Morgunblaðið - 25.11.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NOVEMBER 1973 7
Kvikmyndir
Eftir Björn Vigtti Sígurpálsson
Atriði úr sfðustu m.vnd Resnais — Je
T'Aime, Je T'Aime, Þar var vísindaskáld-
sagan á dagskrá, nú er það veruleikinn.
Resnais
og
Stavisky-hneykslið
Góðar fréttir frá Prakklandi:
Alain Resnais er í óða önn að
klippa nýjustu mynd sína í
París þessa dagana, og ef að
líkum lætur, er hennar beðið af
sömu eftirvæntingu og gilt hef-
ur um fyrri myndir hans.
Resnais svíkur engan — að
minnsta kosti má ganga út frá
þvf sem vfsu, að áhugamenn
um kvikmyndir fái eitthvað að
tal um, þegar þessi nýjasta
mynd Resnais verður tekin til
sýninga.
Þessi nýjasta Resnais-mynd
hefur hlotið heitið „L‘Empire
d'Alexandre" og hefur verið
unnið að tökum hennar á
undanförnum mánuðum i
Birarritz, Barbizon, París og
Chamonix. Á þessum stöðum
gerðust sögulegir atburðir
snemma á fjórða áratug þess-
arar aldar, er Stavisky-málið
svonefnda kom upp og olli sliku
fjarðrafoki, að það hrikti f stoð-
um franskra stjórnarkerfisins,
á þeim byggir myndin.
Resnaís hefur að vanda feng-
ið góða menn til liðs við sig.
.franski rithöfundurinn Jorge
Semprun annast handritið, en
þeir Resnais hafa áður unnið
saman í ,,La Guerre Est Finie“
með ágætum árangri. Semprun
þessi er einnig kunnur sem
handritahöfundur fyrir Costa-
Cavras. í aðalhlutverkinu,
Alexandre Stavisky, er hins
vegar Jean-Paul Belmondo, og
ef ég man rétt, er þetta í fyrsta
skipti, sem þeir Resnais vinna
saman. Belmondo mun einnig
hafa fjármagnað gerð þessarar
myndar að verulegu leyti.
Resnais hefur ekki verið ýkja
afkastamikill kvikmyndagerð-
armaður, en myndir hans hafa
orðið þeim mun langlífari í
hugum kvikmyndaunnenda.
NU eru liðin fjögur ár frá því að
siðasta mynd hans, „Je T'Amie,
Je T'Amie'* sá dagsins ljós, og
vakti — eins og vænta mátti —
mikla og verðskuldaða athygli.
Fáeinum mánuðum síðar var
hún sýnd hér sem mánudags-
mynd, og eins og menn munu
vafalaust minnast .ék Resnais
sér að því i þeirri mynd, að
raska efnisþræðinum í tima og
rumi, og varð myndin fyrir
bragðið bæði dularfull og tor-
melt i fyrstu viðkynningu. Þar
var þar frábær tækni Resnais í
klippingu, sem ferðinni réð,
enda verður handbrag hans á
þessu sviði að telja helzti aðall
mynda hans. Þær eiga það flest-
ar sammerkt að róta ærlega
upp í skynfærum áhorfandans,
rugla hann jafnvel i ríminu, og
gefa gjarnan tilefni til enda-
lausra rökræðna og vanga-
veltna um tUlkun smæstu
atriða myndanna. Og þarátt
fyrir oft og tíðum áþekk vinnu-
brögð verður maður aldrei var
við endurtekningu i verkum
Resnais.
Þótt einatt sé erfitt fyrir
áhorfandann að nálg«st myndir
Resnais og honum sé ftorið á
brýn að takast aðeins á við tor-
ræð viðfangsefni, staðhæfir
Resnais sjálfur, að slíkt sé alls
ekki vísvitandi ásetningur við
gerð myndanna. Þvert á móti
bendir hann á, að hann hafi
aðeins þrisvar eða fjórum sinn-
um neitað handriti vegna þess,
að honum féll ekki efniviður-
inn. „Mér finnst jafnan, að ég
þiggi allt það, sem á fjörur min-
ar rekur,“ segir hann, „og að ég
segi alltaf já, þegar handrit
stendur mér til boða.“
Hitt er eins víst, að Resnais
er ekki einstefnumaður hvað
kvikmyndir áhrærir og eitt
sinn lét hann þau orð falla, að
hann væri aðeins reiðubUinn til
að helga kvikmyndum 50% til-
veru sinnar. „Það eru leikstjór-
ar, sem ekki hugsa um annað
en kvikmyndir, þær eru þeirra
ær og kýr,“ segir hann. „Ifjá
mér er þessu öðru vísi farið. Eg
er kiofinn í herðar niður. Mér
þykir til að mynda ákaflega
gaman að lesa, fara i leikhUs,
hjóla á reiðhjólinu minu og
heimsækja vini mína. Ég hef
alltaf átt í efiðleikum með að
einbeota mér að einhverju
einu.“ Hann ferðast einnig
nokkuð, en ferðirnar, sem hann
og kona hans, dóttir André
Malraux, taka sér á hendur, eru
síður en svo ævintýralegar.
„Ítalia, TUnis, Skotland, þessir
venjulegu staðir," segir hann.
„Metnaði minum er mjög stillt í
hóf.“
Kannski er það þess vegna,
sem þessi hófsemdanna maður
hefur látið heillast af persónu-
leikanum Alexandre Stavisky.
Stavisky þessi er algjör and-
stæða Resnais. Hann var að-
sópsmikill og næstum að-
laðandi þorpari, sem komst til
töluverðra metorða í Frakk-
landi. En árið 1934 eða þar um
kring var flett ofan af geysilegu
f jármálahneyksli, þar sem
hann reyndist höfuðpaurinn,
og litlu síðar kom til dularfull-
ur dauðdagi hans í Chamonix.
Út af þessu var heilmikið uppi-
stand í Frakklandi. Stjórnin
varð að hrökklast frá völdum
við lítinn orðstír og fasistar
fengu byr undir báða vængi.
Resnais segist þó ekki hafa í
hyggju i þessari mynd að beina
spjótum sinum sérstaklega
gegn pólitískri og fjármálalegri
spillingu samtímans, þó að
hann segi öll hneyksli hvert
öðru lík, heldur vaki fyrst og
fremst fyrir honum að bregða
upp mynd af þessum heillandi
þrjóti.
Satt að segja hefði maður átt
von á pólitísku ívafi, þar sem
Semprun á f hlut. „Þetta verð-
ur ekki nein skýrsla um málið,“
segir hann þó. Hann hefur pælt
í gegnum öll þau skjöl, sem
birzt hafa á prenti um Stavisky-
málið, meira að segja 7.000 bls.
greinargerð stjórnvalda um
málið, og byggt handritið á
þessum lestri. „Myndin verður
eins konar UtUrdúr um mann-
inn og tímana, sem hann lifði.
Þetta voru erfiðir timar, nasis-
minn f fæðingu, fjármálaöng-
þveitið i algleymi, svo að tónn
myndarinnar verður meira í
ætt við Lubitsch en Losey,“ seg-
ir Semprun.
Semprun segir einnig, að
Resnais sé kröfuharður hús-
bóndi, og að ekki sé óalgengt,
að hann þurfti að hrista fram
úr ermi 1000 blaðsíður til að Ur
verði 130 sfðan handrit, sem
Resnais getur fellt sig við.
Resnais segir hins vegar, að það
sé mest þreytandi þáttur kvik-
myndagerðarinnar að fylgjast
með því þegar handritið er að
verða til.
Resnais er nU fimmtugur og
ári betur. Hann fæddist f
Vannes í Brittany, og þar sá
hann fyrstu þrjár kvikmyndir
lífs síns — visindaskáldsögu-
mynd, mynd með Harold Lloyd
og heimildarmynd um ræktun
bauna, og þessar myndir hafa
haft mest áhrif á hann sem
kvikmyndagerðarmenn, að
hans eigin sögn. Einnig segist
hann eiga teiknimyndasögum
dagblaðanna mikið upp að
unna, og raunar stóð til, að
næsta mynd hans yrði sótt í
eina slfka teiknimyndasögu —
eftir Bandaríkjamanninn Stan
Lee. Af því gat þó ekki orðið
vegna þess hve myndin hefði
orðið dýr.
Fyrsta verkefni Resnais inn-
an kvikmyndanna var aðstoðar-
klipparastarf hjá Nicole Vedrés
í „París 1900“, þeirri sögu-
frægu heimildamynd frá árinu
1945. Ilann fór síðan sjálfur að
fást við gerð heimildamynda,
og merkust þeirra er talin
„Nuit et Brouillard“, hrikaleg
lýsing á fangabUðum nasista.
Resnais telur sjálfur, að
heimildamyndirnar hafi orðið
honum góður skóli og undir-
búningur fyrir sagnamyndirn-
ar siðar.
Frumvarp hans á því sviði
var annars „Hirosima Mon Am-
our“. Um hana sagði Godard á
, sínum tima, aö hun væri þess
háttar mynd, sem ómögulegt
hefði verið að sjá fyrir á grund-
velli fyrri vitneskju um kvik-
myndir. „Hirosima" var svo
endursýnd í Paris í fyrra og
fékk þá engu lakari móttökur
en þegar hún var fyrst frum-
sýnd. „Ég var steinhissa á því,
að hún skyldi enn höfða til
fólks,“ sagði Resnais.
„L'Année Derniére á Marien-
bad" fylgdi í kjölfarið tveimur
árum siðar — í senn fallegasta
og einnkennilegasta mynd
Resnais. Þar setur Resnais
fram eina af grundvallar-
kenningum sínum um kvik-
myndir — þ.e., að í þeim eigi
imyndurafl aáhorfandans að fá
jafn lausan tauminn og iesand-
inn hefur við lestur skáldsög-
unnar. Enda for svo, að frelsi
fmyndurnaraflsins í Marienbad
leiddi til endalausra rökræðna,
vangaveltna og jafnvel deilna
um skilning á myndinni, og
hafa þær staðið allt fram á
þennan dag. NU er aðeins að sjá
hvort Resnais verði þessari
kenningu trUr í „L'Empire
d‘Alexandre“ og raunar bendir
ýmislegt til þess. Alltént finnst
manni hvað mestur skyldleiki
með Marienbad og síðustu
mynd Resnais „Je T'Aime en sU
staðreynd, að hann vinnur nU
aftur með Jorge Semprun og
gæti að vísu einnig gefið til
kynna, að hefðbundnari leiðir
verið farnar, likt og átti sér stað
í „La Guerre Est Finie“.
EIGNIZT VINI UM
ALLAN HEIM
Gangið í stærsta pennavinaklúbb í
Evrópu. Sendum ókeypis bæklmg.
HERMES,
Berlin 11,.
Box 1 7,
Germany
KLÆÐNINGAR — BÓLSTRUN
sími 12331. Klæði og geri við
bólstruð húsgögn Áklæðissýnis-
horn
Bólstrunin Blönduhlið 8
sími 1 2331
LEIKJATEPPIN
með bilabrautum, sem fengust i
Litlaskógi, fást nú á Nökkvavogi
54. Opið frá kl. 13—20 simi
34391 Sendum gegn póstkröfu
JARÐYTA TIL LEIGU
22 tonna ýta með Ripper tii leigu i
stærri og smærri verk. Upplýs-
ingar i sima 51 857.
JARÐYTA
Vil kaupa jarðýtu 2Ó-—2 7 tonna,
Caterpillar Tilboð ásamt upplýs-
ingum sendist í pósthólf 1381,
Reykjavík, sem fyrst.
KEFLAVÍK
Einhleypan mann vantar 1—2
herbergi með sérinngangi,
Upplýsingar í sima 1081 á vinnu-
tima
BRONCO TIL SÖLU
árg '66
I góðu ástandi Uppl i sima 92-
8264
ÍBÚÐIR TIL LEIGU
Hefi 2 íbúðir til leigu i Keflavik
Uppl aðeins á skrifstofunni
Garðar Garðarsson hdl , Tjarnar-
götu 3, Keflavík.
NOTUÐ SKURÐGRAFA
ÓSKAST
Sími 15773.
TILSÖLU
SAAB 96 árg 1970
Uppl. í sima 23895.
RAMBLER AMERICAN 1966
til sölu Samkomulag með
greiðslu
2ja — 3ja ára skuldabréf kemur til
greina Simi 1 6289
TILSÖLU ER
MERZEDES BENS 1518
með framdrifi Burðarmagn á palli
8 700 kg. Upplýsingar i síma
31217
ÚRVALS SÚRMATUR
Súrsaðir lundabaggar, hrútspung-
ar, sviðasulta, svinasulta. Úrvals-
hákarl, sild og reyktur rauðmagi.
Harðfiskur, bringukollar.
Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2,
s’mi 35020
HEIÐRUÐU LESENDUR
Tökum að okkur úrbeinmgu á öllu
kjöti og göngum frá þvi i neyt-
endapakningar bæði fyrir heimili
og verzlanir
Sækjum og sendum.
Uppl. i simum 32496 — 72475.
HESTAMENN!
Bás i hesthúsi til leigu
Leigan greiðist með gegningu á
móti öðrum
Uppl i sima 23725 og 85755
MINKAPELS TIL SÖLU
Nýr cape, Ijós brúnn
..Natural pastel mink '.
Simi 16452. mánudagskvöld
TILSÖLU
Dodge sendibíll, lengri gerð árg
'6 7 Upplýsingar i sima 7 1143
eftir kl. 5.
KEFLAVÍK
Vantar mann vanan bílaviðgerðum
strax
Bílasprautun, Suðurnesja,
simi 1081.
TILSOLU
Mustang '71 með V—8 vél 302
cc, dökkgrænn, sjálfskiptur með
powerstýri og bremsum
Upplýsingar i sima 37203.
HORNET ’71
Til sölu fallegur Hornet '71 með
vökvastýri, útvarpi og nýjum snjó-
dekkjum. Mjög góður bíll. Skipti
koma til greina Uppl i sima
38819
Eldhúsborð til sölu á sama stað
ÍBÚÐ TILLEIGU
5 herbergja hæð til leigu i 5 — 6
mánuði. Tilboð, er tilgreini fjöl-
skyldustærð. sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir hádegi á miðviku-
dag, merkt: „Vesturbær '. 3276
CITROEN DS 19 1965
til sýnis og sölu.
Samkomulag með greiðslu.
Simi 16289
LJÓSMYNDAVÉL 35 MM
Til sölu ný Minolta SRT 101 F:
1.4 = 58 mm Telelinsa F: 3,5 =
200 mm "9 þrifótur Uppl i sima
18242.
STÓR 2JA HERB. ÍBÚO
i Sundunum til leigu i 6 _ 9
mán., með eða án húsgagna.
Reglusemi skilyrði
Tilboð sendist Mbl fyrir 30 növ
merkt: „807".
KVENFÉLAG
ÓHÁÐA SAFNAÐARINS
Basar félagsins verður laugardag
1 des. kl. 2 i Kirkjubæ.
&
Ekki er ráð nema i tíma sé tekið, ef þér ætlið að senda
vinum erlendis matarpakka fyrir jólin.
Höfum eins og undanfarið ár okkar vinsæla „Gift parcel
from lceland". staðlaðan pakka, sem inniheldur íslenzkan
mat, svo sem: Hangikjöt — harðfisk — svið — reyktan
lax — reykta síld — kavíar — kæfu — lifrakæfu —
smjörsíld og rækjur.
Þess utan getur hver og einn valið eftir eigin smekk.
Verið velkomin úrvalið er meira en yður grunar.
SS-búÓirnar