Morgunblaðið - 25.11.1973, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NOVEMBER 1973
hmvnh
Laus staSa á
skrifstofu póst-
og símamálastjóra
Staða skrifstofufólks IV, 15. lfl. við
fulla starfsþjálfun. Stúdentspróf
eða hliðstæð menntun. Sérstakar
kröfur eru gerðar til góðrar tungu-
málakunnáttu (í einu Norðurlanda-
máli, ensku og frönsku) auk þjálf-
unar í vélritun og nokkurrar starfs-
reynslu.
Umsóknir sendist skrifstofu póst- og
símamálastjóra fyrir 4/12 n.k. á sér-
stökum eyðublöðum* sem fást á
sama stað.
Útger'ðamenn
Ungur reglusamur skipstjóri óskar
eftir skipstjóra- eða stýrimanns-
plássi á góðum bát eða togara. Er
vanur stýrimaður af togurum.
Tilboð sendist Mbl. fyrir mánaðar-
mót merkt: 1420.
Stúlka óskast
Afgreiðslustúlka óskast í kjólabúð
frá 1. des.
Tilboð sendist Morgunblaðinu.
Merkt: 1499.
Klínikdama óskast
á tannlæknastofu frá kl. 2—6.
Umsóknir ásamt uppl. um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Mbl.
fyrir 29. þ.m. merkt: 4570.
Vélstjóri —
Skuttogari
1. eða 2. vélstjóra vantar nú þegar á
skuttogara, sem gerður er út frá
Norðurlandi.
Lysthafendur vinsamlega leggið inn
bréf, sem tilgreinir menntun, starfs-
reynslu og kröfur, á Morgunblaðið
merkt: ..1419“ fvrir 2. desember.
Gjaldkeri
Oskum að ráða mann cða konu til gjaldkerastarfa.
Askilin er starfsreynsla við gjaldkerastörf, toll-
skýrslugerð, verðútreikninga svo og almenn skrif-
stofustörf.
Samvinnuskóla- eða Verslunarskólamenntun er æski-
leg.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið starfið eigi
síðar en 1. eða 15. janúar n.k.
Upplýsingar um starfið veitir skrifstofustjórinn.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um aldur
menntun og fyrri störf skulu hafa borist skrifstofu
vorri eigi sfðar en 30. nóvember n.k.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3.
SölumaBur —
Verzlunarstjóri.
Fyrirtæki, sem verzlar með varahluti í bíla, óskar eftir
að ráða afgreiðslumann nú þegar eða síðar, sem getur
tekið að sér verzlunarstjórn, æskilegt er að viðkom-
andi hafi starfsreynslu. Viðkomandi þarf að vera
gæddur hæfileikum til sölumennsku og góðra sam-
skipta við viðskiptavini. Geta tekið að sér stjórnun og
skipulagningu á vörudreifinu og innkaupum. Þarf að
vera reglusamur og áreiðanlegur og geta talað og
skrifað ensku. Starfið býður upp á fjölbreyttnr og góð
laun fyrir hæfan mann. Farið verður með allar um-
sóknir sem trúnaðarmál.
Umsókn sendist afgr. Mbl. merkt: „Framtíð“ 5057.
Einkaritari
Öskum eftir að ráða einkaritara tæknilegs fram-
kvæmdastjóra.
Til greina koma eingöngu stúlkur sem hafa góða
reynslu í véritun og kunnáttu í þýzku og ensku.
Ráðning frá 2. janúar 1974.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Reykjavík og bókabúð Olivers Steins,
Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi siðar en 30. nóvember
1973 í pósthólf 244, Hafnarfirði.
tslenzka Álfélagið h.f.
Straunsvík.
Fulltrúastarf
Vér óskum að ráða nú þegar fulltrúa
skrifstofustjóra.
Starfið krefst: staðgóðrar þekkingar
og reynslu í bókhaldsstörfum og
öðrum skrifstofustörfum.
Starfið býður: Góð laun og starfs-
skilyrði í skemmtilegu andrúms-
lofti.
Skriflegum umsóknum sé skilað á
skrifstofu vora að Höfðabakka 9,
Reykjavík.
Upplýsingar í símum 84770 og
84330.
VIRKIR H.F.
Ungurlaghentur
maour
óskast til starfa á radioverkstæði
okkar.
Upplýsingar í síma 23220 frá kl.
9—6 virka daga eða 81548 um
helgina.
TÍÐNI h.f.,
Einholti 2.
Verkamenn
Óskum eftir verkamanni í verk-
smiðjuvinnu nú þegar. Uppl hjá
verkstjóra eða í síma 24360.
FÓÐURBLANDAN H/F
Grandavegi 42.
Sendill
Óskum að ráða sendil á bifhjóli nú
þegar.
Bræðurnir Ormsson h.f.,
Lágmúla 9.
LagermaSur
Óskum að ráða miðaldra mann til
lagerstarfa. Róleg en jöfn vinna.
Vinnutími frá kl. 9 — 18 alla virkja
daga nema laugardaga.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf send-
ist afgr. Mbl. fyrir 1. des. merkt:
„Lagerstarf — 5053“.
Vélstjóri og
styrimaúur
óskast á nýjan 150 tonna bát frá
Þorlákshöfn.
Uppl. í síma 3725, Þorlákshöfn og
1677, Selfossi.
Sauðfjárjðrð óskast
Vil kaupa eða leigja góða jörð frá og með naestu
fardögum. Aðeins landmikil og góð sauðfjárjörð kemurtil
greina. Tilboð sendist til afgr Mbl. merkt: „Sauðfjárjörð
1 445" fyrir 1 5. des.
STÝRIMANNAFÉLAG
ÍSLANDS
heldur aukaaðalfund að Bárugötu 11, mánudaginn 26.
nóvember 1 973 kl. 20.30.
Fundarefni.
1. Uppstilling til stjórnarkjörs
2. Kjaramálin.
j 3. Önnur mál.
Stjórnin.
ItlorgiwWníitíi
margfaldor
markað yðar
Lögfræðiskrifstofa
Vilhjálms Arnasonar hrl.
iðnaðarbankahúsinu, Lækjargötu 12, 3. hæð, simar
24635 og 16307.
TIL SÖLU
WAGONEER CUSTOM
Árgerð 1971. IV/leð sjálfskiptingu, vökvastýri, afl-
hemlum og útvarpi. Upplýsingar í síma 22650 á
skrifstofutima.