Morgunblaðið - 25.11.1973, Side 35
.....■ ■
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÖVEMBER 1973
35
GRUNURINN
Framhaldssagan
eftlr: FRIEDRICH DURRENMATT
i þýðingu
Jóhönnu Kristjónsdóttur__
— í Chile, í Chile, sagði
Barlach. — Og hvenær kom hann
svo aftur, þessi vinur þinn, sem
getur alls ekki verið Nehel?
— Árið 1945.
— í Chile, í Chile, endurtók
Barlach. — Og þú vilt ekki segja
mér, á hvern hann minnir þig
þessi læknir á myndinni?
Hungertobel hikaði við að
svara. Ilonum fannst spurningin í
meira lagi óþægileg.
— Ef ég segi þér nafnið, Ilans
sagði hann að endingu. — Þá
ferðu að tortryggja manninn.
— Ég er þegar farinn að tor-
tryggja hann, svaraði lögreglufor-
inginn
Ilungertobel andvarpaði. —
Þarna sérðu, Hans, sagði hann. —
Ég var einmitt hræddur um það.
Og ég vil ekki að þú gerir það. Ég
ér gamall læknir, og ég vil ekki
gera neinum mein. Grunsemdir
þinar eru hreinasta firra. Með
einni mynd er ekkert hægt að
sanna, sérstaklega ekki, þegar
myndin sýnir ekki nema hluta af
andlitinu. Og auk þess má ekki
gleyma, að hann var í Chile.
— Ilvað var hann að gera þar?
skaut lögregluforinginn inn í.
— Hann var yfirlæknir á
sjúkrahúsi i Santiago, sagði
Ilungertobel.
— í Chile, í Chile, sönglaði lög-
regluforininn í tvíræðum tón,
sem erfitt var að ráða i.
Samúel hafði alveg á réttu að
standa tortryggni hans var við-
bjóðsleg og frá hinum vonda kom-
in.
— Ekkert gerir manninn jafn
ógeðslegan og frunsemdin, hélt
hann áfram. — Það veit ég full-
vel, og ég hef margsinnis bölvað
starfi mínu. Aldrei skyldi maður
láta undan tortryggninni. En nú
sitjum við uppi með hana og það
varst þú, sem vaktir hana. Ég
vildi fúslega losna við hana, en þá
verður þú líka að eyða þínum
grun.
Ilungertobel settist við rúmið.
Hann leit ráðleysislega á lög-
regluforingann. Ljós glampaði í
gegnum gluggatjöldin. Uti var
fagurt veður, eins og hafði verið
lungann úr vetrinum.
— Ég get ekki . . . sagði lækn-
irinn og rauf að lokum kyrðina í
herberginu. — Eg get ekki . . .
Nei, ég get ekki eytt
þessum grun. Ég þykist þekkja
hann of vel til þess. Við lærðum
saman og hann gegndi tvisvar
fyrir mig i forföllum. Það er hann
þarna á myndinni. Og örið við
gagnaugup. Ég þekki það. Því að
ég hef sjálfur skorið Emmenberg-
er upp á þessum stað.
Iíungertobel tók af sér gleraug-
un og strauk svitann af enninu.
— Emmenberger? spurði lög-
regluforinginn rólega. — Hét
hann það?
— Nú er ég búinn að segja þér
það, svaraði Hungertobel hljóm-
lausri röddu. — Éritz Emmen-
berger.
— Læknir?'
— Já hann er læknir.
— Er hann búsettur hér i
Sviss?
— Hann rekur einkasjúkrahús,
sem heitir Sonnenstein uppi á
Zurichfjalli, svaraði læknirinn. —
Árið 1932 fluttist hann til Þýzka-
lands og síðar til Chile. Árið 1945
kom hann aftur og hóf rekstur
sjúkrahússins sem er meðal
þeirra dýrustu í Sviss, bætti hann
við lágmæltur.
— Aðeins fyrir efnafólk?
— Aðeins fyrir mjög efnað fólk.
Er hann snjall vísindamaður,
Samúel? spurði lögregluforing-
inn.
Hungertobel hikaði. Það er
erfitt að svara þessari spurningu,
sagði hann. — Einu sinni endur
fyrir löngu var Emmenberger
mjög duglegur vísindamaður. Það
veit bara enginn, hvort hann er
það enn. Ilann notar aðferðir,
sem okkur finnst harla vafasam-
ar. Við vitum svo lítið um þessa
hormónameðferð, sem hann hef-
ur sérhæft sig 1, og við vitum ekki
til fullnustu, hversu langt má
ganga í þvf frekar en ýmsu öðru
innan læknisfræðinnar. Vísinda-
menn og skottulæknar, þeir búa
Valvakandi avarar I sfma 10-
100 kl. 10.30—11.30. tri
minudagi til (öatudaga.
0 Tinna-bækurnar
1 Velvakanda 17. nóv. sl. birtist
samtal við Bjarnheiði Ingólfsdótt-
ur, Móabarði 22, Hafnarfirði, þar
sem hún veitist að hinum vinsælu
barna- og unglingabókum
Ævintýrum Tinna, og heldur því
fram, að þær séu ekki við hæfi
barna.
Þetta kemur okkur útgefendum
Tinna-bókanna k.vnduglega fyrir
sjónir, þar sem þær eru viður-
kenndar víða um lönd, einmitt
sem mjög holl og góð Iesning fyrir
börn.
Erlendis hafa birzt ritdómar
um Tinna-bækurnar í öllum
helztu blöðum og bókmenntarit-
um, og er hvarvetna viðurkennt í
þeim, að þær séu fyrsta flokks
barna- og unglingabækur. En líka
er vitað, að fullorðnir sækjast
mjög eftir að hnýsast í þær.
Með yðar leyfi viljum við birta
hér smákafla úr gagnrýni i hinu
fræga enska bókmenntablaði
„The Times Literary
Supplement", sem hafði svo
mikið við, eftir að fyrstu Tinna-
bækurnar komu út á ensku, að
Ieggja alla forsiðuna undir grein
um þær.
„Almennt talað er allur sögu-
blærinn geðþekkur og lærdómur
sá, sem barnið dregur af þessum
bókum, verður að teljast góður.
Tinni er. . . hin „jákvæða hetja".
Hann er hugrakkur, úrræða-
góður, drenglyndur, skynsamur
og undantekningarlaust kurteis
Styrkur Tinna liggur ekki
aðeins í því, að hann er fulltrúi
skynsamlegra siðalögmála, heldur
líka í þvi, hve bækurnar eru ákaf-
lega vandaðar og fallegar. Þær
eru samdar af mikilli sköpunar-
gleði, fullar af hugviti og fjöri.
Eins og mörg mikil listaverk eru
þær örlátar og bregða upp
óteljandi hugmyndatengslum,
skrítlum og smáatriðum, sem eru
að vísu ekki nauðsynleg fyrir
söguþráðinn, en gefa þó ein-
földustu atvikum dýpt og
fyllingu, svo lesandinn getur
verið lengi að velta þeim fyrir
sér.“
0 íslendinga-
sögurnar
Hægt væri að koma með margar
tilvitnanir i erlend rit, þar sem
uppeldisgildi Tinna-bókanna er
viðurkennt. I Evrópu hefur Tinni
verið dáður í áratugi. Þar þekkja
allir hann og hann nálgast að vera
talin klassisk persóna í líkingú
við Mikka mús. Hann sækir nú
lika óðfluga inn í Ameríku og
mætti koma með tilvitnanir úr
kunnustu tfmaritum Banda-
rikjanna, svo sem Newsweek og
Time, sem sýna, að hann er líka
talinn hafa gildi þar.
Hér á landi er enginn raunveru-
leg gagnrýni barnabóka til, og því
hafa Tinna-bækurnar orðið fyrir
barðinu á þvi áhugaleysi og
vanrækslu, svo ekki er hægt að
vitna í íslenzka gagnrýni.
Tilvitnanir frú Bjarnheiðar um
bang, bang o.s.frv. eru út í hött.
Hún ætti að taka eftir því, að í
þeirri viðureign er ekki skert hár
á höfði nokkurs manns. Er það
meira en hægt er að segja um
sumar af þeim reyfarabókum,
sem hér eru bornar á borð fyrir
börn.
Viðbrögð frú Bjarnheiðar
minna á lesendabréf, sem birtist
fyrir mörgum árum í Sydsvenska
Dagbladet, þegar Islendingasögur
höfðu nýlega verið gefnar út á
sænsku og sérvitur bréfritari
varaði við „ómenningaráhrifum"
af þeim!!
Öllum þeim, er sýndu mér hlýhug með heimsóknum,
gjöfum og kveðjum á 80 ára afmseli mínu, sendi ég
hjartanlegustu kveðjurog þakkir.
Guðný Guðmundsdóttir
frá Hreggstöðum,
Sólvallagötu 54.
ISLANDSMOTIÐ
í HANDKNATTLEIK
í kvöld kl. 7.00 leika:
2. deild karla Fylkir — Í.B.K.
I. deild karla Í.R — Víkingur
Fram — Ármann
H.S.Í.
H.K.R.R.
Barn, sem les Tinna-bækurnar,
tekur sér til fyrirmyndar heiðar-
leik, hreinskiptni og drengskap
aðalsöguhetjunnar, Tinna, en
finnur ekki til samkenndar með
hinum afkáralega fullorðna
manni, Kolbeini kafteini, og fær
andúð á óreglu hans, seni stund-
um hefur nærri leitt alla í glötun.
Þetta er kjarni málsins, sem full-
orðinn lesandi e.t.v. ekki skilur.
Virðingarfyllst,
f.h. Fjölvaútgáfunnar
Sturla Eiríksson"
% Athugasemd
Þar sem fyrir liggur mikill
fjöldi bréfa, þar sem fjallað er um
„Morgunstund barnanna", vill
Velvakandi vekja athygli bréf-
ritara á þvi, að fleiri bréf um
þetta efni verða ekki birt nema
undir standi fullt nafn og
heimilisfang bréfritara, eins og
hefur raunar verið um flest þau
bréf, sem birzt hafa um þetta mál.
í framhaldi af þessu er yert að
gera nokkrar athugasemdir um
birtingu nafnlausra bréfa eða
bréfa undir dulnefni.
Heita má, að Velvakandi standi
í stöðugum rökræðum við bréfrit
ara og þá, sem samband hafa Við
hann með öðrum hætti, um það,
hvort birt skuli nafn og heimilis-
fang með þvi, sem viðkomandi
vill koma áleiðis til lesenda. Þar
að auki berst jafnan talsvert af
nafnlausum bréfum, en slík bréf
fá að sjálfsögðu hraðferð i bréfa-
körfuna.
Nauðsynlegt er, að fyrir liggi
fullt nafn og heimilisfang þeirra,
sem óska eftir að koma skoðunum
sínum á framfæri í Morgun-
blaðinu, enda þótt þær ástæður
kunni að vera fyrir hendi, að
birting þessara upplýsinga sé
ómöguleg, eða beinlínis óæskileg,
eðli málsins samkvæmt. Nægir
þar að benda á ýmis mál, persönu-
legs eðlis, sem þó eiga erindi til
almennings. Enda þólt Morgun-
blaðið sé ekki sammála þvi, sem
það er beðið um að birta nafn-
laust, getur því þótt ástæða til að
koma þvi á framfæri og er slikt þá
metið hverju sinni.
Annars virðist feimni við að
koma skoðunum sinum á fram-
færi og standa fyrir máli sínu
vera lenzka hér, enda sumpart
skiljanlegt i svo litlu þjóðfélagi,
sem við búum í. íslendingar eru
allra manna fróðastir um hagi og
ætterni náungans. Þetta kemur
oft fram í viðræðum manna, en þá
er oft, að viðstaddir þekkja þann,
sem um er rætt eða a.m.k. deili á
honum. Ef ekki, þá er undan-
tekningalitið spurt, hverra manna
hann sé, og fæst þá venjulega
niðurstaða á stundinni.
Þetta þekkja allir, og raunar er
þetta eitt skemmtilegasta sér-
kenni þeirrar smáskrýtnu mann-
tegundar, sem lifir hér i andlegu
þröngbýli.
% Leið til að létta
megi af kirkju-
garðsgjaldinu
Hákon Aðalsteinsson á Egils-
stöðum hringdi, og vildi koma að
þeirri tillögu, að ritlaun fyrir
bókina um Ragnheiði Brynjólfs-
dótt yrðu látin renna i kirkju-
garðssjóð, þannig að létta mætti
þeim álögum af landsmönnum. í
framhaldi af þessu mælir Hákon
með því, að leitað verði að fólki
með miðilshæfileika um alll land,
og þvi siðan fengið það verkefni
að leita að sálum til að skrifa
bækur eftir. Þetta gæti orðið
drjúg tekjulind, þannig að ekki
væri einungis unnt að létta
kirkjugarðsgjaldinu með öllu af
landsins börnum, heldur yrði
sjálfsagt afgangur, sent þá mætti
jafnvel verja til kirkjubygginga.
Til jólagjafa:
Púðar
í 10 glæsilegum litum úr mynstruSu nælonflauel.
Bella
Laugaveg 99,
sími 26015.
DART-NOVA
Til sölu:
2ja dyra CHEVY NOVA árg. 1 969.
4ra dyra CHEVY NOVA árg. 1 969.
4ra dyra DODGE DART árg. 1 970.
Til sýnis og sölu að Ármúla 36.
Uppl. í síma 84366 og á kvöldin i 85106.
ikiMlálkur
ogue
Nýtt í Vogue á Skólavörðustíg 12.
Vogue sokkabuxur nýjar birgðir,
margir litir, Mini Vogue og Mamma
Mini sokkabuxur
Vogue hnésokkar grófir, ný gerð 5
rtir kr 276/- parið
Vogue blússubolir, ný sending, marg-
ar nýjar gerðir þar á meðal Vogue
módelið sem er hnýtt í hálsinn. Stíllmn
er einkennandi fyrir vinsælustu dömu-
ízku vetrarins Einnig eru til V háls-
mál, skyrtukragar, flegin hálsmál og
rúllukragar
Vogue nærföt, mýkstu brjóstahaldarar
sem um getur, svartir, kampavinslitir,
ogarauðir og Costa Brava kr 449/-
stk Buxur I sömu litum kr 93/- stk
Hnésokkar og sokkabuxur í sömu
itum.
I þessari viku vill Vogue sérstaklega
vekja athygli á samkvæmiskjólaefnum
og þeim fjölmörgu gerðum jerseyefna
sem eru til á Skólavörðustíg 12
Bómullarjersey, terylene jersey, acryl
jersey, crimpelene jersey, jersey
velour, sem er nýtt tízkuefni hlýtt og
mjúkt i vetrarkjólana o.m.fl. Jersey
með lurex þræði í samkvæmiskjóla og
opna lausa jakka við einlit samkvæmis-
pils og jersey í jólaföt barnanna.
Gull og silfurmynstruð samkvæmis-
kjólaefni eru vinsæl í vetur, einnig í
peysufatapils og slifsi og alla vega
silkikennd mynstruð efni í síða létta
kjóla. Finnið litina ykkar og uppáhalds-
efnin ykkar í Vogue Skólavörðustíg 1 2.
Snið og allt tillegg, tölur, fóður, tvinni
og lásar eru nú ásamt fatnaðarefnum á
neðri hæðinni MuniðVogue gjafakort-
in, sem koma sér vel við hve'rt tækifæri
og hafa reynst vinsæl jólagjöf
tlrval af
vinglösum
frá
a
Orrcfors
SVÍÞJÓÐ
Kastrup Holmegaard
DANMÖRK
RoyalLeerdam
HOLLAND
U.G.Tableware
ENGLAND
Libbey Glassware
u s. tef
BIERINE
LAUGAVEGI 6 SÍM114550