Morgunblaðið - 25.11.1973, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÖVEMBER 1973
29
fclk f
fréttum
LULU ZIEGLER LÁTIN
Danska kabarettsöngkonan
og leikkonan Lulu Ziegler er
látin 70 ára að aidri. Hún er
mörgum íslendingum minnis-
stæð eftir að hafa komið hingað
til lands og skemmt við góðar
undirtektir.
Lulu Ziegler var á sínum
tíma einn vinsælasti skemmti-
kraftur á Norðurlöndum.
1 viðtali við Lulu, sem birtist
í Mbl. 21. júni 1952, daginn
áður en hún hélt af landi brott
eftir að hafa skemmt hér í sjö
vikur sem aðalstjarnan í „Bláu
stjörnunni", segir Lulu m.a.
þetta:
— Ég hef verið hér í sjö vik-
ur, sungið annað hvert kvöld,
kynnzt ógrynni af fólki, notið
prýðilegrar gestrisni og lifað
dásamlega daga.
— I byrjun virtust mér ís-
lendingar vera heldur einrænt
fólk og stirðir í viðmóti, en eftir
að ég hafði dvalizt hérlendis í
nokkra daga breyttist viðhorf
mitt algjörlega við nánari kynn-
ingu, og það segi ég satt, að
aldrei hef ég kynnzt annarri
eins afburða gestrisni og hlýju ,
og hér á landi.
íslenzkir áheyrendur eru ein-
stakir í sinni röð fyrir það hví-
lík grafarkyrrð ríkir milli
atriða í húsinu, en undirtektir
þeirra eru aftur á móti sérstak-
lega góðar; hef aldrei hlotið
annað eins iófaklapp og hér,
nema í Noregi eftir hernámið.
Er hún er spurð hvernig
henni hafi líkað samstarfið við
fslenzku leikarana, svarar hún:
— Alveg prýðilega. Þér vitið
vafalaust, að leikarar eru mjög
tauganæmt og uppstökkt fólk,
svo lítið þarf út af að bregða til
þess að eldur gjósi upp. — Mér
er það þvf mjög mikil ánægja
að segja frá því, að ekki í eitt
einasta skipti hefur komið til
árekstra í Bláu stjörninni allan
þennan tíma. Þetta er líka allt
svo mikið indælisfólk, enda tár-
felldum við öll í skilnaðarhóf-
inu í fyrrakvöld. — Billich er
líka stórsnjall undirleikari,
alveg á heimsmælikvarða.
Mér hefur verið tfðförult f
Þjóðleikhúsið; þið megið vera
hreykin af því og leikurunum
ykkar. Sérstaklegá fannst mér
mikið til Leðurblökunnar koma
og það segi ég satt, að þótt ég
hafi séð hanaoft áður í mörgum
löndum, hef ég engan séð fara
eins vel með hlutverk fanga-
varðarins og Lárus Ingólfsson.
Lulu var tvígift. Fyrri maður
hennar, leikstjórinn Per Knut-
zon, lézt fyrir 22 árum. Börn
þeirra voru tvö. Síðar giftist
hún norskum manni, en þau
skildu. Hún hafði undanfarin
ár einkum helgað sig leiklist-
inni sem leikstjóri, en sl. vor
kom hún fram í tveimur sjón-
varpsþáttum í danska sjónvarp-
inu, sem voru eins konar loka-
skemmtun hennar fyrir trygga
aðdáendur. I sumar fór hún í
heimsókn til dóttur sinnar í
Englandi, en eftir þá ferð lagð-
ist hún í sjúkrahús, þar sem
hún lézt nýlega af krabbameini.
Aga Khan
á barmi
gjaldþrots
Karim Aga Khan, prins og
leiðtogi milljóna múhameðstrú-
armanna, mun að líkindum
verða gjaldþrota, ef hann tapar
dómsmáli, sem nýlega var höfð-
að gegn honum við dómstól í
París.
Ilann er a.m.k. sleginn yfir
því, að Pieraly Remtoula, svo-
nefndur varaleiðtogi múham-
eðstrúarmannanna, hefur kraf-
. izt þess, að hann verði dæmdur
til að greiða nær 50 milljarða
isl. króna.
Remtoula heldur því fram, að
hann hafi á 12 ára tímabili safn-
að þessari risaupphæð meðal
múhameðstrúarmannanna til
handa fyrirrennara Karims og
afa, Aga Khan þriðja, til að
koma á fót sjálfstæðu ríki fyrir
þennan sértrúarflokk múham-
eðstrúarmanna. En þar sem
þessi ráðagerð er fyrir löngu
runnin út í sandinn, krefst
hann nú fjárins til baka til að
skipta því á meðal gefendanna.
Nú er Karim Aga Khan talinn
einn af ríkustu mönnum heims,
Aga Khan, prins.
en efnahagur hans er ekki tal-
inn geta staðið undir endur-
greiðslu svo stórrar fjárhæðar.
Einnig þess vegna hefur hann
vísað kröfunni á bug.
Pieraly Remtoula var hægri
hönd Aga Khans frá 1946 til
1954, að hann varrekinn frá.
En hann heldur því statt og
stöðugt fram, að hann sé Sankti
Pétur safnaðarins, þ.e. sá, sem
geymir lyklana að himnaríki
safnaðarins og þar með eins
konar varaleiðtogi.
fclk i
fjclmiélum
Annað kvöld kl. 19.25 talar
Ragnar Ingimarsson prófessor
Um daginn og veginn. Við
ræddum stuttlega við Ragnar,
og spurðum hvaða málefni
hann hefði helzt hugsað sér að
ræða. Ilann sagðist m.a. mundu
fjalla nokkuð um þær umræð-
ur, sem farið hafa fram um
launakröfur, og þá einkum
launakröfur háskólamanna.
Ragnar sagðist ennfremur
mundu ræða varnarmálin og
endurskoðunina á varnarsamn-
ingnum milli Islands og Banda-
ríkjanna, auk þess sem hann
myndi ræða vegagerðarmál.
Annað kvöld, kl. 21.05, verð-
ur endurtekið sjónvarpsleikrit-
ið „Frostrósir" eftir Jökul
Jakobsson, en það var áður á
dagskrá fyrir þremur árum.
Eins og þeir, sem sáu það á
sínum tíma munu minnast,
Bessi Bjarnason
fjallar leikritið um hattadömu
nokkra, sem stendur í ástasam-
bandi við Pétur pulsu, dóttur
hennar og ungan pilt, sem sæk-
ir um atvinnu við hattasaum.
A dagskrá Sjónvarpsins í
kvöld kl. 21.40 er þátturinn
„Heyrðu manni!“, en þá leggur
Bessi Bjarnason spurningar
fyrir fólk á förnum vegi. Þátt-
urinn hóf göngu sfna nú í
haust, og eru lagðar ýmsar
spurningar fyrir þá, sem þar
koma fram, og sfðan gefin stig
fyrir frammistöðuna.
I dag gefst útvarpshlustend-
um gott tækifæri til yfirvegun-
ar um trúarleg málefni.
Kl. 8 f.h. hefur herra Sigur-
björn Einarsson biskup morg-
unandakt. Kl. 11 er svo messa í
Laugarneskirkju, og er það sr.
Grímur Grímsson, sem hefur
hana með höndum en organleik
ari er Kristján Sigtryggsson.
Kl. 13.15 flytur Sigvaldi Hjálm-
arsson fjórða og síðasta erindi
sitt í flokki, sem nefnist „Brota-
silfur um Búddadóm". Kl. 21.45
talar Anna Sigurðardóttir „Um
átrúnað". Að þessu sinni fjallar
hún um Iðunni og Nönnu, en
hún mun halda áfram að flytja
vikulega þætti um átrúnað
næstu vikurnar.
Utvarp Reykjavlk
SUNNUDAGUR
25. nóvember
8.00 IVIorgunandakt
Herra Sigurbjörn Einarsson flytur
ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir og vi?ðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög
Hljómsveit HansCarstesleikur.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugrein-
um dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (Veðurfregnir
10.10)
a. „Flugeldasvitan" eftir Hándel RCA-
Victor sinfóniuhljómsveitin leikur;
Leopóld Stokovsky stj.
b. Sinfónia nr. 41 (K 551) eftir Mozart.
The National Arts Center hljómsveitin
leikur; Mario Bernardostj.
c. Sellókonsert í D-dúr eftir Haydn.
Jacqueline de Pré og sinfóníuhljóm-
sveit Lundúna leika; Sir John
Barbirolli stj.
11.00 Messa í Laugarneskrikju
Prestur. SéraGrímur Grímsson
Organleikari: Kristján Sigtryggsson.
Kór Ásprestakalls syngur.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.15 Brotasilfurum Búddadóm
Sigvaldi Hjálmarsson flytur fjórða
erindi sitt: Leið athyglinnar.
14.00 Gestkoma úr strjálbýlinu
Jónas Jónasson fagnar gestum frá Flat-
eyri.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá austur-
rlska útvarpinu
Flytjendur. Elisabeth Söderström og
Sinfóníuhljómsveit austurnska
útvarpsins. Stjórnandi: Milan Harval.
a. „Júlfus Cesar", forieikur eftir
Handel.
b. „Veiðimennirnir, forfeður okkar",
forieikur fyrir sópransöngkonu og
hljómsveit op. 8 eftir Benjamin
Brit ten.
c. Sinfónía nr. 6 í h-moll eftir
Tsjaíkovský.
16.25 A bókamarkaðinum
Andrés Björnsson útvarpsstjóri sérum
kynningu á nýjum bókum.
16.55 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
17.10 Útvarpssaga barnanna: „Mamma
skilur allt" eftir Stefán Jónsson
Gísli Halldórsson leikari les (13).
17.30 Sunnudagslögin. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55
Tilkynningar.
19.00 Veðurspá
Leikhúsið og við
Hilde Helgason og Helga Hjörvar sjá
um þáttinn.
19.35 „Sjaldan lætur sá betur, sem eftir
hermir“
Umsjónarmaður: Jón B. Gunnlaugs-
son.
19.50 Kórsöngur f útvarpssal
Drengjakór St. Jakobskirkjunnar í
Stokkhólmi syngur lög eftir Perosi,
Mozart Skjöld, Wills o.fl. Söngsljóri:
Stefan Skjöld.
20.25 Hjá Guðmundi Frfmann
Hjörtur Pálsson ræðir við skáldið, sem
les úr Ijóðum sínum, og Baldvin
Halldórsson leikari les smásögu
Guðmundar. „Mýrarþoku".
21.15 Tónlistarsaga
Atli Heimir Sveinsson skýrir hana með
tóndæmum (5).
21.45 Um átrúnað
Anna Sigurðardóttir talar um Iðunni
og Nönnu.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög
Heiðar Astvaldsson danskennarí velur
og kynnir.
23.25 Fréttir í stuttu máli. Dagskráriok.
Á skjánum
SUNNUDAGUR
25. nóvember 1973
17.00 Fndurtekið efni
Þeir héldu suður
Irsk kvikinynd um landnám og búsetu
norskra víkinga á írlandi.
Þýðandiog þulurGylfi Pálsson.
Aður á dagskrá25. apríl 1973.
18.00 Stundinokkar
Flutt er saga með teikningum. en síðan
syngur Rósa Ingólfsdóttir um stund.
Sýndar verða myndir um Róbert
bangsa og Rikka ferðalang. og loks er
svospurningakeppnin á dagskrá.
Umsjónarmenn Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir og Hermann Ragnar
Stefánsson.
Stjórn upptöku Kristín Pálsdöttir.
18.50 Íþróttir
Landsieikurf handknattleik kvenna ís-
land-Noregur.
II lé
20.00 Fréttir
20.20 Veðurog auglýsingar
20.30 Ert þt»tta þú?
Stuttur leiðbeininga- og fræðsluþáttur
um aksturog umferð.
20.40 Strfð og friður
Sovésk framhaldsmynd.
6. þáttur.
Þýðandi Hallveig Uioriacius.
Efni 5. þáttar:
Frakkar hafa ráðist inn fyrir landa-
mæri Rússlands og f ara nú sem logi um
akur. Nikolaj Boikonski, faðir Andreis,
fréttir af framgangi franska hersinsog
tekur þá iíburði mjög nærri sér.
Skömmu síðar tekur hann sótt og and-
ast. Sjöunda september árið 1812
lcggur Kutuzov tii atlögu við her Nap<V
leons nærri þorpinu Bomdino, alllangt
f.vrir vestan Moskvu. Þar verður hin
MANUDAGUR 26. nóvember
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.20: Vaidimar
ömólfsson leikfimikennari og Magnús
Pétursson píanóieikari (alla virkadaga
vikunnar). Fréttir ki. 7.30, 8.15 (og
forustugr. landsm.bl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn ki. 7.55: Séra Heigi
Tryggvason flytur (a.v.d.v.) Morgun-
stund barnanna kl. 8.45: Olga Guðrún
Ámadótlir heldur áfram lestri þýðing-
ar sinnar á sögunni „Börnin taka til
sinna ráða" eftir dr. Gormander (10)
Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög á milli atr. Búnaðar-
þáttur kl. 10.25: Gisli Kristjánsson rit-
stjóri talarvið Bjarna og Sigurjón Hall-
dórssyni um búskapinn í Tungu í Skut-
ulsfirði. Morgunpopp kl. 10.40: Gro
Anita Schönn syngur. Tónlistarsaga kl.
11.00: Atli Heimir Sseinsson kynnir
(endurt.) Tónleikar kl. 11.30:
Hljómsveitin Philharmonia leikur
„Sylffðurnar" eftir Chopin f útsetningu
Douglas.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
veðurfregnir.
ar.
12.25 Fréttir og
j Tilkynning
13.00 Vriðvinnuna: Tónleikar
14.30 Siðdegissagan: „Saga Eldevjar-
Hjalta" eftir Guðmund G. Hagalín
Höfundurles (13).
15.00 Miðdegistónleikar: Brezk tónlisl
Jacqueline du Pré og Konunglega fíl-
harmóniusveitin í Lundúnum leika
Sellókonsert eftir Delius; Sir Malcolm
Sargent stj. Sinfóniuhljómsveitin i
Lundúnum leikur Sinfóniu nr. 6 i e-
moll eftir Vaughan Williams; André
Previn stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. lb.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Popphomið.
17.10 „Vindum, vindum, vefjum band“
Anna Brynjúlfsdóttir sér um þátt fyrir
yngstu hlustendurna.
17.30 Framburðarkennsla í esperanto
17.40 Lestur úr nýjum barnabókum. Til-
kynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55
Tilkynningar.
19.00 Veðurspá Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson cand.mag. flytur þáttinn.
19.10 Neytandinn og þjóðfélagið Ólafur
Björnsson prófessor ræðir við Þor-
björn Broddason lektor og Ólaf-
Stephensen framkvæmdastjóra um
auglýsingastarfsemi og neytenda-
fræðslu.
19.25 Um daginn og veginn Ragnar Ingi-
marsson prófessortalar.
19.45 Blöðin okkar Umsjón: PálJ Heiðar
Jónsson.
19.55 Mánudagslögin.
20.25 Söguleg þróun Kína Kristján Guð-
iaugsson sagnfræðinemi flytur annað
erindi sitt.
20.50 Pabio Casals og Nicolai Mednikoff
leika verk eftir Bach. Chopin, Fauré og
Godard.
21.10 Islenzkt mál Endurt. þáttur As-
geirs Blöndals Magnússonar frá s.l.
laugardegi.
21.30 Útvarpssagan: „Dvergurinn" eftir
Pár Lagerkvtst í þýðingu Málfriðar
Einarsdóttur. Hjörtur Pálsson les (13).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Evjapistill
22.35 Hljómplötusafnið i umsjá Gunnars
Guðmundssonar.
23.20 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
* *
grimmilegasla orrusla og mannfall
mi kið í liði beggja.
21.40 Heyrðumanni!
£ 'ssi Bjarnason leggur spurningar fyr-
ir fólká förnumvegi.
22.05 Lffsraunir
Fyrri myndin af tveimur frá sænska
sjónvarpinu. þar sem rætl er við fólk.
sem fengið hefur alvarlega. langvar-
andi sjúkdóma. eða örkumlast á ein-
hvern hátt. og orðið að semja sig að
g jörbreyttum aðstæðum i lifinu.
Þýðandi og þulur Dóra Hafsteinsdóttir.
(NoirivLsion — Sænska sjónvarpið)
22.45 Að kvöldidags
Séra Guðmundur Óskar Ólafsson flytur
hugvekju.
22.55 Dagskrárlok
mAnudagur
26. nóvember 1973
20.00 Fréttir
20.25 Veðurog auglýsingar
20.35 Maðurinn
Fiæðsluinyndaflokkur um hegðun og
eiginleika mannsins.
9. þáttur. Handapat og fingrafum
Þýðandi og þuluróskar Ingimarsson.
21.05 Frostrósir
Sjónvarpsleikrit eftir Jökul Jakobsson.
Leikstjóri Pétur Einarsson.
Leikendur Herdís Þorvaldsdóttir.
Helga Jónsdóttir. RiibeH Amfinnsson
og ÞórhallurSigurðsson.
Tónlist Sigurður Rúnar Jónsson.
Aðurá dagskrá 15. febrúar 1970.
21.55 Brasilfa
Friinsk kvikmynd um Brasilíu.
Fjallað er um land og þjóð og rætt uin
ástand og horfur í efnahags- og þjóð-
félagsmálum.
Þýðandi og þulur Döra Hafsteiusdóttir.
23.15 Dagskrárlok