Morgunblaðið - 25.11.1973, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÖVEMBER 1973
15
Nýjar íslenzkar plötur
— og poppfréttir í ábæti
SLAGSlÐAN hringdi í þrjá
íslenzka hljómplötuútgefendur
um daginn og leitaði frétta af
plötuútgáfu þeirra fyrir jölin.
Á næstunni mun reynt að ná f
fréttir hjá fleiri útgefendum,
svo að lesendur fái sæmilega
gott yfirlit yfir plötur á jóla-
markaðnum. En snúum okkur
þá að þessum þrcmur fyrstu:
Um útgáfu Fálkans varð
Ólafur Haraldsson fyrir svör-
um og nefndi hann þessar
plötur:
0 Stór plata frá Rfó-piltunum,
sem heitir „Allt í gamni“, en
það nafn tóku þeir upp í Banda-
ríkjaferð sinni, eftir að Gunnar
Þórðárson hafði bætzt í hópinn
og Rfó var ekki lengur tríó.
Platan var tekin upp í Osló í
haust og eru á henni bæði
erlend lög og frumsamin lög
piltanna fjögurra.
0 Stór plata með söng
hjónanna Þuríðar Sigurðar-
dóttur og Pálma Gunnarssonar.
Platan var tekin upp f Osló um
leið og plata Ríóstrákanna.
Koma margir hljóðfæraleikarar
þar við sögu, þar af þrír íslenzk-
ir, þeir Gunnar Þórðarson, sem
leikur á gítar, Pálmi sjálfur,
leikur á bassa, og Karl Sig-
hvatsson á orgel og píanó. Aðrir
hljómlistarmenn eru norskir.
• Fjögurra laga plata með
Alla Rúts, þar sem hann syngur
jólasveinalög fyrir börnin, svo
og Poppkornslagið með nýstár-
legum texta.
0 Fjögurra laga plata með
Eyjaliðinu er komin á markað,
en þar eiga hlut að máli Asi í
Bæ, Árni Johnsen, Gísli og
Arnþór Helgasynir, Ami Sig-
fússon og Ömar Sigurbergsson.
Á plötunni eru eldheitir óðir til
Eyja og allur ágóðinn rennur til
uppbyggingar f Eyjum.
Því má svo bæta við, að á
næsta ári kemur út plata frá
lokahljómleikum Rfó trfósins.
Tónaútgáfan á Akureyri
iiefur lagt aðaláherzluna á út-
gáfu platna með norðlenzkum
listamönnum.
Pálmi Stefánsson, eigandi út-
gáfunnar, nefndi þessar plötur:
• Stór plata með söng Bjarka
Tryggvasonar, sem er i hljóm-
sveit Ingimars Eydal. Bjarki
syngur tólf lög og hefur útsett
öll sjálfur og stjórnar undir-
leiknum.
0 Lítil plata með sjö barnalög-
um, sungnum af kór Barna-
skóla Akureyrar.
0 Tveggja laga plata með söng
Erlu Stefánsdóttur. Lögin heita
„Sannfæring“ og „Eg skilið ei
fæ“, bæði af erlendum
uppruna. Á enskunni heita þau
„Top of the World“ og „End of
the World“, hið fyrra frá
Carpenters og hið sfðara gamal-
kunnugt lag Skeeter Davis.
0 Tveggja laga plata með
hljómsveit Ingimars Eydal.
Annað lagið er íslenzk útgáfa á
geysivinsælu Spánarlagi, „E
Viva Espana“ en hitt heitir
„Lfttu inn“.
Fyrir tveimur mánuðum kom
út á vegum Tónaútgáfunnar
lítil plata með leik hljóm-
sveitarinnar Ljósbrá,’ sem er
norðlenzk — að sjálfsögðu.
M.M. — hljómplötur, nýlegt
fyrirtæki Magnúsar Kjartans-
sonar, senda innan tíðar á
markað stóra plötu Magnúsar
Kjartanssonar, „Clockwork in
Cosmic Spirits", sem hljóðrituð
var í Englandi f sumar.
Fleiri plötur gefur það fyrir-
tæki ekki út í bili, en Magnús
sagði okkur hins vegar ýmsar
fréttir, m.a. þessar:
0 John Miles Set hélt af landi
brott í byrjun vikunnar. Hafði
trfóið hlotið góða aðsókn og
góðar undirtektir á dansleikj-
um hér á landi og voru liðs-
menn þess ánægðir að ýmsu
leyti, en vilja gjarnan koma
aftur næsta sumar til að sýna
Islendingum, að tríóið geti gert
miklu betur, þegar það hefur
sín eigin hljóðfæri og
magnarakerfi. Ný lítil plata
tríósins kom á markað í
Englandi 5. nóv. sl. og ætlar
Maggi Kj. að flytja inn dálítið
upplag af henni til sölu í helztu
hljómplötuverzlunum hér.
Lögin heita „One minute every
hour“ og „Hollywood queen“.
0 Maggi mun einnig fá til
dreifingar næstu daga plötuna
„Candy girl“ með Pal Brothers,
þ.e. Magnúsi og Jóhanni.
Þessar plötur eru gefnar út af
Orange-fyrirtækinu I Bretlandi
og er Maggi umboðsaðili fyrir
það hér á landi.
0 Um jólin eða strax eftir ára-
mót koma á markað hérlendis
tvær tveggja laga plötur frá
Orange, báðar með Change.
Eru þetta lög af stórri plötu,
sem Change hóf upptökur á í
sumar, en Iauk ekki við að
sinni. Change eru að sjálfsögðu
þeir Magnús og Jóhann og
félagar.
0 Ákveðið hefur verið, að
Orange-fyrirtækið gefi út f
Bretlandi plötu meðlagi Magga
Kjartans, „My friend and I“, en
sungið af pilti af nafni
Anthony. Maggi Kj. segir hann
vera af Osmondgerðinni, sætan
strák. Aukið hefur verið við
útsendingu lagsins frá því sem
Maggi Kj. gerði í sumar, er
hann hljóðritaði grunnundir-
leikinn; nú eru komin blásturs-
hljóðfæri, synthesizer o.fl. i
undirleikinn.
0 John Miles hefur valið lag
Magnúsar úr „... lifun", „To be
grateful", sem aðallag á næstu
litlu plötu sína og fer Maggi Kj.
utan í janúarbyrjun til að vera
meðstjórnandi við upptökur á
laginu.
0 Maggi stendur nú í samning-
um við Hauka um útgáfu á
stórri plötu með leik þeirra,
söng og einhverju af þeirra
fræga sprelli.
Og svo er það rúsínan I pylsu-
endanum:
0 Maggi gerir ráð fyrir, að ein-
hvern næstu daga verði gengið
endanlega frá samningum við
SLADE um Íslandsheimsókn.
Er hann Ámunda til aðstoðar
við samningagerðina.
Þóra Lovísa
og Gunnar spurð um Leikfélag
Hafnarfjarðar
JJAilgU
urlék
hálfan
asna
Leikendur
í Sannleiks-
festinni —
talið
að ofan:
ólfur,
Skúli,
Helga
■ v.),
Guðbjörg
(t.h.),
Geirlaug,
Gunnar M.,
Þóra Lovísa
og
Gunnar F.
□ HUGMYND FÆOIST. Hvernig
væri að stofna leikhóp ungs fólks
með það að markmiði að setja upp
barnaleikrit sem upphaf að leikstarf-
semi i Hafnarfirði?
□ HUGMYND KYNNT. Einn fær
að heyra hana á skemmtistað, annar
á götu og svo koll af kolli. Innan
tiðar er kominn hópur ungs fólks,
sem hefur áhuga á viðfangsefninu.
□ HUGMYND FRAMKVÆMD.
Leitað er til bæjaryfirvalda i Hafnar-
firði um aðstoð og þau taka beiðn-
inni vel, lána Bæjarbíó endurgjalds-
laust til æfinga og taka aðeins lága
greiðslu fyrir sýningar. Hópurinn fer
að æfa i september og semur leikrit-
ið sjálfur Byggt er á þriggja blað-
siðna sögu úr gömlu kveri, hug-
myndum varpað fram á æfingum af
miklum krafti og þær beztu valdar
úr Búningar og leiktjöld gerð i sam-
vinnu. Allur hópurinn tekur þátt i
undirbúningi
Þóra Lovisa og bangsi — aukafé-
lagi i Leikfélagi Hafnarfjarðar.
□ HUGMYND ORÐIN AÐ VERU-
LEIKA.
Föstudaginn 17. nóv. sl., kl. 5
síðdegis, var barnaleikritið Sann-
leiksfestin frumsýnt i Bæjarbiói í
Hafnarfirði. Á föstudaginn var það
aftur sýnt. tvisvar sinnum, og á
morgun verða aðrar tvær sýningar.
Siðan verður leikritið riæst sýnt um
næstu helgi.
Það er Leikfélag Hafnarfjarðar,
sem sýnir verkið. L.H. hefur ekki
starfað i niu ár, en þegar unga fólkið
ákvað að standa fytir leikstarfsemi í
Hafnarfirði, bauðst þvi að nota nafn
leikfélagsins.
Slagsiðan ræddi við tvö úr leik-
hópnum, þau Þóru Lovísu Friðleifs-
dóttur og Gunnar Magnússon, um
þetta starf Þóra Lovisa var upphafs-
maður að hugmyndinni og fram-
kvæmd hennar. Hún er úr Hafn-
arfirði og sagði, að sér hefði fundizt
skömm að þvi, að ekkert væri gert í
leiklistarmálum þar og að ágætt leik-
hús, Bæjarbió, stæði ónotað ,,Ég
talaði við vini mina um þetta og svo
fórum við að æfa og sömdum leikrit.
Okkur fannst ekki nógu mikið gert
fyrir börnin i leikhúsunum og barna-
leikrit væri þvi það eina umtalsverða
í augnablikinu."
Alls eru tiu félagar i hópnum, átta,
sem leika, og síðan Ijósameistari og
sviðsstjóri. Allt ungt fólk, á aldrinum
frá 1 7 ára til þritugs. Þau átta, sem
leika, er Þóra Lovísa Friðleifsdóttir,
Geirlaug Þorvaldsdóttir, Gunnar
Magnússon, Ingólfur Sigurðsson,
Skúli Gislason, Guðbjörg Helgadótt-
ir, Helga B Björnsdóttir og Gunnar
Friðþjófsson, sem er höfundur laga
og söngtexta í leikritinu Lárus
Björnsson er Ijósameistari og Jó-
hann Árnason svaðsstjóri eða „alt-
muligmand". Flest eru þau nýliðar i
leiklistinni, utan Þóra Lovísa og
Geirlaug, sem luku prófi frá Leiklist-
arskóla Þjóðleikhússins og hafa leik-
ið i sýningum Þjóðleikhússins og
viðar, og Gunnar Magnússon, sem
var i tvö ár i leiklistarskóla Ævars
Kvaran og hálfan vetur i leiklistar-
skóla SÁL, og hefur tekið þátt i
ýmsum sýningum, m a Sandkass-
anum, Hárinu, Súperstar o.fl.
„Og svo lék Ingólfur hálfan asna i
Kardemommubænum," bæta þau
við.
Sýningin tekur alls hálfan annan
tima með hléi. „Við ætluðum ekki að
hafa sjálfa sýninguna meira en einn
tima, þvi að okkur finnast barna-
leikrit stundum hafa verið of löng
En svo vorum við svo klár og þetta
var svo gott hjá okkur, að það fór
fram yfir timann," segja þau hlæj-
andi
Leikritið er þannig samið, að
áhorfendur taki virkan þátt i því
„Við viljum ekki, að börnunum finn-
ist þau vera að horfa á eitthvað sér
óviðkomandi, heldur að þau sjálf
stjórni sýningunni."
Er munur á þvi að leika fyrir börn
og fullorðna?
„Þau eru miklu opnari, lifa sig
meira mn á sýninguna, En ef þeim
leiðist, kunna þau ekki að þegja yfir
þvi, heldur fara þau að masa og
leika sér, hlaupa um salinn. Hins
vegar kunna þau ekki að gagnrýna
eftir sýninguna."
Þau Þóra Lovisa og Gunnar taka
það fram, að ekki sé markmiðið að
græða á þessu. „Við höfum miða-
verðið eins lágt og hægt er, 1 50 kr.,
fáum aðstoð kunningja okkar við
miðasölu ocf dyravörzlu og notum
ekkert aðkeypt vinnuafl " En ef gróði
verður af fyrirtækinu? „Þá rennur
hann til uppsetningar á næstu sýn-
ingu, sem sennilega verður verk
fyrir fullorðna."
En ef þau ætla sér ekki að hafa af
þessu tekjur, hvers vegna eru þau
þá að þessu?
„Við höfum þörf fyrir að leika —
erum búin að fá „bakteriuna". Við
getum ekki setið heima, heldur verð-
um að vinna að leiklist. Ef maður
kemst ekki að i leikhúsi, verður
maður bara að skapa sitt leikhús
sjálfur — Og svo viljum við lika
reyna að auðga leiklistarlifið i land-
inu og læra af þessu sjálf."
Hverjir eru möguleikar ungra leik-
ara i dag og hvað getur það unga
fólk gert, sem hefur áhuga á leiklist ,
nú, þegar leikhúsin hafa lagt niður
leikskóla sina?
„SÁL-skólinn er starfandi núna,
bæði með 1 og 2. bekk, og hann
hefur hlotið óbeina viðurkenningu
frá ríkinu í formi fjárstyrks. Ég held,
að hann sé bezti leiklistarskóli, sem
nokkurn tima hefur starfað hér á
landi," segir Gunnar.
„Og það segir sig sjálft," bætir
Þóra við, ,,að það vantar alltaf fólk i
leiklistina. Það er ekki hægt að loka
leikskólunum i nokkur ár, þvi að þá
vantar endurnýjunina.
En komist menn ekki að i leikhús-
unum i bili, geta menn alltaf ráðið
sig út á land til að setja upp sýning-
ar hjá áhugaleikfélögum. Ég fór sjálf
út á land í fyrra og setti upp sýn-
ingu. Það hafa mikið til verið sömu
mennirnir, sem hafa verið i þessu úti
á landi, og vafalaust er þörf fyrir
miklu fleiri Ungir leikarar ættu að
geta gert sitt gagn þar, miðlað af
þekkingu sinni, og svo hafa þeir oft
nýjar og ferskar hugmyndir um upp-
setningu á verkunum. Leikfélögin úti
á landi ættu að geta lært af okkur.
þvi að þau skortir svo mjög alla
kennslu og leiðbeiningar "
Og að lokum, er grundvöllur fvrir
leikhúsi i Hafnarfirði?
„Já, þvi ekki það Hafnarfjörður er
á stóru markaðssvæði Hafnfirðingar
fara mikið til Reykjavikur i leikhús
og hvers vegna ættu Reykvikingar
ekki alveg eins að geta komið til
Hafnarfjarðar ef þar eru áhugaverðar.
sýningar? í 200 manna plássum úti
á landi er leikstarfsemi, hvi ekki i
Hafnarfirði, 10 þús manna bæ? tt
Hafnfirðingar vilja ekki leikhús, þá
kemur það bara í Ijós."
Svo þið eruð bjartsýn?
„Já, mjög bjartsýn Það þýðir ekk-
ert annað, það er enginn bjartsýnn
fyrir mann." — sh.
□ □ John Miles Set vill koma aftur — Sjá plötugrein