
ef vel á að fara í þjóðaroúskap.
Ileilbrigt og heiðarlegt fólk á
líka sinn rétt. Og satt að segja
hafa íslenzkir prestar verið að
efla þær f fræðslu sinni um
aldir sem hluta af þeim grunni,
sem þjóðarheill byggist á.
En hvernig hefur þeirra
verið gætt í umræðum um kaup
og kjör, i kröfum og kauphækk-
unum undanfarin ár og ára-
tugi?
Allir hlutir hafa tvær hliðar
eða fleiri og hægt að skoða þá á
margan hátt.
Ilvernig er farið meðdugnað-
inn, duglega fólkið, i landi, þar
sem fólk er beinlínis krafið um
hverja krónu, sem það vinnur
sér inn í tómstundum og af
dugnaði, iðjusemi og elju?
Duglega fólkið er hundelt,
skattelt og skattpínt. i stað þess
að sú króna, sem unnið er fyrir
I yfirskyldustarfi samkvæmt
lögmálinu um hjartað og fjár-
sjóðinn, ætti að vera frjáls eign
eigandan síns og fyrirvinnu, þá
hefur sú króna verið tekin af
hálfu eða meira, og mun meira
tekið sem meiri dugnaður hafði
komið í ljós.
Bein afleiðing á venjulega
mannsál er auðvitað: Ilvatning
til iðjuleysis og dáðleysis
annars vegar — skattsvik og
óheiðarleiki hinsvegar.
Reglusemi er kannski ekki
eins illa leikin og iðjusemi og
dugnaður. En samt er gert ráð
fyrir, að reglusama fólkið, ekki
sízt, ef það heitir nú foreldrar,
eigi að stofna og starfrækja
skóla, hæli og spítala handa
þeim, sem gera kröfur til að
lifa, láta og neyta í taumlausri
kröfu og án allrarreglusemi.
Hver borgar fyrir fólkið f
dýru skólunum, þar sem sífellt
er heimtað meira gólfpláss,
Við gluggann
eftb », Arelius Nielsswo
stærri og fínni stofur, lærðari
kennarar og fullkomnari
kennslutæki? Hver borgar
sjúkrahús, byggingu þeirra,
starfrækslu og alla þeirra turna
og konunglega óhóf og prjál?
Hver borgar fyrir svo ótal
marga, sem ættu að vinna, en
hafa eytt starfskröftum sinum,
áður en þeir vissu af, í veizlur
og vinþamb?
Er það ekki þetta fáa heil-
brigða og heiðarlega fólk —
reglusama fólkið í landinu?
Ég segi fáa. Ef frá
eru talin börn og gamal-
menni, sjúklingar og aumingj-
ar, skólafólk og iðjuleysingar,
þá er það ekki margt reglusama
fólkið, sem ber uppi alla
bygginguna. Og launin, sem
það fær, er last og meiri kröfur.
Og þá er það sparsemin.
í landi, þar sem allt virðist
hafa verið gert árum saman til
að gera krónu að aurum og aura
að engu, virðist ekki vanþörf á
að spara, ef unnt yrði að auka
verðgildi fslenzks gjaldmiðils,
gengi ísl. krónu, sem þrátt fyrir
framleiðslu duglega fólksins á
fiski, iðnvarningi og kjöti, er
fyrirlitin á peningamarkaði
heimsins.
Fólk er að sjálfsögðu hvatt til
að leggja aurana sína á banka.
Og hvað væri jafnvel Seðla-
bankinn með alla sina höll og
andúð og rifrildi, ef enginn
lagði krónu í hann?
En eins og duglega fólkinu er
refsað með sköttum og reglu-
sama fólkinu er hengt með
kröfum, þá er sparsama fólkið
pínt með gengislækkunum og
verðhækkunum. Hálfa milljón-
'in sem þú áttir i hitteðfyrra og
hélzt þú værir að verða ríkur,
af því að þá var hægt að fá fyrir
hana hálfa þriggja herbergja
íbúð — eða var það kannski
fyrir þrem árum — hún er ekki
einu sinni aumasta bílskúrs-
virði núna.
„Þao er þó munur, að nú eru
vextirnir svo háir,“ segir ein-
hver Jú, það er ljósblik f
myrkri fyrir sparsama fólkið,
en nær þó skammt til að vega á
móti öllu flóðinu, sem kröfurn-
ar um kaup og kjör gera í fjár-
sjóðinn þinn, ásamt verðhækk-
unum og gengislækkunum.
Öskandi væri, að þeir vísu
herrar og frúr, sem eiga að ráða
næsta áfanga i kjaramálum,
athugi, að enn eru dugnaður,
reglusemi og sparsemi horn-
steinar hárra sála. Og hvað
verður um þá, sem aumir eru,
þegar heilbrigt og heiðarlegt
fólk hættir að vinna, fer að
svalla og sparar ekki framar —
eðaverður að flýjaland?
Reykjanesmótið f bridge
hófst sl. sunnudag. Formaður
bridgefélags Reykjaness, Ágúst
Helgason setti mótið og gat þess
að í ár yrði keppnin tvíþætt,
þ.e. forkeppni fyrir íslandsmót-
ið og meistarakeppni Reykja-
ness. Spilað verður annan
hvern sunnudag og verður næst
spilað sunnudaginn 2. nóv. nk.
16 sveitir mættu til keppni að
þessu sinni, en aðeins var spil-
uð ein umferða á sunnudaginn
var.
Urslit fyrstu umferðarinnar
urðu þessi:
Sveit:
Sigurðar Emilssonarvann
Boggu Steins. 20 — 2
Gunnars Sigurbjörnssonar
vann
Marons Björnssonar 16—4
Ágúst Helgasonar vann
Bjarna Sveinssonar 20—0
Jónas Gislasonar vann
Hauks Ilannessonar 11 — 9
Ilaralds Brynjólfssonar vann
Kára Jónassonar 16 — 4
Ölafs Lárussonar vann
Ulfars Eysteinssonar 20 — 5
Guðmundur Jakobsson vann
Grétars Róiskranss. 14 — 6
Sigurhans Sigurhanssonarfékk
vinning á móti sveit Vals
Sfmonarsonar 20
mætti til leiks.
Keppnisstjóri er
Gíslason.
xxxxx
5 sem ekki
Tryggvi
Reykjavíkurmeistaramótið í
tvímenning, sem verður i baro-
metersformi hefst 4. desember
nk. Ráðgert er að spila í tveim-
ur 28 para riðlum, meistara- og
fyrsta flokki. Spilaðar verða 3
umferðir 4., 17. og 18. desember
á Domus Medica. Þátttaka til-
kynnist tíl bridgefélaganna í
Reykjavik.
X X X X X
Frá Bridgefélagi Hafnarfjarð-
ar.
Urslit úr 3. og 4. umferðum
sveitakeppninnar urðu þessi:
3. UMFERÐ:
Sveit Halldórs vann
sveit Þorgeirs 13 — 7
Sveit Ásgeirs vann
sveitJóns 20 — 0
Sveit Sævars vann
sveit Einars 20 — 0
Sveit Sigurðar S. vann
sveit Ulfars 18 — 2
Sveit Kristjáns vann
sveit Sigurðar E. 12 — 8
Sveit Óla Kr. vann
sveit Þrastar 15 — 5 Hörður Jóhannesson 296
4. UMFERÐ: Borgarneshreppur
Sveit Ásgeirs vann Guðjón Pálsson 295
sveit Sigurðar S. 14 — 6 Vatnsveita Borgarness
Sveit Sævars vann Jón Kr. Guðmundss. 293
sveit Kristjáns 12 — 8 Prjónastofa Borgarness
Sveit Sigurðai* E. vann Björn Hermannsson 283
sveit Óla Kr. 19 — 1 Samvinnutryggingar
Sveit Halldórs vann Jón Einarsson 283
sveit Jóns 12 — 8 Trésm. Þorsteins Theó-
Sveit Þorgeirsvann dórssonar
sveit Ulfars 17 — 3 Guðjón Stefánsson 280
Sveit Einars vann Verslunin Stjarnan
sveit Þrastar 20 — 0 Guðmundur Arason 279
Staða efstu sveita er nú þessi:
Sævars Magnússonar 71
Sigurðar Emilssonar 60
Kristján Andréssonar 51
Ilalldórs Einarssonar 45
Ásgeir Gunnarssonar 45
Einars Guðjohnsen 43
xxxxx
Nýlega er lokið einmennings-
keppni Bridgefélags Borgar-
ness, sem jafnframt var firma-
keppni. Spilaðar voru 3 umferð-
ir og varð röð efstu para og
firma þessi:
Rafveita Borgarness
Unnsteinn Arason 325
Verslunin Brák
Jenni R. Ólason 303
Brauðgerð K.B
Anna Ingadóttir 301
B. T. B.
Rögnvaldur Ingólfss. 297
Kjötbúð K.B
Neshúsgögn
Ilólmfríður Sigurðard. 279
Ilannyrðaversl. Jórunnar
Bachmann
Jórunn Bachmann 279
Mjólkursamlagið
LeóJúlíusson 278
Nú stendur yfir 6 kvölda tví-
menningskeppni.
xxxxx
Frá Bridgefélaginu Asarnir
Kópavogi.
Að loknum 4 umférðum í
sveitakeppni félagsins er röð
3ja efstu sveita þessi:
1. Sveit Vilhjálms Þórssonar 69
stig
2. — 3. Sv. Jóns Andréssonar 63
stig
2- — 3. Sv. Þorsteins
Jónssonar 63 stig
Sveitir Vilhjálms Og Jóns
spila saman í næstu umferð.
A.G.R
JJJJJJJJ
'JJJJoJlíiJ/J-
JJJiJJJ
TtU vinsælustu lögin á Islandi þessa dagana, samkvæmt útreikn-
ingum þáttarins „Tfu á toppnum":
1 (1) Candygirl..............................Pal Brothers
2 (3) Daydreamer .......................... David Cassidy
3 (6) Sorrow..................................David Bowie
4 (4)1 shall sing............................Art Garfunkel
5 (2) My friend Stan ...............................Slade*
6 (—) Broken dowo angel ...........................Nazareth
7 (—) Are you lonesome tonight .............Oonnv Osmond
8 (8) Photograph .............................RingoStarr
9 (5) Whyme ............................Kris Kristofferson
10 (—) Drift away ..............................Dobie Gray
Af listanum féllu fimm lög: Top of the world — Carpenters (7),
Rock on — David Essex (9), We’ve got to do it now — New Seekers
(10), Sail around the world — I)avid Gates (—) og All the way
from Memphis — Mottthe Hoople (—).
Nýju lögin fimm eru:
11 My music..............................Loggins & Messina
12 Mind games .................................John Lennon
13 Farewell Andromeda.........................John Denver
14 Igotáname ...................................Jim Croce
15 Mamyblue........................................Stories
Candy girl fékk óvenju mikið atkvæðamagn af vinsælasta lagi að
vera, eða 162 atkvæði. Var bréfabunkinn til þáttarins f stærra lagi
þessa vikuna, sennilega vegna þess, hve góð lögin á listanum eru. —
Merkið aftan við nafn Slade táknar það, að lagið er búið að vera sex
_vikur á listanum og fær ekki að vera lengur, dettur út af listanum
hér eftir, hvað sem það fær mörg atkvæði.