Morgunblaðið - 25.11.1973, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1973
39
— Minning
Framhald af bls. 26
an að hittast. Oft kom Sigurbjörg
á heimili okkar á Hvanneyri, og
ætíð var hún góður gestur og kær-
komin.
En ef til vill var Sigurbjörg
ekki allra. Hin fíngerða sál hennar
þoldi ekki hvað sem var, og margt
gat hneykslað og sært hana. Það,
sem einkenndi hana þó ef til
vill allra mest, var það hversu
trygglynd hún var. Þeir, sem
eignuðust traust hennar og vin-
áttu áttu vísa velvild hennar upp
frá því.
Sigurbjörg hafði á flesturri sviðr
um jákvæð lífsviðhorf. Ilún mat
mikils kirkju og kristindóm, og
skildi vel, að þar er að finna
traustastan grundvöll farsællar
lífsstefnu, trú og bæn var henni
áreiðanlega mikilsvirði.
Að vissu leyti hafði hún drög til
þess að vera listhneigð kona, hún
var söngelsk og ljóðelsk, að sjálf-
sögðu að mestu leyti sjálfmennt-
uð, en greind og athugul.
Sigurbjörg Jakobsdóttir var
fædd 24. des. árið 1900 að
Gvendarstöðum í Bárðardal. Ilún
var dóttir hjónanna Jakobs
Magnússonar og Sigriðar Frið-
bjarnardóttur. Ilún átti einn
bróður, Hermann að nafni, hann
var lengi sjúklingur og er látinn
fyrir allmörgum árum. Skýrt kom
það fram hjá Sigurbjörgu að
tryggð átti hún ríks til átthaga
sinna.
Bernskustöðvarnar kæru i
Þingeyjarsýslu áttu ætið mikil
tök í hjarta hennar. Eins og áður
er sagt unni hún allri fegurð, ekki
sízt þeirri, sem birtist í skauti
móðurjarðar: t.d. á fögri
og björtu vorkvöldi í islenzkri
sveit.
Árið 1920 fluttist hún með for-
eldrum sínum til Akureyrar, og
nokkrum árum siðar giftist hún
Guðlaugi Sigurðssyni frá Dalvik.
Siglufjörður var um þessar
mundir vaxandi bær, og þangað
lágu leiðir margra, fyrst til starfa
og síðan búsetu. Og þannig fór
fyrir ungu hjónunum. Þau reistu
sér hús á Siglufirði, en Guðlaugur
var hagur maður, smiður góður og
ötull við margháttuð störf. Þarna
bjó Sigurbjörg manni sinum og
síðan börnum vistlegt heimili, og
ekki þurfti að spyrja um þrifnað
og snyrtimennsku hennar. En
ekki naut hún lengi samvista við
eiginmann sinn, þvi að hann lést
13. des. 1936. Var það að sjálf-
sögðu mikil reynsla fyrir hana.
Þar missti hún traustan lífsföru-
naut og stöð ein uppi sem fyrir-
vinna og forsjármaður barna
sinna. En hún gafst ekki upp. Með
stakri prýði sá hún þremur börn-
um sínum farborða og kom þeim
upp, en þáði aldrei styrk af opin-
beru fé. Auk þess annaðist hún
aldraða foreldra sína, voru þau
gömlu hjónin á heimili hennar,
þar til lífsdegi þeirra var lokið.
Síðar, þegar börnin voru uppkom-
in tók hún að sér dótturson sinn,
Guðlaug Ævar, og ól hann upp
sem sitt eigið barn. Hann var í
hennar umsjá, þegar ég kynntist
henni. Vel var mér kunnugt um
umhyggju hennar fyrir honum.
Móðurhjarta hennar var stórt og
kærleiksríkt.
Fyrir nokkrum árum tók hún að
kenna sjúkleika, sem ágerðist svo,
að hún gat ekki lengur annast
heimili sitt á Siglufirði, heldur
varð að fara á sjúkrahús. Á
sjúkradeild Hrafnistu dvaldi hún
síðustu árin og leið þar eftir at-
vikum vel, enda var vel um hana
hugsað og henni sýnd umhyggja í
hvívetna.
Sjálfsagt hefir hún oft hugsað
til Siglufjarðar og vina sinna þar.
Ég vil nota tækifærið og senda
uppeldissystur hennarog frænku,
Árníu Sigurðardóttur, kveðjur
mínar, en hún dvelur á Sjúkra-
húsi Siglufjarðar.
Börnum Sigurbjargar: Sigríði,
Ottó og Stefni votta ég innilega
hluttekningu mfna.
Traust kona hefir kvatt og búist
til brottfarar. Góðar minningar
lifa i hugum ástvina hennar og
kunningja. Ég geymi góða mynd í
huga minum, handtak hennarvar
hlýtt og traust. Ég flyt kveðjur
minar og fjölskyldu minnar. Guð
blessi hana.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Aðalfundur Ármanna verður haldinn á Hótel Loftleiðum, Kristalssal, <nýju álmunni) fimmtudaginn 29. nóvember. Stjórnin. 1 1 Til sölu Citroen GS árg. 1 971, skráður 1 972, lítur vel út. Ekinn .20 þús. km. Til greina koma veðtryggð stutt skuldabréf eða víxlarsem hluti af greiðslu. Uppl. í síma 99-3368.
_ * m
Sprenglr pð vðrpuna? Skipstjórar, útgerðarmenn. Get útvegað átaksmæla fyrir Flottroll og botntroll. Gústaf Ágústsson h/f. Simi 37087. EINBYLISHUS TIL LEIGU Til leigu er 5 herb. einbýlishús á einum bezta stað í Kópavogi, sunnanmegin í vesturbænum. Húsið verður laust fyrir jól. Þeir, sem áhuga hafa, leggi nöfn sín á afgr. Mbl. fyrir 30 þ.m. merkt: 4708. Æskilegt er að tilgreina fjölskyldustærð og hugsanlega leiguupphæð og leigu- • tíma.
Vél: 4 cyl. með ofanáliggjandi knastás,
borvidd: 76 mm. slaglengd 66 mm.
rúmlak: 1,198 I. þjöppun: 8,8:1
rúmtak: 1,198 1. þjöppun: 8,8:1
hestöfl: 65 S.A.E., við 5600 snúninga
Tork: 8,9 kg við 3400 snúninga
Gírkassi: Samhæfður fjögurra gíra með skiptingu í gölfi
Undirvagn sérstaklega miðaður við islenzkar aðstæður
Hemlar: Diskar að framan borðar að aftan með tvískiptu vökvaátaki.
Nýr bill frá
RÚSSLANDI
Áætlað verð með ryðvörn
LADA 2101 fólksbifreið kr. 327.774.—
LADA 2102 stationbifreið kr. 346.764.—
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
Suðurlandsbraut 14 - Reybjavík - Sími 38B00