Morgunblaðið - 31.01.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANUAR 1974
3
Guttorm Hansen, forseti
norska Stórþingsins.
Tönne Huitfeldt, hershöfðingi.
NORSK-ISLENZK
Samtök um vestræna samvinnu
og Varðberg, félag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
munu efna til sameiginiegrar ráð-
stefnu undir heitinu „tsland-
Noregur — samstarf um öryggis-
og alþjððamál“ næstkomandi
laugardag og sunnudag. Ráð-
stefnan er ekki „Opin“, heldur er
boðið sérstaklega til hennar. Ráð-
stefnuna munu sitja 9 Norðmenn
og má þar m.a. nefna forseta
norska Stórþingsíns Guttorm
Hansen, Tönne Huitfeldt, hers-
höfðingja og Johan Jörgen Holst,
rannsóknastjóra norsku utan-
rfkismálastofnunarinnar.
Félögin tvö efndu til blaða-
mannafundar f gær, þar sem þau
kynntu ráðstefnuna, sem verið
hefur í undirbúningi undanfarna
mánuði. Fyrir Samtök um vest-
ræna samvinnu sat fundinn Guð-
mundur H. Garðarsson, formaður,
fyrir Varðberg Markús örn
Antonsson, en framkvæmdastjóri
beggja félaganna er Magnús
Þórðarson. Mjög hefur verið
vandað til ráðstefnunnar, sem
upphaflega átti að halda á síðast-
Ellmann Ellingsen,
framkvæmdastjóri.
Johan Jörgen Holst,
rannsóknastjóri.
Kjeli Magne Bondevik, stór-
þingsmaður.
ráðstefna um öryggis-
mál um helgina
liðnu hausti, en vegna ýmissa
annmarka, m.a. stórþings-
kosninga í Noregi, gat ekki orðið
af henni fyrr en nú. Til ráð-
stefnunnar er sérstaklega boðið
mönnum, sem kynnt hafa sér
alþjóðamál, en þeir félagar sögðu,
að því miður hefði þurft að tak-
marka þátttöku í ráðstefnunni
vegna stærðartakmarkana á hús-
næði og ennfremur vegna
kostnaðar. Sögðu þeir, að gott og
náið samstarf hefði verið með
Norðmönnum og tslendingum f
öryggis- og alþjóðamálum um
margra ára bil og myndu viðhorf i
þessum málum verða rædd á ráð-
stefnunni — það, sem efst er á
baugi — bæði fyrr og nú.
öryggismál Islands eru nú mjög
ofarlega á baugi með þjóðinni.
Þessi tími, sem ráðstefnan er
haidin á, er þó algjör tilviljun, þar
sem undirbúningur ráð-
stefnunnar hefur staðið í all-
mikið ráðfært sig við starfsbræð-
ur sína í Noregi, áður en endanleg
ákvörðun um þátttöku Islands f
bandalaginu var ákveðin.
Norsku gestirnir á ráðstefnunni
eru frá hinum ýmsu stjórnmála-
flokkum f Noregi. Þar eru full-
trúar norska jafnaðarmanna, Mið-
flokksins og Kristilega þjóðar-
flokksins Fulltrúar bessara
Frá blaðamannafundinum í gær. t'ra vinstri: Magnús Þórðarson, Guömundur H. Garöarsson og
Markús Örn Antonsson.
Per Brunvand, ritstjóri.
Harry Hansen, stórþingsmaður. Ragnar Udjus, stórþingsmaður.
Evind Berdal. upplýsingastjóri.
marga mánuði og þegar ákveðið
var að hún skyldi haldin nú, var
eigi fyrirsjáanlegt, að til þeirrar
frestunar kæmi á samningavið-
ræðum ríkisstjórna Islands og
Bandaríkjanna, sem raun ber
vitni. Eins og áður sagði, var
upphafleg ætlun að að haida ráð
stefnuna síðastliðið haust.
Þeir þremenningar sögðu, að á
ráðstefnunni yrði rætt um sam-
eiginleg mál Noregs og Islapds,
skipzt yrði á skoðunum og menn
myndu ræða ástanið á Norður-
Atlantshafi. Gert er ráð fyrir því,
að þátttakendur ráðstefnunnar
verði um 120 talsins. A blaða-
mannafundinum kom fram, að
þeir þremenningar töldu eðlilegt,
að Islendingar tækju mið af stefnu
Norðmanna í öryggismálum,
þar sem slíkt hefði jafnan verið
gert áður. Minntu þeir á, að
íslenzkir ráðamenn hefðu við inn-
göngu í Atlantshafsbandalagið
Ráðstefnuna sitja 9
Norðmenn, þ. á m.
forseti norska
Stórþingsins
flokka eru valdir af flokksfor-
ystunni til þess að sitja ráð-
stefnuna, en ennfremur situr ráð-
stefnuna fulltrúi Hægri flokksins,
þótt hann hafi eigi beinlfnis verið
valinn af forystu flokksins.
Islenzkir framámenn í stjórn-
málum munu einnig sitja ráð-
stefnuna. Allir formenn fjögurra
stjórnmálaflokka sitja hana,
nema Ölafur Jóhannesson, en í
hans stað verður Jón Skaftason
frá Framsóknarflokknum. Hinir
eru Geir Hallgrímsson frá Sjálf-
stæðisflokknum, dr. Gylfi Þ.
Gíslason frá Alþýðuflokknum,
Hannibal Valdimarsson frá Sam-
tökum frjálslyndra og vinstri
manna, en auk þess mun Einar
Agústsson, utanríkisráðherra
flytja ávarp við setningu ráð-
stefnunnar.
Framsögumenn Norðmanna
verða Guttorm Hansen, forseti
Stórþingsins, Tönne Huitfeldt
hershöfðingi og Johan Jörgen
Holst, rannsóknastjóri norsku
utanríkismálastofnunarinnar.
Fundarstjórar verða alþingis-
mannirnir Benedikt Gröndal og
Matthias A. Mathiesen.
Framhald á bls. 20