Morgunblaðið - 01.02.1974, Page 1
40 SIÐUR
26. tbl. 61. árg.
FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Golda Meir;
Israelar haf a engan
áhuga á sýrlenzku landi
Jerúsalem ogTel-Aviv 31. janú-
ar AP — NTB
GOLDA Meir forsætisráðherra
ísraels sagði í ræðu í gær, að
ísraelar hefðu engan áhuga á þvf
að halda þeim sýrlenzku svæðum,
sem þeir náðu á sitt vald í styrj-
öldinni f haust og að þeir legðu
áherzlu á að ná samningum við
Sýrlendinga um aðskilnað herj-
anna. Hún bætti þó við, að Israel-
ar myndu ekki hefja viðræður við
Sýrlendinga fyrr en þeir hefðu
afhent lista yfir fsraelska strfðs-
fanga og leyft eftirlitsmönnum
alþjóða Rauða krossins að skoða
fangabúðirnar.
Forsætisráðherrann sagði, að
ísraelar teldu, að Henry Kissing-
er utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna og sovézkir ráðamenn hefðu
hvað eftir annað reynt að fá Sýr-
lendinga til að afhenda slikan
lista, en án árangurs. Hún minnti
á, að ísraelar hefðu á sínu valdi
um 350 sýrlenzka stríðsfanga, sem
81 Pólver ji flúði af
skemmtiferðaskipi
Hamborg og Ösló,
31. janúar. NTB.
81 Pólverji flúði f land f þremur
löndum af póiska skemmtiferða-
skipinu Stefan Batory nú f vik-
unni að því er skýrt var frá f
kvöld f Hamborg, Ösló og Kaup-
mannahöfn. Hafa margir farþeg-
anna gefið sig fram við yfirvöld
og beðizt hælis sem pólitfskir
flóttamenn.
Skv. fréttastofufregnum flúðu
5 meðan skipið lá í höfn í Ösló í
fyrri viku, 12 í Kaupmannahöfn
og 64 í Hamborg, er skipið kom
þangað sl. mánudag. Útlendinga-
eftirlitið í Kaupmannahöfn og
Ósló segja, að aðeins tveir Pól-
verjar hafi gefið sig fram við yfir-
völd í Kaupmannahöfn, en v-
þýzka lögreglan skýrði frá því, að
20 hefðu beðizt hælis i Hamborg,
en 44 dveldust ennþá hjá ættingj-
um og vinum. Mál þetta hefur
vakið mikla athygli á Norðurlönd-
unum og í Þýzkalandi, en Pólverj-
arnir segja ástæðuna fyrir aðgerð-
um sinum efnahagslegar og
stjórnmálalegar aðstæður heima
fyrir.
sýrlenzk stjórnvöld virtust hafa
lítinn áhuga á að fá heim aftur.
Golda Meir- lagði áherzlu á, að
ísraelar myndu ekki undir nokkr-
um kringumstæðum setjast að
samningaborðinu með þeim, sem
hún kallaði „hryðjuverkasamtök
Araba“, og myndu ekki sam-
þykkja að þeir fengju að sækja
friðarráðstefnuna i Genf. Aðeins
deiluaðilar og fulltrúar stórveld-
anna fengju að sitja ráðstefnuna,
en að önnur riki í Miðausturlönd-
um gætu fengið að senda áheyrn-
arfulltrúa.
Moshe Dayan varnarmálaráð-
herra ísraela sagði á fundi í
Jerúsalem i dag, að hann teldi, að
Egyptar væru ánægðir með sam-
komulagið um aðskilnað herjanna
og að Egyptar myndu nú fara að
vinna að því að opna Súezskurð á
nýjan leik fyrir skipaumferð og
endurreisa borgirnar við
Framhald á bls. 22.
Nixon forseti hlustar á lófatak þingheims áður en hann flutti ræðu
sfna. I baksýn Gerald Ford varaforseti og Carl Albert forseti fulltrúa-
deildarinnar.
Nixon tekinn á orðinu
Dómsmálanefndin kallar hann sem vitni
Washington 31. jan. AP —
NTB.
í ræðu sinni í nótt til
Bandaríkjaþings umstöðu
þjóðarinnar kom Nixon
forseti mjög á óvart, er
hann lýsti því yfir undir
lok ræðunnar, sem hann
var í um 45 mfnútur að
flytja, að hann myndi
starfa með dómsmála-
nefnd þingsins að rann-
sókn á hugsanlegri máls-
höfðun á hendur sér fyrir
ríkisrétti. Mikil fagnaðar-
læti brutust út meðal þing-
manna, er forsetinn gaf
þessa yfirlýsingu.
Aður i ræðu sinni hafði hann
lýst því yfir, að hann myndi gegna
embætti út kjörtímabil sitt, en 3
ár eru eftir af þvi og lagði á það
mikla áherzlu, að hætt yrði allri
rannsókn á tengslum Hvíta húss-
ins við Watergatemálið og að
þingið og þjóðin sneru sér að því
að leysa mikilvæg verkefni á sviði
innanrikis- og utanrikismála.
Frá þvi var skýrt í Washington í
dag, að í kjölfar ræðu forsetans
hefði dómsmálanefnd þingsins
samþykkt tillögu, sem gefur
nefndinni heimild til að kalla for-
setann sem vitni i sambandi við
undirbúning á málssókn á hendur
honum. Tillagan var einróma
samþykkt, eftir að felld hafði ver-
ið tiliaga frá repúblíkönum um að
slíkum vitnaleiðslum skyldi lokið
fyrir 30. apríl.
Stjórnmálafréttaritarar telja,
að hinar góðu viðtökur, sem for-
setinn fékk hjá þingheimi, en
hann varð hvað eftir annað að
gera hlé á ræðu sinni vegna lófa-
taks, bendi til þess, að litlar likur
séu á því, að honum verði stefnt.
Meðan á ræðunni stóð reis mikill
hluti þingheims nokkrum sinnum
úr sætum til að fagna forsetanum.
Þá kom það fram i ræðu forset-
ans, að nokkrir Arabaleiðtogar
hefðu fulivissað hann um, að á
næstunni yrði haldin ráðstefna til
að fjalla um afnám oliusölubanns
til Bandaríkjanna. Hins vegar
benti ekkert til þess, að forsetinn
hefði fengið loforð um að svo yrði,
Framhald á bls. 22.
Islenzki fálkinn í hættu
r
Oþekktur sjúkdómur sem leiðir til dauða
ISLENZKI fálkinn er nú í
nokkurri hættu þar sem komið
hefur I ljós sjúkdómur í stofn-
inum, sem ekki hefur orðið
vart við fyrr f heiminum. Sam-
kvæmt upplýsingum dr. Finns
Guðmundssonar fuglafræðings
fóru að berast óeðlilega margir
dauðir fálkar til Náttúrugripa-
safnsins fyrir nokkrum árum
og við athugun kom f ljós, að
þeir voru mjög magrir og f koki
þeirra og munni voru æxli.
Dr. Finnur kvaðst ekki hafa
getað gert sér grein fyrir því
hvað þetta væri og því sent
sýnishorn af æxlum til dýra-
lækningaháskólans í Visconsin
SJALDSÉÐUR fugl sást I
Reykjavík í gær. Var það fálki,
sem var f mestu makindum að
gæða sér á rottu á klöppunum
fyrir framan útvarpshúsið.
Samkvæmt upplýsingum f
meðfylgjandi frétt er hér að
öllum likindum um sjúkan
fálka að ræða.
í Bandarikjunum. Niðurstaða
visindamanna þar var sú, að
þessi æxli stöfuðu af sníkju-
ormi, sem lifði i blóðrás
fálkans. Nefnist ormur þessi
capellaria eftir samnefndri ætt-
kvisl og er mjög lítill þráðorm-
ur. Veikin hefur hlotið nafnið
capellariasis.
Þessi veiki hefur verið
óþekkt i ránfuglum fram til
þessa og aðeins orðið vart á
islandi.
Finnur kvað sér hafa komið i
hug eftir þessar niðurstöður, að
einhver önnur veiki væri frum-
orsökin og því hefði hann sent
marga dauða fálka til dýra-
lækningaháskólans í Kaup-
mannahöfn og einnig einn
lifandi fálka, sem var mjög
langt leiddur af sjúkdóminum.
Þar er málið nú í rannsókn og
kvaðst dr. Finnur vænta mikils
af niðurstöðum visindamanna
þar, því þar væri verið að semja
ritgerð um þennan sjúkdóm og
samkvæmt siðasta bréfi frá
þeim, eru þeir ekki sannfærðir
um að þráðormarnir séu upp-
hafið að sjúkdóminum. Telja
þeir, að þessir ormar séu i
öllum fálkum, en að annar sjúk-
dómur veiki hins vegar fáikana
þannig, að þráðormarnir sem
snikjudýr leiði þá til dauða.
Taldi dr. Finnur mögulegt, að
hér gæti verið um vírusa eða
bakteríur að ræða, sem gætu
verið frumorsökin. Þess má
geta, að snýkjudýr lifa í flest-
um villtum dýrum án þess að
þeim sé mein að.
Dr. Finnur kvað þennan sjúk-
dóm valda miklum afföllum á
íslenzka fálkastofninum, en
búið væri að ganga úr skugga
um, að þau væru ekki sökum
meindýraeiturs eða illgresis.
Kvað dr. Finnur fálkann, sem
sást i fjörunni við Skúlagötuna
bæði i gær og fyrradag og með-
fylgjandi mynd er af, bera öll
einkenni fugls með fyrr-
greindan sjúkdóm, en þeir fugl-
ar, sem eru með þennan sjúk-
dóm, verða ófærir um að veiða
fugla á flugi og leita þvi á ösku-
hauga, fjörur og i bæi og leitast
Framhald á bls. 22.