Morgunblaðið - 01.02.1974, Side 3
MORGÚNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FÉBRÚAR 1974
3
L
fasu^MGirv iiii iii 11 •hmii ii iinMiin * ji'i—iiihi I ishiiiuiihi^m^m^—tfwaiMB—■—i——a——————*yMa3tgMaaH—mc—g—j—BBaa—m—Kfcaj?——>stait''i wri fi—w,|ii n m m n—ni1 i—m 11 ttj.í *• ^
Þjóðarbókhlaðan — rannsókna-
bókasafn og bókageymsla
Samkvæmt tillöguteikn
ingum w. arkitektanna Man-
freðs Vilhjálmssonar og Þor-
valds S. Þorvaldssonar verður
Þjóðarbókhlöðubyggingin alls
um 11.583 fermetrar og fjórar
hæðir. t húsinu er gert ráð fyrir
830 lessætum, bókarými verð-
ur fyrir 866.000 bindi og starfs-
lið um 73 menn. Þjóðarbók-
hlaðan verður fyrst og fremst
rannsóknabókasafn og þar
munu Landsbókasafnið og
Háskólabókasafnið verða til
húsa. Um leið er hún bóka-
geymsluhús, þar sem á Lands-
bókasafninu hvflir sú kvöð að
varðveita allt prentað mál, sem
út kemur á íslenzku.
Þessir tveir meginþættir hafa
eðlilega ráðið miklu um formun
byggingarinnar, að sögn þeirra
Manfreðs og Þorvalds. Þannig
gera þeir ráð fyrir talsvert
stóru svæði umhverfis sjálft
húsið, er afgirt verður með
1—1.50 m háum hlöðnum múr-
veggi, þannig að engu er líkara
en byggingin standi á allstórri
skál. Þetta fyrirkomulag hefur
tvöfaldan tilgang, annars vegar
að gefa byggingunni meiri
virðuleika á hinum flötu
melum allt í kring, en hins veg-
ar að vernda hana fyrir utanað-
komandi hávaða.
Múrinn endurtekur sig síðan
í neðstu hæð hússins, sem verð-
ur hlaðin á sama hátt. Einnig
það hefur sinn tilgang — að
gefa byggingunni einkenni
bókageymsluhúss, þvi að hand-
an þeirra veggja er einmitt
Þversnið
1. Anddyri
2. Spjaldskrá
3. Skráning, aðfangadeild
4. Handritadeild
5. Spjaldskrá
þjóðdeildin, sá hluti safnsins er
geymir allt efni — útlent og
innlent — um ísland, land og
þjóð, svo og er þar handrita-
deild safnsins.
Yfirleitt er fátt um glugga á
húsinu nema annarri hæð, inn-
gönguhæðinni. Hún er mjög
opin út á við, enda eru þar
saman komnir þeir þættir bóka-
safns, sem ekki krefjast næðis.
Á þessari hæð eru raunar einu
innkomu- og útgönguleiðir bók-
hlöðunnar og er það gert af
öryggisástæðum. Þar er einnig
hin almenna afgreiðsla safns-
ins, spjaldskráin ásamt hand-
bókum og öllu uppsláttarefni,
kaffistofa, fyrirlestrarsalur,
sýningasvæði, tímarita- og dag-
blaðalesstofa. Svo og hefur
stjórn safnsins aðsetur sitt á
þessari hæð.
Með þessari lausn eru spjald-
skrár og afgreiðsla safnsins
miðsvæðis í húsinu, þar sem
þjóðdeild og handritadeild
liggja einni hæð neðar og sjálf-
beini safnsins á tveimur hæð-
um fyrir ofan. Sjálfbeini er
eins konar siálfsafereiðsla á
bókum, þar sem skiptast á bæk-
ur og lesrými. Þessi lausn er
algeng í rannsókna- og háskóla-
bókasöfnum í Bandarikjunum,
en á fáar fyrirmyndir i
evrópskum söfnum.
Einkenni í útliti byggingar-
innar eru fjórir turnar í útjaðri
austur- og vesturhliða hennar.
Manfreð var spurður um til-
gang þeirra og svaraði hann því
til, að það, sem ráðið hefði
6. Þjóðdeild
7. Bókageymslur
8. öryggisgeymsla
9. Sjálfbeinar
10. Lesrými
mestu um Iausn hússins hefði
verið að fá sem samfelldast
gólfrými, svo að húsakynnin
fengju sem mestan sveigjan-
leika. Fyrir bragðið er húsráð-
endum mikið sjáfsvald sett
hvar þeir setja niður bækur og
lestrarrými hverju sinni og
auðvelt er að breyta þeirri
skipan á nýjan leik. Turnarnir i
útjaðrinum eru fyrst og fremst
hafðir vegna stiga, lyftna,
snyrtinga og lagna. Allt, sem
getur valdið hávaða, er dregið
út úr sjálfu húsinu inn í þessa
turna, svo og allar hættulegar
vatnslagnir, því að vatn mun
vera jafnvel hættulegra bókum
en eldur. Þá má geta þess, að í
teikningum sínum hafa þeir
Manfreð og Þorvaldur hagað
formun hússins með tilliti til
þess, að hægt sé að stækka það í
áföngum seinna meir.
Við gerð forsagnar og frum-
uppdrátta hefur verið leitað til
brezks arkitekts, H. Faulkner
Brown, en hann er kunnur
fyrir afskipti af þessari gerð
háskóla- og rannsóknabóka-
safna. Auk arkitekta hafa bóka-
verðirnir Einar Sigurðsson og
Ólafur Pálmason unnið að gerð
forsagnar, en því starfi hefur
Finnbogi Guðmundsson, lands-
bókavörður stýrt. Verk-
fræðingar eru Bragi Þorsteins-
son og Eyvindur Valdemarsson,
sem önnuðust hönnun hurðar-
virkis, Kristján Flygenring
annaðist hönnun loftræsingar,
Sigurður Halldo'rsson hönnun
raflagna en garðarkitekt er
Reynir Vilhjálfsson.
I húsbyggingarnefnd eiga
sæti háskólarektor, húsa-
meistari rikisins og landsbóka-
vörður, sem er formaður nefnd-
arinnar. Ráðgjafar byggingar-
nefndar að fyrstu forsögn hafa
verið H. L. Tveteráas, lands-
bókavörður í Noregi, og enski
arkitektinn og bókasafns-
fræðingurinn Edward J.
Carter.
10 9 rr-r Á 10
10 9 r JL 10
3 Áf! 2
il 5 4
i n inzn
Þversnið af Þjóðarbókhlöðunni
Þorvaldur S. Þorvaldsson Manfreð Vilhjálmsson
Hér má sjá tilhögun í sjálfbeina — á þriðju og fjórðu
hæð Þjóðarbókhlöðunnar — samkvæmt tillöguteikn-
ingum þeirra Manfreðs og Þorvalds
Hæð þrjú og f jögur
1. Varzla 5. Lesbásar
2. Hljóðdeild 6. Bókasafnsfræði
3. Málstofa (fyrirlestrasalur, 7. Bækur í sjálfbeina
hópvinnusalur) 8. Vélritun
4. Lesrými í sjálfbeina 9. Stingar, lyftur, snyrting
Sigfinnur Gunnar
Geir
Ölafur
Albert
Ásthildur Birgir
Sigurður Árni
Ólafur Markús
Lárus
Ráðstefna um sveitar-
stjórnarmál hefst í dag
RAÐSTEFNA Sjálfstæðisflokks-
ins um sveitarstjómarmál hefst i
dag kl. 9.30 á Hótel Loftleiðum og
stendur í tvo daga, en þriðja dag-
inn verður á sama stað ráðstefna
um undirbúning sveitarstjórnar-
kosninga. Ráðstefnan í dag hefst
með því, að formaður flokksins,
Geir Hallgrimsson, flytur ávarp.
Þá verða flutt fimm framsögu-
erindi. Ólafur B. Thors borgar-
fulltrúi talar um framtíðarverk-
efni og tekjustofna sveitarfélaga,
Ásthildur Pétursdóttir, bæjarfull-
trúi i Kópavogi talar um frum-
kvæði sveitarfélaga i félagslegri
þjónustu, Birgir Isl. Gunnarsson
borgarstjóri talar um verndun
náttúru og mótun umhverfis, Sig-
urður Sigurðsson verzlunarmaður
frá Akureyri talar um byggða-
stefnu og Árni Grétar Finnsson
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði talar
um orkumálin og sveitarfélögin,
En gert er ráð fyrir, að framsögu-
erindum verði lokið fyrir hádegí.
Kl. 14 hefst fundur aftur og
munu þá starfa umræðuhópar.
Umræðustjórar eru Ólafur G. Ein-
arsson alþingismaður, Markús
örn Antonsson borgarfulltrúi,
Lárus Jónsson alþingismaður,
Sigfinnur Sigurðsson hagfræðing-
ur og dr. G unnar Sigurðsson verk-
fræðingur. Verður fundi frestað
kl. 18 I dag, en haldið áfram á
morgun, laugardag, en þá verða
lögð fram álit umræðuhópa kl.
10—12 og fara fram umræður um
þau. Kl. 14 á laugardag fara fram
almennar umræður, en kl. 16
verður sameiginleg kaffidrykkja í
nýja Sjálfstæðishúsinu og flytur
Albert Guðmundsson borgarfull-
trúi þá ávarp. En kl. 17 verður
ráðstefnunni framhaldið og lokið
um kvöldmatarieyti
Allir fulltrúar f sveitarstjórn-
um á landinu, er fylgja Sjálfstæð-
isflokknum að málum, eru boðað-
ir tíl ráðstefnunnar, svo og sunnu-
dagsráðstefnunnar, og einnig full-
trúar í flokksráði Sjálfstæðis-
flokksins.